Dagur - 11.04.1991, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 11. apríl 1991 - DAGUR - 19
Roar Kvain réðst í það
stórvirki að útsetja Streng-
leika fyrir hljómsveit, kor
og einsöngvara. Kammer-
hljómsveit Akureyrar mun
flytia verkið í fullri lengd
en það hefur ekki venð
gert áður.
Jón St. Kristjánsson hefur
stytt Skrúðsbóndann og
gert ýmsar breytingar
þannig að hér er um nýja
Icikgerð að ræða.
kirkju á sunnudagtan^Ehinickom 9Ierárlí,rkJu á tónleikum í Akureyr
«g á efnisskránnS verk éftSör^l” «8 hljóðfæraleika
en Askel. er hér á myn^taStThanSUðmUndSSOn °8 Askel JÓnss<
Sverrir Pálsson hefur
umsjón með kynning-
arriti um Björgvin
Guðmundsson.
stóra orgelið uppi og litla orgelið
niðri,“ sagði Björn Steinar.
Strengleikar fluttir í
fullri lengd
Kammerhljómsveit Akureyrar
ætlar að ráðast í það stórvirki að
flytja Strengleika Björgvins, en
þetta er fyrsta óratórían sem
samin er hér á landi. Roar Kvam,
stjórnandi hljómsveitarinnar,
sagði að það væri langt síðan sú
hugmynd kom upp að flytja verk-
ið og hefði Margrét Björgvins-
dóttir, dóttir tónskáldsins, átt
frumkvæði að því, en margir telja
Strengleika besta verk Björgvins
Guðmundssonar.
„Við ákváðum að flytja verkið
í heild í tilefni afmælisins sem
þýðir að þetta verður risaflutn-
ingur, sennilega tveggja tíma
konsert. Verkið skiptist í 42 kafla
og er því svipað að lengd og
Björn Steinar Sólbergsson stjórnar tónlistarflutningi í uppfærslunni á Skrúðsbóndanum.
Messías eftir Handel. Kórkafl-
arnir eru 19, eða um helmingur
verksins,“ sagði Roar Kvam.
Roar tók að sér að útsetja
Strengleika að nýju sem er
óhemju verk. Hann hófst handa
á árinu 1988 og er að ljúka við að
skrifa síðustu kaflana. Verkið var
skrifað fyrir píanó og telur Roar
það ekki njóta sín til fulls þannig
og því ákvað hann að útsetja það
fyrir hljómsveit, kór og einsöngv-
ara. Hann segist þó ekki hafa
gert neinar breytingar á verkinu
en bætt slagverksröddum við nót-
urnar. Æfingar eru nú að hefjast.
„Aðalvandamálið verður
kannski að fá nógu marga í
kórinn. Skemmtilegast væri að
vera með 100-150 manna kór en
ég vonast til að fá að minnsta
kosti 50 manns. Ákveðið var að
fá eingöngu einsöngvara héðan
að norðan en um tíma var hug-
myndin sú að fá landsþekkta
söngvara. Ljóst er að Þuríður
Baldursdóttir, Óskar Pétursson,
Hólmfríður Benediktsdóttir, Jón
Helgi Þórarinsson og Stefán Arn-
grímsson munu syngja á tón-
leikunum. Hugsanlega fáum við
annan tenór því tenórhlutverkið
er mjög stórt," sagði Roar.
Einsöngur og upplestur
Strengleikar verða fluttir í
Skemmunni 2. júní kl. 17.
Kammerhljómsveitin verður
skipuð um 50 hljóðfæraleikurum
og kórinn samanstendur af félög-
um úr Passíukórnum, Kór Gler-
árkirkju, Karlakór Akureyrar
Geysi og Kantötukórnum auk
þess sem áðurnefndir einsöngvar-
ar munu koma fram.
Roar sagði að Strengleikar
hefðu tvisvar verið fluttir áður,
1947 og 1951, en í bæði skiptin
aðeins kaflar úr verkinu. Flutn-
ing Kammerhljómsveitarinnar
má því kalla frumflutning því
þetta er í fyrsta sinn sem verkið
verður flutt í heild og markar
spor í tónlistarsöguna á íslandi.
Textinn við Strengleika er eftir
Guðmund Guðmundsson, skóla-
skáld, rómantískur og fallegur
texti.
Björgvin Guðmundsson skrif-
aði mikið, m.a. bókina Minning-
ar. Sú hugmynd er nú í vinnslu að
samtengja lestur úr bókinni og
einsöngstónlist Björgvins. Þá
myndu tveir einsöngvarar og einn
upplesari flytja samfellda
dagskrá og er gert ráð fyrir að
dagskráin yrði flutt í Minjasafn-
inu á Akureyri. Þar eru ýmsir
munir Björgvins geymdir. Ef af
dagskránni verður er sennilegt að
hún verði flutt í maí.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu munu margir leggjast á
eitt til að heiðra minningu
Björgvins Guðmundssonar, tón-
skáldsins sem festi rætur á Akur-
eyri. SS