Dagur - 26.03.1991, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 26. mars 1991 - DAGUR - 5
Slefán Örn Ingvarsson, Bjarni Sigurjónsson, Yigfús Sigurðsson, Hrefna Jónsdóttir, Sigurður Illugason og Jóhannes
Einarsson.
Leikfélag Húsavíkur:
Dandalaveður
Jónasar Ámasonar
- verkið sýnt í fyrsta sinn nk. miðvikudag
Leikfélag Húsavíkur frumsýnir
nýtt leikrit eftir Jónas Árna-
son, Dandalaveður, miðviku-
daginn 27. mars kl. 20.30.
Þetta er jafnframt frumflutn-
ingur verksins og því Ijóst að
sýning Leikfélags Húsavíkur
mun vekja mikla athygli, en
nýtt verk eftir Jónas hefur ekki
verið sýnt um árabil. Leikstjóri
er Sigurður Hallmarsson.
I samtali við Dag sagði Sigurð-
ur að Jónas hefði unnið Dandala-
veður upp úr einþáttungnum
Drottins dýrðar koppalogn, en
fyrir þá sem ekki vita þýðir dand-
alaveður einfaldlega gott veður
og hefur því svipaða merkingu og
koppalogn.
„Sennilega stendur ekki mikið
af Koppalogninu eftir en Jónas
nýtti grindina úr þessum einþátt-
ungi, jók við hana og endur-
bætti,“ sagði Sigurður.
Dandalaveður er sjötta leikrit-
ið eftir Jónas Árnason sem Leik-
félag Húsavíkur tekur til sýninga
en þess má geta að í nýlegri
könnun kemur fram að Jónas er
vinsælasti leikritahöfundurinn
hjá áhugaleikfélögum hér á landi
og eru taldar yfir 70 uppfærslur á
verkuin hans hjá áhugaleikfélög-
um. Jónas mun koma á frumsýn-
inguna á Húsavík.
Kennslukonan vill
duflið burt
- Um hvað fjallar þetta verk,
Sigurður?
„Það fjallar um líf fólks á
Málmey, sem er eyja við íslands
strendur en gæti verið hvar sem
er, eða einhvers staðar norðaust-
ur í Atlantshafi eins og höfundur
Jóhannes Einarsson, Sigurður
Illugason og Stefán Örn Ingvarsson.
segir. Á þessari eyju er mikil
samkennd með fólki og allir vita
allt um alla. Þarna er prestur sem
er kannski eins mikill mótoristi
eins og prestur. Kennslukona
kemur í þorpið og hún uppgötvar
það að sá sem hefur verið gerður
að heiðursborgara Málmeyjar
hefur dregið til sín alls konar dót
og hlaðið því upp en í þessu dóti
leynist tundurdufl.
Það er kannski allt í lagi með
tundurduflið þarna í fjörunni
meðan dandalaveðrið helst en
strax og bregður til hins verra er
hætt við að duflið springi.
Kennslukonan berst fyrir því að
koma duflinu úr þessari fjöru,
burt með hernaðartól af eynni.“
- Þannig að duflið getur haft
táknræna merkingu.
„Já, það gæti verið táknrænt,
eitthvað óæskilegt sem þarf að
losna við. Um þetta fjallar verkið
í stórum dráttum en við sjáum
líka þverskurð af mannlífinu á
eynni, s.s. oddvita, hreppstjóra,
óðalsbónda sem ræður mestu,
fulltrúa kvenfélagsins og fleiri.
Að sumu leyti er þetta nost-
algía, aftur hvarf til áratugarins
1920-30.“
- Og miðast uppfærslan þá við
það tímabil?
„Já, hún miðast við það, eftir
því sem hægt er á þessu leiksviði
okkar. Þetta er realismi,“ sagði
Sigurður.
