Dagur - 20.10.1991, Side 11

Dagur - 20.10.1991, Side 11
Þriðjudagur 22. október 1991 - DAGUR - 11 Gömul hús á Hófsósi: Miklar framkvæmdir í Kvosiimi Endurbætur hafa gengið vel. í Kvosinni svokölluðu á Hofs- ósi hafa staðið yfir töluverðar framkvæmdir í sumar. Smiðir hafa verið að gera upp gamalt bjálkahús sem á sínum tíma var vöruhús erlendra kaup- manna á þeim dögum þcgar Hofsós var verslunarstaður bæði fyrir Siglfirðinga og Skag- firðinga. Fleira er þó að gerast í Kvosinni og m.a. verður fjarlægt gamalt rafstöðvarhús sem þar stendur. Gamla pakkhúsið á Hofsósi eins og bjálkahúsið í Kvosinni er yfirleitt kallað, var reist upp úr 1770 af konungsversluninni eftir danskri teikningu. Upphaflega var það vöruhús, en síðar hefur verið í því fjölbreytileg starfsemi og var m.a. kjöthús um skeið. Þjóðminjasafnið keypti síðan pakkhúsið á fjórða áratug þessar- ar aldar. Húsið er hið eina sinnar tegundar á íslandi sem nú er uppi- standandi, en nokkur hús byggð eftir sömu teikningu eru til á Grænlandi enn þann dag í dag. Tvær hæðir eru í bjálkahúsinu og einnig risloft. Þær endurbætur sem hafa verið gerðar á húsinu í sumar hafa allar miðað að því að gefa húsinu sitt upprunalega útlit að nýju. Trénaglar hafa verið notaðir til að negla það saman og gamli viðurinn látinn halda sér eins og mögulegt hefur verið. Meðal þess sem þurfti að gera var að lyfta húsinu á tjökkum til að rétta það af og endurnýja fót- stykkið að hluta. Að sögn Jóns Guðmundssonar, sveitarstjóra Hofshrepps, hefur verkið gengið í alla staði vel og ætlunin er að ná að Ijúka þessum endurbótum að mestu fyrir veturinn. Umsjón með verkinu hefur Valgeir Þor- valdsson, húsasmiður og bóndi að Vatni, haft og er hann einnig helsti hvatamaður endurbótanna. Brennivín, hákarl og Drangeyjaregg „Við höfum byrjað einurn tvisvar sinnum á að endurbæta bjálka- húsið, en loksins í sumar varð eitthvað úr verki. Þjóðminjasafn- ið veitti einni milljón í verkið og mun endurgreiða þau lán sem sveitarsjóður tók vegna endur- bótanna. Húsið var farið að liggja undir skemmdum og við- gerð hefði ekki mátt dragast lengur, enda hefði það verið hálf- skammarlegt að láta húsið drabb- ast niður, því það er hluti af merki bæjarins,“ segir Jón Guðmundsson. Jón segir að á hverju ári hafi margir komið til að skoða húsið og býst við að ekki verði þeir færri þegar það verður komið í sína upprunalegu mynd. Hug- myndin er síðan að setja á stofn í bjálkahúsinu safn um Drangeyj- arútgerð, en Drangey tilheyrði lengi vel kaupmönnum á Hofsósi. Jón segist ekki vita hvort reynt verði að nota húsið í fleira, en vel komi til greina að bjóða fólki upp á brennivín og hákarl og jafnvel Drangeyjaregg í þessu gamla umhverfi. Vilhelmshús og gamla kaupfélagið Byggð á Hofsósi spratt upp úr Kvosinni og þar standa mörg gömul hús. T.d. er þar gamalt verslunarhús sem byggt var á Grafarási sem verslunarhús, en síðar flutt út á Hofsós og lengi vel kallað Vilhelmshús. í því var m.a. einu sinni starfrækt hótel, en að sögn Jóns er nú búið að selja húsið kaupmanni í Reykja- vík sem ætlar að gera það upp. Ekki er þó allt talið enn í Kvosinni því gera á við gamla brú sem liggur yfir Hofsána og skammt utan hennar er gamla kaupfélagið. Jón segir að búið sé að bindast samtökum um að gera kaupfélagshúsið upp /enda á það sér langa sögu og meira að segja húsdraug. „Kvosin fær allt annan svip þegar búið verður að gera öll þessi hús upp og rífa önnur sem engu máli skipta. Það ætti því að geta orðið skemmtilegt þegar fram líða stundir, fyrir ferðafólk að ganga hér um þar sem byggða- kjarninn myndaðist í eina tíð,“ segir Jón Guðmundsson. Superseal þakdúkur Eitt það besta á flöt og lítið hallandi þök. BUKKRÁS HF. Hjalteyrargötu 6, símar 27770,26524, fax 27737. Jón sveitarstjóri við bjálkahúsið. Sett saman upp á gamla móðinn. Myndir: sbg Handknattleiksdeild Æfingatafla fyrir veturinn ’91-’92. Æfingar hefjast þriðjudaginn 22. október. Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Meistarafl. "18.00-19.30 19.00-20.30 18.30-20.00 20.45-22.15 12.00-13.00 2. flokkur "17.00-18.00 "18.00-19.00 3. flokkur 21.30-23.00 20.30.-21.30 s18.00-19.00 13.30-15.00 4. flokkur 18.00-19.00 "17.00-18.00 S17.00-18.00 11.00-12.00 5. flokkur 17.50-18.30 S17.00-18.00 10.00-11.00 6. flokkur 17.10-17.50 09.00-10.00 4. fl. kv. "19.30-21.00 17.00-17.45 5. fl. kv. 17.00-18.00 16.15-17.00 Byrjendur 15.00-16.30 H = Höllin. S = Skemman. Aðrar æfingar í KA-húsi. Komdu að dansa! Vorum að taka upp stóra sendingu af þýskri hágæðadanstónlist fyrir dansunnendur á öllum aldri á hljómplötum og geisladiskum

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.