Dagur - 11.04.1991, Side 18
18 - DAGUR - Fimmtudagur 11. apríi 1991
Hundrað ár frá fæðingu Björgvins Guðmundssonar:
Vegleg dagskrá í tUefitii afinælisins
- hljóðfæraleikarar, söngvarar og leikarar taka höndum saman
Björgvin Guðmundsson, tón-
skáid, hefði orðið 100 ára 26.
apríl næstkomandi og ætla
Akureyringar að minnast þess-
ara tímamóta með veglegum
hætti. Tónlist Björgvins verður
flutt og leikrit eftir hann sýnt
og hafa margir aðilar tekið
höndum saman við að undir-
búa stórbrotna minningarhátíð
sem hefst 14. apríl og lýkur 2.
júní.
Ingólfur Ármannsson, menn-
ingarfulltrúi Akureyrarbæjar,
boðaði til blaðamannafundar af
þessu tilefni og þar voru mættir
skipuleggjendur þeirra viðburða
sem boðið verður upp á í tengsl-
um við afmælishátíðina.
Ingólfur uppiýsti að menning-
arsjóður bæjarins myndi standa
að útgáfu á kynningarriti um
Björgvin Guðmundsson og
Sverrir Pálsson hefði umsjón
með útgáfunni. Petta yrði fylgirit
sem lægi frammi á þeim uppá-
komum sem haldnar verða.
Verk eftir Björgvin og
Áskel Jónsson á tónleikum
Sverrir sagði að kynningarritið
yrði sextán blaðsíður og megin-
efni þess yrði ritgerð Jóns Þórar-
inssonar, tónskálds, um Björgvin
og þar væri aðaláherslan lögð á
tónsmíðar hans. Sjálfur mun
Sverrir rita grein um Björgvin
Guðmundsson á Akureyri. Einnig
verður í ritinu yfirlit yfir það sem
er á dagskrá í tilefni afmælisins.
Fyrsti viðburðurinn í dag-
skránni verður sunnudaginn 14.
apríl kl. 17 í Akureyrarkirkju.
Þar mun Kór Glerárkirkju halda
tónleika og á efnisskránni verða
verk eftir Björgvin Guðmunds-
son og Áskel Jónsson, en Áskell
varð áttræður 5. apríl sl. Kórinn
mun þannig halda upp á afmæli
tveggja tónskálda sem bæði hafa
unnið ötullega að tónlistarmálum
á Akureyri. Jóhann Baldvinsson,
organisti, er stjórnandi kórsins
og hann kynnti dagskrá tónleik-
anna.
Fyrri hluti tónieikanna verður
helgaður lögum Áskels en hann
var í 42 ár organisti og kórstjóri
við Lögmannshlíðarkirkju og
síðar Glerárkirkju. Áskell hefur
samið allmikið af sönglögum fyrir
einsöng, tvísöng og kór og árið
1987, er Áskell lét af störfum, gaf
kórinn út bókina Við syngjum
með helstu lögum hans. Ágóði af
sölu bókarinnar rennur í orgel-
sjóð Glerárkirkju sem Áskell og
kona hans Sigurbjörg Hlöðvers-
dóttir stofnuðu á 75 ára afmæli
Áskels 1986.
Friður á jörðu
Öll lögin fyrir utan eitt eru úr
áðurnefndri bók og hafa tvö lag-
anna ekki verið flutt á tónleikum
áður svo vitað sé. Annars vegar
er um að ræða kórlagið Við
útskerið og hins vegar einsöngs-
lagið Þeyst um þorrakveld. Ein-
söngvarar verða Helga Alfreðs-
dóttir, sópran, Margrét Bóas-
dóttir, sópran, Þuríður Baldurs-
dóttir, alt, Óskar Pétursson,
tenór, og Eiríkur Stefánsson,
bassi, en þau Helga og Eiríkur
sungu um árabil einsöng, tvísöng
og í kór hjá Áskeli. Guðrún A.
Kristinsdóttir leikur á píanó en
stjórnandi Kórs Glerárkirkju.
