Dagur - 15.12.1990, Side 17
Laugardagur 15. desember 1990- DAGUR -17
poppsíðan
Madonna hneykslar enn og aftur
Áriö 1990 ætlar að veröa í meira
lagi viðburöaríkt hvað varðar
ýmislegt sem miður fer og veldur
hneykslun í heimi poppsins. Sí-
fellt hafa borist fregnir af allskyns
uppátækjum og gjörðum hinna
ýmsu stjarna poppsins, sem ekki
hafa beint talist til fyrirmyndar og
vakið undrun og hneykslun al-
mennings. Hefur Poppsíðan
skýrt frá sumum þessara uppá-
tækja og hefur ekki öll vitleysan
verið eins hvað þau varðar.
Guns ’n’ Roses, (þá sérstak-
lega söngvarinn W. Axl Rose)
Stone Roses, Kevin Rowland,
(forsprakki Dexy’s Midnight
Runners) Fine Young Cannibals
og svo hún Madonna hafa þar öll
komið við sögu m.a. og þá
Madonna einmitt sýnu oftast. Er
hreint með eindæmum hversu oft
hún hefur vakið umræður og
hneykslun með gjörðum sínum
og þyrfti heilt helgarblað Dags til
Madonna hefur verið iðin við að
hrella landa sína á árinu sem er að
líða.
aö skýra frá þeim öllum.
Það nýjasta er að hún hefur
gert allar kvenréttindakonur og
alla siðapostula í Bandaríkjunum
fokill og hneyksluð með mynd-
bandinu við lagið Justify My
Love. Eru í því sýnd samskipti
kynjanna á nokkuð djarfan hátt
og ýmsir líkamspartar þykja sjást
meir en góðu hófu gegnir, þar á
meðal söngkonunnar sjálfrar. Vill
þetta blessaða fólk meina (sér-
staklega kvenréttindafrömuðirn-
ir) að með þessu myndbandi sé
Madonna að gera lítið úr konum
og smáni þær á versta hátt.
Söngkonan hefur látið sér fátt um
finnast um þessa gagnrýni og
segir myndbandið sína aðferð
við að tjá ástina og að hún geri
ekki hlutina nema á þann veg
sem henni líki best sjálfri.
Eftir því sem umsjónarmaður
Poppsíðunnar kemst næst hefur
myndbandið ekki verið bannað í
Bandaríkjunum eins og oft hefur
orðið raunin með umdeild mynd-
bönd, en það er vitað að áður-
nefndir hópar hafa reynt að fá
bann það það. Hér á landi verður
það örugglega ekki bannað og
getur fólk því dæmt hvert fyrir sig
þegar það birtist. (Ef það hefur
þá ekki birst nú þegar).
c
LAHDSVIRKJUN
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar hér meö eftir tilboðum í smíöi
stálhluta í undirstöður, stagfestur o.fl. vegna bygg-
ingar 220 kV Búrfellslínu 3 (Sandskeið-Hamranes) í
samræmi við útboðsgögn BFL-12.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar
að Háaleitisbraut 68, Reykjavík, frá og með fimmtu-
deginum 13. desember 1990 gegn óafturkræfu
gjaldi að upphæð kr. 2000,-.
,Smíða skal úr ca. 50 tonnum af stáli, sem Lands-
virkjun leggur til. Hluta stálsins skal heitgalvanhúða
eftir smíði.
Verklok eru 15. febrúar, 1. mars og 1. apríl 1991.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa-
leitisbraut 68,103 Reykjavík, eigi síðar en föstudag-
inn 28. desember 1990 fyrir kl. 12.00, en tilboðin
verða opnuð þar þann dag kl. 13.30 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjavík 10. desember 1990.
Hitt og þetta
Happy Mondays
Nýjasta breiðskífa Manchester-
hljómsveitarinnar ágætu Happy
Mondays sem kallast Pills ’N’
Thrills and Bellyaches og út kom
fyrir skömmu, hefur fengið nokk-
uð öðruvísi meðhöndlun hvað
útgáfu og dreifingu varðar á
Evrópumarkaði. Þannig er að
útgáfufyrirtæki Happy Mondays,
Factory Records, hefur notað nýju
plötuna þeirra í tilraunaskyni til
að prófa nýjar leiðir í útgáfu og
dreifingu. Felst dreifingin í því að
í stað þess að fela einu ákveönu
fyrirtæki hana, þá er samið við
fleiri en eitt fyrirtæki sem þeir
forráðamenn Factory Records
telja að geti verið mun hag-
kvæmara. Ekki eru þó allir á eitt
sáttir hvað varðar þessa tilrauna-
starfsemi og hefðu þeir sem
höndla með umboðsmál Happy
Mondays heldur viljað samning
við eitt fyrirtæki þar sem þeir
segja að erfiðara sé að samhæfa
dreifinguna þegar fleira en eitt
fyrirtæki eigi í hlut. En hvað sem
breyttu formi á útgáfu og dreif-
ingu líður þá hefur ekki þurft að
kvarta yfir sölu á plötunni því
strax seldust af henni 150.000
eintök í forsölu og í heimaland-
inu fór hún á topp tíu strax í
fyrstu viku.
