Dagur - 07.01.1992, Page 16

Dagur - 07.01.1992, Page 16
Akureyri, þriðjudagur 7. janúar 1992 Kodak x Express Gæöaframköllun ★ Tryggðu filmunni þinni Jjbesta ‘TfedíSmyndir Hafnarstræti 98, simi 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. Hraðfrystihús Ólafsfjarðar: Flæðilínan í gagnið undir mánaðamót Vinna mun liggja niðri hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar þar til síðar í mánuðinum. Astæðan er sú að verið er að vinna við uppsetningu á flæði- línu hjá fyrirtækinu. Að sögn Jóhanns Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Hrað- frystihúss Ólafsfjarðar, komu starfsmenn frá Þorgeiri og Ellert hf. á Akranesi til að setja flæði- línuna sjálfa upp en hún verður í því húsi sem var áður Hraðfrysti- hús Magnúsar Gamalíelsonar hf. Jóhann segir að einnig sé nú unn- ið að því að flytja vélbúnað úr húsi HÓ yfir á nýja staðinn. Jóhann reiknar með að undir mánaðamót komi starfsfólk til vinnu en ísfisktogararnir eru ekki farnir á_veiðar enn og fara vænt- anlega út þegar sér fyrir endann á uppsetningu tækjanna í frystihús- inu. JÓH Hrísey: Vinna hefst í frysti- húsinu að viku liðinni - afli Súlnafellsins EA1585 tonn á liðnu ári Súlnafell EA frá Hrísey fór til veiða sl. föstudag. Á liðnu ári var afli togarans 1585 tonn að aflaverðmæti 95 milljónir. Úthaldsdagar voru 248. Afli Súlnafells EA var 45% þess afla sem unninn var í Frysti- húsi KEA í Hrísey árið 1991. Fimmtíu og fimm prósent bár- ust frá smábátum í Grímsey og Hrísey. „Vinna í frystihúsinu hefur leg- ið niðri um þriggja vikna skeið, en hefst að nýju nk. mánudag er Súlnafellið kemur úr fyrstu veiði- Kaldbakur hf.: Ásgeir ráðinn framkvæmdastjóri Stjórn Kaldbaks hf. á Grenivík gekk um helgina frá ráðningu nýs fram- kvæmdastjóra en 9 manns sóttu um stöðuna. Fyrir val- inu varð Ásgeir Arngríms- son frá Akureyri. Að sögn Jóhanns Ingólfs- sonar, stjórnarformanns Kaldbaks, mun Ásgeir hefja störf um eða laust eftir næstu mánaðamót. Ásgeir Arngrímsson hefur auk fiskvinnsluskólagöngu lokið námi í útvegstækni frá Tækniskóla íslands og hann hefur starfað hjá Útgerðarfé- lagi Akureyringa undanfarin ár. SS ferð ársins. Þetta stopp hefur ver- ið nýtt vel til viðhalds á ýmsu er lagfæra þurfti. Stærsta breytingin er að við erum að skipta yfir í loftkældan eimsvala úr sjókæld- um. Síðan er verið að skipta um gólfefni á vinnslusal og endur- bæta raflagnir og annað smátt er þarf. Fiskvinnslufólk er á nám- skeiði á vegum Starfsfræðslu- nefndar fiskiðnaðarins. Síðast var slíkt námskeið fyrir tveimur árum hér í Hrísey. Átján starfs- menn eru á þessu námskeiði nú, en hér eru á launaskrá í fisk- vinnslu og á sjó um áttatíu manns,“ sagði Jóhann Þór Hall- dórsson, útibússtjóri KEA í Hrísey. ój Húsavík: Ný Björg Jónsdóttir til bæjarins Björg Jónsdóttir ÞH-321 kom til heimahafnar á Húsa- vík um hádegisbilið á Sunnu- dag og var vel fagnað. Bátur- inn er í eigu Bjarna Aðal- geirssonar, útgerðarmanns, og hét áður Rauðsey AK. Eldri bátur í eigu Bjarna hef- ur fengið nafnið Björg Jóns- dóttir II ÞH-320. Skipstjóri á Björgu II er Sigurjón Sigur- björnsson og mun báturinn fara á rækjuveiðar. Nýi báturinn fer á loðnu á næstu dögum. Skipstjóri á hon- um er Aðalgeir Bjarnason. Vel líkaði við bátinn á heimleiðinni til Húsavíkur. Um er að ræða 316 tonna stálbát, byggðan í Hollandi 1967, en síðan hefur báturinn verið endurbyggður, bæði lengdur og yfirbyggður. Báturinn ber 600 tonn af loðnu. Þess má geta að nýja Björgin er Húsvjkingum ekki að öllu ókunn. í fyrstu hét báturinn Örfirisey og var fyrsti skipstjóri á henni Kristbjörn Árnason frá Húsavík, fylgdist hann með byggingu bátsins í Hollandi og auk hans voru margir í fyrstu áhöfninni frá Húsavík. Bjarni sagði aðspurður að sér litist vel á bátinn og hann von- aði að hann reyndist vel. IM Skiptir sköpum fyrir atvinnurekstur í landinu að ná raunvöxtunum niður - segir Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambandsins Einar Oddur Kristjánsson, for- maöur Vinnuveitendasam- bands íslands, telur að þaö skipti sköpum fyrir atvinnu- reksturinn í landinu