Dagur - 16.03.1991, Qupperneq 19
Laugardagur 16. mars 1991 - DAGUR - 19
Eru memurnir að plata
ullabjakkí ofan í okkur?
Það er víst óhjákvæmilegt og
eðlilegt þegar maður kemur á
nýjar, áður ókunnar slóðir að
bera þær saman við heimahaga
sína. Margir hafa þá trú að allt sé
afstætt í þessum heimi og óneit-
anlega styður svona samanburð-
ur þá kenningu. Ég vænti þess
altjent að mér verði ekki láð þótt
ég hafi oft og einatt látið hugann
hvarfla heim á ísland þegar ég
mætti ýmsum nýjungum hér. Það
er nú svo að þótt mannskepnan
sé ef til vill einatt sjálfri sér h'k
inn við beinið hefir hún ýmsa
mismunandi siði og lífsvenjur,
jafnvel lífsviðhorf og er vandséð
af hverju þessi mismunur ræðst. í
síðasta bréfi var látið að því
liggja að fjölmiðlar nútímans
mótuðu mjög líf manna um þess-
ar mundir og verður það ekki
dregið til baka. En hvað er það
einna helst sem einkennir
nútímamenn - hér í Utah og
heima á íslandi.
Eins og áður hefir verið sagt
virðist það mjög einkennandi fyr-
ir fólk - altjent hér - að það dreg-
ur mjög dám af því sem fram
kemur í fjölmiðlum. Það er nú
einu sinni svo að þetta þjóðfélag
er neysluþjóðfélag að miklu leyti
og neyslunni er að sjálfsögðu
stýrt með auglýsingum, bæði
beinum og óbeinum. Ekki held ég
íslendingum þurfi að koma það
mjög spánskt fyrir sjónir; hver
man ekki fótanuddtækin hérna
um árið, eða önnur uppþot vegna
vellukkaðrar auglýsingaherferðar
- helst í sjónvarpi.
Einhverjar allra árangursrík-
ustu auglýsingaherferðir sem
farnar hafa verið (og eru enn
farnar) eru þær sem snúast um
heilsu manna. Hollustubrjálæð-
ið, svo sem margir hafa nefnt það
er kannski hvergi magnaðra en
hér þar sem svo fjarskalega margir
lifa á þann hátt sem mannskepn-
an ein lifir, nefnilega í gersam-
lega tilbúnu umhverfi og án veru-
legra tengsla við ósnerta náttúru.
Það er reyndar eðlilegt að menn
hér um slóðir hafi áhyggjur af
heilsufari sínu, lífslíkur nýfædds
Ameríkubarns eru dálítið lakari
en t.d. nýfædds barns á íslandi.
Enda er það svo að hér er
fjarskalega mikið gert að því að
leiðbeina fólki um holla lífshætti.
Mest er það á þann veg að fólki
er sagt til um hvað það eigi eða
eigi ekki að leggja sér til munns.
í Sálminum um blómið segir
frá því þegar Sobeggi afi var að
reyna að kenna LilluHeggu um
ullabjökk heimsins, til að henni
gæti alltaf liðið vel af því hún
hefði aldrei látið ofan í sig svodd-
an óþverra. Manni kemur oft
gamli maðurinn í hug hér og þó
einkum þessi skelfilegu ullabjökk
heimsins. Auðvitað þekkja
íslendingar þetta líka, til að
mynda kenningar um skaðsemi
hangiketsins, mjólkurinnar, feita
kjötsins, smjörsins, saltsins, litar-
efna í mat og svo framvegis, sem
ég endist ekki upp að telja. Ein-
hvern veginn hefir mér samt
fundist að þessi söngur hafi orkað
þannig á marga Islendinga að
þeir hafi gefist upp á því að snúa
sér eftir því hvaðan þessi holl-
ustuvindur blæs. Ég segi nú til
dæmis fyrir mína parta að þegar
var búið að stimpla óhollt (ef
ekki banvænt) hér um bil allt sem
mér þykir gott (ég man samt ekki
eftir súru slátri) þá ákvað ég eins
og maðurinn forðum að ég færi
nú ekki að drepa mig úr hungri til
að geta lifað fáeinum árum
lengur. Og við það situr.
En hér er þetla miklu þróaðra
og vísindalegra. Hér er ekki ver-
ið að skiptti um heilsufræði á
tveggja mánaða fresti. Hér er
búið að útnefna nokkur „súper“
ullabjökk sem eru orðin hluti af
daglegu lífi manna, að minnsta
kosti í auglýsingum og innkaup-
um. Hér vita allir að fita er óholl
og þess vegna borða menn bara
mat sem er „fat-free“, nefnilega
fitulaus. Svei mér ef beikonið
sem tnenn rífa hér í sig með
steiktu eggi er ekki líka fitulaust.
Að minnsta kosti er það ábyggi-
lega laust við það voðalega eitur-
efni kólesteról sem ég inan aldrei
hvað er kallað á íslensku. Vitn-
eskjan um þessi ullabjökk er orð-
in svona álíka algeng og sjálfsögð
og til dæmis kenningin um að
jörðin sé hnöttótt en ekki flöt.
