Dagur - 26.03.1991, Blaðsíða 9
Þriðjiidágur 26. iriáfs lSf91r- öMÚR'- 9®
Áhorfendur fjölmenntu á lcikinn og hvöttu KA-menn til sigurs. Hér þakka KA-menn stuðninginn, fremstir eru þeir
Stefán Magnússon, Sigurður Arnar Ólafsson og Magnús Aðalsteinsson. Fyrir aftan má sjá Arngrím Arngrímsson til
vinstri og Huo Xiao Fei til hægri. Mynd: Goiii
Undanúrslitin í blaki karla:
„Það er synd ef við
förum ekki aUa leið“
;lí
- sagði Hafsteinn Jakobsson eftir 3:2 sigur KA
á Þrótti í æsispennandi leik
„Þetta var dæmigerður bikar-
leikur og synd að bæði lið gátu
ekki unnið. Á tímabili fannst
mér Þróttarar vera komnir
með annan fótinn í úrslitaleik-
inn en þetta er fljótt að snúast
í blakinu. Það er synd ef við
förum ekki alla leið úr því sem
komið er,“ sagði Hafsteinn
Jakobsson, besti maður KA,
eftir að liðið hafði tryggt sér
sæti í úrslitaleik bikarkeppn-
innar í blaki með 3:2 sigri á
Þrótti á Akureyri á sunnudags-
kvöldið. Leikurinn bauð upp á
allt það sem bikarleikir eiga að
gera, sveiflur, taugaveiklun,
skemmtileg tilþrif og síöast en
ekki síst rosalega spennu á
lokamínútunum.
Það er hægt að taka undir það
með Hafsteini að Þróttarar virt-
ust framanaf vera á leið í úrslitin.
Þeir afsönnuðu endanlega þá
kenningu að þeir geti ekki leikið
vel á Akureyri, byrjuðu af mikl-
um krafti og unnu fyrstu hrinu
örugglega 15:8. KA-menn vökn-
uðu til lífsins í annarri hrinu,
komust í 5:0 og 13:4 og unnu loks
15:7. Þróttur náði aftur undir-
tökunum, vann þriðju hrinu 15:9
og virtist ætla að tryggja sér
sigurinn í þeirri fjórðu. Liðið
komst í 7:1 og 11:8 en KA-menn
gáfust ekki upp, jöfnuðu og sigr-
uðu 15:12 og knúðu fram odda-
hrinu.
Lokamínúturnar voru æsileg-
ar. KA-menn voru ákveðnari og
höfðu forystuna þar til Þróttur
jafnaði 13:13. KA komst yfir en
Þróttur jafnaði 14:14 en vel
hvattir af fjölmörgum stuðnings-
mönnum sínum tókst KA-mönn-
um að skora tvö síðustu stigin og
tryggja sér sæti í úrslitaleiknum.
KA-menn sýndu mikinn kar-
Hafstcinn Jakobsson átti stjörnuleik og hér er eitt af fjölmörgum
„smössum“ hans í uppsiglingu. Mynd: Goiii
akter í lokin en taugaveiklun virt-
ist há þeim framanaf. Liðið átti
góða spretti en hefur margoft
leikið betur en þetta. Hins vegar
sannaðist að í bikarleikjum gilda
allt önnur lögmál og þar gengur
enginn að vísum sigri. Hafsteinn
Jakobsson var geysilega öflugur
og var tvímælalaust besti maður
liðsins. Haukur Valtýsson lék
einnig vel og Stefán Magnússon
átti góða spretti.
Þróttarar voru góðir og var mál
manna að þeir hafi leikið sinn
besta leik í vetur. Þeir voru að
vonum vonsviknir í leikslok og
voru ekki allir sáttir við dómgæsl-
una. „Það komu þrjú vafaatriði í
röð í fjórðu hrinu sem öll voru
dæmd KA-mönnum í hag og þar
með komust þeir aftur inn í leik-
inn,“ sagði fyrirliði þeirra, Leifur
Harðarson. Hann lék að vanda
vel en bestur Þróttara var Bjarki
Guðmundsson sem var sérlega
sterkur.
