Dagur - 16.03.1991, Page 9

Dagur - 16.03.1991, Page 9
Laugardagur 16. mars 1991 - DÁGUR - 9 Eftir langa og stranga yfirferð á öllum þeim gífur- lega fjölda smásagna sem barst í smásagna- keppnina BABÚ-BABÚ, tókst okkur að velja þá sögu sem okkur þótti standa upp úr í yngri flokknum. Þetta er sagan Haust eftir unga valkyrju á Flatatungu í Skagafirði, Sigríði Gunnarsdóttur. Sigríður er 15 ára gömul (bráðum 16) og stundar nám í Varmahlíðarskóla. Við hringdum í hana og ræddum við hana um smásöguna, bækur og margt fleira. í dómnefnd fyrir BABÚ-BABÚ sátu umsjónar- menn UNGLINGASÍÐUNNAR ásamt Stefáni Þór Sæmundssyni. Bókaútgáfan Skjaldborg gaf glæsileg bókaverðlaun og færum við Skjaldborg okkar bestu þakkir fyrir liðlegheitin. Það sem mér dettur í hug! - Hvernig datt þér í hug að senda þessa sögu í samkeppnina? Sigríður: hetta var nú bara til- viljun. Ég sá auglýsinguna og skrifaði svo söguna í hvelli - svo pældi ég ekkert meira í þessu. - Samdirðu þá söguna sérstak- lega fyrir keppnina: Sigríður: Já! - Semurðu mikið af sögum? Sigríður: Nei, ég get nú ekki sagt það. Pað kemur þó fyrir svona öðru hvoru. - En ljóð? Sigríður: Ekki mikið! - Hvernig sögur skrifarðu? Sigríður: Eg skrifa bara um það sem mér dettur í hug. - Eru þetta eins konar vanga- veltur sem þú skrifar niður? Sigríður: Já, það má segja það. - Hvernig fékkstu hugmyndina að „Haust“? Sigríður: Ég er ekki viss. Hún kom bara allt í einu. - Færðu einhverjar hugmyndir úr bókum? Sigríður: Nei! - Lestu mikið? Sigríður: Já, töluvert svona miðað við krakka á mínum aldri. - Hvernig bækur lestu? Sigríður: Ég les allt frá íslend- ingasögunum niður í Morgan Kane. - Er til mikið af bókum heima hjá þér? Sigríður: Já, þó nokkuð. - Heldurðu að þú hafir dæmi- gerðan bókmenntasmekk fyrir venjulegan íslenskan sveitaungl- ing? Sigríður: Nei, ég held ekki. Vinir mínir lesa nú eins lítið og þeir geta nema þá dæmigerðar unglingabækur, sem eru einu bækurnar sem ég get hreinlega ékki hugsað mér að lesa. - Eru bækur áhugamál þitt? Sigríður: Já, það má segja það! - Hvaða önnur áhugamál hefur þú? Sigríður: Pað er nú svo margt. Ég hef þó ekki áhuga á íþróttum eða neinu slíku. - Er mikið skrifað af sögum í Varmahlíðarskóla? Sigríður: Já, það er náttúru- lega skrifað í íslenskutímum. Þar þurfum við að skila sögum öðru hvoru. - Finnst þér vera mikið hvatt til skrifta í skólanum? Sigríður: Já, svolítið! - Finnst þér vera mikið um sam- keppnir sem þú getur tekið þátt í? Sigríður: Nei, ekki ntikið! - Myndirðu taka þátt í svona samkeppni fyrir alla aldurshópa? Sigríður: Já, alveg eins, ef það lægi þannig á mér. - Ætlarðu að skrifa mikið í fram- tíðinni? Sigríður: Nei, ég stefni ekki á að verða rithöfundur eða neitt þannig. - Er fjölskyldan þín eitthvað hneigð til bóka eða skrifta? Sigríður: Já, ég ntyndi segja það. Foreldrar mínir lesa tölu- vert. - Heldurður að það skipti ein- hverju máli? Sigríður: Já, maður verður allt- af fyrir áhrifum frá fjölskyldunni og því hvetur þetta mann til lesturs. - Um hvað er „Haust“? Sigríður: Ég veit nú eiginlega ekki um hvað hún fjallar. Þetta er svona „júróvisjón-saga“ eða samkeppnissaga, skrifuð með samkeppni í huga. Yfirleitt skrifa ég allt öðruvísi sögur en þetta. Hún er svolítið væmin! - Hvernig er að búa á Flata- tungu? Sigríður: Ég hef nú engan samanburð! Ég hef alltaf búið hér og finnst það alveg ágætt. - Er þetta alvöru sveitabær með kindum og kúm? Sigríður: Við höfum engar kindur sem