Dagur - 26.10.1991, Blaðsíða 5

Dagur - 26.10.1991, Blaðsíða 5
Laugardagur 26. október 1991 - DAGUR - 5 Efst í HUGA Jón Haukur Brynjólfsson Evrópskt efnahagsþvaður Þaö hefur komiö mér á óvart hversu óábyrg umræða hefur farið fram um Evrópska efnahags- svæðið hér á landi. Sumir stjórnmálamenn líta þannig á að hér sé kjörið tækifæri til að láta Ijós sitt skína og þvaðra einhverja vitleysu sem er ekkert annað en móðgun við þá sem á hlýða. Þeir kvarta undan skorti á upplýsingum en vita þó allt um málið. Ákveðnir aðilar voru samstundis á móti öllu saman eins og allir vissu að þeir myndu verða, sama hver niðurstaðan yrði. Almenningur er litlu skárri, flestir hafa fastmótaðar skoðanir og slá um sig með slagorðum sem koma í stað heil- brigðrar hugsunar um stærstu ákvörðun sem íslendingar hafa nokkurn tíma þurft að taka. Stjórnmálaforingjarnir mættust í Sjónvarpssal í vikunni og ræddu um EES á einkar málefnalegan hátt eins og þeirra er von og vísa. Áhorfendur fengu t.d. að vita að áður en Þröstur Ólafsson fór að skipta sér af þessu setti hann kaupfélag á hausinn enda voru kjörorð þess nánast þau sömu og utanríkisráðherra hefur notað til að lýsa frá- bærum eigin árangri í samningaviðræðunum - mikið fyrir lítið. Ráðherra atyrti Ólaf Ragnar fyrir þessar ósæmilegu dylgjur um aðstoðarmann sinn en stóðst ekki freistinguna að svara í sömu mynt og benti Ólafi á að hafa sig hægan enda væri Þjóðviljinn með greiðslustöðvun. Steingrímur karlinn má eiga þaö að hann stóð upp úr í þess- um þætti, hafði vissulega áhyggjur af þessu en var málefnalegur - svo málefnalegur að stjórnar- herrarnir neyddust til að viðurkenna það og gátu ekki kastað neinum skít til baka. Þessi orðaskipti voru auðvitað engin aðalatriði í umræðunni í Sjónvarpssal en gefa vísbendingu um virðinguna sem kjörnir fulltrúar á Alþingi bera fyrir fólkinu í landinu. Að hegða sér á þennan hátt í beinni útsendingu þegar verið er að ræða stærsta hagsmunamál þjóðarinnar er til háborinn- ar skammar. Skítkast hefur verið eitt helsta ein- kenni íslenskra stjórnmála eins og þau hafa snúið að almenningi og fátt bendir til að það breytist á næstunni. Maður hefði þó haldið að mikilvægi málsins héldi aftur af mönnum um stundarsakir. Við hljótum að gera kröfu til þess að stjórnmála- menn hugsi sinn gang og ræði málið af viti en hætti að láta eins og annað hvort við eða þeir séu smábörn. Hætti að láta eins og þetta sé einhver skemmtilegur kosningaleikur og fari að gera sér grein fyrir hlutverki sínu. Sú breyting gæti jafnvel leitt til þess að almenningur færi að bera virðingu fyrir stjórnmálamönnum. En svo ég víki aftur að kjarna málsins þá væri kannski ekki svo vitlaust að menn færu að velta samningunum um EES aðeins fyrir sér og kynna sér um hvað málið snýst. Talað er um skort á upp- lýsingum en spurningin er hvort almenningur hafi yfirhöfuð áhuga á upplýsingum. Skoðanakönnun um vitneskju almennings á EFTA, EB og fleiri tengdum málum benti ekki til þess. Meirihlutinn var ótrúlega fáfróður, hélt t.d. að við værum í EB ef menn höfðu þá grun um hvað það var. Þegar þátttakendur voru beðnir að nefna lönd í EB eða EFTA komu svör eins og Bandaríkin og Japan! Þær upplýsingar sem spurt var um hafa allar legið fyrir um árabil og verið hampað mikið í fjölmiðlum. Meðan menn gera ekki meira með þær sýnist mér tómt mál að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. FJÖLMIÐLAR