Dagur - 26.03.1991, Síða 7

Dagur - 26.03.1991, Síða 7
 Þriðjudagur 26. mars 1991 - DAGUR - 7 Frænka Kalla Pegar komið var í salinn í Ungó, eða Dalvíkurbíói, á frumsýning- arkvöldi Leikfélags Dalvíkur á „Frænku Charleys" fimmtudags- kvöldið 21. mars, blasti leiksviðið við. Par gat að líta afar snotra leikmynd, sem sýndi stofu; fyrstu sviðsmynd verksins. Litla sviðið í Ungó virtist ótrúlega stórt, svo vel hafði leikmyndahönnuði uppsetningarinnar, Kristjáni E. Hjartarsyni tekist að nýta það. Seinni leikmyndin, garðurinn, er unnin af sömu vandvirkni. Ef eitthvað er, er hún ívið ofhlaðin laufskrúði og raunsæi, en hún gefur andblæ, sem fellur að þeim aldna gamanleik, sem til meðferð- ar er; þessum farsa, sem ef til vill er það verk, sem mest og lengst hefur verið flutt í íslensku leik- húsi. Yfir leikmynd Kristjáns er yfir- vegaður en þó léttur blær, sem kemur áhorfendum þegar í stað í viðeigandi skap til þess að njóta þess, sem í vændum er. Helstu gallarnir voru framkvæmdalegs eðlis. Það virtist vera of mik- ið og flókið verk að skipta á milli fyrri og seinni senu. Ýmislegt er gott í frammistöðu leikenda í uppfærslu Leikfélags Dalvíkur á Frænkunni. Þannig eru mörg hröð atriði vel útfærð. Þar má til nefna hlaupasenur í garðinum í síðasta þætti, til dæm- is þegar lögmaðurinn Stephen Spettigue eltist við Fancourt Babberley, lávarð, í gervi frænk- unnar. Einnig tekst vel á köflum að gæða leikinn fjöri í kringum matarborðið í fyrsta þætti og líka í aðdraganda þess, að lávarður- inn tekur að sér hlutverk frænk- unnar í sama þætti. Fleiri atriði mætti fram telja sem vekja léttan hlátur áhorfenda, en einmitt hann er meginmarkmið leiksins. Þá eiga einstakir leikarar góða spretti. Ber þar helst að nefna Sigurbjörn Hjörleifsson í hlut- verki Fancourts Babberleys Iávarðar, Pálma Finnbogason í hlutverki Jacks Chesneys, Þórar- inn Gunnarsson í hlutverki Char- les Wykehams, Steinþór Stein- grímsson í hlutverki Stephens Spettigues og Björgvin Hjörleifs- son í hlutverki Brassetts, her- bergisþjóns. Góðir sprettir eru þó ekki nóg til þess að geta af sér heildstæða sýningu. Allir þátttakendur í uppsetningunni áttu stundir, þar sem fjörið virtist dofna og rof koma í samfelluna. í fáeinum til- fellum komust menn því miður aldrei almennilega á flug, heldur voru nánast vandræðalegir í túlk- un sinni og tókst þess vegna ekki að skapa trúverðugar persónur. Fyrir kom líka, að klæði Ieikend- anna spilltu nokkuð og leið sá reyndi leikari Albert Agústsson ekki síst fyrir það. Leikstjóri uppsetningarinnar á Dalvík er Björn Ingi Hilmarsson. Margt er vel gert af hans hendi, samanber það, sem þegar hefur ver- ið sagt um fjörlegar senur í verkinu. En Björn virðist ekki hafa haft alveg næga yfirsýn yfir heildarsamspil leikendanna og samfellu sýningarinnar. Því verð- ur ýmislegt, sem betur hefði mátt fara, að skrifast á hans reikning. Vinningstölur laugardaginn 23. mars ’91 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af5 0 2.715.006.- n PLés^jtC Z. 4af5l^tP 3 156.852.- 3. 4af5 156 5.203.- 4. 3af 5 4.969 381.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.890.419.