Dagur - 26.10.1991, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 26. október 1991
wmm
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1000 A MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON.
RITSTJ.FULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON.
UMSJ.MAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON.
BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (Iþr.), _____
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSM.: KRISTJÁN LOGASON.
PRÓFARKAL.: SVAVAR OTTESEN. ÚTLITSH.: RlKARÐUR B.
JÓNASSON. AUGLÝSINGASTJ.: FRÍMANN FRlMANNSSON.
DREIFINGARSTJ.: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASlMI 22791.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL.
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Lofað að vori
en svikið að hausti
Á nýafstöðnu þingi Verka-
mannasambands íslands
kom fram mjög eindregin
krafa um að lægstu laun
verði hækkuð sérstaklega.
Þessi krafa er engan vegínn
ný af nálinni og hefur jafn-
an heyrst þegar gerð nýrra
kjarasamninga er framund-
an. Einhverra hluta vegna
hefur þó aldrei skapast
almenn samstaða um þetta
sjálfsagða markmið. Hóp-
arnir ofan við þá lægstlaun-
uðu hafa jafnan krafist
sambærilegrar hækkunar
og í einni svipan hefur ferlið
náð upp allan stigann, upp í
hæstu hæðir, ef svo má að
orði komast. í kjarasamn-
ingum seinni ára er meira
að segja algengast að gert
sé ráð fyrir hlutfallshækkun
launa, sem auðvitað hefur í
för með sér að hæstu laun
hækka mun meira en þau
lægstu í krónum talið. Fyrir
vikið hefur launamunur
vaxið jafnt og þétt í stað
þess að minnka.
Launaþróunin hér á landi
síðustu árin hefur að þessu
leyti gengið þvert gegn
yfirlýstum markmiðum
verkalýð shr ey fingarinnar.
Lægstu laun samkvæmt
taxta Verkamannasam-
bands íslands eru nú
42.395 krónur á mánuði.
Það segir sig sjálft að af
slíkum launum getur eng-
inn framfleitt sjálfum sér
hvað þá öðrum, enda eru
þau langt undir því marki
sem mannsæmandi getur
talist. Engu að síður er mjög
margt fólk innan Verka-
mannasambandsins með
laun á bilinu 45-50 þúsund
krónur á mánuði. Sérstök
hækkun lægstu launa verð-
ur því alger forgangskrafa
af hálfu Verkamannasam-
bandsins í komandi kjara-
samningum. Þetta kom
skýrt fram á þingi sam-
bandsins — og skal engan
undra i
Á þingi Verkamanna-
sambandsins kom einnig
fram megn óánægja með
sviksemi íslenskra stjórn-
málamanna. Fyrir síðustu
alþingiskosningar strerigdu
frambjóðendur allra flokka
þess heit að beita sér fyrir
því að hækka skattleysis-
mörk og auka kaupmátt
lægstu launa með öllum til-
tækum ráðum, fengju þeir
til þess umboð kjósenda.
Núverandi stjórnarflokkar
fengu stuðning meirihluta
kjósenda til þessara góðu
verka en þingmenn þeirra
hafa þegar sýnt í verki að
þeir ætla alls ekki að standa
við stóru orðin. „Þeir lofuðu
í vor — og sviku í haust,“
sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, fráfarandi for-
maður Verkamannasam-
bandsins m.a. í setningar-
ræðu sinni á þinginu. Það
eru orð að sönnu — og því
miður eilíf sannindi þegar
íslenskir stjórnmálamenn
eiga í hlut. Enn einu sinni
hefur það sýnt sig að kosn-
ingaloforð stjórnmálamanna
eru nákvæmlega einskis
virði. Það má gefa álíka
mikið fyrir þau að kosning-
um loknum og hlutabréf í
Álafossi hf. í dag. BB.
lAKÞANKAR
Kristinn G. Jóhannsson
Um Hagvangskönmin á tómatsósu og annatri undir■
stöðufasðu og menningarsnautt viðurværi undirritaðs
Ég var í býsna góöu jafnvægi
eftir vellinginn á laugardaginn
og var aö búa mig undir að
horfa á Manchester United
bursta Arsenal í beinni útsend-
ingu. En þá hringdi hún þessi
kona og ég hefi ekki verið meö
hýrri há síðan. Hún kynnti sig
og sagðist vera frá Hagvangi að
gera könnun og spurði rétt si
svona hvort hún mætti leggja
fyrir mig nokkrar spurningar. Eg
væri nefnilega í úrtakinu. Ég
sagði sem svo að ég væri því
feginn að vera ekki í úrhrakinu
og ef hún lofaði að vera búin
að þessu fyrir knattspyrnu væri
mér af því heiður og ánægja að
spjalla við hana. Ég hefði betur
lagt á þá þegar. Þetta byrjaði
heldur ekki gæfulega og hún fór
að spyrja mig hvort ég vissi
hvaða tómatsósa væri keypt á
heimilinu. Ég minntist þess að
hafa séð einhversstaðar aug-
lýsingu þess efnis að til væri
Libbys tómatsósa og sagði
þess vegna konunni að hana
keypti ég að staðaldri. Mér
fannst betra að láta líta svo út
að ég sæi um innkaupin. Það
væri sennilega í takt við tísku
tímans. Hún spurði þá að
bragði hve oft ég keypti svona
sósu og hvort hún væri þá í
glerflösku eða einhverju ööru.