Þröstur Haraldsson Markaðslögmálin leggja undir sig vinstri vænginn vaki fyrir forráðamönnum íslenska sjónvarpsfé- lagsins. Hvaö veldur því að forráöamenn Tím- Þegar greiðslustöðvun Þjóðviljans var viö þaö að renna út án þess að takmarkið - 2.000 nýir áskrifendur- hefði náöst tóku að berast fréttir af þvf aö samningaviðræðum um stofnun nýs dag- blaðs miðaði vel. Viðtöl voru höfð við helstu framámenn Tímans og Þjóðviljans þar sem þeir greindu frá því aö þeir teldu það einu réttu við- brögðin viö bágri stööu blaðanna aö sameina kraftana og gefa út eitt dagblað sem væri nógu öflugt til að standast öðrum blöðum snúning á blaðamarkaði. Steingrímur Hermannsson orð- aði þaö á þann veg að þaö væri orðiö tímabært að Morgunbiaðiö fengi alvörubiað að tala við. Undir þessi orð og önnur sem féllu í þessum viðtölum get ég tekið af heilum hug. Raunar get ég ekki látið hjá líða að benda þessum ágætu mönnum á aö þaö var einmitt þetta sem við hér á Degi héldum fram fyrir tæpum tveimur mánuð- um en fengum bágt fyrir [ Tímanum og Þjóðvilj- anum. Gott ef ummæli okkar voru ekki kölluð til- ræði við lýðræðið og tjáningarfrelsið. En batn- andl mönnum er best aö lifa og því skal sinna- skiptum þeirra sunnanmanna fagnað. Ein heista ástæöan fyrir því aö þessi umskipti urðu er eflaust sú að þegar betur var að gáð reyndist veruleiki litlu blaðanna þriggja enn dap- urlegri en áður var taliö og framtíöin aö sama skapi dekkri ásýndum. Uppsögn fjármálaráð- herra á 500 áskriftum og niðurskurður áframlagi til blaðaútgáfu í fjárlagafrumvarpinu gerði dæm- ið verra viðureignar og þegar eitt blaðanna var komið í opinber vandræði sáu hin blööin tvö sína sæng út breidda. Þá glottu markaðsöflin nakin og köld við útgefendum blaðanna og ekki annað að gera en að sætta sig við þá viðsjár* verðu skepnu. Og að því mér skilst á að ganga frá samning- um um nýja blaðiö nú um heigina. I viðræðunum taka þátt auk Timans og Þjóðviijans fulltrúar frá Stöð 2 og Prentsmiöjunni Odda. Hagsmunir Oddans eru augljósir, fyrirtækið keypti þaö sem eftir var af Blaöaprenti í fyrra og þarf að tryggja sér verkefni fyrir prentvélina. En margir hafa orðið til þess að spyrja hvað ans og Þjóðviljans taka það í mál að ganga f eina sæng meö formanni Verslunarráðs? Sú var tíðin að Þjóðviljinn neitaði að taka þátt í upp- lagseftirliti með þeim röksemdum að blaöið kæröi sig ekki um að hleypa stéttaróvini sínum, Verslunarráði, í bókhaldiö. En eins og áður voru það markaösöflin sem eyddu gömlum ríg og sættu menn við hlutina. StÖð 2 getur veitt nýja blaöinu aðgang að fjöl- mennum hópi áskrifenda þar sem eru allir þeir sem eiga myndlykil og eru áskrifendur að Stöö 2. Stöðin gefur nú út Sjónvarpsvísi og borgar Fróöa hf. tugi milljóna á ári hverju fyrir að sjá um útgáfuna. Hugmyndin er sú að Sjónvarpsvísir veröi lagður niöur en þess i staö blrtist dagskrá Stöövar 2 vikulega í helgarútgáfu nýja blaðsins sem verður dreift til allra áskrifenda stöövarinn- ar - og áskriftargjöldin innheimt um leið og áskriftin að stöðinni sjálfri er rukkuð. Það var þessi hugsun sem lá að baki tölum Steingríms Hermannssonar um upplagið f sjón- varpinu á dögunum. Þar sagði hann að nýja blaðið yrði aö seijast í 20.000 eintökum virka daga og 40-50.000 eintökum um helgar. í seinni tölunni eru allir áskrifendur Stöövar 2 innifaidir. Þetta er í sjálfu sér góð hugmynd og ef vei