Dagur


Dagur - 27.03.1991, Qupperneq 4

Dagur - 27.03.1991, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 27. mars 1991 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (Iþróttir), KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Byggðastjómir Nefnd sem ríkisstjórnin skipaði í desember 1989 til að fjalla um skipulag Byggðastofnunar og fyrstu aðgerðir í byggða- málum telur að meiri ábyrgð heimamanna á eigin málum sé forsenda þess að unnt verði að hefja átak til nýsköpunar í atvinnulífi á landsbyggðinni. í því sambandi leggur nefndin til að hvert kjördæmi verði eflt stjórnsýslu- og efnahagslega á þann hátt að það verði fært um að axla meiri ábyrgð á eigin málum. Komið verði á fót byggðastjórnum sem annist öll þau verkefni sem nú heyra sameiginlega undir ríki og sveitarfé- lög. Byggðastjómirnar hafi einnig með höndum nýsköpun í atvinnulífi og málefni atvinnuþróunarfélaga. í greinargerð nefndarinnar er bent á að landsbyggðin byggi afkomu sína fyrst og fremst á landbúnaði og sjávarút- vegi þar sem þróunarmöguleikar eru takmarkaðir. Af þeim sökum sé ekki nægjanlegt að auka hagræðingu í rekstri þeirra greina heldur verði að fara inn á ný svið í atvinnustarf- semi og leita allra leiða til nýsköpunar í atvinnulífi. Bent er á að flestar opinberar aðgerðir hafi einhver áhrif á þróun byggðar og því sé nauðsynlegt að byggðasjónarmið verði höfð til hliðsjónar þegar aðgerðir hins opinbera eru metnar. í stað þeirrar sterku miðstýringar sem hér viðgengst verði að færa ákvarðanatöku í málefnum, sem snerta hinar dreifðu byggðir, heim í hérað þar sem heimamenn beri sjálfir ábyrgð á framgangi og þróun mála. Flest störf sem nú skapast eru í þjónustugreinum. í þjón- ustu hins opinbera sköpuðust um 7,500 ný störf á árunum frá 1981 til 1988. Um þriðjungur þessara starfa urðu til á lands- byggðinni en tveir þriðju á höfuðborgarsvæðinu. Nefndin bendir á að til þess að snúa núverandi þróun við og auka hlut landsbyggðarinnar í opinberri þjónustu verði meirihluti nýrra opinberra þjónustustarfa að verða til á landsbyggðinni. Lagt er til að opinberar stofnanir geri grein fyrir því hvernig þær ætla að ná þeim markmiðum sem sett eru varðandi stað- setningu nýrra starfa utan höfuðborgarsvæðisins á hverjum tíma er þær áætla fjárþörf við gerð fjárlaga. Nefndin leggur mikla áherslu á sameiningu sveitarfélaga og bendir á þann möguleika að hvert atvinnusvæði myndi eitt sveitarfélag. Slík sameining sé forsenda þess að unnt verði að mynda og reka öflug atvinnuþróunarfélög og byggja upp sterka atvinnuþróunarsjóði í byggðum landsins. Sú byggðastefna, sem hingað til hefur verið unnið eftir, byggist á því að hagvöxtur í landinu skili einhverju fjármagni sem nýta megi til jöfnunaraðgerða milli byggða og landshluta. Á þeim tímum er hagvöxtur stendur í stað eða fer lækkandi getur slík byggðastefna ekki skilað hlutverki sínu og því er nú lögð áhersla á aukna stjórn og ábyrgð heimamanna í eigin málum. Áhersla er einnig lögð á raunverulega valddreifingu og að jafnvægi í byggð sé sá grundvöllur sem þurfi að vera fyrir hendi ef takast eigi að auka hagvöxt í landinu öllu. Ýmsir landsbyggðarmenn hafa barist fyrir þriðja stjórn- sýslustiginu. Verði hugmyndin um byggðastjórnir að veru- leika er stigið skref á þeirri braut. Byggðastjórnir mega hins vegar ekki verða bein viðbót við skriffinnskubákn stjórnsýsl- unnar. Þær verða að taka við raunverulegum verkefnum og ráðstafa ákveðnum tekjustofnum heima