Paul Weller
Fyrrum forsprakki TheJam og The
Style Council, Paul Weller er nú
skriðinn úr skel sinni á ný og hef-
ur sett saman nýja hljómsveit
undir nafninu The Paul Weller
Movement. Er kappinn nú lagstur
í tónleikaferðalag um Bretland
og markar það endi á tveggja ára
hléi hjá honum frá sviðinu. Er
þessi nýja hljómsveit Wellers í
stærra lagi og inniheldur m.a.
blástursleikara af ýmsum
gerðum. Á efnisskránni verður
eitthvað um nýsmíðar auk eldra
efnis frá tíma Jam cg Style Counc-
il. Ekki er vitað um hugmyndir
Wellers hvað varðar upþtökur á
nýja efninu en væntanlega mun
það skýrast með nýju ári.
Eagles áfram í gröf sinni
Fyrr á þessu ári, nánar tiltekið í
mars, hittust fyrrum félagarnir í
kántrírokksveitinni frægu The
Eagles, Don Henley og Glenn Frey,
á ný og fóru að semja lög saman.
Kom þessi samdráttur þeirra af
stað sögusögnum um að þeir
ætluðu að endurreisa Eagles og
feta þar með í fótspor margra
annarra fornfrægra kollega sinna.
Hafi eitthvað reynst til í þessum
sögusögnum þá virðist nú Ijóst
að ekkert verður af endurkomu
Eagles a.m.k. ekki í bili því Henley
hefur nú snúið sér alfarið að því
að undirbúa gerð nýrrar sóló-
plötu. Kemur hún í kjölfar plötunn-
ar The End of the innocence sem
Umsjón:
Magnús Geir
Guðmundsson
hlaut mjög góöar viðtökur á sín-
um tíma.
Donington ’91
Þótt enn sé um ár þangaö til Don-
ingtonrokkhátíðin 1991 verður
haldin eru menn samt farnir að
spá í hvaða hljómsveitir munu
koma fram. Er nú sterkur orð-
rómur um að það verði ástralska
stórsveitin AC/DC með gítargoðið
Angus Young í broddi fylkingar
sem hljóti það hnoss að verða
aöalhljómsveit hátíðarinnar og
þá hefur nafn Skid Row verið
nefnt sem ein af þeim hljómsveit-
um sem fram munu koma. Um
þetta hefur ekkert fengist stað-
fest en Ijóst þykir að AC/DC komi
sterkt til greina ekki síst vegna
hinnar miklu velgengni sem
hljómsveitin hefur notið með nýju
plötunni sinni Razors Edge að
undanförnu.
Björn Sigurðsson, Garðarsbraut 7, Húsavík,
sími 96-42200, fax 96-42201.
Sérleyfisferðir & vöruflutningar.
HÚSAVÍK-AKUREYRI-HÚSAVÍK
10. desember 1990 til 07. janúar 1991.
Laugard. 15. des. Frá Húsavík kl. 09.30 Frá Akureyri kl. 17.00
Sunnud. 16. des. kl. 19.00 kl.21.00
Mánud. 17. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Þriðjud. 18. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Miðvikud. 19. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Fimmtud. 20. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Föstud. 21. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Laugard. 22. des. kl. 09.30 kl. 17.00
Fimmtud. 27. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Föstud. 28. des. kl. 08.00 kl. 16.00
Miðvikud. 02. jan. kl. 08.00 kl. 16.00
Fimmtud. 03. jan. kl. 08.00 kl. 16.00
Föstud. 04. jan. kl. 08.00 kl. 16.00
Sunnud. 06. jan. kl. 19.00 kl.21.00
Síðan venjuleg vetraráætlun.
AFGREIÐSLUR
Húsavík: Björn Sigurðsson, Garðarsbraut 7, sími 96-42200.
Akureyri: Umferðamiðstöðin, Hafnarstræti 82, sími 96-24442.
Farsímar: 20034, 20035, 20036, 25730, 27540, 33680 og 33690.
Hljóðfæri og fylgihlutir
Blásturhljóðfæri svo sem:
Blokkflautur, þverflautur, klarinett, trompett o.fl.
Gítarmagnar
Hljómborðs-
magnarar
Bassamagnarar
Magnarakerfi
Klassískir gítarar, rafgítarar, þjóðlagagítarar, rafbassar
Hljómborð margar gerðir fyrir heimili og/eða hljómsveitir
Hijóðnemar
Shure
Sennheiser o.fl.
W.BUÐIN
Sf 22111
ITVJU
1 Harmonikur heimsþekkt merki:
Borsini, Bugari, Victoria. Margar stærðir
Trommusett, trommutöskur, cymbalar,
skinn o.fl.