Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 7
Laugardagur 15. desember 1990 - DAGUR - 7 -I bækur Ævrniinningar Erlings Þorsteinssonar læknis IÐUNN hefur gefið út Ævi- minningar Erlings Þorsteinssonar læknis, sem hann sjálfur hefur skrifað. Fjöldi ljósmynda fylgir efni bókarinnar. í kynningu útgefanda segir: „Erlingur Þorsteinsson læknir hefur frá mörgu að segja af langri og viðburðaríkri leið. Frásögnin er krydduð glettni og gaman- semi, víða er komið við og manna og málefna minnst af hreinskilni ogeinurð. Hann dreg- ur upp persónulega mynd af föð- ur sínum, Þorsteini Erlingssyni skáldi og lýsir á eftirminnilegan hátt æskuheimili sínu. Úr skjóli foreldrahúsanna ligg- ur leiðin til náms og starfa, og að loknu sérnámi í háls-, nef- og eyrnalækningum á stríðsárunum í Danmörku snýr hann heim reynslunni ríkari eftir að hafa lent í lífshættulegum ævintýrum þar. Af alúð og einbeitni tekst hann á við læknisstarfið, hugðar- efnin og baráttumálin. Hér er á ferðinni frásögn mikils athafna- manns." íslensk alþýðuskáld - ljóð eftir 100 höfunda Bókaútgáfan Hildur hefur sent frá sér bókina íslensk alþýðu- skáld, í samantekt Steinunnar Eyjólfsdóttur. I kynningu á bókarkápu segir m.a.: „Engin er sú listgrein sem jafn mikið og almennt er stunduð, sem orðsins list, og það eru íslensku alþýðuskáldin, sem að meginhluta hafa plægt jarð- veginn fyrir þá menningarupp- skeru sem á íslandi þrífst.“ í íslenskum alþýðuskáldum eru ljóð, mismörg og mislöng, eftir 100 höfunda. í flestum til- fellum hafa ljóðin ekki birst áður á prenti. Sem fyrr segir safnaði Steinunn Eyjólfsdóttir til þessar- ar útgáfu og ritar auk þess for- mála. íslensk alþýðuskáld er 388 blaðsíður að stærð. ATHYGLISVERBAR BÍLDUDALSKÓNGURINN ATHAFNASAGA PÉTURS J. TH0RSTEINSS0NAR ÁSGEIR JAKOBSSON Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem var frumherji í atvinnulífi þjóðarinnar á síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns, sem vann það einstæða afrek að byggja upp frá grunni öfiugt sjávarpláss; hetjusaga manns, sem þoldi mikil áföll og marga þunga raun á athafnaferlinum og þó enn meiri f einkalífinu. SONUR SÓLAR RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI ÆVAR R. KVARAN Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton, sem dýrkaði sólarguðinn og var langt á undan sinni samtíð. Meðal annarra rit- gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf- steinn Björnsson mið'ill; Vandi miðilsstarfs- ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun- ar; Er mótlæti í lífinu böl?; Himnesk tónlist; Hefur þú lifað áður? SKUGGSJÁ 1 BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF MYNDIR ÚR LÍFIPÉTURS EGGERZ, FYRRVERANDI SENDIHERRA GAMAN 0G ALVARA PÉTUR EGGERZ Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sínu sem lítill drengur í Tjarnargötunni í Reykjavík, þegar samfélagið var mótað af allt öðrum viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann um það, er hann vex úr grasi, ákveður að nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis- þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur hefur kynnst miklum Qölda fólks, sem hann segir frá í þessari bók. KENNARI Á FARALDSFÆTI MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI AUÐUNN BRAGISVEINSSON Auðunn Bragi segir hér frá 35 ára kennara- starfi sínu í öllum hlutum landsins. Hann greinir hér af hreinskilni frá miklum íjölda fólks, sem hann kynntist á þessum tíma, bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá kennslu sinni og skólastjórn á fimmtán stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol- ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi og í Ballerup f Danmörku. Auglýsing frá menntamálaráðuneytinu. Stöðupróf í framhaldsskólum Stöðupróf í framhaldsskólum á vorönn 1991 eru haldin sem hér segir: Mánudaginn 7. jan. kl. 18.00 enska. Þriðjudaginn 8. jan. kl. 18.00 þýska. Miðvikudaginn 9. jan. kl. 18.00 danska, norska, sænska. Fimmtudaginn 10. jan. kl. 18.00 franska, spænska, stærðfræði. Prófin eru haldin í Menntaskólanum við Hamra- hlíð og eru opin nemendum úr öllum framhalds- skólum. Þeir sem ætla að gangast undir þessi próf eru beðnir um aö tilkynna þátttöku sína á skrifstofu Menntaskólans við Hamrahlíð. Skráning er hafin. Jolagjafir i i ■■■ ■ immm PHILIPS VKR 6843 upptökuvél og myndband. Vélina má tengja beint við sjónvarp. Vegur adeins 1,3 kg. Dagsetn- ing og klukka sjást við upplöku. Sjálfvirkur fókus- og birtustillir. Mjögljósnæm 10lux. Ljósop 1,2. PHILIPS AS 9500 hljómflutnings- samstæ&a med geislaspilara og fjarstýringu.Hálfsjálfvirkurplötuspilari. Stafrænt útvarp með minni og sjálfleitara. Magnarinn er2x40músík Wöttmeð tón- jafnara. Tvöfalt snæidutæki með tvöföld- um upptökuhraða. Geislaspilarinn með 20 laga minni. Sjáifvirkur leitari. Þriggja- átta hátalarar. Fullkomin fjarstýhng sem stýrir öllum aðgerðum. F 1385 hljómtækjasamstæda án fjarstýringar. Verð kr. 44.400,- Stgr. kr. 39.450.- C995.- wl KR. STGR. PHILIPS AQ 5190 steríó útvarp og segulband. Handhægt og létt. Sjálfvirk upptökustilling. 8 Watta magnari. Inn- byggður hljóðnemi. VERÐ KR: 11.400 10,830, I wIkr. stgr. PHILIPSAW 7791 fullkomid steríó útvarp og tvöfalt segul- band. Kraftmikill 16 Watta magnari. FM og miðbylgja. 3ja banda tónjafnari. Si- spilun á snældu. Tvöfaldur upptökuhraði. Tveggja átta hátalarar sem haegt er að losa frá samstæðunni. PHILIPS GR 1250 sjónvarp. 20 tommu hágæða litaskjár. Fullkomin þráðlaus fjarstýring sem stýrir öllum aðgerðum. Sjálfleitari. 40 stöðva minni. Frábær hljómgæði úr hátalara framan á tæki. Sjálfslökkvandi stillir. VERD KR: 39.900 PHILIPS VR 6349 HQ myndband. Myndleitari í báðar áttir með tvöföidum hraða. Ramma fyrir ramma færsla. Hægur hraði. Leitarhnappur tengdur teljara. 365 daga upptökuminni. Fjarstýring sem stýriröllum aðgerðum. RðDIONAU Geislagötu 14

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.