Dagur - 20.10.1991, Side 2

Dagur - 20.10.1991, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 22. október 1991 Fréttir Ungmennasamband Eyjafjarðar: Spurninga- keppninni framhaldið í kvöld - átta lið keppa í Laugar- borg og í Víkurröst Önnur umferð spurninga- keppni Ungmennasambands Eyjafjarðar fer fram í kvöld. Lið Ungmennafélags Svarf- dæla, Þorsteins Svörfuðar, Ungmennafélags Skriðuhrepps og Árroðans á Staðarbyggð keppa í Víkurröst á Dalvík en lið Skíðafélags Dalvíkur, Ung- mennafélagsins Narfa í Hrísey, Ungmennafélags Möðruvalla- sóknar og Vorboðans í Saur- bæjarhreppi hinum forna keppa í Laugarborg í Eyja- Ijarðarsveit. Spurningakeppni Ungmenna- sambands Eyjafjarðar hófst föstudaginn 11. október síðast liðinn með því að öll aðildarfélög sambandsins kepptu á fjórum stöðum í héraðinu. Dregið var um hvaða félög képptu saman og í kvöld keppa síðan sigurvegar- arnir úr fyrstu umferðinni. Að lokinni þessari umferð standa fjögur félög eftir, sem síðan munu keppa í þriðju umferð og í fjórðu umferð fer fram úrslita- keppni á milli tveggja síðustu sig- urvegaranna. Keppendur takast á við að svara alhliða spurningum og einnig fara fram önnur skemmtiatriði eða leikir á keppn- iskvöldum Umgmennasambands- ÞI ms. Fjölmargir gestir voru við vígslu Heilsugæslustöðvarinnar á Húsavík og hér til vinstri má sjá Sighvat Björgvinsson, heilbrigðisráðherra, og til hægri Guðmund Bjarnason, fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Mynd: im Heilsugæslustöðin á Húsavík: Fjölmenni við vígsluna Nýja heilsugæslustöðin á Húsavík var vígð að viðstöddu tjölmenni sl. föstudag. Sr. Sig- hvatur Karlsson blessaði bygg- inguna og Baldvin Kr. Bald- vinsson söng við undirleik Juliet Faulkner. Fjöldi ávarpa var fluttur við athöfnina. M.a. talaði Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráð- herra og Skúli Guðmundsson for- stjóri framkvæmdadeildar Inn- kaupastofnunar ríkisins. Ólafur Erlendcson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins hélt ræðu og rakti sögu sjúkrahúss og heilsugæslu- stöðvar á Húsavík. Guðmundur Bjarnason, þingmaður, sem var heilbrigðisráðherra meðan á byggingu hússins stóð, flutti ávarp og einnig Gísli G. Auðuns- son, yfirlæknir heilsugæslustöðv- Skák Deildakeppni Skáksambandsins: Skákfélag Akureyrar með forystu í 1. deild - Austur-Húnvetningar koma á óvart A-sveit Skákfélags Akureyrar hefur forystu í 1. deild að lokn- um fjórum umferðum af sjö I Deildakeppni Skáksambands íslands. Baráttan um efstu sæt- in er hörð en stórmeistarinn Margeir Pétursson hefur reynst sveitinni drjúgur liðs- auki. Fyrstu fjórar umferðirnar voru Deildakeppnin: Hörð keppni í neðri deildum Gengi norðlensku sveitanna í neðri deildum í Deildakeppni Skáksambands íslands hefur verið þokkalegt. C-sveit Skák- félags Akureyrar er í neðri hluta 2. deildar en sveitin er að mestu skipuð unglingum. Bestum árangri í C-sveit Skák- félags Akureyrar náði Júlíus Björnsson, 4 vinningum í 4 umferðum. Á Akureyri var Norðurlands- riðill í 3. deild. Þar sigraði B- sveit UMSE, D-sveit Skákfélags Akureyrar varð í öðru sæti og Skákfélag Sauðárkróks í því þriðja. SS tefldar í Reykjavík um helgina og lauk þar með fyrri hluta deilda- keppninnar. Síðustu þrjár umferðirnar verða tefldar næsta vor. Skákfélag Akureyrar er með tvær sveitir í fyrstu deild og er hlutskipti þeirra misjafnt. A- sveitin er efst en B-sveitin neðst. Staðan eftir fjórar umferðir er þessi: 1. A-sveit Skákfélags Akureyr- ar 21 vinningur. 