Dagur - 10.12.1991, Side 5
Þriðjudagur 10. desember 1991 - DAGUR - 5
Leiklist______________________
Verðug aftnælissýning
- Leikfélag Sauðárkróks sýnir eitt þekktasta verk
Tennessee Williams, „Köttur á heitu blikkþaki“
Leikfélag Sauðárkróks - það,
sem nú starfar - á fimmtíu ára
starfsafmæli á þessu ári. Það er
drjúgur aldur í áhugamannafé-
lagsskap hér á landi og full
ástæða til þess að minnast slíkra
tímamóta með nokkurri viðhöfn.
Það er leikfélagið einmitt að gera
þessa dagana í sýningum sínum á
einu þekktasta verki bandaríska
leikritaskáldsins Tennessee
Williams: Köttur á heitu blikk-
þaki.
Uppsetning Leikfélags Sauðár-
króks á verkinu var frumsýnd 28.
nóvember. Hún er landsfrumsýn-
ing og er það í raun furðulegt, að
svo gott verk eftir jafn þekktan
höfund skuli ekki fyrr en þetta
hafa verið sviðsett hér á landi.
Leikstjóri uppsetningarinnar
er Andrés Sigurvinsson. Hann
hefur greinilega unnið verk sitt af
kostgæfni. Hreyfingar á sviðinu
ganga vel fyrir sig og lipurlega og
leikstjórinn virðist hafa haft vak-
andi auga með hverjum flytj-
anda. Viðbrögð við því, sem er
að gerast hverju sinni, eru lang-
oftast eðlileg og sannfærandi.
Einmitt það - allt niður í það að
augnagota eða lítil hreyfing
handar sé í samræmi við feril sýn-
ingarinnar - er mikilvægt og jafn-
vel afgerandi í heildarmynd
uppsetningar.
Annað, sem ekki síður skiptir
máli í svip uppsetningar, er leik-
mynd, lýsing og búningar. I þessu
efni hefur verið vel að verki
staðið. Sviðið er fallegt og ekki
síst afar hæfandi fyrir þetta
verk, sem gerist í glæsihýsi vell-
auðugs plantekrueiganda í Suð-
urríkjum Bandaríkjanna. Lýsing
þess er smekkleg og búningar
allra leikenda í góðu samræmi
við það umhverfi og þær aðstæð-
ur, sem verið er að fjalla um.
Leikmynd er eftir Jónas Þór
Pálsson, lýsing hönnuð af Agli
Erni Árnasyni og búninga gerði
Rósberg Snædal.
Hlutverk Margrétar Pollit er í
höndum Elvu Bjarkar Guð-
mundsdóttur. Elva er falleg á
sviði og hefur í túlkun sinni tals-
vert af fasi suðurríkjakonunnar.
Texti hennar einkennist mjög af
löngum einræðum ekki síst í
fyrsta þætti. Það er ekki auðvelt
að gefa þeim blæbrigði og lit, en
Elva Björk kemst talsvert vel frá
þeim vanda. Þó hefði á stundum
mátt vera heldur meiri hiti í
flutningi hennar og nokkuð meiri
„kattarbragur" á mótun persón-
unnar.
Eiginmann Margrétar, Brick
Pollit, leikur Gunnar Bragi
Sveinsson. Persónan krefst hóf-
semi í túlkun en líka nokkurs hita
einkum í öðrum þætti verksins.
Gunnar Bragi gerir henni að
jafnaði góð skil og nær talsvert
vel að flytja áhorfendum mynd
þesa sídrykkjumanns, sem er
önnum kafinn við það einna helst
að svæfa vitund sína og hugsanir.
Stóri pabbi, herra Pollit, er
leikinn af Hauki Þorsteinssyni.
Honum tekst vel að ná inn í
persónuna og draga hana fram,
hrjúfa og harða á yfirborði en í
raun mjúka og tilfinningaríka.
Haukur hefur ekki tekið jrátt í
uppsetningum Leikfélags Sauð-
árkróks í nokkur ár. Það er
ánægjulegt að sjá liann aftur á
sviði.
Hlutverk Stóru mömmu, Idu
Pollit, er í höndum Helgu Hann-
esdóttur. Það er auðvelt að falla í
þá gryfju að ofleika þessa pers-
ónu og jafnvel má segja, að hún
bjóði upp á nokkurn afkáraleika
í túlkun ef ekki er aðgát höfð.
Helgu tekst vel að feta slóð hóf-
seminnar og nær að skapa sann-
færandi mynd.
Fimmta meiri háttar hlutverkið
í Ketti á heitu blikkþaki, Mae
Pollit, leikur Elsa Jónsdóttir.
Elsu tekst mjög vel að gæða pers-
ónuna lífi og draga fram einkenni
hennar.
Aðrir leikarar í minni hlut-
verkum skila þeim vel og leggja
sitt af mörkum til þess að skapa
heildstæða og eftirminnilega upp-
setningu, sem er verðug þess að
vera afmælisframboð Leikfélags
Sauðárkróks. Það á að baki
margar metnaðarfullar uppsetn-
ingar og vonandi verða næstu
fimmtíu árin á starfsferli félagsins
ekki síðri þeirri hálfu öld, sem að
baki er.
