Dagur - 27.03.1991, Qupperneq 15
íþróttir
Miðvikudagur 27. mars 1991 - DAGUR - 15
Bikarkeppnin í blaki kvenna:
Völsungur og UBK mætast
í undanúrslitum í kvöld
„Það er hugur í okkur og við
ætlum að vinna þennan leik,“
sagði fyrirliði kvennaliðs
Völsungs í blaki, Jóhanna
Guðjónsdóttir, en Völsungur
mætir Breiðabliki í kvöld í
undanúrslitum bikarkeppninn-
ar. Leikurinn fer fram í
íþróttahöllinni á Húsavík og
hefst kl. 20.30.
Liðin hafa mæst þrisvar á
íslandsmótinu í vetur og Breiða-
blik hefur vinninginn, hefur unn-
ið tvo af þessum leikjum en
Völsungur vann þann síðasta sem
fram fór á Húsavík. Jóhanna tel-
ur að Völsungar eigi góða mögu-
leika á sigri í kvöld. „Já, ég held
það. Ef við náum að sýna okkar
besta þá eigum við góða mögu-
leika. Þær eru reyndar með gott
lið, liafa mjög góðan uppspilara
og kantsmassara sem er sennilega
sú sterkasta á landinu. Við erurn
hins vegar með góðan heimavöll
og vitum að liðum finnst erfitt að
koma hingað og spila. Við mæt-
urn með okkar sterkasta lið og
erum bjartsýnar,“ sagði Jóhanna
Guðjónsdóttir.
Glíma:
Héraðssambandið Skarphéðinn
hlaut flesta meistaratitla
- góð þátttaka Eyfirðinga að Hrafnagili
Tveir af glímuköppum framtíöarinnar á mótinu að Hrafnagili um síöustu
helgi. Þátttakan á grunnskólamótinu fór frain úr björtustu vonum sem sýnir
að áhugi á þessari merku íþrótt fer stöðugt vaxandi. Mynd: jóh
Tvö glímumót fóru fram aö
Hrafnagili í Eyjafirði um síð-
ustu helgi, annars vegar Meist-
aramót Islands - LandsBokka-
glíman og hins vegar Grunn-
skólamót. Fimm félög og sam-
bönd sendu alls 63 keppendur
á það fyrrnefnda en á Grunn-
skólamótinu voru keppendur
76 talsins. Eyfirðingar fjöl-
menntu á mótin þrátt fyrir að
þeir hafi aöeins í skamman
tíma notið tilsagnar í glímu og
stóðu þeir sig vel og unnu til
nokkurra verðlauna eins og sjá
má hér á eftir.
Á Meistaramótinu hlaut HSK
flesta íslandsmeistaratitla, eða 5,
HSÞ hlaut 4, KR 3 og Víkverji l.
Úrslit í eldri flokkum:
-74 kg
1. Arngeir Friðriksson HSÞ
2. Helgi Kjartansson HSK
3. Yngvi Kristjánsson HSÞ
-81 kg
1. Helgi Bjarnason KR
2. Kristján Yngvason HSÞ
-90 kg
1. Jón Birgir Valsson KR
2. Orri Björnsson KR
3. Þórður Erlendsson HSK
+90 kg
1. Ólafur Haukur Ólafsson KR
2. Jóhannes Sveinbjörnsson HSK
3. Kjartan Lárusson HSK
Mikil spenna ríkti fyrir viður-
eign þeirra Jóhannesar og Ólafs
enda þar á ferð tveir sterkustu
glímuntenn landsins. Ólafur
færði sig upp um flokk til að fá
færi á Jóhannesi og hefna byltu
sem hann hlaut á Þorramótinu.
Það tókst og eftir nokkurt þóf og
sterkleg átök náði Ólafur sínu
öflugasta bragði, vinstra klof-
bragði, og lagði Jóhannes hreinni
byltu.
