Dagur


Dagur - 11.04.1991, Qupperneq 21

Dagur - 11.04.1991, Qupperneq 21
tónlist Bolstrun, nýsmíði og viðgerðir. Látið fagmenn vinna verkin. K.B. Bólstrun. Strandgötu 39, sími 21768. Klæði og geri við bólstruð húsgögn. Áklæði, leðurlíki og leðurlúx. Látið fagmann vinna verkið. Kem heim og geri kostnaöaráætlun. Vísaraðgreiðslur í allt að 12 mán- uði. Bólstrun Björns Sveinssonar. Geislagötu 1, Akureyri, sími 25322. □ St.: St.: 59914117 VII Frl. Ritvélar ________' <. Kristniboðsfélag kvenna heldur fund laugardaginn 13. apríl að Víði- lundi 20 (hjá Ingileif). Skúli Svavarsson, kristniboði sem er nýlega kominn frá Kenýa og Eþíó- píu mætir á fundinn, segir frá starf- inu þar úti. Stjórnin. Messur -ÆJ: Akureyrarprestakall. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag fimmtudag kl. 17.15 í Akureyrar- kirkju. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. Arnadheilla _______________ Á morgun 12. apríl verða 50 ára, Fanney Þórðardóttir og Ingvi Þórðarson. Þau taka á móti gestum í KA-heimilinu milli kl. 18.00-22.00. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri Frumsýnir: ER ÁFENGI VANDAMÁL í ÞINNI FJÖLSKYLDU? AL-ANON fyrir ættingja og vini aikóhóiista. FBA - Fullorðin börn alkóhólista. I þessum samtökum getur þú: * Bætt ástandid innan tjöt- * Hitt aðra sem glima við skyldunnar. sams konar vandamái * Byggt upp sjállstraust þitt. * öðlast von i stað örvænt- ingar. Fundarstaður: AA husið, Strandgötu 21, Akureyri, aiml 22373. Al-Anon deildlr halda lundi á mánudögum kl. 21.00, miðvikudögum ki. 21.00 og laugardögum kl. 14.00. FBA, Fullorðm börn alkóhólista, halda fundi á þriöjudagskvökíum kl. 21.00. Nýtt fólk boðlð velkomið. Grænfjöðrungur eftir Carlo Gozzi. Leikstjóri: Jón St. Kristjánsson. II. sýning: Fimmtud. 11. apríl kl. 20.30. III. sýning: Mánud. 15. apríl kl. 20.30. IV. sýning: Þriðjud. 16. apríl kl. 20.30. Miðapantanir í síma 24073 alla daga milli kl. 16.00 og 20.00 og laugar- daga og sunnudaga frá kl. 14.00 og 17.00. Ég þakka af heilum hug samstarfsfólki, vinum og vandamönnum fjær og nær alla þá hlýju og gleði, sem mér var sýnd á áttræðisafmæli mínu þann 5. apríl s.l. Með friðar- og farsældaróskum, ÁSKELL JÓNSSON. Elskuleg móðir okkar, GUÐMUNDA EIRNÝ SIGURJÓNSDÓTTIR, (GÚNDA), Gránufélagsgötu 53, Akureyri, lést að kvöldi 9. apríl á Hjúkrunarheimilinu Hlíð. Fyrir hönd aðstandenda, Þórey Stefánsdóttir, Rafn Stefánsson. Fimmtudagur 11. apríl 1991 - DAGUR - 21 r------------------------------------- Mozarttónleikar í ár eru liðin tvö hundruð ár frá því að stórsnillingurinn Wolfgang Amadeus Mozart lést í Vínar- borg. Þessa var minnst með Moz- arttónleikum Kammerhljóm- sveitar Akureyrar, sem haldnir voru í Akureyrarkirkju sunnu- daginn 7. apríl. Efnisskrá tónleikanna var metnaðarfull. Fluttur var for- leikurinn að óperunni Don Giovanni, söngvararnir Bergþór Pálsson, baritón, og Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, fluttu aríur og dúett úr óperum Mozarts og leikin var Sinfónía nr. 40 í g- moll, KV 550. Það var því af nógu að taka og eftir að sælast fyrir aðdáendur tónskáldsins, enda léiu þeir sig ekki vanta á tónleikana. Kirkjan var fullskip- uð áheyrendum, sem létu iðulega ánægju sína í ljósi með þrótt- miklu lófataki. Það var líka full ástæða til þess að fagna ýmsu á þessum tónleik- uin. Sérlega var glæsileg frammi- staða Bergþórs Pálssonar. Hann söng aríu Papagenos úr Töfra- flautunni og aríu greifans úr Brúðkaupi Fígarós með lifandi og lcikrænum tilburðum, sem féllu vel að efninu. Rödd Berg- þórs er þróttmikil og blæbrigða- rík. Fyrir brá á stöku stað ein- hverju