tekst til um alla gerð blaðsins ætti því ekki að reynast erfitt að ná í þessa 20.000 kaupendur á virkum dögum. Þeir eru eflaust fjöimargir sem vildu gjarnan sleppa því að kaupa Morgunblaö- ið, ef þeir ættu þess kost að fá þörfum sinum fyrir fréttir, upplýsingar og þjónustu uppfyllta í blaði sem aðhyllist Önnur lífsviðhorf en þau sem Morgunblaöiö gerir. Ég var alveg sammála Steingrími Hermanns- syni þegar hann sagöi að flokkarnir yrðu aö vera í minnihluta meöal hluthafa hins nýja blaðs. Það er frumforsenda þess aö dæmið gangi upp. Til þess þurfa einhverjir kannski að fórna einhverju en það hiýtur aö vera þess virði ef við í staöinn fáum öflugt félagshyggjublað sem stendur undir nafni og uppi f hárinu á Mogganum og DV. / AwaUA \ heilsugæslustöðin A AKUREYRI Tilkynning frá læknum Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri til íbúa í umdæmi stöðvarinnar. Svo sem kunnugt er hafa íbúar umdæmisins átt kost á að velja sér heimilislækni við stöðina frá því að hún tók til starfa í ársbyrjun 1985. Mál hafa síðan þróast á þann veg að þrír af tíu læknum stöðvarinn- ar, þeir Friðrik Vagn Guðjónsson, Ingvar Þórodds- son og Kristinn Eyjólfsson, hafa hver um sig skráða hjá sér 4-500 manns umfram þann fjölda sem talinn er hæfilegur á hvern lækni. Hins vegar geta nokkrir hinna læknanna bætt við sig skjólstæðingum. Þessi misskipting íbúanna á heimilislæknana getur kom- ið niður á "þjónustunni því vinnuálag á þá þremenn- inga er of mikið og skjólstæðingar þeirra þurfa því oft að bíða óeðlilega lengi eftir að fá viðtalstíma hjá þeim. Til þess að freista þess að leiðrétta þessa misskipt- ingu og koma þjónustunni í betra horf er þeim skjól- stæðingum ofhlöðnu þremenninganna sem gætu sætt sig við að velja sér annan heimilislækni góðfús- lega bent á þann möguleika. Skráning íbúa á heimilislækna og millifærsla fer fram í afgreiðslu Heilsugæslustöðvarinnar á 3. hæð, Hafnarstræti 99, Akureyri, sími: 22311. Samráðsfundur um ferðamál verður haldinn í Hrafnagilsskóla, laugardag- inn 2. nóvember 1991 og hefst kl. 10.00 f.h. Fundurinn er ætlaður öllum þeim er reka ferðaþjón- ustu á Eyjafjarðarsvæðinu svo og áhugamönnum um ferðamál. Megintilgangur fundarins er að miðla upplýsingum til þátttakenda um ferðaþjónustu er tengist Eyjafirði og efla umræðu og skoðanaskipti milii þeirra og fá fram hugmyndir að bættu skipulagi ferðamála á svæðinu. Einnig að ræða stofnun ferðamálafélags í Eyjafirði. Þeir sem sjá sér fært að mæta á umræddan fund eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku til Byggða- stofnunar á Akureyri í síma 21210 í síðasta lagi 31. október nk. Héraðsráð Eyjafjarðar. Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar verður haldinn mánudaginn 28. október kl. 20.30 í Hafnarstræti 90. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á 36. kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra. Önnur mál. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður, mætir á fundinn. Áríðandi að féiagar mæti vel. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. |||| Framsóknarfélag ™ Húsavíkur Aðalfundur verður haldinn að Hótel Húsavík sunnudaginn 27. okt. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 4. Önnur mál. Guðmundur Bjarnason þingmaður mætir á fundinn. Fjölmennum og ræðum bæjarmálin og stjórn- málaástandið. Stjórnin.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.