í hinum undanúrslitaleiknum
vann HK öruggan sigur á Þrótti-
b. Það verða því HK og KA sem
leika til úrslita og fer leikurinn
fram í Digranesi, á heimavelli
HK.
Knattspyrna:
Jamaikamannimim hjá Tindastól
fannst kalt og fór heim
Jamaíkamaðurinn Anglin
Winston, sem ætlaði að leika
með 2. deildarliði Tindastóls í
knattspyrnu í sumar, er hætt-
ur við allt saman og farinn út
aftur. Honum mun ekkcrt
hafa litist á íslenska veðurfar-
ið. Ætla Tindastólsmenn að
reyna að fá annan Banda-
ríkjamann í hans stað.
Winston kom til landsins í
síðustu viku ásamt Bandaríkja-
manninum Kevin Grimes. Þeir
æfðu með Tindastól í Reykja-
vík en um helgina var Winston
alveg hætt að lítast á blikuna og
vildi fara heim. Grinres lætur
hins vegar engan bilbug á sér
finna og er ekki vitað annað en
að hann ætli að vera áfram.
Forráðamenn Tindastóls ætla
sér að fá annan leikmann í stað
Winstons og eru allar líkur á að
þeir leiti fyrir sér í Bandaríkj-
unum.
Tindastóll lék tvo æfingaleiki
um helgina, sigraði Víði 4:0 í
Garðinum á laugardag og gerði
2:2 jafntefli við Þrótt í Reykja-
vík á sunnudag. í gær átti liðið
að leika gegn Skallagrími í
Borgarnesi. -bjb/JHB
Coca-Cola tvímenningur í snóker:
Helgi og Pétur uimu
Helgi Sigurðsson og Pétur
Bjarnason urðu sigurvegarar á
Coca-Cola tvímenningnum í
snóker sem fram fór á knatt-
borðsstofunni Gilinu á Akur-
eyri á laugardag.
Helgi og Pétur léku til úrslita
við Ófeig Marinósson og Gissur
Gissurarson og höfðu betur í
þeirri viðureign en þessi tvö pör
voru í nokkrum sérflokki á mót-
inu. Segja má að sigur Helga og
Péturs hafi komið nokkuð á óvart
því þeir hafa lítið leikið síðustu
ár þrátt fyrir að báðir hafi verið
iðnir við kolann á árum áður.
í þriðja sæti urðu Ingólfur
Valdimarsson og Jón Ómar
Árnason en þeir sigruðu Birgi
Torfason og Arnar Pétursson í
úrslitaleik um það sæti.
9 pör mættu til leiks, leikin var
einföld umferð og skiptust á að
stuða. Það var Coca-Cola sem
gaf öll verðlaun í mótið.
Blak:
KA heldur stigunum
- þrátt fyrir kæru frá Völsungi
Kvennalið KA í blaki mun að
öllum líkindum ekki tapa
stigunum tveimur sem liðið
hlaut fyrir að sigra Völsung á
Akureyri í síðasta leik liðanna.
Völsungur kærði KA fyrir að
nota ólöglegan leikmann og
féllst dómstóllinn á það. I
dómnum kom hins vegar ekki
fram að KA skyldi tapa stigun-
um tveimur og enginn skýr
ákvæði eru til þar um.
Völsungur kærði KA fyrir að
nota Birnu Kristjánsdóttur en
nokkur vafi leikur hins vegar á að
hún hafi verið ólögleg þrátt fyrir
úrskurðinn. Málið er allflókið en
snýst m.a. um hvort telja beri
með leiki í íslandsmóti 1. flokks
sem aldrei var klárað, auk þess
sem KA-menn telja að fram-
kvæmdastjóri BLÍ hafi ekki stað-
ið rétt að málum. Stefán Magnús-
son, formaður blakdeildar KA,
segir að eins og staðan sé í dag
haldi KA stigunum. Hins vegar
er hugsanlegt að málið verði tek-
ið fyrir að nýju fari Völsungar
fram á það.