Úrslit í yngri flokkum:
Hnátur 10-11 ára
1. Unnur Sveinbjörnsdóttir HSK
2. Erna Ólafsdóttir UMSE
3. Magnea Garðarsdóttir UMSE
Telpur 12-13 ára
1. Karólína Ólafsdóttir HSK
2. Sabína Halldórsdóttir HSK
3. Bjarkey Sigurðardóttir UMSE
Meyjar 14-15 ára
1.-2. Guðrún Guðmundsdóttir HSK
1.-2. Erna Héðinsdóttir HSÞ
3. Heiða Tómasdóttir HSK
Hnokkar 10-11 ára
1. Ólafur Kristjánsson HSÞ
2. Sölvi Arnarsson HSK
3. Vilhjálmur Sigurðsson UMSE
Piltar 12-13 ára
1. Lárus Kjartansson HSK
2. Sigurjón Pálmarsson HSK
3. Óðinn Þór Kjartansson HSK
Sveinar 14-15 ára
1. Ólafur Sigurðsson HSK
2. Torfi Pálsson HSK
3. Gestur Gunnarsson HSK
Drengir 16-17 ára
1. Tryggvi Héðinssón HSÞ
2. Jóhann R. Sveinbjörnsson HSK
3. Hörður Sigurðsson HSÞ
Unglingar 18-19 ára
1. Ingibergur Sigurðsson Víkv.
2. Sigurður Hjaltested Víkv.
3. Garðar Þorvaldsson KR
Eyfírðingar fjölmenntu
á Grunnskólamótið
í framhaldi af vel heppnaðri
glfmukynningu Glímusambands-
ins í Eyjafirði var haldið Grunn-
skólamót fyrir allt landið sam-
hliða meistaramótinu. Eyfirskir
glímukappar af yngri kynslóðinni
af báðum kynjum létu sig ekki
vanta og voru 40 af 76 keppend-
um. Þeir unnu til 10 verðlauna og
eignuðust einn grunnskólameist-
ara.
Úrslitin fara hér á eftir, DS
stendur fyrir Dalvíkurskóla, BL
fyrir Barnaskóla að Laugarvatni,
BG Barnaskóla Gaulverja, GS
Gagnfræðaskóla Selfoss, Sk.
Skútustaðaskóla, BA Barnaskóla
Akureyrar, LF Ljósafossskóla og
HL Héraðsskólann að Laugar-
vatni.
Stúlkur 4. bekkur Kolbrún Kristjánsdóttir DS
5. bekkur Unnur Sveinbjörnsdóttir BL
6, bekkur Katrín Ástráðsdóttir BG
7. bekkur Karólína Ólafsdóttir BL
8. bekkur Heiða B. Tómasdóttir 9. bekkur BL
1.-2. Guðrún Guðmundsdóttir GS
1.-2. Erna Héðinsdóttir Sk.
Drengir 3. bekkur Elmar Dan Sigþórsson BA
4. bekkur Sölvi Arnarsson BL
5. bekkur Ólafur Kristjánsson Sk.
6. bekkur Óðinn Þór Kjartansson BL
7. bekkur Lárus Kjartansson BL
8. bekkur Ólafur Sigurðsson LF
9. bekkur Gestur Gunnarsson HL
10. bekkur Jóhann R. Sveinbjörnsson HL
Elvar Thorarénsen vann tvenn gullverðlaun í boccia og borðtennis.
Mynd: JHB
fslandsmót fatlaðra:
9*
Rut og Elvar sigursæl
Norðlendingar stóðu sig mjög
vel á íslandsmóti fatlaðra í
boccia, borðtennis, bogfimi,
sundi og lyftingum sem fram
fór um síðustu helgi. Mest bar
á Rut Sverrisdóttur, sundkonu
úr Óðni, sem sigraði í fjórum
greinum og setti íjögur
Islandsmet í flokki sjón-
skertra, og Elvari Thoraren-
sen, Akri, sem hlaut tvenn gull-
verðlaun í borðtennis og bocc-
ia.
