Dagur - 20.10.1991, Side 1
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránulelagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 23599
Lýstar kröfur í þrotabú Álafoss hf. eru 2,3 milljarðar króna:
TaMð stærsta gjaldþrot íslandssögunnar
Heildarkröfur í þrotabú Ála-
foss hf. nema um 2,3 milljörö-
um króna. Ljóst er aö þetta
gjaldþrot og gjaldþrot Haf-
skips hf. árið 1985 eru tvö
stærstu gjaldþrot íslandssög-
unnar og sumir lögfræðingar
telja að Álafossgjaldþrotið sé
stærra. Eignir þrotabús Ála-
foss hf. eru engar og því er
ljóst að ekkert fæst upp í
almennar kröfur. Gera má ráð
fyrir að á bilinu 70-80 milljónir
króna falli á ríkið vegna gjald-
þrotsins vegna ákvæða um
ríkisábyrgð á launum.
Álafoss hf. var tekinn til gjald-
þrotaskipta 20. júní sl. og inn-
köllun krafna var auglýst í Lög-
birtingablaðinu 5. júlí sl. Frestur
til að leggja fram kröfur rann út
5. október sl. Endanleg kröfulýs-
ingaskrá lá ekki fyrir í gær, en
samkvæmt upplýsingum Dags
eru Landsbankinn, Fram-
kvæmdasjóður íslands og
Byggðastofnun f.h. Atvinnu-
tryggingasjóðs útflutningsgrcina
þrír af stærstu kröfuhöfum í
þrotabúið. Krafa síðastnefnda
aðilans er upp á 270 milljónir
króna.
Pað liggur ljóst fyrir að í það
minnsta 60 milljónir króna falla á
Ríkisábyrgðasjóð vegna ábyrgða
á launum starfsfólks Álafoss hf.
Þetta eru í fyrsta lagi kröfur laun-
þega, sem innleystar höfðu verið
af ríkissjóði við lok kröfulýsing-
arfrests, að upphæð 18,9 milljón-
ir króna, í öðru lagi samþykktar
forgangskröfur lífeyrissjóða, að
upphæð 12,8 milljónir, í þriðja
lagi samþykktar forgangskröfur
vegna launa og orlofs, sem inn-
heimtar hafa verið af stéttarfé-
lögum, að upphæð 22,2 milljónir
króna, í fjórða lagi samþykktar
forgangskröfur, lýstar af einstök-
um launþegum, að upphæð 4,6
milljónir og í fimmta lagi sam-
þykktar kröfur vegna slits á ráðn-
ingarsamningi, samtals 481 þús-
und krónur. Auk þess mun ríkið
greiða hluta af kröfum vegna slita
á ráðningarsamningi, sem bú-
stjórar hafa hafnað að svo
stöddu, að upphæð 9,9 milljónir
króna og lýstum forgangskröfum,
sem bárust eftir lok kröfulýsing-
arfrests og var var því hafnað,
samtals 8,2 milljónir króna.
Þarna er m.a. um að ræða laun á
uppsagnarfresti, sem ekki er
hægt að gera upp fyrr en að hon-
um loknum. Sumir starfsmenn
Álafoss hf. höfðu allt að sex mán-
aða uppsagnarfrest.
Lögfræðingar, sem Dagur
ræddi við í gær, töldu að þegar öll
kurl væru komin til grafar væri
gjaldþrot Álafoss hf. jafnvel enn
stærra en gjaldþrot Hafskips hf. á
sínum tíma. Þeir bentu m.a. á að
vitað væri um fjölmarga aðila,
jafnt innanlands sem erlendis,
sem ekki hefðu gert kröfur í
þrotabúið vegna þess að fyrir lægi
að þeir fengju ekkert upp í þær.
Framreiknað er gjaldþrot Haf-
skips hf. ekki fjarri lýstum kröf-
um í þrotabú Álafoss hf., en það
sem gerir stöðu þrotabús Álafoss
hf. lakari í þessum samanburði er
að það á engar eignir. Þrotabú
Hafskips hf. átti hins vegar lítils-
háttar upp í kröfur.
Lýstar almennar kröfur, sem
bústjórar í þrotabúi Álafoss hf.,
Brynjólfur Kjartansson, Ólafur
Birgir Árnason og Skarphéðinn
Þórisson, hafa ekki tekið afstöðu
til, þar sem ljóst er að ekkert fæst
upp í þær, nema samtals rúmum
1 Zi milljarði króna.
Kröfur, sem lýst hefur verið
sem forgangskröfum, en hafnað
alfarið, nema samtals 5,7 milljón-
um króna.
Þá nema kröfur, sem lýst hefur
verið sem forgangskröfum, en
verið hafnað sem slíkum og tald-
Verður Pórunni Sveinsdóttur VE
breytt í frystiskip:
Viðræður við Slippstöðina
Forsvarsmcnn útgerðar Þór-
unnar Sveinsdóttur VE voru í
Slippstöðinni á Akureyri í gær
og fóru yfir möguleikann á því
að breyta skipinu í frystiskip.
Engin ákvörðun hefur enn ver-
ið tekin um hvort af því verði.
