Dagur - 20.02.1991, Síða 6

Dagur - 20.02.1991, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 20. febrúar 1991 ----------------------- Stórutjarnaskóli Stjórnmálafundur Almennur stjórnmálafundur um landbúnaðar- og byggðamál verður haldinn í Stórutjarnaskóla, föstudaginn 22. febrúar kl. 21.00. Frambjóðendur Framsóknarflokksins Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Guðmundur Stefánsson og Daníel Árnason mæta á fundinn. Framsóknarflokkurinn. __________________________________________/ AKUREYRARB/ER Námskeið á vegum Iþrótta- og tómstundaráðs: Saumanámskeið verður haldið í félagsmiðstöð- inni Lundarskóla fyrir mæður ungra barna. Kennt að taka snið upp úr blöðum og sauma ein- faldan fatnað. Það er velkomið að taka börnin með. Það er ágæt aðstaða á staðnum fyrir þau. Leiklistarnámskeið. Þar verður kennd framsögn, listræn tjáning, „sirkus“atriði o.fl. Dansnámskeið. Þar verða kenndir ýmsir skemmtilegir dansar. Innritun og nánari upplýsingar á skrifstofu íþrótta- og tómstundaráðs, Strandgötu 19 B, sími 22722. íþrótta- og tómstundaráð Akureyrarbæjar — AKUREYRARB/íR Næsta vinabæjamót verður í Lahti, Finnlandi, 25.-30. ágúst nk. L A h r i Þeir unglingar á Akureyri, sem hug hafa á að taka þátt í vinabæjamótinu, geta sótt um þátttöku í einhverri af þeim dagskrám, sem taldar eru upp hér á eftir. Þar sem væntanlegir þátttakendur þurfa að hafa einhverja reynslu að baki, þá bend- um við þeim, sem litla reynslu hafa á viðkomandi sviði, á að þau námskeið sem auglýst eru hér að ofan í leiklist og dansi, verða að hluta miðuð við þær dagskrár, sem í boði verða á vinabæjamót- inu í Lahti. Dansleikhús: Þátttakendur 15-25 ára. Æfð upp dansatriði, sem byggja á innlendri þjóð- sögu. Undirbúin kynning á íslenskri dansmennt. Leiklistarhópur: Þátttakendur 14-25 ára. Æft upp leikverk, til að sýna áhorfendum, sem ekki skilja viðkomandi tungumál. „Cirkus“: Þátttakendur 13-18 ára. Æfð „cirkus“verkefni, notkun búnaðar, „akrobatik" o.fl. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu menningarmála, Strandgötu 19 B, sími 27245. Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar mmm^mmmmmmmmmmmmmmmtmmmmm^mmmmmmmamm „Okkur er algjör lífsnauðsyn að hafa fólkíð héma með okkur“ - segir Fjóla Stefánsdóttir, hótelstjóri á Húsavík Fjóla Stefánsdóttir tók við stöðu hótclstjóra á Hótel Húsavík nú í febrúar. Fjóla hefur áður séð um rekstur hótelsins ásamt Frímanni Sveinssyni, matreiðslumcist- ara, um eins árs skeið. Nýjum herrum fylgja oft nýir siðir og Dagur leit við á Hótel Húsavík um daginn og spurði nýja hótel- stjórann um deili á sjálfum sér og sínum hugmyndum um hótelrekstur. Fjóla er Akureyringur. Hún er fædd og uppalin á Akureyri og þar bjó hún þar til fyrir fimmtán árum að hún fluttist að Laxár- virkjun ásamt eiginmanni sínum, Val Sigurjónssyni, vélfræðingi. „Ég hef alltaf verið svolítið veik fyrir hótelum. Pegar ég var unglingur og vinkonurnar voru að fara að vinna á sjúkrahúsinu eða í síld þá plantaði ég mér niðri á hóteli. Ég vann á Hótel KEA og eitt sumar á Hótel Tryggva- skála á Selfossi, sem var gamalt og ákaflega sjarmerandi