Dagur - 12.09.1991, Qupperneq 12
Akureyri, fímmtudagur 12. september 1991
Áskriftarsíminn er 96-
Sauðárkrókur
95-35960
Húsavík
96-41585
Sláturhús KEA á Akureyri:
Slátrun hófst í gær
- slátursala hefst á morgun
Slátrun hófst eftir hádegi í gær í
sláturhúsi Kaupfélags Ey-
fírðinga á Akureyri. Áætlað er
að slátra tæplega 41 þúsund
fjár innan fullvirðisréttar, að
viðbættum 4153 fullorðnum
ám, sem slátrað verður til út-
flutnings til Mexikó. í gær var
slátrað 400 dilkum og i dag
verður 800 dilkum lógað.
Óli Valdimarsson, sláturhús-
stjóri, segir að fyrstu dagana séu
afköst með minna móti, enda
Norðurland eystra:
Þingmenn fá
óskalistana
Alþingismenn Norðurlands-
kjördæmis eystra eru á ferð-
inni í kjördæminu þessa viku
og ræða við forsvarsmenn
sveitarfélaga, fyrirtækja og
stofnana um hvaða verkefni er
brýnast að vinna á hverjum
stað.
í gær höfðu þingmennimir tal af
Raufarhafnarbúum og í dag ligg-
ur leið þeirra til Húsavíkur. Á
morgun og laugardag ræða þing-
mennirnir við Ákureyringa.
Einar Njálsson, bæjarstjóri á
Húsavík, sagði að á fundi með
þingmönnunum í dag yrði öll
áhersla lögð á nauðsyn fram-
kvæmda við Húsavíkurhöfn á
næsta ári. Síðan kæmi í ljós hver
viðbrögð fjárveitingavaldsins
yrðu. óþh
taki töluverðan tíma fyrir óreynt
fólk að læra réttu handbrögðin. í
næstu viku er hins vegar gert ráð
fyrir að slátrun verði komin í full-
an gang.
Slátursala hefst hjá KEA á
morgun, föstudag. Að sögn slát-
urhússtjóra liggur ekki fyrir
grundvallarverð sauðfjárafurða,
en eigi að síður hefst slátursalan
á morgun og fyrst um sinn kostar
slátrið 540 krónur. Ætla má að
grundvallarverðið frá fyrra ári
hækki um að minnsta kosti 10
prósent og því verður endanlegt
verð ekki undir 540 krónum. Sala
á kjöti hefst hins vegar í dag og
verður það fyrst um sinn selt 5
prósent dýrara en gamla kjötið.
Gert er ráð fyrir að grundvallar-
verðið verði ákveðið hærra en
sem þessari hækkun nemur. óþh
Slátrun er hafin hjá Sláturhúsi KEA og er áætlaö að slátra 41 þúsund fjár auk þess sem ríflega 4000 fullorðnar ær
fara ofan í Mexikana. Mynd: Goiii
F r eyvangsleikhúsið:
„Jesus Christ Superstar“ á srið í vetur
Freyvangsleikhúsið í Eyja-
fjarðarsveit ræðst ekki á garð-
inn þar sem hann er lægstur í
verkefnavali vetrarins. Akveð-
ið er að setja upp söngleikinn
kunna „Jesus Christ Superstar“
og frumsýna verkið 13. mars.
Æfíngar munu hefjast í lok
þessa mánaðar en hér er um
fjölmenna og viðamikla sýn-
ingu að ræða. Kolbrún Hall-
viðamesta sýning félagsins hingað til
Eyjafjarðarsveit:
íbúðir aldraðra fullbúnar
Fjórar íbúðir fyrir aldraða,
sem Eyjafjaröarsveit byggði í
Kristnesi, eru nú fullfrá-
gengnar. Um er að ræða
félagslegar kaupleiguíbúðir og
hefur tveimur þeirra þegar ver-
ið ráðstafað.
Pétur Þór Jónasson, sveitar-
stjóri Eyjafjarðarsveitar, segir
ráðgert að sýna almenningi íbúð-
irnar síðar í þessum mánuði.
Hann segir umsókn um þriðju
íbúðina komna þannig að eftir-
spurn sé fyrir hendi.
Pétur segir að engin umræða
hafi farið fram um frekari fram-
kvæmdir við íbúðarhúsnæði fyrir
aldraða. Slíkt ráðist af eftirspurn-
inni eftir þessum íbúðum en sam-
kvæmt skipulagi geta fleiri íbúðir
af þessu tagi risið við Kristnes.
Þessar íbúðir eru ekki tengdar
starfsemi Kristnesspítala en Pét-
ur segir þann möguleika fyrir
hendi að íbúar geti fengið ein-
hverja þjónustu frá spítalanum.
JÓH
Sauðárkrókur:
Fimm ára aftnæli
skrifstofii Dags
- skrifstofan flutt að Suðurgötu 3
í ár eru liðin fímm ár frá því
Dagur opnaði skrifstofu á
Sauðárkróki og m.a. þess
vegna var Sauðárkróksskrif-
stofan flutt um set nú fyrir
nokkru. Hið nýja aðsetur er á
neðri hæð Suðurgötu 3. þar
sem Samvinnubankinn var
lengi til húsa og er skrifstofan
opin frá 8.00-17.00.
í tilefni afmælisins og flutnings
skrifstofunnar verður „opið hús“
á nýju skrifstofunni föstudaginn
13. sept. nk. frá klukkan 13.00-
17.00 og er gestum og gangandi
boðið að líta við í kaffi og með
því.