Eg sá hún ætlaði að hanka mig
á þessu svo ég svaraði jafn-
harðan að svona sósu keypti ég
daglega með öðrum drykkjar-
föngum heimilisins og jafnan í
pappírsfernum, minnugurátaks
um umhverfisverndun. Mér
fannst hún ögn úr janfvægi þeg-
ar hún meðtók þessi skilaboð
en snéri þegar að þeirri neyslu-
vöru sem hún kallaði „múslí"
og spurði hvort ég kannaðist við
eitthvert vörumerki á þeirri
afurð. Þegar stórt er spurt verð-
ur oft fátt um svör og svo varð í
þessu dæmi. Ég sagðist þó
hafa séð svona tilsýndar án
þess að brúka það sjálfur og
hefði þá kynnt sig sem morg-
unkorn og ætlað til manneldis
að öðru leyti þekkti ég þetta
ekki af eigin raun. Hún lét ekki
slá sig útaf laginu aö heldur og
spurði að bragði hvort ég minnt-
ist af innkaupum mínum að
hafa kynnst kornflexi eöa sérí-
ósi. Ég sagðist í nauðvörn
borða kornflögur ef frú Guö-
björg brygði sér af bæ og skildi
mig eftir bjargarlausan og
ísskápinn fullan af kræsingum,
ósoðnum. Spónamatinn séríós
sagðist ég hins vegar ekki hafa
til daglegs brúks en hins vegar
stundum ýsu eða fjallalamb. Af
því vildi hún ekkert vita. Hag-
vangskonan var nú allt í einu
búin að venda sínu kvæði í
kross og heimtaði að fá að vita
hvernig mér geðjaðist að egils-
appelsíni. Þá var flautað til leiks
á Old Trafford. Nú birtist enn
menningarleysi mitt og ég lét
það bara flakka að ég væri eng-
inn appelsínmaður, hefði þó
drukkið valash á árunum eftir
seinna stríð en síðan ekki. Nú
tæki ég hins vegar lýsi
hvunndags. Hún hafði ekki
áhuga á því konan.
Ég var nú kominn í talsverð-
an ham þegar hún sneri talinu
að lesefni mínu. Er nú ekki að
sökum að spyrja heldur setur
hún á langa upptalningu af lífs-
blööum: Mannlíf, Nýttlíf, Þjóðlíf,
Móðurlíf, Kynlíf, Híbýlalíf,
Samlíf, Bleiktlíf og Bláttlff ef ég
man rétt og allt áttu þetta að vera
nauðsynjamiðlar öllu sæmilegu
fólki. Undir þessum lestri fór ég
að velta því fyrir mér hvort ég
væri orðinn fórnarlamb kynferð-
islegrar áreitni en stillti mig þó
og laumaði því að dálítið brost-
inni röddu að þótt ég hefði ekki
kynnst við þennan blaðakost
allan fengi ég Dag býsna reglu-
lega og væri þar að auki áskrif-
andi að Newsweek. Hún lét sér
fátt um finnast en spuröi hvort
ég horfði á sjónvarp eða heyrði
í útvarpi. Ég sagði henni
umsvifalaust að þótt annað
kynni að virðast reyndi ég í
lengstu lög að forðast hvoru
tveggja þar sem dagskrá þess-
ara væri hættuleg öllu venju-
legu fólki, ég fylgdist þó með
fréttum og ensku knattspyrn-
unni.
Mér var nú ekki farið að
verða um sel og hugsaði sem
svo að nú kæmi í Ijós og yrði
kunnugt að ég lifði aldeilis
menningarsnauðu lífi með afar
sérstæðar matarvenjur og ein-
hvers staðar víðs fjarri nútíma-
lífíslendingi. Ég heyrði heldur
ekki betur en allt væri komið á
suðupunkt á Old Trafford og var
því að veröa hálf argur og við-
mælandi minn líka en hún
klykkti þá út með því að spyrja
mig hvort ég hefði einhverja
menntun og hver ósköp ég
starfaði eiginlega mér til lífsvið-
urværis og hvort ég byggi ekki
örugglega úti á landi. Mér var
dálítið viðkvæmt ef ég kæmi nú
óorði á landsbyggðina en sá þó
að gagnslaust væri að Ijúga til
um búsetu þar sem hún vissi
hvert hún hringdi. Ég sagði
henni hins vegar að ég minntist
þess að hafa einhvern tíma ver-
ið í skóla. Ég sá í hendi minni
að óþarfi væri að koma óorði á
alla kennarastéttina líka með
því að Ijóstra upp um starfs-
grein mína svo ég trúði henni
fyrir því í hjartans einlægni að
ég væri lengi búinn að vera á
örorkubótum vegna næringar-
skorts. Það sagðist hún skilja
og þá lagði hún á og þá skoraði
Arsenal og þá var dagurinn orð-
inn ónýtur.
Á eftir leið mér dálítið eins og
vinnuveitendasambandinu rétt
fyrir samningaviðræður við
launþega: Öldungis blankur.
Kr. G. Jóh.