óstýrlæti, en vel getur verið, að það hafi verið hluti af túlkun söngvarans. Elín Ósk Óskarsdóttir gerði sínum þætti tónleikanna góð skil. Hún söng aríu Contessu úr Brúð- kaupi Fígarós og aríu Fiordiligi úr Cosi fan tutte af öryggi. Reyndar skorti nokkuð hita á stundum ekki síst í inngangi aríu Contessu og fyrir kom að rödd Elínar Óskar var ekki nógu þróttmikil til fullrar túlkunar. Saman sungu Bergþór Pálsson og Elín Ósk Óskarsdóttir dúett Paminu og Papagenos úr Töfra- flautunni og dúett Zerlinu og Don Giovannis. Raddir söngvar- anna féllu vel saman og túlkun var góð og innileg ekki síst í síðarnefnda dúettinum. Hljómsveitarstjóri á Mozart- tónleikunum var Örn óskarssön og var þetta í annað skiptið, sem hann hefur starfað með Kammer- hljómsveit Akureyrar. Hljóm- sveitin fylgdi bendingum hljóm- sveitarstjórans hvað varðaði styrk og hlæ af talsverðri nákvæmni í forleiknum að Don Giovanni. Nokkurrar ónákvæmni og deyfðar gætti hins vegar í flutningi Sinfóníunnar í g-moll líkt og einbeiting væri tekin að slakna og að meiri tími hefði mátt vera til æfinga. Ef til vill hefur þreyta verið tekin að segja til sín, en sinfónían var síðasta vcrkið á efnisskránni. Auk þess, sem þegar hefur ver- ið á minnst, komu því miður fyrir rangir tónar á stöku stað og einnig brá fyrir óþægilegum blæ - aðallega í fyrri hluta tónleikanna - eins og stilling væri ekki alveg rétt. Lakast var þó, að hljóm- sveitin var iðulega talsverðu of hávær undir söng Bergþórs Páls- sonar og Elínar Óskar Óskars- dóttur. Þar hefði mátt beita „piano" meira en gert var. Þrátt fyrir þær aðfinnslur, sent hér hafa verið raktar, voru tón- leikarnir í Akureyrarkirkju ánægjulegir. Þeir lýsa vel þeim glæsilega stórhug, sem forráða- ntenn kammerhíjómsveitar Akureyrar hafa til að bera og sem hefur gert það faert á Norðurlandi að heiðra minningu Mozarts með verðugum hpetti. Þess hefði ekki verið kostur, ef ekki nyti hljómsveitarinnar. Þau ár, sem hún hefur starfað hafa verið ár stöðugra framfara og sívaxandi getu til þess að takast á við metnaðarfull verkefni. Ljóst er samt, að aðstaða hljómsveitarinnar þarf að batna og þá ekki síður þeirra hljóðfæra- leikara, sem í henni starfa. Það, að koma því í kring, ætti að vera áhugaefni ekki bara þeirra, sem að Kammerhljómsveit Akureyr- ar standa, heldur ekki síður þeirra, sem ráða fjármálum og framkvæmdum bæjarins og reyndar líka ráðamanna á lands- vísu. Hljómsveitin gegnir þegar mikilvægu hlutverki í menningar- lífi Akureyrarbæjar og Norð- lendingafjórðungs alls. Þáttur hennar í tónlistarlífi Norðlend- inga allra má enn vaxa. Forráða- menn hennar hafa fullan hug á að svo megi verða. Voandi njóta þeir atbeina góðra manna í þeirri viðleitni sinni. Haukur Ágústsson. Félagsvist í Hamri Stúlkurnar í knattspyrnuliði Þórs á Akureyri gangast fyrir spilakvöldi í Hamri föstudag- inn 12. apríl kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist og eru margir góðar vinningar í boði fyr- ir góðan árangur við spilaborðið. Allir Þórsarar og aðrir velunnar- ar félagsins eru hvattir til þess að mæta og taka sér spil í hönd. Nautahakk ..............kg kr. WC-pappír m/8............ kr. Eldhúsrúllur m/4......... kr. Bio tex blátt............ kr. A Plus bleiur m/26 ...... kr. Tekex..................... kr kg kr. 699 198 ... kr. 198 ... kr. 158 ... kr. 250 ... kr. 41 Góð kaup!!! Ath. Kynning laugardag Öetker Mikrokökur. TILBOÐ Hamborgari KJ fiskibollur Lindu bitar með brauði 1/i dós 250 g 2 stk. 138 kr. 225 kr. 125 kr. var 236 kr. var 252 kr. var 164 kr. Opið til kl. 19.00, föstudaga.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.