- I Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út á Lottó sölustöðum. Systur Evrópu Stefanía Traustadóttir frambjóð- andi Alþýðubandalagsins á N.e. ritar grein í Degi 12. mars sem hún nefnir „Dætur Evrópu“. Hún bendir réttilega á að Evrópubandalagið (EB) og Evrópska efnahagssvæðið (EES) hafi og muni hafa slæm áhrif á líf og kjör kvenna og orðrétt segir hún jj-i enda eru þær ekki hafðar með í samningagerð og ákvörð- unum.“ Þetta er einmitt það sem við Kvennalistakonur höfum hamrað á hvað eftir annað, í öll- um málum. Við teljum að konur nái besturn árangri ef þær standa saman við að ná sama rétti og karlar hafa nú þegar, stundum kallað jafnrétti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ritar grein í Morgunblaðið 13. og 14. mars sem hún nefnir „EB - Eitthvað fyrir okkur?“ Hún telur að flestir séu sammála um að ekki sé góður kostur að aðhafast ekkert í málinu en ágreiningur sé um leiðir. í greininni segir: „Þrjár leiðir hafa verið nefndar. 1) Taka upp beinar tvíhliða samningaviðræður við EB um endurbætur á núgildandi fríversl- unarsamningi. 2) Sækja um inngöngu í bandalagið, en viðræður þar að lútandi gætu hvort heldur sem er leitt til fullrar aðildar eða auka- aðildar. 3) Taka þátt í samningavið- ræðum EFTA og EB um Evrópskt efnahagssvæði. Afstaða stjórnmálaflokkanna til þessara þriggja leiða hefur ver- ið nokkuð mismunandi. Kvenna- listinn vildi fara fyrstu leiðina, en eins og flestum er kunnugt völdu stjórnmálaflokkarnir þá þriðju." Alþýðubandalagið er í ríkis- stjórn og hefur því valið þessa leið þó Stefanía telji að EES verði konum, börnum, öldruðum og fötluðum til heilla. í lokaorð- um Stefaníu er eftirfarandi: „Talsmenn aðildar okkar að EES halda því fram að samningar um þátttöku okkar í EES eða EB snúist fyrst og fremst um sjávar- útveg. Þeir vilja láta okkur Sigurburg Daðadóttir. gleyma kjarnanum í væntanleg- um samningi, sem er óheftur markaðsbúskapur í allri Vestur- Evrópu án nokkurra landamæra fyrir fjármagnið." Stefanía og aðrar kvenrétt- indakonur sem starfa í hinum flokkunum eru í tvöfaldri bar- áttu, fyrst við að koma sjónar- miðum kvenna að í sínum flokk- um og síðan er málefnaágreining- ur við hina flokkana. Kvenna- listakonur eru gagngert í stjórn- málum til að koma sjónarmiðum kvenna að og eru alltaf tilbúnar að styðja við bakið á þeim kon- um sem vilja hag kvenna og allrar fjölskyldunnar betri, sama hvar í flokki þær standa. Sagan úr grísku goðafræðinni sem Stefanía vitnar til í upphafi greinar sinnar getur svo sannar- lega átt við daginn í dag. Evrópa hreifst af dulbúningi Seifs en var nauðgað. Stelpur verum vakandi fyrir því hvað EB og EES þýðir fyrir okkur sjálfar! Sigurborg Daðadóttir. Höfunur skipar 2. sæti á framboðslista Kvennalistans á Norðurlandi eystra í komandi Alþingiskosningum. Nýkomin stór sending af fallegum vor- og sumarfatnaði frá Vfefn aðarvörudeild Frænka Charleys er eindreginn gamanleikur og er það í uppsetn- ingu Leikfélags Dalvíkur. Leik- húsgestir geta verið vissir um skemmtilega kvöldstund, því að það er sannarlega margt, sem kitlar hláturtaugarnar í þessu margleikna stykki, sem aldrei virðist verða leiðinlegt hversu oft sem það ber fyrir augu. Haukur Agústsson. Barnabílstóll - bílpúði - belti! Notar barnið þitt öryggisbúnað í bílnum? yUMFERÐAR RAÐ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.