Jóhann Baldvinsson, útsetti tvö
laganna fyrir strengjasveit sem
leikur með.
Björgvin Guðmundsson var
búsettur á Akureyri í 30 ár, frá
1931, er hann kom frá Kanada,
þar til hann lést í byrjun árs 1961.
Lét hann strax mjög til sín taka á
tónlistarsviðinu og stofnaði fljót-
lega eftir að hann kom Kantötu-
kór Akureyrar sem flutti flest
verka hans. Björgvin og Áskell
Jónsson stjórnuðu Kantötukórn-
um um tíma báðir. Þá var
Björgvin í um þrjú ár organisti í
afleysingum við Ákureyrarkirkju
og stef það sem klukkur kirkj-
unnar leika er eftir hann.
Á tónleikunum 14. apríl verð-
ur fluttur fyrsti þáttur, Paradísar-
þátturinn, og upphaf fjórða þátt-
ar óratóríunnar Friður á jörðu
sem Björgvin samdi vestur í
Kanada á árunum 1917-19. Text-
inn er tekinn úr samnefndum
ljóðaflokki eftir Guðmund
Guðmundsson og fjallar um hina
glötuðu og endurheimtu Paradís.
Verkið er skrifað fyrir kór, ein-
söngvara og píanóundirleik en
dr. Hallgrímur Helgason skrifaði
píanóhluta fyrsta þáttar fyrir
kammerhljómsveit og hið sama
gerði Jóhann Baldvinsson við
upphafskór fjórða þáttar. Ein-
söngvarar verða Margrét Bóas-
dóttir, sópran, Þuríður Baldurs-
dóttir, alt, og Óskar Pétursson,
tenór.
Tónleikarnir hefjast eins og
áður segir kl. 17 í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn og verða
aðgöngumiðar seldir við inngang-
inn.
Skrúðsbóndinn í nýrri
leikgerð
Leikfélag Akureyrar sýnir leikrit
Björgvins Skrúðsbóridann í nýrri
leikgerð Jóns Stefáns Kristjáns-
sonar í Akureyrarkirkju 24.-26.
apríl. Sýningarnar eru liður í
Kirkjulistaviku í Akureyrar-
kirkju og er uppfærslan samstarfs-
verkefni Leikfélags Akureyrar og
Akureyrarkirkju. Jón Stefán lýsti
leikgerð sinni og sagði að hún
tæki mið af aðstöðunni í kirkj-
unni og helgi staðarins svo og
fjölda leikara sem hægt væri að fá
í sýninguna og einnig væri tíminn
takmarkaður.
„Ég lagði áherslu á það að
söguþráðurinn héldi sér en það er
ákaflega mikill og einlægur siða-
boðskapur í leikritinu og ég vildi
ekki að hann missti marks þótt ég
yrði að stytta verkið. Fallegustu
kaflarnir í tónlist verksins eru
líka til staðar og þetta er brætt
saman í eina leiksýningu sem
stendur yfir í einn og hálfan tíma
en leikritið í upprunalegri lengd
með allri tónlistinni er hátt í þrír
tímar,“ sagði Jón Stefán, sem
jafnframt er leikstjóri.
Hann sagðist hafa tekið út
ýmis atriði, t.d. kóra bergþursa
og fordæmdra manna, til að
stytta verkið en áherslan er lögð
á að láta boðskapinn njóta sín.
Björn Steinar Sólbergsson,
organisti Akureyrarkirkju, hefur
umsjón með tónlistarþættinum í
sýningunni.
„Tónlistin er felld að nýrri leik-
gerð en heldur sér að mestu.
Nokkrum köflum er sleppt en
einnig tökum við inn tvö þekkt
lög eftir Björgvin sem ekki eru í
upphaflegu leikgerðinni en falla
vel að textanum. Fjórtán manna
hópur úr Kór Akureyrarkirkju
flytur tónlistina og ieikið verður á
lags Akureyrar á Skrúðsbóndanum.