Dagur - 12.09.1991, Síða 7
Fimmtudagur 12. september 1991 - DAGUR - 7
Karen Blixcn.
hinar byggingarnar bjó fjölskyld-
an í leiguhúsi í nágrenninu og síð-
ar í nokkra mánuði í Sviss.
Bókmenntaperlur Karenar
Blixen eru skrifaðar í
Rungstedlund
Karen Blixen bjó öll sín bernsku-
og ungdómsár að Rungstedlund. I
Rungstedlund skrifaði hún fyrstu
smásögurnar og bjó þar ásamt
móður sinni, systrum og bræðr-
um þar til hún fór til Austur-
Afríku árið 1913 til að ganga í
hjónaband. Eiginmaðurinn var
frændi Karenar, Bror von Blixen-
Finecke, sænskur barón sem
hafði keypt búgarð í hálendi
Afríku. Er hér var komið sögu
var Karen 28 ára.
í þau sautján ár sem Karen átti
heima í Afríku heimsótti hún
Danmörku með vissu millibili og
bjó langdvölum hjá móður sinni í
Rungstedlund. Þegar hún missti
búgarðinn í Afríku árið 1931
fluttist hún alkomin heim til
Rungstedlund.
Gjaldþrota og án sérmenntun-
ar sem hægt væri að byggja á sett-
ist hún niður við skrifborð föður
síns í Ewaldsstofu og skrifaði
sína fyrstu bók „Seven Gothic
Tales“ og sló í gegn strax sem rit-
höfundur á heimsvísu. Stór hluti
þeirra ritverka er hún samdi síðar
voru einnig skrifuð að Rungsted-
lund.
Er móðir Karenar dó, 1939,
tók Karen við heimilisrekstrinum
að Rungstedlund. Systur hennar
og bræður bjuggu í vellystingum í
Danmörku. Systirin Ellen Dahl,
sem hafði gifst inn í ríka ætt, gaf
eftir arf sinn og bræðurnir leyfðu
Karen að búa í Rungsted þrátt
fyrir að erfðartilkall hennar til
staðarins væri þá aðeins 'Á laga-
lega séð.
Það er því Karen, sem með
persónulegum og næmum smekk
hefur búið Rungstedlund þeim
húsgögnum sem enn eru í stofum
og herbergjum. Karen átti aldrei
mikla peninga og hafði aldrei
áhuga fyrir að kaupa ný húsgögn
og verðmikla forngripi. Það sem
við sjáum í dag af innanstokks-
munum í Rungstedlund eru gömul
húsgögn frá ýmsum bóndabæjum
er voru í eigu Dinesen ættarinn-
ar. Fyrir fimmtíu árum voru þess-
ir innanstokksmunir orðnir lúnir
en Karen náði aö skapa undra-
vert og listrænt heimili í þess orðs
fyllstu merkingu. Sjálf sagði hún
um Rungstedlund: „Húsakostur-
inn verður að vera ögn betri en á
prestsetri en ekki jafn fínn og á
herrasetri". Rungstedlund varð
að vísu ekki sem Karen vildi, en
það að búa í sögufrægu húsi
knúði hana til, að hennar mati,
að opna húsið fyrir gestum og
gangandi.
Safn Karenar Blixen
að Rungstedlund
Er aldurinn færðist yfir Karen
Blixen hugsaði hún mikið um
hvað yrði af Rungstedlund er hún
yrði öll. Hún ráðfærði sig við vin
sinn Knud W. Jensen, sem síðar
stofnaði Louisiana listasafnið.
Að hans uppástungu og eftir
mikla umhugsun stofnaði Karen
Rungstedlundsjóðinn og setti
honum markmið. Þetta var árið
1958.
Karen og Anders Dinesen
bróðir hennar gáfu sjóðnum sinn
hluta í Rungstedlund og systir
þeirra Ellen Dahl keypti hlut
bróðursins Thomasar og færði
sjóðnum. Jafnframt var gengið
frá, að sjóðurinn fengi öll ritlaun
Karenar í framtíðinni að undan-
skyldum lífeyri er rynni til rit-
höfundarins meðan hún Iifði.
Húsakosturinn að Rungsted-
lund var lagfærður á næstu árum.
Lagfæringarnar urðu mjög kostn-
aðarsamar því að mörgu þurfti að
huga svo sem að koma upp lang-
þráðu baðherbergi og hitalögn-
um. Rungstedlundsjóðurinn var
kominn í þrot er Karen Blixen
lést 7. september 1962.
í hart nær 25 ár reyndist snúið
að reka Rungstedlund af þeim
tekjum er féllu til vegna ritverka
Karenar. Sum árin varð hallinn
verulegur. Að síðustu er „Out of
Afríka“ hlaut Óskarsverðlaunin
urðu vinsældir Karenar það mikl-
ar að bækur hennar seldust í
milljónum eintaka vítt og breitt
um heiminn og peningarnir
streymdu inn í Rungstedlund-
sjóðinn. Nú var hægt að hefjast
handa og draumi Karenar var
hrint í framkvæmd. í nóvember
1978 ákvað sjóðsstjórnin að setja
upp safn í vesturálmu Rungsted-
lundbæjarins þar sem áður var
gripahús og heyloft. Unnið var
að verkinu á árunum 1988 til
1991 undir stjórn Vilhelm
Wohlert, sem er arkitekt Louisi-
anna listasafnsins og í sjóðsstjórn
Rungstedlundsjóðsins. Safn Kar-
enar Blixen var opnað 14. maí í
vor.
Allir er koma til Dan-
merkur ættu að heimsækja
safn Karenar Blixen
Hér að framan er saga Rungsted-
lund rakin. Hún er um margt
fróðleg. í frásögninni er stuðst
við upplýsingar frá forstöðukonu
safns Karenar Blixen. Frásögnin
er ekki tæmandi. Lítið er fjallað
um líf rithöfundarins sem var
mjög sérstætt. Ekkert er rætt um
ritverk Karenar því ég tel réttar
að bókmenntafræðingar fjalli þar
um. Hinsvegar er greinarkorn
þetta birt í dag á dánardægri rit-
höfundarins til að minna á að
búið er að opna safn Karenar
Blixen í Rungstedlund. Allir sem
til Danmerkur koma ættu að
heimsækja safnið, þeir verða
ekki sviknir af þeirri stund sem í
heimsóknina er varið. ój
Tilboð
Juvel rúgmjöl
88 kr. 2 kg
Tilboð
Nemll hafragrjón
kr. kg
Tilboð
Nemli eldhúsp. m/4
176
kr.
laugardaga frá 10 til 14
Opið til kl. 19 föstudaga
Kynnum fimmtudag frá kl. 16 til 18
föstudag frá kl. 14 til 19
laugardag frá kl. 10 til 14
Opið
SKÓHÚSIÐ BÓNUSSKÓR
Opnum í dag kl. 10:00
Opnunartilboð:
Töflur hvítar með nuddpúðum.
Stærðir 35-43. Verð kr. 990
Loðfóðraðir kuldaskór barna.
Svart, brúnt, rautt, blátt leður
og svart rúskinn.
Stærðir 28-38. Verð kr. 2.490
Loðfóðraðir kuldaskór.
Svart leður og svart rúskinn.
Stærðir 3Ó-41. Verð kr. 2.990
Mokkasinur, svart leður
Stærðir 41-4Ó. Verð kr. 990
Skóhúsii
- Tískuskór,
hágæðavara á góðu verði
Bónusskór
- Beinn innflutningur frá
Portúgal, góðir skór á ótrúiegu
verði
Skóhúsið Bónusskór
Verslunarmiðstöðinni Kaupangi