hótel. Síðan hef ég mest unnið við verslunar- og skrifstofustörf, fyrst á Akureyri en eftir að ég fluttist austur vann ég í sex ár við Gljúfrabú. Fyrir fimm árum fór ég að vinna í móttökunni hér á hótelinu, þá var Pétur Snæ- björnsson hótelstjóri en eftir að Pétur hætti fyrir rúmlega tveimur árum tókum við Frímann við rekstri hótelsins í eitt ár. Síðast- liðið ár hef ég síðan unnið á skattstofunni." Hef sjaldan orðið veðurteppt - Þú hefur sem sagt starfað á Húsavík á sjötta ár, 32 km frá heimili þínu. Finnst þér ekkert erfitt að keyra svona langt til vinnu? „Ég hef sjaldan orðið veður- teppt og þetta vefst ekki svo fyrir mér meðan á því stendur, en ég finn á vorin að ég er afskaplega þreytt þegar vetrarakstrinum Íýkur. Pað er visst álag að keyra á milli, og það alltaf ein, og auðvit- að verð ég langþreytt á því. En í rauninni hefur þetta gengið ákaf- lega vel og ég hef verið mjög heppin í mínum milliferðum, oft í misjöfnum veðrum og ég er að koma seint heim á kvöldin og jafnvel þegar langt er komið fram á nótt. Ég er kannski ekki lengur á leiðinni en margir þeir sem stunda vinnu á Reykjavíkursvæð- inu, en aftur á móti er ég alltaf ein og stundum mæti ég ekki neinum á allri leiðinni þegar ég er á ferðinni á óvenjulegum tíma. Ég er hvorki með síma eða tal- stöð í bílnum en ég hringi oft í manninn minn og segi að ég sé að leggja af stað. Læt vita af mér ef ég tel að þetta sé eitthvað tvísýnt." - Þú segir að hótelin hafi alltaf togað. Hvað er svona heillandi við hótel? „Flestir sem vinna á hóteli, eða slíkum stöðum, verða fyrir þess- um áhrifum. Það er eitthvað heillandi við þetta, alltaf eitthvað að gerast og þú veist aldrei hvað dagurinn á eftir að bera í skauti sér. Ef þú ert þannig gerð að þú hafir gaman af að umgangast fólk þá er þetta ákaflega skemmtilegt því þú hittir marga. Það vill oft Fjóla Stefánsdóttir hótclstjóri á Hótel Húsavík. verða góður vinnumórall hjá starfsfólki á svona stöðum, þann- ig að fólk verður oft dálítið náið. Þegar ég byrjaði að vinna á hótelinu núna aftur, eftir árshlé, sagðist ég rétt hafa verið byrjuð að ná þessu úr blóðinu." Glæsilegasta hótel á lands- byggðinni fyrir 20 árum Það var rekstarnefnd hótelsins sem fór þess á leit við Fjólu að hún tæki að sér stöðu hótelstjóra. „Þetta er ákaflega mikil vinna og á margan hátt er erfitt að búa langt í burtu. Þú hleypur ekkert til á mínútunni ef eitthvað er að, og þegar þig langar að vera heima hjá þér þá getur þú ekki droppað inn til að fylgjast með hérna, eins og ef þú byggir í bænum.“ - Segðu mér frá Hótel Húsa- vík. „Þetta er mjög mikilvægur þjónustustaður, ekki aðeins fyrir ferðamenn sem eru hér mest yfir sumarmánuðina, heldur fyrir þetta svæði og fyrir bæinn. Ég vona að bæjarbúar noti sér að koma hér á hótelið og þá þjón- ustu sem hér er til staðar, en hlaupi ekki endilega eitthvað annað. Mér finnst þó bæjarbúar vera byrjaðir að koma hingað aftur, en á tímabili hefðu þeir mátt gera meira af því að láta sjá sig. Þegar hótelið var tekið í notk- un fyrir tæpum tuttugu árum var það glæsilegasta hótel utan höfuðborgarsvæðisins. Þó ekki sé lengra liðið eru