Fjölmargir þátttakendur
Sigurður sagði að æfingar hefðu
gengið vel. Dandalaveður er fjöl-
menn sýning, 15 leikendur og
fjöldi aðstoðarfólks. Við skulum
líta á hverjir hafa eytt frístundum
sínum í leikhúsinu að undan-
förnu fyrir utan leikstjórann.
Um leiksviðið sjá þeir Svein-
björn Magnússon, Sigurður Sig-
urðsson og Einar Halldór Einars-
son. Lýsing er í höndum þeirra
Jóns Árnkelssonar og Ragnars
Emilssonar.
Persónur og leikendur eru:
Kennslukona: Ása Gísladóttir.
Prestur: Þorkell Björnsson. Rak-
el sterka: Hrefna Jónsdóttir.
Oddviti: Sigurður Illugason.
Hreppstjóri: Bjarni Sigurjóns-
son. Óðalsbóndi: Stefán Örn
Ingvarsson. Sara vatnsberi:
Guðný Þorgeirsdóttir. Sammi
„allt í lagi“: Jóhannes G. Einars-
son. Nói hreppsnefndarskrifari:
Vigfús Sigurðsson. Rut: Regína
Sigurðardóttir. Maja Iitla: Guð-
rún Stefánsdóttir. Marta: Arna
Stefánsdóttir. Silla: Guðrún
Magnúsdóttir.
Þá eru ótaldar allar þær konur
sem vinna við búninga, förðun og
hárgreiðslu, en þær eru: Steinunn
Ásgeirsdóttir, Hjördís Bjarna-
dóttir, Herdís Birgisdóttir, Björg
Sigurðardóttir, Dómhildur Ánt-
onsdóttir, Ingunn Indriðadóttir,
Ásdís Skarphéðinsdóttir, Frið-
rika Guðjónsdóttir og Hildur
Baldvinsdótiir. Hvíslari er Berg-
þóra Höskuldsdóttir.
Aldrei hefur skort fólk til
starfa hjá Leikfélagi Húsavíkur
enda er þetta öflugt áhugaleikfé-
lag sem getið hefur sér gott orð
og bíða menn nú spenntir eftir
frumsýningunni. SS
Firma- og einmenningskeppni Bridgefélags
Akureyrar verður haldin þriðjudaginn 26. mars,
að Hamri, félagsheimili Þórs.
Allt spilafalk i" komið'
Stjórn Britigefélags Akureyrar.
Viðtalstímar
Frambjóðendur okkar, Guðmundur Bjarnason,
Valgerður Sverrisdóttir og Guðlaug Björnsdóttir
verða til viðtals:
Þriðjudaginn 26. mars:
Ólafsfjörður, í Tjarnarborg, kl. 21.00-23.00.
Miðvikudaginn 27. mars:
Húsabakka í Svarfaðardal kl. 20.30-22.00.
Frambjóðendur okkar, Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son, Guðmundur Stefánsson og Daníel Árnason
verða til viðtals:
Miðvikudaginn 27. mars:
Ljósvetningabúð kl. 20.30-22.30.
Athugið að gerð verður grein fyrir búvörusamningnum.
Framsóknarflokkurinn.
Heiðurslaun
Brunabótafélags íslands
1991
Stjórn Brunabótafélags íslands veitir ein-
staklingum heiðurslaun samkvæmt
reglum, sem settar voru árið 1982 í því
skyni að gefa þeim kost á að sinna sér-
stökum verkefnum til hags og heilla fyrir
íslenskt samfélag, hvort sem er á sviði
lista, vísinda, menningar, íþrótta eða
atvinnulífs.
Reglurnar sem gilda um heiðurslaunin og
veitingu þeirra, fást á skrifstofu B.í. að
Ármúla 3 í Reykjavík.
Þeir, sem óska að koma til greina við veit-
ingu heiðurslaunanna 1991 þurfa að skila
umsóknum til stjórnar félagsins fyrir 10.
apríl 1991.
BRumnðimÉuiG Isuhds