Dagur - 11.04.1991, Blaðsíða 1
74. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 11. apríl 1991
68. tölubiað
Álitsgerð sjömannanefndar um hagræðingu og
uppstokkun í mjólkuriðnaði:
Hægt að spara 220 milljómr með
því að leggja niður 5 mjólkurbú
- menn verða að horfa til byggðamunsturs og markaðarins,
segir mjólkusamlagsstjórinn á Húsavík
Nefnd sem landbúnaðarráð-
herra skipaði fyrir rúmu ári til
þess að fara ofan í saumana á
hagræðingu og breytingu á
skipulagi mjólkuriðnaðarins
telur að afkastageta hans sé
langt umfram þarfír og ná megi
fram 165-220 milljóna sparnaði
með því að leggja niður 3-5
mjólkurbú í landinu. Hins veg-
ar gerir hún ekki tillögur um
hvaða mjólkurbú beri að
leggja niður. Þá telur nefndin
að ná megi fram auknum
sparnaði í rekstri með aukinni
verkaskiptingu rnilli mjólkur-
búa. Til þess þurfi þó sterkari
yfírstjórn í mjólkuriðnaðinum
og ýmsar skipulagsbreytingar.
Þessari sjö manna nefnd, sem
Óskar Gunnarsson, forstjóri
Osta- og smjörsölunnar stýrði,
var falið að endurskoða tillögur
svonefndrar Afurðastöðvanefnd-
ar frá því í ágúst 1989 um hag-
ræðingu í rekstri mjólkuriðnað-
arins með fækkun mjólkurbúa.
Nefndinni var og falið að meta
auk rekstrarfræðilegra atriða,
áhrif mjólkuriðnaðarins á
afkomu byggðarlaga.
I niðurstöðum skýrslu nefndar-
innar, sem landbúnaðarráðherra
fékk í hendurnar á dögunum,
segir að mjólkuriðnaðurinn hafi
sterka stöðu um þessar mundir,
en umhverfi hans mótist mjög af
lögum og reglugerðum ríkis-
Margrétin EA:
Margrétin EA kom til heima-
hafnar í gærmorgun, en skip-
ið hefur verið að rækjuveið-
um frá áramótum. Nk.
sunnudag heldur skipið til
veiða á bolfíski, en dágóð
þorskvciði hefur verið að
undanförnu á togslóð fyrir
Suðvesturlandi.
Að sögn Sturlu Einarssonar,
skipstjóra á Margrétinni EA, þá
gekk rækjuveiðin vel. Aflinn er
orðinn 550 tonn, sem er með
betra móti. Fimmtán nianna
áhöfn hefur verið á skipinu frá
áramótum, en nú verður fjölgað
um átta og önnur vinnslulína
sett í skipið.
„Við höldum til veiða nk.
sunnudag. Togararnir hafa ver-
ið að fá góðan þorsk-, ufsa- og
karfaafla. Útlitið er gott og
grálúðutíminn fer í hönd,“
sagði Sturla Einarsson, skip-
stjóri. ój
Atvinnulausum á Akureyri fækkar:
Flestir úr röðum verkafólks
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumiðlunarskrifstofunni
á Akureyri horfir betur í
atvinnumálum. Færri eru á
atvinnuleysisskrá en oft áður
og listinn styttist því nær sem
dregur vori.
Um síðastliðin mánaðamót
voru 216 á skrá yfir atvinnu-
lausa, 137 karlar og 79 konur.
Um mánaðamótin febrúar/mars
var þessi tala 239, þannig að
batinn er nokkur. Flestir
atvinnulausra korna úr röðum
verkafólks, en þó eru 15 iðnað-
armenn atvinnulausir og 6
sjómenn. Á sama tíma í fyrra
voru 40 iðnaðarmenn á atvinnu-
leysisskrá og þá var tala
atvinnulausra 308. ój
Flugfélag Norðurlands:
Ánægja með nvju vélina
„Reynslan af þessari vél er
ágæt. Ég held að farþegum
líki vel við vélina og hún hef-
ur reynst vel og þrátt fyrir að
reynslutíminn sé ekki langur
hefur sýnt sig að hún getur
komist af við þær aðstæður
sem hér eru,“ sagði Sigurður
Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Norður-
lands, aðspurður um reynsl-
una af nýjustu vél féiagsins.
Sigurður segir að hingað til
hafi vélinni fyrst og fremst verið
flogið til staða þar sem eru mal-
bikaðar brautir en hún hafi
einnig verið reynd á malar-
brautum, t.d. á Húsavík og
Egilsstöðum. „Þar virðist hún
geta athafnað sig án vandræða,“
sagði Sigurður.
