Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 16

Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - Laugárdaguí* I5f desehrtbér 1990 bílar i HAGKAUP Akureyri Mitsubishi Galant 4WD. Afturhlerinn opnast vel og góðar hirslur eru í bílnum. Mítsubishi Galant 4VVI) eru sífellt aö batna. Galantinn er nefnilega hljóðlátur og hefur óvenjugóða fjöðrun sem gæti verið enn betri með stífari demp- urum. Galantinn kom fyrst á markað- inn í þessum búningi 1987 en 5 dyra hlaðbakur ári síðar. Bíllinn sem ég ók var GLSi og því ríku- lega búinn tækjum og tólum eins og títt er um bíla með svona marga stafi á skottlokinu. Frá- gangur er ágætur og stjórntækj- um og mælum mjög vel fyrir komið. Loftræsi- og miðstöðvar- kerfið er sérlega öflugt og þægi- legt. Sætin eru góð, rýmið nægilegt bæði í fram- og aftursætum, en farangursrýmið er talsvert minna en í eindrifsútgáfunni, þar sem afturdrifið tekur talsvert pláss og því verður farangursrýmið grynnra. Afturhlerinn opnast hins vegar vel og nokkuð gott er að lesta og losa bílinn. Óvenju- margar hirslur eru fyrir smádót en ekki allar stórar. Vélin í Galantinum er 2.0 lítra 112 liö. Hún er hljóðlát og þýð- geng og á auðvelt með snúning, kann jafnvel best við sig um 4000 sn/mín. Bíllinn er á hinn bóginn nokkuð þungur svo það veitir ekkert af vélaraflinu. Gírkassinn er ágætur og gírhlutföllin heppi- leg, þótt e.t.v. kunni einhver að hafa áhuga á lægri 1. gír á al- drifsbíl. Gírskiptingin var svolít- ið stirð en bíllinn var líka nærri glænýr. Fjöðrunin og hljóðeinangrun frá vegi var það sem kom mest á óvart. Galantinn fjaðrar ágætlega og líklega er aldrifsbíllinn ekki síðri en sá með framdrifinu, því aldrifsbíllinn er talsvert þyngri. Hann liggur vel á vegi og er rás- fastur. í beygjum er hann stöðug- ur og nær hlutlaus við allar venju- legar aðstæður. Sjálfstæð fjöðrun er á öllum hjólum í aldrifsbíln- Stjórntækjum er vel fyrir komið í Galant. koma í heimsókn kl. 16.15-18.15 í dag VeríÖ velkomin. Ég átti þess kost að grípa aðeins í fjórhjóladrifinn Galant á dögun- um. Bíllinn hafði skráningar- númer sem byrjaði á bókstöfun- um OJ-(bara). Það er hins vegar ekki hægt að segja um bílinn sjálfan því hann er hinn ánægju- legasti að flestu leyti. Bíllinn var hlaðbakur eins og innflytjandinn Hekla hf. kýs að nefna 5 dyra bíla. Aksturinn var fremur stuttur en þó nægilega langur til að sýna og sanna að japanskir aldrifsbílar Gerð: Mitsubishi Galant GLSi 4WD, 5-dyra fólksbíll, vél að framan, aldrif. Vél og undirvagn: 4-strokka, fjórgengisbensínvél, vatnskæld, yfirliggjandi knastás, bein eldsneytisinnspýting, slagrými: 1997 cm; borvídd: 85,0 mm, slaglengd: 88,0 mm, þjöppun 9,0:1, 109 hö við 5500sn/mín, 159 Nm við 4500. Drif á öllum hjólum, 5 gíra gírkassi, mismunadrif með sjálfvirkri læsingu milli fram- og afturása. Sjálfstæð fjöðrun að framan með þverarmi að neðan og gormlegg. Að aftan þverarmar, gormar og demparar. Jafnvægisstangir að framan og aftan. Aflstýri, aflhemlar, diskar að framan og aftan, handbremsa á afturhjólum. Hjólbarðar 195/65 R 14 H, eldsneytisgeymir 62 lítra. Mál og þyngd: Lengd 454,0 cm; breidd 169,5 cm; hæð 143,9 cm; hjólahaf 260,0 cm; sporvídd 146,0/145,0 cm; eigin þyngd ca. 1.338 kg; hámarksþyngd 1.840 kg. Framlciðandi: Mitsubishi Motors Corporation, Japan. Innflytjandi: Hekla hf. Reykjavík. Umboð: Höldur sf. Akureyri. Verð: Ca. kr. 1.500.000. um, og hefur það örugglega já- kvæð áhrif á fjöðrun og aksturs- eiginleika Galantsins. Aldrifsbúnaðurinn er einfaldur og líklega nokkuð öruggur, þ.e. venjulegt mismunadrif milli ásanna með seigjulæsingu (Visco) og 50/50 átaksdreifingu milli ásanna. Búnaðurinn virtist vinna vel á venjulegum malarvegi og aldrei varð vart þvingunar í drifbúnaðinum. Diskabremsur eru svo á öllum hjólum, sem virtust óaðfinnan- legar, enda þarf góðar bremsur á aldrifsbíla, svo ökumenn fari sér síður að voða. Vökvastýrið er nægilega nákvæmt og ekki of létt. Mitsubishi Galant fæst í nokkr- um útgáfum fyrir utan þennan sem hér er lýst og má þar nefna sérstaklega Galant GTI 16V Dynamic 4. Sá hefur 144 ha vél og fjórhjólastýri, auk aldrifs. Galant GLSi 4WD er að mörgu leyti afbragðs bíll með góða og örugga aksturseigin- leika, aldrif og sérlega góða miðstöð, og verður því að teljast hinn ágætasti kostur ef menn eru í bílahugleiðingum í skammdeg- inu. Vélin er þýðgeng og hljóðlát. Umsjón: Úlfar Hauksson A

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.