2. Taflfélag Garðabæjar (A-sveit) 20Vi v. 3. Taflfélag Reykjavíkur (NV) I8V2 v. 4. Taflfélag Reykjavíkur (SA) 17 v. 5. Skáksamband Vestfjarða 15V4. v. 6. Skákfélag Hafnarfjarð- ar 13 v. 7. Ungmennasamband Austur-Húnvetninga 12Vi v. 8. B-sveit Skákfélags Akureyrar 9/2 v. Bestum árangri í A-sveit Skák- félags Akureyrar náði Margeir Pétursson stórmeistari, 3lá vinn- ingi af 4 mögulegum. Jón Garðar Viðarsson og Rúnar Sigurpálsson fengu 3 vinninga. í B-sveitinni fengu Helgi Hauksson og Bjarni Einarsson 2 vinninga af 4. Óvæntustu úrslitin urðu þegar nýliðarnir í deildinni, USAH, unnu sveit Taflfélags Reykjavík- ur (NV) með Wi vinningi gegn 3'/2. SS ar, auk fjölda annarra. Afhjúpaðar voru lágmyndir af Birni Jósepssyni fyrsta sjúkra- hússlækni á Húsavík og konu hans Sigríði Lovísu Sigurðardótt- ur. Byggingakostnaður Heilsu- gæslustöðvarinnar er um 170 milljónir. Um er að ræða bygg- ingu sem er um 1200 fm að gólf- fleti á tveimur hæðum. Arkitekt hússins er Geirharður Þorsteins- son. Um þessar mundir eru liðin 25 ár síðan læknamiðstöð, sú fyrsta á landinu, hóf starfsemi á Húsa- vík. En 1974 tók Heilsugæslu- stöðin síðan til starfa, á fyrstu hæð sjúkrahússins. Nánar verður greint frá víglsu Heilsugæslustöðvarinnar í Degi, síðar í vikunni. IM Dalvík: Ákveðið að byggja þjón- ustuíbúðir f\TÍr aldraða Allt kapp verður lagt á að fyrir 1. desember nk. liggi fyrir sam- þykktar byggingarnefndar- teikningar að þjónustuíbúðum fyrir aldraðra á Dalvík. Hús- næðisstofnun hefur gefíð grænt ljós á lán til byggingar fjögurra þjónustuíbúða, en skilyrði hennar fyrir því að lánsloforðin fáist nýtt eru m.a. að áður verði framkvæmd könnun meðal aldraðra um ýmislegt er lýtur að slíkum íbúðum. Efnt var til fundar með Félagi aldraðra á Dalvík og nágrenni sl. laugardag þar sem kynntar voru hugmyndir um staðsetningu og gerð þjónustuíbúðanna. Einnig var dreift skoðanakönnun meðal fundarmanna, sem voru um 30, þar sem leitað var eftir áliti fólks á ýmsu er lýtur að þörfinni fyrir slíkar íbúðir. Að sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Dalvík, verður þessari könnun einnig dreift til 60 ára og eldri á Dalvík. Kristján Þór segir að könnunin sé gerð til þess að menn geti betur áttað sig á hvern- ig best sé að standa að þessum framkvæmdum. „Það er alveg klárt mál að við viljum nýta okkur heimild Hús- næðisstofnunar og samkvæmt henni þurfum við að vera búnir að fá byggingarnefndarteikningar fyrir 1. desember,“ sagði Kristján Þór. Hann sagði ljóst að íbúðirnar verði annaðhvort byggðar við Dalbæ eða einhvers staðar í ná- grenni Dalbæjar. Þannig sé hugs- anlegt að sameiginlegt þjónustu- rými Dalbæjar verði einnig nýtt af væntanlegum íbúum þessara þjónustuíbúða. Á fundi byggingarnefndar þjónustuíbúða aldraðra í síðustu viku kom fram sú skoðun að kostnaður við störf nefndarinnar og undirbúning yrði greiddur úr minningarsjöði Egils og Guð- finnu, en hins vegar myndu við- komandi sveitarfélög, Dalvíkur- bær, Svarfaðardalshreppur og Árskógshreppur, bera fjárhags- leg ábyrgð á byggingafram- kvæmdum. óþh Fiskmiðlun Noröurlands á Dalvík - Fiskverö á markaöi vikuna 13.10-19.10 1991 Tegund Hámarks- verð Lágmarks- verð Meöalverð (kr/kg) Magn (kg) Verðmæti Grálúða 78 78 78,00 280 21.840 Hlýri 55 50 53,75 36 1.935 Karfi 33 17 26,33 83 2.185 Keila 12 9 11,27 258 2.907 Lúða 155 155 155,00 54 8.370 Steinbítur 55 50 54,62 1.597 87.235 Ufsi 70 60 68,40 4.368 298.757 Ýsa 