Rut Sverrisdóttir setti fjögur
íslandsmeti í flokki sjónskertra, í
100 m baksundi á 1:27.63, 100 m
bringusundi á 1:12.08, 100 m
flugsundi á 1:19.73 og 200 m
fjórsundi á 2:59.80. Hún varð
önnur í 200 m fjórsundi en sigr-
aði :í hinum greinunum og einnig
í 100 m bringusundi á 1:34.20.
Rut hlaut afreksbikar fyrir flest
stig í 100 m skriðsundi.
Elvar Thorarensen úr Akri var
einnig atkvæðamikill á mótinu,
sigraði í einliðaleik í boccia og
hlaut tvenn gullverðlaun í borð-
tennis, í opnum flokki og stand-
andi flokki hreyfihamlaðra karla.
Að auki var hann í sigursveit
Akurs í sveitakeppni í boccia en
sveit Akurs sigraði í þessari grein
annað árið í röð.
Aðalsteinn Friðjónsson, Eik,
varð annar í 1. deild í boccia,
Stefán Thorarensen, Akri, sigr-
aði í 3. deild, Pálmi G. Jónsson
sigraði í U-flokki og Stella Sig-
urgeirsdóttir varð önnur en þau
eru bæði í Akri.
Akureyri:
Fyrsta skíðagöngumótið
fyrir 12 ára og yngri
Sl. laugardag fór fram Coca-
Cola mót í skíðagöngu fyrir 12
ára og yngri í Hlíðarfjalli. Var
þetta fyrsta göngumót í þess-
um aldursflokkum sem haldið
er á Akureyri í vetur.
Mótið fór vel fram þótt ótryggt
veðurútlit hafi fælt einhverja
keppendur frá þátttöku. Úrslitin
fara hér á eftir.
Drengir 8 ára og yngri, 1,0 km H
1. Björn Harðarson, A. 6.25
2. Einar Egilsson, A. 7.47
3. Páll Þór Ingvarsson, A. 8.19
4. Birkir Baldvinsson, A. 8.33
5. Bjami Árdal, A. 11.46
Drengir 9-10 ára, 2,0 km H
1. Grétar O. Kristinsson, A. 11.28
2. Baldur H. Ingvarsson, A. 12.04
3. Árni G. Gunnarsson, Ó. 12.05
4. Ragnar F. Pálsson, Ó. 14.06
5. Geir Egilsson, A. 14.09
Stúlkur 11-12 ára, 2,5 km H
1. Ósk Matthíasdóttir, Ó. 12.29
Drengir 11-12 ára, 2,5 km H
1. Þóroddur Ingvarsson, A. 9.57
2. Helgi Jóhannesson, A. 11.19
3. Arnar Sigurðsson, A. 15.00
Coca-Cola veitti þremur efstu í
hverjum flokki verðlaun auk þess
sem hver keppandi fékk viður-
kenningarskjal fyrir þátttökuna.
íþróttir
BLAK
Völsungur og Breiöablik leika í kvöld
í undanúrslitum bikarkeppni kvenna.
Leikurinn fer fram á Húsavík og hcfst
kl. 20.30.
HANDKNATTLEIKUR
Völsungur og Þór leika í úrslita-
keppni 2. deildar á Húsavík í kvöld.
Leikurinn hefst kl. 19.
SKÍÐI
Fjarðargangan fer fram í Ólafsfirði á
skírdag, fimmtudag. Gangan er liður
t íslandsgöngunni. Gengnir verða 20
km nteð hefðbundinni aðferö.
Á laugardag fer frarn parakeppni
12 ára og yngri ( alpagreinum í Hlíö-
arfjalli.
JÚDÓ
Islandsinótið í júdó fcr fram t Laugar-
dalshöll á laugardag. Keppt verður í
öllum flokkum kvenna og öllum
flokkum karla eldri en 15 ára.