Dagur - 16.03.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 16. mars 1991
fréftir
Tillögur um valddreifmgu í heilbrigðis- og tryggingamálum:
Yflrstjómin færð til héraðslækna og heilbrigðisráða
Nýlega samþykkti Alþingi
þingsályktunartillögu um að
stofnaðar verði sérstakar heil-
brigðis- og tryggingaskrifstofur
í öllum kjördæmum landsins á
næstu fjórum árum. Kjarninn í
þessum tillögum er að stuðla
að valddreifingu í heilbrigðis-
og tryggingakerfinu með því
að færa ákvörðunarvaldið út til
landshlutanna.
Samtök sveitarfélaga hafa
undanfarin ár beitt sér fyrir vald-
dreifingu með ýmsum hætti, en
markmiðið hefur verið að efla
sjálfstæði og ábyrgð landshlut-
anna í eigin málum, til mótvægis
við höfuðborgina. Starfshópur
landshlutasamtaka sveitarfélaga
hefur undanfarna mánuði unnið
að valddreifingartillögum í héil-
brigðis- og tryggingamálum.
Askell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, er einn
þeirra sem voru í starfshópnum.
Hann segir að tillögurnar hafi
komið fram áður en Alþingi
ályktaði um málið. Þær eru á þá
leið að heilbrigðismálaráð lækn-
ishéraðanna verði skipuð sveit-
arstjórnarmönnum og kosin af
samtökum sveitarfélaga í hverju
læknishéraði. Héraðslæknar
eiga, ásamt heilbrigðisráðum, að
hafa yfirstjórn heilbrigðis- og
tryggingamála með höndum.
Gert er ráð fyrir að í hverju kjör-
dæmi verði til staðar öll almenn
sérfræðiþjónusta og nauðsynleg-
ar heilbrigðisstofnanir, eftir því
sem aðstæður og íbúafjöldi leyfa.
Þá er gert ráð fyrir því að hjá
heilbrigðis- og tryggingamálaskrif-
stofunum í hverju læknishéraði
verði umdæmisþjónusta frá
almannatryggingum, þar sem
bótaþegar geti fengið fulla þjón-
ustu, ásamt mati á bótarétti, en í
dag verður að sækja slíkt mat til
Reykjavíkur. Héraðslæknar eiga
að veita skrifstofunum forstöðu.
Áskell segir mikilvægt að sér-
stakar ráðstafanir verði gerðar til
að jafna kostnað þeirra sem
þurfa að sækja heilbrigðisþjón-
ustu innan sama héraðs, þannig
að allir íbúar héraða sitji við
sama borð kostnaðarlega séð.
Heilbrigðismálaráðin eiga að
gera áætlanir um niðurröðun
verkefna í hverju héraði, tillögur
um fjárveitingar og skipta fjár-
veitingum milli verkefna, sam-
ræma starfshætti í heilbrigðismál-
um innan héraðs og hafa samráð
um samstarf sjúkrahúsa.
Kjör vígslubiskups fyrir
Norðurland mun fara fram
undir lok þessa mánaðar. Þor-
björn Hlynur Árnason, bisk-
upsritari, segir að unnið sé að
því að ganga frá kjörskrá og
hún verði lögum samkvæmt að
liggja frammi i tíu daga áður en
kosning fer fram.
„Það er búið að gefa út reglu-
gerð, sem þurfti að setja sérstak-
lega vegna þessa biskupskjörs. í
lögum um starfsmenn þjóðkirkj-
unnar, sem voru samþykkt í fyrra,
er gert ráð fyrir að vígslubiskup sé
kosinn samkvæmt lögum um bisk-
upskjör og reglugerðin er til nán-
ari skýringa á þeim,“ sagði
Þorbjörn.
Kjörskrá mun liggja frammi á
biskupsstofu og hjá próföstum í
Verkefni umdæmisþjónustu á
sviði tryggingamála eru þessi
helst: Að veita fyrirgreiðslu í líf-
eyris- og sjúkratryggingamálum,
að örorkumat fari fram í heima-
héraði og að annast umsýsluþjón-
ustu heima í héraði fyrir Trygg-
Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyja-
fjarðar-, og Þingeyjarprófast-
dæmum.
Allir þjónandi prestar á
Norðurlandi eru í kjöri, en svo að
notuð séu orð þekkts stjórnmála-
manns eru sumir meira í kjöri en
aðrir. Þannig hefur Bolli Gústavs-
son í Laufási gefið það út opinber-
lega í samtali við Dag að hann
sækist eftir kjöri.
Rétt til að kjósa vígslubiskup
hafa allir prestar á Norðurlandi,
sex leikmenn, þar af einn úr
hverju af áðurnefndum fjórum
prófastdæmum, og tveir kirkju-
þingsmenn (fulltrúar Norður-
landskjördæmis eystra og vestra).
