Dagur - 26.03.1991, Page 13

Dagur - 26.03.1991, Page 13
Þriðjudagur 26. mar&1991— DAGUR - 13' Nýju fötin keisarans - hugleiðingar um sandkassaleik bæjarstjórnar Akureyrar Það er nú svo, að grín og gam- anmál eru talin lengja lífið. Sam- kvæmt því ættu Akureyringar að ná hærri meðalaldri heldur en aðrir landsmenn. Sérstaklega þeir, sem fylgjast með vinnu- brögðum ráðamanna hér í bæ. Hringlandahátturinn er með ólíkindum. Sem dæmi má nefna, að á sín- um tíma ákvað bæjarstjórn Akureyrar að gefa Akureyrarbæ í afmælisgjöf á 125 ára afmælinu, stækkun Amtsbókasafnsins. Allir urðu voða glaðir. Allir, sem með málum fylgjast, vita að Amts- þókasafnsbyggingin er fyrir löngu orðin of lítil. Efnt var til sam- keppni um teiknun og hönnun stækkunar bókasafnsins og valið úr það sem mönnum fannst álit- legast. Mun láta nærri að í þetta séu farnar 17 milljónir króna. En nú kom babb í bátinn. Eins og gengur hjá börnum að leik í sandkassa, verða þau leið á leikn- um þegar kastalabyggingin er komin nokkuð áleiðis. Einn segir: „Nú nenni ég þessu ekki lengur. Nú skulum við byggja fjárhús.“ Síðan er byrjað á fjár- húsunum. En viti menn. I ljós kemur að ekki er til nógur sandur í fjárhúsbygginguna. Síðan standa kastalinn og fjárhúsin hálfkláruð, vegna skammsýni blessaðra barnanna, sem ekki sáu fyrir, að efnið yrði ekki nóg í hvoru tveggja. Börnum er hægt að fyrirgefa sökum vanþroska þeirra og reynsluleysis. En full- orðið fólk sem 'hagar sér á þenn- an hátt, hvað skal segja um það? Óneitanlega minnir þetta á vinnuaðferðir háttvirtrar bæjar- I Árni Valur Viggósson. stjórnar. Nú er rætt um að hætta við stækkun Amtsbókasafnsins, verk sem nú þegar er búið að leggja umtalsverða fjármuni í. Verk sem hefði komið öllum bæjarbúum til góða. Og vegna heimtufrekju nokkurra svokall- aðra listamanna, virðist eiga að fara að sóa fé skattborgaranna í kaup á gömlum afdönkuðum húsum við Kaupvangstræti, til þess að þessir listamenn geti þjónað þar sinni lund. Er furða þó að við spyrjum: Hvers vegna eigum við að borga brúsann? Af hverju fjármagna þessir lista- menn ekki sína starfsemi sjálfir? Er það eðlilegt að þeir fái að leika sér með fé skattborgaranna á þennan hátt? Akureyringar verða að gera sér grein fyrir því, að bærinn hef- ir úr litlu að spila og nauðsynlegt er, að fara vel og skynsamlega með það fé, sem til ráðstöfunar er. Meiri sómi væri að því, að klára verkin og halda við þeim verðmætum, sem við höfum þeg- ar eignast og reyna að hreinsa bæinn og fegra, í stað þess að kasta hundruðum milljóna (sem ekki eru til) í skýjaborgir örfárra manna. Ef slík vinnubrögð verða látin viðgangast í framtíðinni, er hætt við því, að Akureyri missi orðstír sinn, sem einn fegursti bær landsins. Nær væri að háttvirt bæjar- stjórn, ef hún vill endilega kaupa þessi hús, stuðlaði að því að þarna yrði komið upp léttum iðn- aði í einhverri mynd. Iðnaði, sem gæfi eitthvað af sér og skaffaði bæjarbúum atvinnu. Afrakstur- inn af því mætti svo nota til þess að klára eitthvað af þeim verk- efnum, sem ráðist hefir verið í á undanförnum