Alla útreikninga unt flug-
hraða segir Sigurður standast og
ekkert bendi til annars en vélin
ætli að verða félaginu hagkvæm
í rekstri. JÓH
valdsins. Ástæða sé til að óttast
að rekstrarumhverfi iðnaðarins
geti versnað á komandi árum
vegna aukins innflutnings á unn-
um mjólkurvörum og sam-
keppnisvörum þeirra og dregið
verði úr almennum stuðningi við
mjólkurframleiðsluna. Vegna
þessa telur nefndin nauðsyn á
mikilli hagræðingu í mjólkuriðn-
aðinum og hún náist ekki fram
nema með róttækum skipulags-
breytingum.
f skýrslunni segir að nefndin sé
þeirrar skoðunar að heppilegasta
leiðin að því marki sé að stofna
eitt félag með samruna allra
mjólkurbúa landsins. Takist ekki
að stofna eitt félag sé næsti kost-
ur að efla Samtök afurðastöðva í
mjólkuriðnaði og fá þeim félags-
skap víðtækari völd til stjórnun-
ar. Við eflingu Samtakanna yrði
að tryggja mjólkurframleiðend-
um meiri áhrif í stjórn þeirra en
nú er.
Hlífar Karlsson, mjólkursam-
lagsstjóri á Húsavík, sagðist í gær
geta tekið undir sumt af því sem
nefndin legði til í umræddri
skýrslu. Til dæmis væri staðreynd
að umframafkastageta mjólkur-
iðnaðarins væri fyrir hendi. „En
menn verða að horfa á þetta í
víðara samhengi. Það er ekki
sama hvar mjólkurbúin eru lögð
niður ef til dæmis er horft til
byggðarmunsturs og markaðar-
ins,“ sagði Hlífar.
Umræðu um fækkun mjólkur-
búa hefur skotið upp á yfirborðið
annað slagið og meðal annars
hefur mjólkursamlag KÞ á Húsa-
vík verið nefnt í því sambandi.
Forsvarsmenn þess hafa ætíð
mótmælt því harðlega að leggja
það niður og bent á þungt vægi
þess í atvinnulífinu á Húsavík.
„Við viljum líka benda á að við
höfum ekki verið á þessum verð-
miðlunarspena. Á núvirði höfum
við skilað líklega um 200 milljón-
um króna í verðmiðlunina en
höfum fengið um 20 milljónir. Ef
við hefðum ráðstafað þessum 200
milljónum hefðum við getað
borgað hærra verð og selt neyt-
endum mjólkina á lægra verði,“
sagði Hlífar. óþh
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Það kallast forréttindi að njóta þæginda mcðan aðrir strita.
Mynd: Golli
Umboðsskrifstofa bæjarfógeta-
embættisins á Dalvík:
Afgreiðsla tollskjala í
fyrsta skipti í dag
flýtir verulega fyrir tollafgreiðslu
fyrirtækja á Dalvík
í dag verður byrjað að afgreiða
tollskjöl hjá umboðsskrifstofu
bæjarfógetaembættisins á
Dalvík. Þessi afgreiðsla er
bundin við fyrirtæki sem
stunda rekstur á Dalvík.
Jafnframt er þessi afgreiðsla
bundin við þau fyrirtæki sem hafa
heimild til einfaldari tollmeðferð-
ar en það eru þau fyrirtæki sem
sýnt hafa fram á góða meðferð
tollskjala, hafa svokallaða ET-
heimild.
Þessi breyting þýðir að fyrir-
tækjaeigendur á Dalvík geta nú
komið með tollskjöl á umboðs-
skrifstofuna á Dalvík, greitt og
fengið heimild fyrir afhendingu
vöru þegar í stað. Við þetta
minnkar til muna umstang þess-
ara aðila til að leysa vörur úr tolli
en hafa má í huga að Dalvíkur-
höfn gegnir æ stærra hlutverki
sem vöruflutningahöfn.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er þetta gert vegna þrýstings
heimamanna á Dalvík en þetta er
fyrsta umboðsskrifstofa hér á
svæðinu sem fær heimild til toll-
afgreiðslu skjala. JÓH
Skagaijörður:
Heyfengur bænda með betra móti
Forðagæslumenn í Skagafírði
eru vel á veg komnir með vor-
skoðun á heyjum og bústofni
bænda. Heyfengur er víðast
góður og mun betri en á síð-
asta ári. Nægt hey er til í ölium
hreppum þó einstaka bændur
séu tæpir með hey. Vegna
milds tíðarfars hefur þurft að
gefa útigangshrossum minna í
vetur heldur en oft áður.
Þær upplýsingar fengust hjá
Búnaðarsambandi Skagafjarðar
að afskipti hefur þurft að hafa af
færri bændum en oft áður vegna
heyleysis og lélegrar fóðrunar.
Þó eru vissir bæir orðnir tæpir
með hey og eru það gjarnan
sömu bæirnir ár eftir ár.
Ráðunautar Búnaðarsam-
bandsins hafa haft eftirlit með
þeim bæjum síðan í haust og hef-
ur það borið árangur. Ástand
hrossa er í góðu lagi en minna
hefur þurft að gefa þeim en oft
áður. Síðasti vetur var sérstak-
lega erfiður hvað hrossin varðaði
og víða gekk fóðrun útigangs-
hrossa erfiðlega vegna slæms tíð-
arfars.
„Heyfengur er mun betri en í
fyrra og heyleysi mjög lítið.
Sveitarstjórnir sjá um að koma
heyi til þeirra sem eru heytæpir.
Hross eru vel á sig komin og má
þakka það góðu tíðarfari,“ sagði
Víkingur Gunnarsson ráðunaut-
ur. kg