er, en við erum með hesta og kýr. - Hjálparðu þá til á bænum? Sigríður: Já, ég geri það! - Finnst þér þú fara á mis við eitthvað með því að búa í sveit? Sigríður: Nei, maður sér bara myndböndin seinna! - Eru krakkar sem alast upp í sveit öðruvísi en þau sent alast upp í þéttbýli? Sigríður: Já, það er töluverður munur ef þú berð saman sveita- krakka og krakka úr Reykjavík. Krakkar í sveit fara rniklu fyrr að vinna og kunna þá frekar að standa á eigin fótum. Ahugamál- in eru líka öðruvísi. Ég hef t.d. engan áhuga á því sem sumir krakkar í Reykjavík hafa áhuga á, eins og „freestyle" tískusýn- ingum og svoleiðis. Krakkar í þéttbýli verða fyrir meiri áhrifum frá tískusveiflum og sækja meira í það að vera eins. Mér finnst krakkar í sveit vera sjálfstæðari í hugsun. - Er ekkert erfitt að hitta vini sína þegar rnaður býr í sveit? Sigríður: Nei, nei, ekkert svo. Ég hitti þá kannski sjaldnar en lengur í hvert skipti. - Hvað ætlarðu að gera eftir að þú hefur lokið grunnskólanámi? Sigríður: Ég er nú ekki með það á hreinu ennþá. Ég reikna jafnvel með því að fara í MA og er búin að sækja um þar. Ég færi þá líklega á félagsfræði- eða málabraut, því ég er laus við all- an áhuga á raungreinum. - Einhver fleyg orð að lokum? Sigríður: Nei, það er ekki hægt að vera skáldlegur þegar beðið er um það. HAUST eftir Sigríði Gunnarsdóttur: Verðlaunasagan í yngri aldurshóp smásagnasamkeppninnar BABÚ-BABÚ Fuglarnir eru flognir eitthvað burt, þangað sem vetrar- kuldinn nær ekki til þeirra. Laufin liggja á jörðinni en örvæntingarfull trén teygja naktar greinar til himins. Út undan mér sé ég mann frá bænum sópa saman laufblöðum. Allt í einu kemur vindhviða og þeytir haugnum í loft upp. Ég heyri manninn tuldra formæl- ingar fyrir munni sér. Hann þarf að byrja upp á nýtt. Gömul kona kemur kjagandi eftir stígnum. Hún held- ur á blómvendi. Kannski liggur maðurinn hennar sálugi einhvers staðar í þessum kirkjugarði? Sú gamla silast nærri hljóðlaust framhjá mér, hægum markvissum skrefum. Hún lítur út fyrir að vera mjög gömul. Ábyggi- lega áttræð. Hvernig ætli sé að vera svona gamall? Ég átti vin þegar ég var lítill. Vin sem dó. Við vorum ekki nema sjö ára þegar hann drukknaði. Ég tók það nærri mér. Eg fer alltaf öðru hvoru aö leiðinu hans. Þangað til að ég varð tólf ára táraðist ég í hvert skipti. Kom ekki upp orði, tárin runnu niður kinnarnar, féllu svo til jarðar og hurfu. Inn í eilífðina. í seinni tíð er ég farinn að tala við vin minn heitinn eins og maðurinn við mann, segja honum allt sem ég vil að hann viti. Kannski er ég biluð en mér finnst eins og hann heyri allt sem ég segi. Ég vil ekki deyja. Líkurnar eru ekki miklar í bili en ég er samt hrædd. Það er svo mikið af gömlu fólki sem býður dauðans. Fólk eins og amma á Elliheimilinu. Hún virðist alltaf ánægð. Prjónar ullarsokka og spilar vist við hina gaml- ingjana alla daga. Nema þegar hún fær ellilífeyrinn. Þá fer hún út og kaupir sér heilu bunkana af skafmiðum. Það gefur henni svo mikið að styrkja góð málefni og spennan við að skafa... Ég hætti að hugsa um ömmu gömlu og geng af stað. Gamla konan var farin jafn hljóðlega og hún kom. Einu vegsummerkin um komu hennar eru blómin sem hún skildi eftir undir krossinum. Maðurinn var hættur að berjast við laufið. Kannski er álíka vonlaust að vilja ekki deyja og sópa laufblöðum í roki. UMSJÓN: KRISTÍN KJARTANSDÓTTIR OG HJÖRDÍS HALLDÓRSDÓTTIR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.