Auk þess hafa biskup íslands, hr.
Ólafur Skúlason og fráfarandi
vígslubiskup, sr. Sigurður Guð-
mundsson, kosningarétt.
ingastofnun ríkisins á ýmsum
sviðum, m.a. fyrir lífeyrissjóði.
Að lokum er lagt til að trygg-
ingaráð feli heilbrigðismálaráð-
um héraðanna að afgreiða þau
mál sem tryggingaráð annast nú.
EHB
Lögum samkvæmt þarf vígslu-
biskup að hafa að lágmarki helm-
ing greiddra atkvæða á bak við
sig. Náist ekki fram hreinn meiri-
hluti í fyrstu umferð verður að
endurtaka kosninguna og er þá
kosið á milli þeirra þriggja sem
flest atkvæði fá í fyrstu umferð.
„Mér þykir ekki ótrúlegt að
kosning geti hafist fyrir mánaða-
mót. Gert er ráð fyrir því að
kjörskrá liggi frammi í tíu daga
áður en kosning hefst. Kosning
fer þannig fram að sendir eru
atkvæðaseðlar til þeirra sem eru á
kjörskrá og þeir hafa síðan ákveð-
inn frest til þess að senda þá til
baka. Ef endurtaka þarf kosning-
una lengir það tímann um
helming,“ sagði Þorbjörn Hlynur.
Hann sagði að atkvæði yrðu talin
á biskupsstofu. óþh
Flugleiðir:
Fiugmenn boða
sólahrings verkfaU
Vígslubiskupskjör:
Gert ráð fyrir að kosning
hefjist fynr mánaðamót
- unnið að því að ganga frá kjörskrá á biskupsstofu
Bókun minnihluta framleiðslunefndar Stéttarsambands bænda:
Lengja þarf aðlögunartíma
sauðíjárframleiðslu um 1 ár
- minnihluti nefndarinnar sat hjá við afgreiðslu búvörusamningsins
Eins og fram kom í Degi í gær
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna (FÍ A) hefur boðaö sóla-
hrings verkfall hjá Flugleiðum
frá miðnætti aðfaranótt 29.
mars. Jafnframt var boðað
munnlega að fleiri aðgerðir af
þessum toga myndu fylgja.
Samningar flugmanna runnu út
í apríl 1990 og þeir eru nú eini
hópur launþega með lausa samn-
inga. Um 30 fundir hafa verið
haldnir um nýjan kjarasamning,
en samkomulag hefur ekki tekist.
Nýkjörin stjórn FÍA hefur
kynnt forráðamönnum Flugleiða
Leikar eru nú farnir að æsast í
15 mínútna stigamótum Skák-
félags Akureyrar en teflt er um
peningaverðlaun. Nú er lokið
Siglufjörður:
Skákþing Norð-
lendinga hafið
Skákþing Norðlendinga var
sett að Hótel Höfn á Siglufirðí
í gær og verður teflt um helg-
ina. Þinginu lýkur með hrað-
skákmóti á sunnudaginn.
Hjá Skákfélagi Akureyrar
fengust þær upplýsingar að 8
keppendur innan raða félagsins
myndu keppa í opnum flokki á
Skákþingi Norðlendinga og einnig
skákmenn úr Eyjafirði. í yngri
flokkum munu 16 félagar í SA
taka þátt í mótinu á Siglufirði.
Þátttakendur í Skákþingi
Norðlendinga munu væntanlega
koma víða af Norðurlandi og er
búist við skemmtilegri keppni.
SS
hugmyndir um kjarabætur til
handa flugmönnum. Samanlagt
yrðu þær ígildi meira en 80%
íaunahækkunar. Flugleiðir telja
að það sé fjarstæðukennt að
íhuga samninga á þessum nótum.
Þegar þessar hugmyndir komu
fram var Flugleiðum sú ein leið
fær að fara fram á það við
Vinnuveitendasamband íslands
að það vísaði deilunni til ríkis-
sáttasemjara. Á fimmtudaginn
var árangurslaus fundur hjá ríkis-
sáttasemjara og í framhaldi af
honum barst verkfallsboðun. ój
þremur mótum af fjórum og
Ijóst að þrír skákmenn munu
berjast um verðlaunasætin.
Úrslit í þriðja 15 mínútna
stigamótinu sem haldið var um
síðustu helgi urðu þau að Kári
Elíson skaust skyndilega í
fremstu röð á ný og sigraði. Hann
fékk 6 vinninga af 7 mögulegum.