í hverju umdæmi án íhlutunar ríkisvaldsins. Verði það grundvallarsjónarmið ekki haft í heiðri er hætta á að árangur nýrrar byggðastefnu láti á sér standa. ÞI Skriðjöklar, frá vinstri Ásmundur Magnússon, Jósef Auðunn Friðriksson, Sölvi Ingólfsson, Jón Haukur Brynjólfs- son, fyrir framan, Jakob Rúnar Jónsson og Sigfús Örn Óttarsson. Ljósmynd: Bernharð Valsson Skriðjöklar í París „Þann 15. febrúar síðastliðinn var haldið þorrablót íslendinga í París. Að þessu sinni var blótað um borð í bát á Signu. Hljómsveitin Skriðjöklar frá Akureyri lék fyrir dansi langt fram eftir nóttu. Þeir komu fram í gömlum hefðbundn- um íslenskum búningum sem fengnir voru að láni hjá Leikfé- lagi Akureyrar. Þorrablótið var í umsjá námsmanna hér í París og tókst það með góðri aðstoð Skriðjökla sem keyptu matinn hjá Kjarna- fæði á Ákureyri og komu með hann með sér. Auk þess sáu þeir um innkaup á íslensku brenni- víni. Skriðjöklarnir dvöldu viku- tíma í París. Hljómsveitin hélt m.a. tónleika á bar hér í borginni (Majestic café) en þar var haldið íslenskt kvöld. Frakkar virtust kunna vel að meta tónlist þeirra Skriðjökla. Það er mál manna hér að hljómsveitin eigi greiða leið inn á franska vinsældalist- i!“ niflje.'óTic erive 1 ’iv’ij.iKh'Ti; fc'tt'I’K’ée GíírlToÍTe djmanche 32 ~ fevr ann! /IldÍt'.'STÍL' L'HVt’ 34 RUE VIEILLE DU TEMPLE 7500-1 PARIS —TB°H°T^»EV,aEOUlSA,WT PAUL 1 Bergljót Rist, París. Auglýsmg um tónleika Skriðjökla. Háskólinn á Akureyri: Páll Skúlason með fyrirlestur í kvöld Áhugafólk um heimspeki á Akureyri stendur fyrir fyrirlestri í dag. Dr. Páll Skúlason flytur fyrirlestur í Háskólanum á Ákureyri við Þórunnarstræti og hefst hann kl. 20.30 í kvöld, mið vikudagsk völd. Fyrirlestur Páls nefnist „Heimsmyndin“ og mun hann leitast við að skýra mismunandi skilning og skoðanir á heims- mynd samtímans. Fyrirlesturinn er liður í við- leitni til að rökræða skipulega forsendur skynsamlegrar lífs- skoðunar og lífsstefnu bæði fyrir einstaklinga, hópa fólks og þjóðir, svo og til að greina vand- kvæði sem tengjast mótun slíkrar skoðunar og stefnu. Páll Skúlason er prófessor í heimspeki við Háskóla íslands. Hann hefur verið mikilvirkur á sviði heimspekinnar bæði í rituðu og mæltu máli. Á meðal útgef- inna bóka Páls eru: Pælingar og Pælingar II, einnig bók um sið- fræði sem kom út nú í vetrarbyrj- un. Áhugafólk um heimspeki á Akureyri gekkst fyrir námskeiði um heimspeki fyrri hluta vetrar og annaðist dr. Kristján Kristjáns- í Degi fimmtudaginn 24. mars sl. ritar Tómas Ingi Olrich grein um auðlindaskatt og segir þar m.a.: „Fallvötnin eru að vísu ekki nema að hluta til í eigu þjóðar- innar. Þau fylgja að öðru leyti jörðum og þarf sá aðili sem vill virkja þau að kaupa vatnsréttind- in af viðkomandi jarðareiganda." Orð þessi koma mér afar spánskt fyrir sjónir og mig langar því til að biðja greinarhöfund að son kennsluna. Vegna mikillar aðsóknar varð að skipta þátttak- endum í tvo hópa. AHt áhugafólk er velkomið á fyrirlesturinn og er aðgangur ókeypis. segja mér og öðrum frá þessum vatnsréttindakaupum og hver þessi virkjanlegu fallvötn eru sem eru í einkaeign. En af því mér er vel við þetta þingmannsefni vil ég biðja hann að vanda svar sitt. Það verður nefnilega tekið eftir því í kom- andi kosningabaráttu hvort þing- mannsefni styðjast við ímyndanir eða staðreyndir. Eiríkur Eiríksson. Eiríkur Eiríksson: Auðlindaskattiirínn og Tómas Ingi

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.