Að sögn Sigurðar Ringsted,
forstjóra Slippstöðvarinnar hf.,
var Þórunn Sveinsdóttir smíðuð
með það í huga að hægt væri að
breyta henni í frystiskip án mik-
illa erfiðleika. „Bæði rafkerfi
skipsins og lest þola slíkar breyt-
ingar. Þetta er fyrst og fremst
spurning um að setja í skipið fisk-
vinnsluvélar og frystikerfi,“ sagði
Sigurður. óþh
Sauðárkrókur:
Skemmdarverk á bílum
Líf og fjör var á Sauðárkróki
um síðustu helgi og nokkuð
annasamt hjá lögreglunni.
Unnin voru skemmdarverk á
fimm bílum sem stóðu við Aðal-
götu og eru tveir þeirra illa dæld-
aðir. Einnig var brotin rúða í
verslunarhúsnæði við sömu götu.
Allt þetta átti sér stað að kvöldi
laugardags og eru málin í rann-
sókn hjá lögreglunni á Sauðár-
króki. SBG
ar almennar kröfur, rúmu 921
þúsundi.
Ógetið er krafna, sem lýst hef-
ur verið utan skuldaraðar, en
hafnað sem slíkum og taldar sem
almennar kröfur. Samtals nema
þær 1,7 milljónum króna. Þá nema
kröfur, sem aðallega hefur verið
lýst utan skuldaraðar, en það sem
ekki fæst greitt á þann hátt er lýst
sem almennum kröfum, samtals
714,5 milljónum króna. óþh
KA-menn fögnuðu vel vígslu nýja íþróttahússins á föstudaginn en reyndar sljákkaði heldur í þeim þegar FH-ingar
börðu á handboltaliði félagsins í vígsluleiknum. Greint er frá leiknum og vígsluhátíðinni í blaðinu í dag. Mynd: Goiii
Jón Karlsson næsti varaformaður VMSÍ?:
Tek kjöri sé það vilji þingsins
„Eg hef ásamt öörum velt því
fyrir mér að nú þegar Guð-
mundur J. Guðmundsson,
hættir, þá verði að koma upp
sterkri forystu sem eining ríki
um. Með því móti teljum við
að Verkamannasambandið
muni hafa mesta möguleika á
að gera því fólki sem í því er
hvað mest gagn,“ segir Jón
Karlsson formaður Verka-
mannafélagsins Fram á Sauð-
árkróki, en heyrst hefur að
hann verði næsti varaformaður
VMSÍ.
Jón segist vera búinn að sitja í
framkvæmdastjórn Verkamanna-
sambandsins sl. tíu ár og hafi
aldrei haft þar neinn sérstakan
titil og sækist ekki eftir því. Hins
vegar segir Jón að ef þingið kom-
ist að þeirri niðurstöðu að rétt
þyki að hann verði varaformaður
sambandsins, þá muni hann taka
því kjöri.
Aðspurður um útlit í kjaramál-
um sagði Jón að það væri ekki
gott. Menn væru varfærir og
kæmu sér lítið í að hefja samn-
ingaviðræður líkt og oft áður.
„Ég held að almennur vilji sé
fyrir að semja sig ekki út úr þeim
stöðugleika sem verið hefur hér á
landi undanfarin misseri. Hins
vegar er ljóst að launamunur hef-
útlit í kjaramálum ekki gott
ur aukist á þessum rólegheitatím-
um og mikill vandi við að glíma í
að ná fram meiri launajöfnuði,"
segir Jón.
Jón segir að þær kröfur sem
settar verði fram í komandi
kjarasamningum verði á svipuð-
um nótum og áður. Meiri jöfnuð-
ur lífskjara, betri kaupmáttur
launa, skattakröfur o.s.frv. Ann-
ars segir hann að kröfur fisk-
vinnslufólks, sem eru í mótun
þessa dagana, verði leiðandi fyrir
kröfur Verkamannasambandsins
í kjarasamningum á næstu mán-
uðum. SBG
Áhrif blöðrusels á fiskstofna
fyrir Norðurlandi:
„Sjórinn er eitursviðinn
hvar sem hann fer“
- segir Sigurður Gunnarsson á Húsavík
Á aðalfundi Kletts, félags
smábátaeigenda af Eyjafjarð-
arsvæðinu, Grímsey og Húsa-
vík, kom fram að full ástæða
væri til að fiskifræðingar könn-
uðu áhrif blöðrusels á þorsk-
göngur fyrir Norðurlandi.
Afli trillukarla á Norðurlandi
hefur verið lélegur síðustu árin
og trillukarlar telja að margt
komi til. Fyrir utan léleg skilyrði
í sjónum hefur blöðruselur angr-
að trillusjómenn.
„Blöðruselurinn er helvíti
kræfur. Þetta eru flækingsdýr
norðan úr höfum og honum fjölg-
ar ár frá ári. Blöðruselurinn fer
um í hópum og sjórinn er eitur-
sviðinn hvar sem hann fer. Sá
fiskur sem ekki er drepinn flýr út
í hafsauga eða upp í bláfjörur.
Að undanförnu hafa tveir sjó-
menn frá Húsavík fellt 25 dýr.
Selurinn er mest við Hraunshorn,
sem er 2'A sjómílu suðaustur af
Flatey. Já, hann er skaðvaldur
hinn mesti og miklu meiri en
menn vilja ætla. Því er full
ástæða til að kanna áhrif hans á
göngur fiskstofna,“ sagði Sigurð-
ur Gunnarsson, trillukarl frá
Húsavík. ój