Arnar Þorsteinsson fékk reyndar
6 vinninga einnig en Kári hreppti
fyrsta sætið á stigum. Þriðji varð
Hraðskákmót Akureyrar I
yngri flokkum var haldið um
síðustu helgi. í flokki 13-15 ára
sigraði Þórleifur Karlsson og í
flokki 12 ára og yngri sigraði
Finar Jón Gunnarsson.
Lítum þá nánar á úrslitin. Þór-
leifur Karlsson hafði nokkra yfir-
burði í flokki 13-15 ára og fékk 9
vinninga af 10 mögulegum. í 2.
sæti varð Páll Þórsson með 6
vinninga og í 3. sæti Helgi Gunn-
samþykkti mikill meinhluti
Sigurjón Sigurbjörnsson með
vinning.
Staðan í stigakeppninni fyrir
lokamótið er sú að Arnar Þor-
steinsson hefur komið sér þægi-
lega fyrir á toppnum með 24 stig.
Gylfi Þórhallsson er með 18 stig
og Sigurjón Sigurbjörnsson 17.
Þessir þrír skera sig nokkuð úr og
munu eflaust raða sér í verð-
launasætin þrjú. Síðasta mótið
verður haldið í apríl. SS
arsson með 4VL
í flokki 12 ára og yngri sigraði
Einar Jón Gunnarsson með
glæsibrag og fékk hann ÍOV^ vinn-
ing af 11 mögulegum. Halldór
Ingi Kárason kom næstur með 9
vinninga og Bárður H. Sigurðs-
son varð þriðji með 8'/2 vinning.
Birna Baldursdóttir varð efst
stúlkna með 6 vinninga, en
drengir og stúlkur tefldu í sama
flokki. SS
fundarmanna á fulltrúafundi
Stéttarsambands bænda ný-
undirritaðan búvörusamning.
Þó greiddu tveir fundarmanna
samningnum mótatkvæði og
fimmtán sátu hjá.
Meðal þeirra sem sátu hjá voru
fimm menn í minnihluta fram-
leiðslunefndar, Stefán Á.
Jónsson, Georg Jón Jónsson,
Guðbjartur Gunnarsson, Gunnar
Sæmundsson og Þorsteinn Vig-
fússon. Þeir skiluðu eftirfarandi
séráliti um búvörusamninginn:
„í búvörusamningi þeim sem
hér er til afgreiðslu eru ýmis
ákvæði sem eftir er að staðfesta
með breytingum á núgildandi
lögum og þær breytingar verða
ekki gerðar fyrr en á næsta
Alþingi. Þá þurfa lagfæringar að
vera gerðar að teknu tilliti til
mikilvægis hinna dreifðu byggða.
Aðeins það atriði að hefja
frjáls uppkaup fullvirðisréttar 1.
maí nk. mun fá lagastuðning á
þessu þingi með fjárframlögum á
lánsfjárlögum. Þetta er jákvætt
og tímabært atriði, en tilboðið
um uppkaup fullvirðisréttar þarf
að standa með sömu kjörum til 1.
september 1992.
í búvörusamningnum er gert
ráð fyrir 2% verðlækkun til
bænda á grundvallarverði sauð-
fjárafurða í haust þrátt fyrir önn-
ur ákvæði í núgildandi búvöru-
lögum. Engin trygging er fyrir
því að þessi verðlækkun til
bænda skili sér til neytenda.
Þá er skattaleg meðferð á sölu
fullvirðisréttar ekki ljós.
Frjáls viðskipti með fram-
leiðslurétt sauðfjárafurða eru
ótímabær fyrr en markmiðum
samningsins um uppkaup á
hverju svæði er náð. Lengja þarf
aðlögunartíma sauðfjárfram-
leiðslunnar um 1 ár eða til 1.
september 1993. Það ætti að gefa
möguleika á að ná allri nauðsyn-
legri fækkun með frjálsum upp-
kaupum, þannig að engin þörf
verði á flatri skerðingu fram-
leiðsluréttar.
í ljósi framangreindra atriða
sitjum við hjá við afgreiðslu
búvörusamningsins.“ óþh
ÐAGl'R
Akureyri
S 96-24222
Norðlenskt dagblað
KA-heimilið:
Kaffihlaðborð
Júdódeildar
Júdódeild KA verður með kaffi-
hlaðborð í KA-heimilinu á morg-
un sunnudag frá kl. 14-17.
Boðið verður upp á góðar veit-
ingar á vægu verði. Eru allir KA-
menn og aðrir velunnarar félags-
ins hvattir til að líta við í KA-
heimilinu og gæða sér á góðum
veitingum um leið og þeir styrkja
gott málefni.
skák
i
Stigamót Skákfélags Akureyrar:
Amar með forvstu
Hraðskákmót Akureyrar:
Úrslit í yngri flokkum