„Útibússtjóri“ á Sauðárkróki
er um þessar mundir Skúli Björn
Gunnarsson og mun hann ásamt
ritstjóra Dags og fleirum taka vel
á móti fólki.
dórsdóttir mun annast leik-
stjórn en tónlistarstjóri verður
Jón Olafsson, tónlistarmaður.
Katrín Ragnarsdóttir, formað-
ur Freyvangsleikhússins, segir að
þessi sýning verði kostnaðarsöm
og jafnframt stærsta verkefni sem
þessi leikhópur hafi ráðist í.
Leikarar verða 39 talsins en auk
þess koma margir starfsmenn á
einn og annan hátt að sýning-
unni. Einsöngshlutverk fyrir
karla eru 8 og eitt fyrir konu.
„Við höfum haft þetta verk í
sigtinu dálítið lengi og um leið
þetta fólk til að stjórna. Ég veit
ekki til að verkið hafi verið flutt
hérlendis í fullri lengd síðan 1973
en við sýnum það í heild," sagði
Katrín og upplýsti einnig að
félagar í Freyvangsleikhúsinu
vinna nú að endurþýðingu á
verkinu.
Tónlist fyrir sýninguna verður
unnin í hljóðveri í Reykjavík í
vetur en Jón Ólafsson stýrir tón-
listarköflum í sýningunni. En er
ekki vandkvæðum bundið að
koma svo fjölmennri sýningu sem
þessari á svið í Freyvangi?
„Við höfum verið með rúm-
lega 20 manns í sýningu og þá
gekk allt vel. Það eru allir sáttir í
leikhúsum þó þrengslin séu
mikil. En auðvitað verður
troðningur á bak við,“ segir
Katrín.
Hún segist gera ráð fyrir að
mannskap þurfi að hluta að sækja
í sýninguna til Akureyrar. Leik-
félagið hafi lagt áherslu á að ná til
yngra fólks á síðustu árunt og í
fyrravetur hafi verið sett upp
unglingaleikrit í Freyvangi. Þetta
verkefni sé gott framhald af
þeirri uppfærslu og spennandi
verði að sjá hvernig gangi að ná
til yngra fólksins. JÓH
Hringtorgið á Blönduósi:
„Vomirn að það virki“
- segir Jónas Snæbjörnsson
Þeir sem leið eiga um Norður-
landsveg í gegnum Blönduós
þurfa hér eftir að leggja lykkju
á leið sína vestan Blöndubrúar
þar sem vegagerðarmenn
vinna um þessar mundir við að
Ijúka gerð hringtorgs. Verið er
að steypa upp eyjuna og mun
því verki Ijúka á næstunni að
sögn Jónasar Snæbjörnssonar,
umdæmisverkfræðings vega-
gerðarinnar.
„Mikið var búið að ræða um
hvernig draga ætti úr hraða þeirr-
ar umferðar sem ieið á um
Norðurlandsveginn í gegnum
Blönduós. Sú leið var valin að
setja upp hringtorg og var þar
m.a. stuðst við góða reynslu á
hringtorgum í Mosfellsbæ. Nú
þegar torgið er komið vonumst
við til að það virki eins og til
stendur og dragi úr umferðar-
hraðanum," segir Jónas.
Hringtorgið kostar að sögn
Jónasar 5-6 milljónir og var verk-
ið á vegaáætlun fyrir árið 1991.
Eyjan í miðju torginu er með 5
metra radíus, en torgið sjálft með
13 metra radíus svo átta metra
breið akbraut er á torginu. Jónas
segir að almennar umferðarregl-
ur gildi um akstur við torgið og
þannig að þeir sem aka hringinn
eigi réttinn gagnvart aðvífandi
urnferð. SBG
HeiðarQall:
Blýmengunin
ekki staðfest?
Umhverfísráðuneytið vefengir
niðurstöður úr mengunarmæl-
ingum sem landeigendur á
Heiðarfjalli stóðu fyrir og
sýndu verulega blýmengun þar
sem bandaríski herinn hafði
skilið eftir sig sorp.
Tíðindi þessi komu fram í
fréttum Ríkisútvarpsins í gær og
virðist ráðuneytið telja að ekki sé
hægt að meta ástand jarðvegsins
af þeim sýnum sem tekin hafa
verið. SS
Húnavatnssýslur:
Sauðfjárbændur
tóku tílboðinu
misjafnlega
Samkvæmt upplýsingum frá
búnaðarsamböndum Aust-
ur- og Vestur-Húnavatns-
sýslna var misjafnt hvernig
sauðfjárbændur tóku tilboði
ríkisins varðandi kaup á
virkum fullvirðisrétti. Ljóst
er að í báðum sýslum mun
koma til flats niðurskurðar
ef farið verður út í slíkar
aðgerðir af hálfu stjórn-
valda.
Austur-Húnvetningar áttu
samkvæmt tilboðinu að selja
tæplega 3850 ærgildi af virkum
fullvirðisrétti í héraðinu. Urn
20% vantaði upp á til að það
markmið næðist, en það sem
eftir er deilist þannig niður á
þá sem ekkert vildu selja aö
um 5% fullvirðisréttar verða
tekin með flötum niðurskurði
ef af honum veröur.
í Vestur-Ilúnavatnssýslu
höfðu búnaðarsambandsmenn
aðra sögu að segja, en þar
híjóðaði tilboðið upp á rúm
3220 ærgildi og ekki bárust
jákvæð svör fyrir nema ríflega
20% af því. Meðaltalið á flata
niðurskurðinum verður því
um 7% hjá þeirn bændum sem
lítið eða ekkert vildu selja af
sínum fullvirðisrétti. SBG