116 100 103,07 5.552 572.228 Ýsa, smá 70 70 70,00 664 46.480 Þorskur 96 45 94,53 13.412 1.267.776 Þorskur, smár 74 72 73.11 5.065 370.310 Samtals 155 85,44 31.369 2.680.023 Dagur birtir vikulega töflu yfír fiskverð hjá Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík og greinir þar frá veröínu sem fékkst í vikunni á undan. Þetta er gert í Ijðsi þcss að hlutverk fiskmarkaða I verðmyndun íslenskra sjávarafurða hefur vaxlð hröðum skrefum og þvf sjálfsagt að gera lesendum blaðsins kleift að fylglast með þróun markaðsverðs á fiski hér á Norðurlandi, Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá K. Jónssyni og Co. hf. þar sem fyrirtækið fer þess á leit við bæjarráð að Akur- eyrarbær veiti ábyrgð til trygg- ingar láni að upphæð 25 millj- ónir króna eða jafnvirði í erlendri mynt, sem gengi til greiðslu á skuldum við Akur- eyrarbæ. Bæjarráð leggur til að veitt verði einföld bæjar- ábyrgð til tryggingar láninu. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá Nemendafélagi Verkmenntaskólans á Akur- eyri, þar sem greint er frá því að félagið sé þátttakandi í norrænu verkefni, NOD, sem vinnur að söfnun fjár til upp- byggingar menntunar í þróun- arlöndum. Hinn 24. okt. nk. hyggjast nemendur leggja skólabækur til hliðar en bjóða fram vinnu sína gegn vægu gjaldi sem rynni í söfnunar- sjóðinn. Óskað er eftir liðsinni bæjarins og hefur bæjarráð samþykkt að verða við erind- inu og verja til þess allt að kr. 30.000.-. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að fela tæknideild að fjarlægja íbúðarhús ásamt áföstu fjósi og hlöðu að Mýrarlóni. ■ Á fundi skipulagsneíndar nýlega, var Jón Kr. Sólnes samhljóða kjörinn formaður nefndarinnar í stað Tómasar Inga Olrich. Þá hefur Guð- mundur Heiðar Frímannsson tekið sæti sem aðaimaður í skipulagsnefnd. ■ Skipulagsnefnd hefur bor- ist erindi frá verslunareigend- um við Glerárgötu nr. 24-36, þar sem þeir óska eftir að sett- ir verði stöðumælar á bílastæði austan Glerárgötu. Skipulags- nefnd samþykkti að vísa erindinu til úrvinnslu tækni- deildar. ■ Félagsmálaráð hefur sam- þykkt að skóladagheimilið í Hamri, félagsheimili Þórs- ara, verði nefnt Hamarkot. ■ Á fundi umhverfisnefndar nýlega, gerði Hallgrímur Ind- riðason, forstöðumaður úti- vistarsvæðanna, grein fyrir framkvæmdum sumarsins. Þar kom fram að plantað hefur verið 61.690 trjáplöntum í Nausta-, Hamraborgir og Kjarna og í Bæjarbrekkur hef- ur verið plantað 5.685 trjá- plöntum. Þá hefur verið unnið að nýrækt í Kjarnaskógi og áframhaldandi framkvæmdir hafa verið við leikvöllinn í Steinagerði. ■ Á fundi jafnréttisnefndar nýlega, var viðruð sú hug- mynd að „bjóða" til ráðstefnu um atvinnumál kvenna á Norðurlandi, sem gæti orðið hvatning til kvenna um landið allt að efla samskipti í þessum málum. ■ Félagsmálaráð fjallaði um erindi frá Valgerði Jónsdóttur, deildarstjóra heimahjúkrunar og Eddu Bolladóttur, for- stöðumanni heimilisþjónustu, þar sem þær óska eftir heimild ráðsins til að vinna að tilraunaverkefni í eitt ár, sem felst í mjög auknu samstarfi heimahjúkrunar og heimilis- þjónustu m.a. með því að komið verði á fót tveimur heimaþjónustumiðstöðvum í bænum, sem sinna heima- hjúkrun og heimaþjónustu. Til þessa verkefnis hafa verið veittar kr. 800.000.- í styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Félagsmálaráð lýsir ánægju sinni með verkefnið og sam- þykkir erindið fyrir sitt leyti.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.