Dagur - 16.03.1991, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 16. mars 1991
Keppnisstjóri
Bridgefélag Akureyrar auglýsir eftir keppnis-
stjóra fyrir næsta keppnistímabil, þ.e. 15. sept.
’91 til maíloka ’92.
Starf keppnisstjóra felst í eftirfarandi:
1. Keppnisstjórn (þekking á bridgelögunum nauðsynleg).
2. Tölvuvinnsla í mótum.
3. Reglugerðir fyrir mót.
Spilað er á þriðjudagskvöldum að Hamri.
Tilboð sendist í pósthólf 428, 602 Akureyri, fyrir 1. apríl
1991.
Nánari upplýsingar veittar í síma 96-24624.
Stjórn Bridgefélags Akureyrar.
1
of erlendum vetfvangi
i
Mikið um hjátrú í Frakklandi
Svo virðist sem Frakkar séu á
góðri leið með að snúa baki við
hefðbundnum trúarbrögðum og
skynsemishyggju, sem lengi hef-
ur haft mikil tök á þjóðinni.
Þess í stað trúa nú fleiri og
fleiri á stjörnuspeki, galdra, dul-
skynjun og önnur yfirnáttúruleg
fyrirbæri, ef marka má nýjustu
kannanir.
Trú á yfirnáttúruleg fyrirbæri
og stjörnuspeki er samkvæmt
þessum könnunum útbreiddust
meðal fólks á aldrinum 18 til 24
Framsoknarvist
— spilakvöld —
Fimmtudaginn 21. mars kl. 20.30
Framsólmarfloklmpinn í Norðurlandskjördæmi eystra efnir
til Framsóknarvistar samtímis á eftirtöldum stöðum:
Árskógur: Ávarp: Daníel Árnason
Laugarborg: Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir
Akureyri, í Félagsborg (salur starfsmanna Álafoss):
Ávarp: Guðmundur Bjarnason
Breiðamýri: Ávarp: Jóhannes Geir Sigurgeirsson
Húsavík, í Félagsheimilinu: Ávarp: Guðmundur Stefánsson
Skúlagarður: Ávarp: Guðmundur Stefánsson
Verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 80.000,- með
Samvinnuferðum/Landsýn fyrir besta árangur
einstaklings. Auk þess verða veitt kvöldverðlaun á
bverjum stað fyrir bestu frammistöðu karla og kvenna.
Allir velkomnir.
Framsóknarflokkurinn
Guömundur
Bjarnason
Valgeröur
Sverrisdóttir
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
Guömundur
Stefánsson
Daniel
Árnason
ara.
Stúdentar, skólanemendur,
kennarar og verslunarfólk virðist
helst aðhyllast þessi nýju trúar-
brögð, en efasemdir eru mest
áberandi meðal bænda og iðnað-
armanna.
Hvernig sem á því stendur, eru
áhangendur og stuðningsmenn
hægriöfgaflokks Jean-Marie Le
Pen ákafastir f hinni nýju trú.
í Frakklandi eru innan við 36
þúsund kaþólskir prestar, en yfir
40 þúsund manns vinna fyrir sér
sem stjörnuspekingar.
Þegar stór fyrirtæki þurfa að
ráða fólk til starfa, leita þau
aðstoðar stjörnuspekinga, rit-
handarfræðinga eða þeirra, sem
spá fyrir mönnum út frá fæð-
ingardögum. Eitt leiðandi fyrir-
tæki í tölvuiðnaðinum ræður fölk
því aðeins, að það hafi staðist
prófun með kínverskum tarot-
spilum, segir í tímaritinu
L’Evénement de Jeudi.
(Faktu 1(1/9». - Þ.J.)
Propan kælir
betur en freon
Breskir vísindamenn halda því
nú fram, að propan geti komið í
stað freons til kælingar í kæli-
skápum og minniháttar kæliklef-
um. Freon er ein þeirra gasteg-
unda, sem eyðileggja ósonlagið í
háloftunum, en propan cr nátt-
úrulegt efni og veldur ekki
mengun.
Til þessa hefur vandamálið
verið það, að propan er mjög
eldfimt.
Þess vegna verður t.d. aö
ganga þannig frá rafmagnsrofum
vegna lýsingar í kæliskápum, að
þeir geti ekki valdið sprengingu,
ef leki myndast inni í skápunum.
Kæliskápur, scm notar propan,
hefur nú verið tekinn í notkun í
tækniskóla í London. Reynslan
af honum sýnir, að propan er
áhrifameira til kælingar en freon.
Næsta verkefni vísindamann-
anna er að kanná livað gerist, ef
kviknar í húsi þar scm er kæli-
skápur með 300 grömmum af
propan.
(Fakta 10/90. - Þ.J.)
Hörgull á
efni í smokka
Notkun smokka hefur farið ntjög
vaxandi að undanförnu, en á
sama tíma er minnkandi framboð
á náttúrulegu gúmmíi.
Framleiðendur smokka eru því
farnir að svipast um eftir öðru
efni í smokkana.
Svo kann að fara, að efni, sem
til þessa hefur helst verið notað í
golfkúlur, verði fyrir valinu. Efni
þetta heitir balata og er unnið úr
hitabeltistrénu Mimusops balata
af Sapotaceae-ætt, en þekktasta
tegund þeirrar ættar er tyggi-
gúmmítréð Achras sapota.
Balata er hart efni, orðið til úr
viðarkvoðu meðal annars, en nú
hafa vísindamenn fundið efni,
sem gera balata mýkra og auð-
veldara til úrvinnslu. Einnig hafa
fundist aðferðir til að blanda
balata með efnum, sem gera það
sterkara og teygjanlegra.
(Fakta 10/90. - P.J.)