Dagur


Dagur - 04.05.1991, Qupperneq 17

Dagur - 04.05.1991, Qupperneq 17
efst í huga Laugardagur 4. maí 1991 - DAGUR - 17 l Að ná lágmarksverði á landbúnaðarvörum Þessa dagana eru sveitirnar aö vakna til lífsins eftir frost og fannir vetrarins. Far- fuglarnir eru komnir handan um haf og hefja hvern dag meö glaðværum morg- unsöng. Sauðburður er að hefjast og ef þau hlýindi sem leikið hafa um landið undanfarna daga eiga eftir að haldast fara gróðurnálar að teygja anga sína upp úr moldinni. Liðinn vetur verður einnig að teljast með þeim mildari hér norðan fjalla að minnsta kosti hvað frost og fannfergi varðar. Margir bændur búa því að vænni heyforða nú í vorbyrjun en í venjulegu meðalári og trúlega verður einhverjum þeirra hugsað til fyrninga í hlöðum sínum nú þegar þeir eru að fjár- festa í áburði og dreifa honum á tún. Of snemmt er þó að spá góðu vori því enn geta orðið veðrabrigði í lofti og vorhret hafa oft dregið úr uþpskeruvonum sumarsins. En góður vordagur ætti að létta lund þeirra er lifa á landsins gæðum og eiga sitt að miklu leyti undir sól og regni. Þótt vorið virðist vera að koma og margt bendi til að það geti orðið grænt og hlýtt verða bændur að hyggja að fleiri þáttum en þeim sem að náttúrunni snúa. Margvíslegir erfiðleikar steðja að land- búnaði sem atvinnurekstri og ber þar hæst að hin mikla framleiðslu- og afkasta- geta nútíma búrekstrar hefur möguleika til að framleiða mun meiri afurðir en selst hafa á innlendum markaði á undanförn- um árum. Af þeim sökum hafa flestir bændur orðið að draga úr starfsemi sinni. Ýmsir hafa hætt og horfið með misjafnan áxöxt ævistarfs síns af jörðum sínum. Aðrir stunda búskapinn áfram en mega aðeins nýta hluta af afkastagetu sinni. Slíkar aðstæður eru ekki síður þreytandi en harðindin þegar aldrei virð- ist ætla að sjá fyrir endann á þeim. Mikið hefur verið rætt um aðstæður íslensks landbúnaðar en erfiðlegar gengið að finna leiðir til þess að auka þarfir, fyrir framleiðsluvörur sveitanna. Eina leiðin, sem nú virðist vera fær til þess að auka neyslu hins almenna Islendings á landbúnaðarafurðum er að lækka verð þeirra. Verðlækkun er einnig nauðsynleg til þess að innlend landbún- aðarframleiðsla veröi betur samkeppnis- hæf við erlenda framleiðslu og á þann hátt megi verjast kröfum um innflutning með sterkari rökum. Deilt er um á hvaða stigum framleiðslu og sölu landbúnað- arafurða eigi að leita hinna nauðsynlegu ieiða til verðlækkunar. Ljóst er þó að þar má enginn undan skorast. Framleiðend- ur, úrvinnsluaðilar og verslunarmenn verða allir að leggjast á eitt í því sam- bandi og mynda ákveðna sátt um að gæta þess að halda framleiðslukostnaði og verðlagningu í því lágmarki sem mest má verða. Á þann hátt vinna lands- menn með vorkomunni og styrkja og treysta grundvöll búsetu og mannlífs í hinum dreifðu byggðum landsins. Þórðurlngimarsson. SPÓISPRETTUR Hestafolk! Kabarett - Dansleikur veröur í Laugarborg föstudaginn 10. maí og hefst kl. 21.00. Söngur ★ Glens ★ Gaman Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi. Skemmtinefnd Léttis. íþróttamót Funa verður haldið laugardaginn 11. maí á Mel- gerðismelum. Keppt verður í eftirtöldum greinum: Tölti, fjórgang, fimmgang og gæðingaskeiði. Almennt reiðnámskeið verður haldið á Melgerðismelum dagana 8.- 10. maí ef næg þátttaka fæst. Leiðbeinandi verður Birgir Árnason. Skráning fer fram hjá Ingólfi í síma: 31243, og Birgi í síma: 31126 eða 27662. Nefndin. AKUREYRARBÆR Dagvistardeild auglýsir opnun leikvalla í sumar sem hér segir. Frá 1. maí-1. september 1991. Gerðarvöllur verður opinn frá 14 til 17. Aðrir vellir verða opnir frá 9-12 og 14-17. þ.e. Byggðavöllur, Leiruvöllur, Eyrarvöllur, Lundarvöllur, Borgarvöllur, Bugðuvöllur, Hlíðarvöllur, Holtavöllur verður starfræktur frá 1. júní-1. sept. frá 14-17. Dagvistarfulltrúi. Eurovision Ókeypis heimsendingaþjónusta alla daga fró kl. 18.00. Þetta einstaka kvöld verða fleiri bílar og meiri hraði Pizzur - kjúklingar - hamborgarar veitingahÚsið sími Glerár- 26690 götu 20

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.