Dagur


Dagur - 14.12.1991, Qupperneq 5

Dagur - 14.12.1991, Qupperneq 5
Laugardagur 14. desember 1991 - DAGUR - 5 Efst í HUGA Óli G. Jóhannsson Hnignun hverrar þjóðar hefst f sálinni Hnignun hverrar þjóöar hefst í sálinni. Þessari setningu laust í koll undirritaðs ekki fyrir löngu er horft var á útsend- ingu sjónvarps frá hinu háa Alþingi. Mér blöskraði málflutningur ráða- manna. Að undanförnu hefur allt logað í inn- byrðis deilum á Alþingi eða því orða- skaki sem hæfir pörupiltum fremur en stjórnmálamönnum og forsætisráð- herrann fór fremstur í flokki. Gagn- fræðaskólabörn á Akureyri sáu sig knúin til að gefa forsætisráðherranum snoppung í bréfi er birtist í Degi þar sem forsætisráðherrann hafði talað niðrandi um menntastofnanir ung- menna.' Já, hnignun hverrar þjóðar hefst í sálinni, og er nokkur furða þótt setning sem þessi sé efst í hugskoti blaða- manns þegar störf hins virta Alþingis eru grannt skoðuð? Við skulum ekki ætla að hnignun þjóðar hefjist á sviði efnahagsmála. Nei, af og frá. Innviðir morkna því sjálfsvirðingu vantar með öllu hjá flestum er landinu stjórna og þeim mörgu er dansa mammonsdans- inn mikla til hægri. í kreppu sem nú, stendur meirihluti stjórnmálamanna vörð um taprekstur fyrirtækja og vernd- ar þá arðsemi sem hefst upp úr því að tapa. Tapið hefur verið mesti og stærsti gróðinn hjá þeim sem „tapa“ og einnig þeim sem græða. Atvinnurekendur „græða“ sitt á hvað á hinn undarleg- asta hátt. Það yrði alvarlegur skellur fyrir íslenskan efnahag ef ríkisstjórnin kæmi í veg fyrir slíkt. Nei, við þurfum ekki að örvænta. Meirihluta alþingis- manna þykir sem við séum á réttri leið og stendur sem varðhundur um kerfi óráðsíunnar. Leyndardómur íslenska hagkerfisins er m.a., að tap hafa í för með sér hagræði jafnt fyrir þá sem tapa og hina sem græða. Pappírs- prinsarnir nærast og bólgna. Því stærra tap því betra og þjóðarsálin er ánægð. Eða hvað? Allt ber vott um hnignun. Bæði í flokkunum til vinstri og hægri hafa hreiðrað um sig menn sem fást fremur við lítisverðan tittlingaskít en raunveruleg stjórnmál. Fólk fær ekki eðlilegt pólitískt uppeldi og Alþingi ber þess merki. Aðgerða er þörf og raddir verða stöðugt háværari um að ríkisstjórn íslands fari frá, hún hafi tap- að trúnaði þjóðarinnar. staðar sitja sérfræðingar þungir á brún og segja Margir hafa orðið til þess að skamma fjölmiðla í tímans rás fyrir að leggja ofurkapp á að birta neikvæöar fréttir en láta allt hið fagra og já- kvæða í lífinu sem vind um eyrun þjóta, Blaða- menn hafa svarað sem svo að það sé nú einu sinní þannlg aö þaö Ijóta og neikvæða sé und- antekningin í lífinu og þess vegna frétt, meðan hiö góöa og fallega sé reglan og þess vegna engin frétt. Og þeir hafa bent á að einu sínni hafi verið reynt að gefa út blaða f Ameríku sem ein- ungis birti jákvæöar og uppbyggilegar fréttir en það fór á hausinn á undraskömmum tfma. Ég er út af fyrir sig sammáia kollegum mínum að þessu leyti. Hins vegar finnst mór þeir verða stundum að vara sig, ekki síst þegar þeir segja fréttir af kjara- og efnahagsmálum. Því hefur verið haldið fram aö hagfræði sé að stærstum hluta byggð á sálfræði. Meö því er átt við þaö að hagsveiflurnar í samfólaginu stjórnist aö veru- legu leyti af stemmningunni í samfólaginu. Ef þar ríkir almenn bölsýni sóu meiri líkur á niður- sveiflu og kreppu en þegar þegnarnir eru bjart- sýnir. Það er margt til í þessari kenningu, enda haga fjöimargir stjórnmálamenn og forystumenn í atvinnu- og fjármálalffi sér eftir henni. Þegar þeir telja nauðsyn á að grfpa til harkalegra aö- gerða mála þeir tilveruna dökkum iitum og skapa með þvf andrúmsloft sem er heppilegt fyrir aðgeröirnar. Þetta hefur sjaldnast birst