að á næstu misserum takist að ná raun- vaxtastiginu í landinu niður. Að hans mati eru aðilar vinnu- markaðarins sammála um mikilvægi raunvaxtalækkunar og hann telur að viðskipta- bankarnir muni leggja sitt af Skagaströnd: Adolf leigir Marska Um áramótin var gengið frá leigusamningi varðandi fyrir- tækið Marska hf. á Skaga- strönd. Leigutaki er Adolf Berndsen, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, og segir hann óljóst hvað gerist í framtíðinni hjá Marska. Marska hf. er dótturfyrirtæki Skagstrendings hf. og á haust- mánuðum tók stjórn þess ákvörðun um að auglýsa rekstur- inn til leigu eða sölu. Nokkrar fyrirspurnir bárust, en ákveðið var að ganga til samninga við Adolf m.a. til að halda fyrirtæk- inu á staðnum. Samningurinn gildir til ársloka 1993. „Ég tók rekstur Marska á leigu frá og með áramótum, en annars er lítið um málið að segja. Við erum núna fyrst og fremst að pakka ýsu, en hvað tekur við er ekki ljóst í dag, verið er að skoða það,“ segir Adolf. SBG mörkum til þess að ná þessu fram. „Ég tel að það geti skipt sköp- um á allra næstu misserum og árum fyrir afkomu atvinnu- rekstrarins í landinu að okkur takist að ná raunvöxtunum niður. Ef okkur tekst það ekki, þá getur það haft í för með sér að hér náist enginn hagvöxtur. Ég trúi því að á næstu mánuðum muni við- skiptabankarnir koma inn í þessa umræðu og standa með okkur í því að benda á þvílík gríðarleg þörf það er fyrir atvinnulífið að ná raunvöxtunum niður. Staða atvinnulífsins er skelfileg. Það fer aftur á bak en ekki áfram. Ef okkur á að takast að skapa nýtt hagvaxtarskeið, þá verðum við að ná niður raunvöxtunum,“ sagði Einar Oddur. Talsmenn verkalýðshreyfing- arinnar hafa talað á svipuðum nótum um mikilvægi þess að lækka raunvextina og talið raun- vaxtalækkun forsendu þess að hægt verði að ganga frá nýjum kjarasamningi aðila vinnu- markaðarins. „Ég held að Vinnu- veitendasambandið og Alþýðu- sambandið standi fast saman í þessu máli og eins og ég sagði áður vil ég trúa því að á næstu misserum muni viðskiptabank- arnir leggja okkur lið í því að koma niður raunvöxtunum,“ sagði Einar Oddur. Enn sem komið er hefur fátt áþreifanlegt gerst í viðræðum aðila vinnumarkaðarins um nýj- an kjarasamning, en samningar hafa sem kunnugt er verið lausir síðan í september sl. Verkalýðs- félög víða um land eru farin að ókyrrast verulega og þannig er í ályktun stjórnar Verkalýðsfélags- ins Einingar á Akureyri 3. janúar sl. lýst undrun og reiði yfir við- brögðum Vinnuveitendasam- bandsins, Vinnumálasambands- ins og fulltrúa ríkisins gagnvart sérkröfum Verkamannasam- bandsins, eins og það er orðað í ályktuninni. í henni segir að það áhugaleysi sem viðsemjendur launafólks hafi sýnt við sérkröf- um sé lítilsvirðing við það, sem hljóti að enda með ófriði á vinnu- markaðnum áður en langt um líður. Stjórn Einingar krefst þess að nú þegar verði farið í „alvöru viðræður um sérkjarasamninga svo hægt sé að hefjast handa við gerð aðalkjarasamnings af hendi heildarsamtakanna." Einar Oddur Kristjánsson sagðist telja að samningamálin væru í eðlilegum farvegi. Menn ynnu hægt og örugglega að því að ná niðurstöðu, en óvissa með fjárlög og ýmsar ráðstafanir í ríkisfjármálum hefði m.a. hægt á gangi viðræðna um nýjan aðal- kjarasamning. Menn gæfu sér þann tíma sem þyrfti til þess að ná skynsamlegri lendingu. Um sérkröfurnar, sem getið er sérstaklega í ályktun stjórnar Einingar, sagði Einar Oddur að Vinnuveitendasambandið hefði oft tjáð sig um þær. „Það er engin leið að auka launakostnað í þessu þjóðfélagi eins og ástandið er. Á hinn bóginn erum við reiðubúnir að skoða það að bæta kjör okkar fólks án þess að auka launakostn- að. Við teljum að það sé hægt með bónussamningum, liagræð- ingu og fleiru. Ég bendi í þessu sambandi á samninginn sem gerður var seint á síðasta ári um hagræðingu í mjólkuriðnaðinum. Ég er sannfærður um að sá samn- ingur mun færa starfsmönnum í viðkomandi mjólkursamlögum bætta afkomu, án hækkunar á launakostnaði," sagði Einar Oddur Kristjánsson. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.