Það helsta, sem að uppsetn-
ingu Leikfélags Sauðárkróks á
Ketti á heitu blikkþaki má finna,
er texti íslensku þýðingarinnar.
Hann er talsvert stirðlegur á
stundum. Þetta gerði leikendun-
um iðulega heldur erfitt fyrir.
Textann þyrfti endilega að lag-
færa talsvert. Verði það gert, má
öruggt telja, að Köttur á heitu
blikkþaki verður á fjölum fleiri
félaga á næstu árum.
Undirritaður óskar Leikfélagi
Sauðárkróks til hamingju með
fimmtíu árin, sem að baki eru, og
árnar því heilla í framtíð.
Haukur Agústsson.
Lesendahornið
Lausn mengunarvandans í sjónmáli!
Nú dámar mér ekki lengur!
Á þessum síðustu og verstu
tímum er mönnum gjarnan tíð-
rætt um hinn ógurlega skaðvald
sem tröllríður allri heimsbyggð-
inni, og vofir yfir öllu lífríki jarð-
ar - nefnilega rækallans mengun-
ina.
í umræðum sínum um úrbætur
á meini þessu virðist mér sem
valdamenn þessa lands séu að
sækja vatnið yfir lækinn. Helsti
vandinn er minnkandi magn 02
og aukið magn C02 í andrúms-
loftinu. Lausnin á þessum vanda
er þó nær okkur en margur
hyggur.
Eg hef gefið þessu máli nokkra
íhugun og komist að þeirri niður-
stöðu að það getur varla talist til-
viljun ein að þetta vandamál
Kona hringdi:
„Það er mikil hálka á bílastæðinu
við Víðilund 24, íbúðir aldraðra,
en íbúarnir geta lagt bílum sínum
alveg við stéttina. Hún er auð því
undir henni eru hitalagnir. Ég er
hins vegar ekki ánægð með það
að aðkomubílar taka alltaf pláss-
ið við stéttina og þetta er eigin-
lega allt ungt fólk. Mér gremst
þetta, ekki það að ég geti ekki
- eða hvað?
spretti upp nú á tímum heilsu-
ræktarvakningar.
Hingað til hafa hjólreiðamenn
og hlauparar fengið að bruðla
með dýrmætt 02 okkar kyrrsetu-
manna, óáreittir, svo minnir
einna helst á tíma einokunar-
verslunarinnar. En eins og þeir
vita, sem eru í meðallagi greind-
ir, gengur mun fyrr á súrefnis-
birgðir heimsins með hraðri önd-
un.
Nú er mál að linni, setjum
hnefann í borðið, tökum höndum
saman, spyrnum við fótum og
hættum að blása og hvása eins og
óðir tarfar um fengitímann, því
nú verður hver að berjast fyrir lífi
sínu.
Við getum ekki látið íþrótta-
fólk og eiginhagsmunaseggi vaða
gengið á svellinu en hér býr
margt fólk sem er orðið lélegt og
það á erfitt með að ganga í hálku.
Planið er einn glerungur og það
væri gott fyrir þetta fólk að geta
lagt alveg við stéttina, eins og
það á rétt á að rnínu mati. Mig
langar því að benda fólkinu á
aðkomubílunum á taka tillit til
íbúanna."
endalaust yfir okkur með yfir-
gangi og frekju. Kveðum niður í
þeim kútinn.
Gaman væri ef lesendur létu í
Ijós skoðun sína á máli þessu og
kæmu með hugmyndir.
Með fyrirfram þökk,
G. Sigfúsdóttir.
Fyrirspurn til bæjarfógeta-
embættisins á Akureyri:
Borga hertar
iraiheimtuaðgerðir
sig alltaf?
Petra hringdi.
„Mig langar til þess að beina
þeirri spurningu til bæjarfógeta-
embættisins á Akureyri hvort
hertar innheimtuaðgerðir borgi
sig í öllum tilfellum. Oft er það
nú svo, og það þekki ég sjálf, að
um er að ræða svo litlar upphæðir
að það hlýtur að orka tvímælis
hvort það borgi sig að ganga svo
hart eftir þeim. Við útsendingu
bréfa er jú lágmarks kostnaður,
pappírs- og sendingarkostnaður,
auk vinnu við að senda bréfin út.
Það eru margir sem tala um
þetta og finnst bæjarfógeta-
embættið ganga langt þegar það
sendir út allskyns rukkunarbréf
og aðvaranir, kannski strax dag-
inn eftir greiðsludag."
íbúðir aldraðra í Víðilundi:
Svellbunki á Mastæðum
- aðkomubflar taka bestu stæðin
BÓKABÚÐ JÓNASAR
jólakorta
B0KABÚÐ iBaOVk bB ™
JONASAR JlllWltsL
Hafnarstræti 108 • Sími 96-22685
Melka buxur
Munurinn er augljós!
Herradeild
Bóklegt einkaflug-
mannsnámskeið
verður haldið í byrjun janúar ’92.
Flugskóli Akureyrar
Akureyrarflugvelli • Sími 27900
Agúst Magnússon, heimasími 11663.