meö eins skýrum hætti og á síöustu vikum og mánuöum. Það er búið aö hamra á því aö ailt sé á leið tii fjandans í íslensku efnahagslffi, Þorskurlnn búinn, loðan ófinnanleg, síldin óseljanleg, annað hvert fyrir- tæki á hausnum eða svo gott sem og ekkert ál- ver. Meö slíkum söng er auöveldara en eila að fá almenning til að skilja nauðsyn aðhaids- og spamaðaraðgeröa. Við svona aöstæður verða biaðamenn að gæta að sér. Þaö er svo auðvelt að láta sefjast í þeirri síbylju sem glymur úr öllum hornum stofn- anaveldisins - Alþingi, Seðlabanka, ráðuneyt- unum, samtökum atvinnurekenda og víðar. Alls biaðamönnum hversu aivarlegt ástandið sé. En er það svona slæmt? Glöggur maður benti mór á það fyrir skömmu aö söngurinn um bága stöðu fiskvinnslunnar styðjist viö afar hæpin rök. Hún er ekki enn farin að finna fyrir aflasamdrættinum, markaðsverð hefur aidrei verið hærra og kaupið ekki hækkaö frá því f sumar. Það eina sem hefur versnaö er fjár- magnskostnaðurinn. Það hlýtur því aö vera eitt- hvað að í rekstrinum fyrst hann er neikvæður um mörg prósent, sagði hann. Við svona aðstæður verða blaöamenn að hafa hugfast aö það eru iausir samningar viö allt launafólk í landinu (nema söngstjórana sjálfa sem hafa miiljón á mánuði fyrir að hvetja hina meö hundraö þúsundin til að herða nú sultaról- ina og hætta bruðlinu). Með prósentuútreikningi og meðaltölum má sýna fram á alian fjárann. Og þótt mörg fyrirtæki í sjávarútvegi standi hölium fæti eru þau þó miklu fleiri sem sýna góða af- komu og gætu þess vegna greitt hærri laun - sum gera þaö raunar. Biaðamenn veröa að gæta sín á því að hrff- ast ekki svo mjög af söngnum að þeir leggi heilu fréttatímana eöa opnurnar undir gjaldþrot og at- vinnuleysi. Og þegar ekkert gjalþrot hefur orðið er jafnvel fyllt upp með hugleiðingum um hugs- anlegt atvinnuleysi ef allt færi nú á versta veg. Að sjálfsögðu á að segja frá gjaldþrotum og at- vinnuleysi, en aögát skal höfð í nærveru at- vinnurekenda sem eru viökvæmar sálir. Og menn verða að hafa hugfast að þaö er fá- um treystandi þegar fslensk efnahagsmál eru annars vegar. Þjóðhagsstofnun á að vera hlut- læg rfkisstofnun sem leggur kalt mat á efna- hagslegar staöreyndir. Samt sem áöur sýndi at- hugun sem gerð var fyrir nokkrum árum aö í þeim þjóðhagsspám sem bírtast f aösogi kjara- samninga virðist vera innbyggö svartsýni upp á ekki minna en 2%. Við verðum þvf að andæfa gegn síbyljunni og meðhöndla þær töiur og spár sem okkur eru róttar á blaðamannafundum á gagnrýninn hátt. Jólatrésala: Rauðgreni • Stafafura • Blágreni • Fjallajtimir • Norðmannsþinur. Greni margar tegundir. Jólaskreytiiigar og skreytingaefiii Úrval af kertum. Nýtt í gjafavöru. Opið iini helgina 14. og 15. des. frá ld. 10-20. SS/ómalníómýg AKURW KAUPANGIV/ MÝRARVEG 602 AKUREYRI SÍMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498 Úrvals niðursuöuvörur med góðum mat #%/ Islenak ///// Aynft-ríwlrn Tunguháls 11 • Sfcni 82700 Fegurðarsmkeppnií Norðurlands J992 ; verður haldin \ Sjallanum í febrúar. Tilkynningar um þátttöku svo og allar ábendingar skulu berast til Sjallans í síma I 22770 eða Dansstúdíós Alice í síma 24979. I Sigurvegari í keppninni „Fegurðardrottning Norðurlands" verður fulltrúi Norðurlands í keppninni um „Fegurðardrottningu íslands". Allar upplýsingai eru gefnar í Sjallanum í síma 22770 og Dansstúdíó Alice í síma 24979. SJALLINN lill framsóknarmenn I AKUREYRI Bæjarmálafundur Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90, mánudaginn 16. desember kl. 20.30. Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram- sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig varamenn. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.