Dagur - 15.12.1990, Blaðsíða 21
Saga þjóða er einn af hornsteinum
menningar þeirra. Þetta er alkunn stað-
reynd, og yfirleitt viðurkennd, a.m.k. í
orði. íslendingar hafa stundum verið
nefndir söguþjóðin, og er þá vitnað til
almenns áhuga á íslandssögunni, ís-
lendingasögum, sagnaritun, ættfræði og
almennri söguhefð.
Nú er þaö viðurkennt að saga er
nauðsynleg námsgrein í skólum.
Skyldunámið felur í sér kennslu um
helstu merkisatburði íslandssögunnar,
svo sem sjálfsagt og eðlilegt er, en minni
áhersla er lögð á að kynna lífskjör og
hugsunarhátt kynslóðanna á hinum
ýmsu tímum. Sú staðreynd gefur tilefni
til að staldra við og huga örlítið að þess-
um málum.
Kennarar vita að mikilvægt er að vekja
áhuga nemenda á námsefni, eigi vel að
ganga. Þá er ekki síður nauösynlegt að
tengja efnið við nútímann eða raunveru-
leika nemenda, og gildir það ekki síst í
grein eins og sagnfræði. Þeim sem
steypa sér út i sögugrúsk af aivöru
verða almenn lífskjör, aöbúnaður og
staðhættir fólksins í landinu oft fullt eins
ofarlega í huga og svonefndir merkis-
viðburðir íslandssögunnar.
Ættfræði er sá þáttur sögunnar sem
mikilvægt er að kynna nemendum
snemma á skólagöngu. íslendingar eru
svo lánsamir aö eiga góðar ættfræði-
heimildir og merka fræðimenn á þvi
sviði. Ekki er vist að öll sú vinna sem
lögð hefur verið í ættfræði á þessari öld
verði metin að verðleikum af núlifandi
kynslóðum, það á tíminn eftir að leiða í
Ijós.
Hitt er annað mál, að sorglegt er til
þess að vita hversu foreldrar og jafnvel
afar og ömmur vanrækja stundum að
fræða börnin um „gamla daga.“ Alþekkt
er dæmið um barnið sem vissi ekki bet-
ur en að á landnámsöld hefði verið raf-
magn á öllum bæjum, og fólkið hefði
stytt sér stundir við að horfa á sjónvarp
og hlusta á útvarp. Þetta dæmi er
kannski öfgakennt, en hvernig er hægt
að ætlast til að börn viti það sem þeim
hefur aldrei verið sagt? Á tímum stór-
stígra framfara, menningarbyltinga og
lífskjarabreytinga er mikilvægt að
fræðsla um fortíðina fari ekki forgörðum.
Börn lesa ekki fræðirit sem ætluð eru
fullorðnu fólki, þess vegna er það hlut-
verk uppalenda, kennara og foreldra, að
veita nauðsynlega fræðslu, fara með
börnin á minjasöfn og síðast en ekki
síst, vekja með þeim lifandi áhuga á
sögunni.
Skólakerfið er þannig úr garði gert að
takmarkaður tími gefst til að sinna þátt-
um eins og þeim sem hér er minnst á.
Það kemur því í hlut fjölskyldnanna að
veita stóran hluta af þjóðlegri fræðslu. Á
hverju heimili ættu að vera til aðgengileg
rit um íslandssöguna, en ekkert kemur
þó í stað lifandi frásagnar eldri kynslóða.
Með því að sá frækorni reynslunnar í
barnshugann á slíkan hátt er oft hægt að
vinna meira gagn en þykkar kennslu-
bækur fá megnað. Egill H. Bragason
Laugardagur 15. desember 1990 - DAGUR - 21
Akureyringar og nærsveitamenn:
Hræringu. __________
súru slátri
- ný bók eftir
Stefán Þór Sæmundsson.
★ Ástir og óskapnaður.
★ Átök og gamanmál.
Bókin fæst í Bókabúð Jónasar
Aðalfundur
Iðnþróunarfélags Þingeyinga
og undirbúningsstofnfundur Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga hf. verður haldinn á Hótel Húsavík, 4.
hæð, 17. des. kl. 13.00.
Venjuleg aðalfundar- og stofnfundarstörf.
Iðnþróunarfélag Þingeyinga.
8 FRAMSÓKNARMENN ||||
AKUREVRI
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90
sunnudaginn 16. desember kl. 17.00.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
SBA
SÉRLEYFISBÍLAR
AKUREYRAR S/F
Akureyri-Mývatn-Akureyri
um jól og áramót 1990
Frá Akureyri Frá Reynihlíð
20. desember ’90 kl. 20.00 ..............
21. desember ’90 kl. 20.00 kl. 08.00
28. desember ’90 kl. 14.00 kl. 17.00
02. janúar ’90 ............... kl. 08.00
Upplýsingar og farpantanir Umferðamiðstöðin s.
24442 og Hótel Reynihlíð s. 44170.
Símar í áætlunarbíl 985-27183 eða 985-22037.
Auglýsendur
•Svpnjwwif
V OO’ll 'ÍH J!Jfy■‘oSuisfjStw ujatjs
jvpv vjuvd QV pV(j QVJÍjJvSpij
l 'VJVAJlJ&f vSvp vfl Q3W vjuvd QV
fiv(f jtj So jvSutsfjSnv ijjsjjs JVjjy
•Svpnjwwtf v 00'PI
•jjj jtj jnjsdjfvjtjjs Jd v(j 'QvjqjvSjaij
t vwau ‘SvpnfvSjn juff uutSvp
OO’ll ’M W ja vSutsfjSnvvws vqa
pptajq v (uta qj) vjjjvp vfz tua was
vSutsfjSnv jnjsajfvjtjj
œjr
auglýsingadeild
Stmi 96-24222