árum. Má þar nefna íþróttahöllina, Sundlaug- ina í Glerárhverfi, hressa uppá miðbæinn, fegra Strandgötuna, gera fínt í kringum Glerána, og margt annað mætti telja, sem er meira almenningi til heilla heldur Listagil. Mér dettur oft í hug sagan um nýju fötin keisarans, þegar hátt- virta bæjarstjórn ber á góma. Verkin, sem háttvirt bæjarstjórn lætur framkvæma á kjörtímabil- inu gætu á líkingamáli verið skrautflíkurnar sem hún kiæðist, í skrúðgöngunni við næstu bæjar- stjórnarkosningar. Ljótt væri ef eitthvert blessuð barnið, sem á skrúðgöngunar horfði, kvæði uppúr með það, að háttvirt bæjarstjórn væri í eintómum hálfkláruðum flíkum, eða jafnvel ekki í neinu. Árni Valur Viggósson. Höfundur er Akureyringur. Til leigu vélsagir Verk sf. vidhaldsþjónusta Bakkahlíð 15 Sími 25141 eftir kl. 18.00 Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum eignum fer fram á eignunum sjálfum, á neðangreindum tíma: Hafnarstræti 88, efri hæð að norðan, þingl. eigandi Stefán Sig- urðsson, miðvikud. 3. apríl 1991, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Fjárheimtan hf., Sigríður Thorlacius hdl. og Bæjarsjóður Akureyrar. Kaldbaksgata F og G hlutar ( skála, Akureyri, þingl. eigandi Bílasalan hf., miðvikudaginn 3. apríl 1991, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlánasjóður, Björn Jónsson hdl., Ólafur Gústafsson hrl., innheimtu- maður ríkissjóðs og Ólafur Birgir Árnason hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. f % • ENDURUNNINN pappír • TELEFAXPAPPIR . ÁÆTLUNARBLOÐ . ÁÆTLUNARBLOÐ fyrir SUMARLEYFI • SKÝRSLUBLOKKIR '.sérsSnpapw | . HVERS KYNS SÉRPRENTUN DAGSPRENT STRANDGÖTU 31 • 600 AKUREYRI StMAR 24222 & 24166 STARFSMANNAFELAG AKUREYRARBÆJAR Aðalfundur STAK verður haldinn á Hótel KEA miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.30. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á BSRB þing. 3) Önnur mál. Auglýst er eftir framboðslistum. Rétt til að bera fram lista hefur hver fullgildur félagsmaður og skal listinn studdur af minnst 20 félagsmönnum. Listinn ásamt tillögum um lagabreytingar þurfa að berast stjórn 14 dögum fyrir aðalfund. Kaffiveitingar verða á staðnum. Stjórnin. Vidskiptavinir vinsamlega athugið! Frá og með 2. apríl verður lögð niður móttaka á tómum dósum og flöskum. HAGKAUP Akureyri Nýja Smiðjan ér opin alla virka daga í hádeginu og öll kvöld ★ Um páskana verður Smiðjan opin öll kvöld Bjóðum leikhúsmafseðil, kvöld- og sérréttamatseðil. íf Baufinn verður opinn alla páskadagana frá kl. 10.00-22.00. V____________________________> f „RAŒ '91" verður haldin í Hlíðarfjalli norðan Skíðastaða dagana 29. og 30 mars. Föstudagur 29. mars kl. 11.00 - Spyrnukeppni (1/8 míla) Laugardagur 30. mars kl. 11.00 - Brautarkeppni. - Klifurkeppni ef aðstæður leyfa. Verðlaunaafhending fer fram í skemmtistaðnum Strætinu á laugardagskvöld Væntanlegir keppendur skrái sig í síma 96-22840 eða 96-21705 fyrir miðvikudaginn 27. mars. Bílaval h.f. skidoo söluumboð Bílaklúbbur Akureyrar PC9LRRI5 umboðið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.