breytingar örar og reksturinn hefur oft verið erf- iður, svo ekki hefur verið fjár- magn til staðar til að breyta eins miklu og gerðar eru kröfur til í dag. Sumir hafa sagt við mig að á móti komi að hér sé heimilislegt og gott andrúmsloft. Ef til vill stafar þetta af því hvað starfs- fólkið gefur mikið af sér. Á hótelinu eru 33 tveggja manna herbergi auk góðrar aðstöðu til fundahalda. Við höf- um haft Félagsheimili Húsavíkur á leigu síðustu árin og getum boðið gestum aðstöðu í misstór- um sölum. Yfir sumartímann erum við alltaf með eitthvað af herbergjum úti í bæ sem hafa oft bjargað okkur, þannig að við höfum geta tekið tvo hópa í einu. Við erum nefnilega með of fá herbergi á hótelinu til að geta hýst fólk úr tveimur rútum. Svona mikil aðsókn nær þó yfir allt of stuttan tíma úr árinu, því miður, kannski ekki nema tvo mánúði og það er stuttur tími fyr- ir rekstur á ársgrundvelli." Held ekki að hægt sé að gera alla skapaða hluti - Hver er staðan í dag, hefur reksturinn ekki gengið vel undanfarið? „Jú, það má segja að hann hafi gengið vel síðastliðin tvö ár. Við höfum reynt að fara ekki út í neitt sem er mikil áhætta, og fyrir vikið verðum við kannski ekki eins skemmtileg útávið. Auðvit- að er það gott ef svona fyrirtæki getur verið svolítið menningar- legt útávið, en það kostar pen- inga. Við höfum ekki haft afgang til neinna stórkostlegra breytinga og þá verður að velja eða hafna. Það er aukning á landsvísu á ýmiskonar ráðstefnum og fundum. Menn eru farnir að sjá það, að ef fólk allsstaðar að af landinu er boðað á ráðstefnur í Reykjavík, helst illa á fólkinu því það þarf að gera svo margt í bænum. Notfæra sér ýmsa þjón- ustu í leiðinni meðan stoppað er í höfuðborginni. Það er því oft meiri vinnufriður að halda svona ráðstefnur úti á landi, og það hef- ur oft verið staðfest við mig af þeim sem hingað koma.“ - Nú er starfrækt heimavist fyrir Framhaldsskólann á Húsa- vík á hótelinu. Hvernig samræm- ist það hótelhaldi? „Þetta er þriðji veturinn sem heimavistin er starfrækt. í vetur eru hér 11 nemendur, fleiri en verið hafa áður. Út af fyrir sig gengur þetta ágætlega en sam- ræmist á margan hátt ekki hótel- rekstri, eða það er mín skoðun. Það er þó gott að geta nýtt hús- næðið sem annars stæði ónotað á þessum árstíma. Framhaldsskól- inn hefur ekki verið það gælu- yerkefni að hann hafi getað kom- ið sér upp heimavistaraðstöðu, sem þó væri örugglega mikil lyfti- stöng fyrir skólann." - Má vænta breytinga á Hótel Húsavík með tilkomu nýs hótel- stjóra? „Hótelið hefur gengið í gegn um ýmsar breytingar meðan ég hef verið hér við störf og ég er ekki sá nýgræðingur hér, að ég haldi að hægt sé að gera alla skapaða hluti. Auðvitað reynum við að lífga uppá hótelið eins og hægt er og ef reksturinn gengur vel á að fara í endurnýjanir innanhúss, m.a. á herbergjunum. Ég hef í rauninni mestan áhuga á því að við getum fengið fólkið hér í kringum okkur á hótelið, að það komi hér með sínar hug- myndir og við getum spilað úr þeim. Það er okkur algjör lífs- nauðsyn að hafa fólkið hérna með okkur.“ IM

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.