(Því trúa víst hérumbil allir nú
orðið en mikið fannst mér þetta
ólíklegt þegar ég var barn og
horfði í kringum mig frammi í
firði.)
Hér eru heldur engin matvæli
sett á markað án þess að auglýsa
kyrfilega að þau séu með öllu
laus við þessi hræðilegu eiturefni,
fituna og kólesterólið. Það er nú
gott fyrir neytendur; þeir þurfa
þá ekki að vera hræddir um líf
sitt þótt þeir seðji sárasta
hungrið.
Fleiri ullabjökk eru þekkt bæði
hér og heima á íslandi. Heima
man ég að sérlegt óorð var á ýms-
um svonefndum E-efnum, ég
man nú ekki af hverju og ég rugl-
aðist líka alltaf í því númer hvað
þessi vondu efni vóru. Kannski
verð ég skammlífur vegna þess.
Ég er ekki heldur alveg viss um af
hverju þessi E-efni vóru stundum
sett í mat, en vonandi hefir verið
eitrað fyrir mig í góðum tilgangi.
Mér finnst reyndar hálfpartinn að
sumt af þessu hafi verið til að
verja matvæli skemmdum, þótt
þau væru látin óétin tímunum
saman. Það er auðvitað lofsvert
því mér finnst alltaf ljótt að
henda mat. En kannski verður
sumt góðgæti eitrað með tíman-
um, maður veit auðvitað ekki.
Hér hefi ég aldrei séð eða heyrt
minnst á þessi E-efni (kannski
stamar enginn hér?) en ég verð
hálfpartinn ánægður þegar ég sá
skrifað skýrum stöfum utan á
brauðpokana hérna í búðinni
okkar að í þessu brauði væru
engin rotvarnarefni né annað til
að villa heimildir á gömlu brauði.
En það setti að mér ónotanleg-
an grun þegar ég fann í gær tvær
brauðsneiðar í poka sem höfðu
misfarist bak við skúffu einhvern
tíma fyrir jól. Ekki var þetta fyrir
að sneiðarnar að tarna væru neitt
ógnvekjandi, öðru nær. Þær vóru
einmitt alveg eins og þær væru
nýkomnar úr ofni bakarans.
Hvernig getur staðið á þessu?
Eru mennirnir sem merkja
brauðið kannski bara að plata
einhverju ullabjakki ofan í okkur
sakleysingjana sem höfum lært
að trúa flestu sem er á prenti og
öllu sem er í sjónvarpinu?
Eða gleymdist kannski að láta
brauðið vita?
Valdimar Gunnarsson.
Frá Fósturskóla íslands
Vegna inntöku í Fósturskóla íslands nú í vor,
verður boðið upp á sérstakt könnunarpróf í
íslensku, dönsku og ensku.
Könnunarprófið er ætlað fólki 25 ára og eldra með
reynslu af starfi með börnum en með ófullnægjandi
formlega skólagöngu skv. lögum um inntökuskilyrði
skólans.
Prófið verður haldið um mánaðarmótin apríl/maí á
eftirtöldum stöðum: Fósturskóla íslands í Reykjavík,
Menntaskólanum á ísafirði, Verkmenntaskólanum á
Akureyri, Menntaskólanum á Egilsstöðum og Fram-
haldsskólanum í Vestmannaeyjum.
Skráning í síma: 91-83866 og 91-83816 daglega kl.
14.00-15.30.
Skráningarfestur til 22. mars nk.
Umsækjendur fá síðan sendar upplýsingar um fyrir-
komulag prófa ásamt sýnishornum af lesefni, sem er
sambærilegt því efni sem lagt verður fyrir í prófun-
um.
Skolastjóri.
spurning vikunnor
Þorsteinn Svanlaugsson:
Sjálfstæðisflokkurinn, Kvenna-
listinn og Alþýðuflokkurinn
munu mynda ríkisstjórn að
kosningum loknum. Ég set þó
stórt spurningamerki við
Kvennalistann, því mér sýnist
að hann sé á leiðinni út úr
stjórnmálunum. Davíð veröur
næsti forsætisráðherra.
Vernharður Jonsson:
Ég vona að þetta verði svipað.
Davíð nær ekki fylgi. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar á þeim
breytingum sem gerðar voru á
forustuliði flokksins.
Hrefna Torfadóttir:
Eg vil sjá sömu ríkisstjórn
áfram og þá stefnu i gengis- og
vaxtamálum sem hun hefur
barist fyrir
Viðar Gunnarsson:
Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki
hreinum meirihluta og því fer
hann í samstarf við Framsókn-
arflokkinn. Þannig verðurokkur
best borgið og Davíð veröur
forsætisráðherra.
Júlíus Björnsson:
Best gæti ég trúað að ríkis-
stjórn verði mynduð á sömu
nótum. íslenska þjóðin er fast-
heldin og Sjálfstæðisflokkurinn
nær ekki þeim árangri sem
búist er við.
Hverjir standa að
væntanlegri ríkisstjórn
að kosningum loknum?