Dagur - 14.01.1992, Qupperneq 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 14. janúar 1992 8. tölublað
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Norðmennirnir teíja fyrir
veiðum íslensku skipanna
segir Maron Björnsson, skipstjóri á Guðmundi Ólafi ÓF
í gær var heldur betur veður til þess að viðra sig og sína. Á Akureyri var 11
gráðu hiti um miðjan dag í gær og hiti komst í 14 stig uni norðanvert landið.
Mynd: Golli
Norðurland:
Fjórtán stiga hiti í gær
„Við viljum ekkert sjá þessi
norsku skip hérna vegna þess
að þeirra veiði er komin langt
út fyrir þann samning sem
gerður var hér um árið. Sá
samningur var gerður með því
hugarfari að loðnan gengi
norður til Jan Mayen og þeir
veiði sinn hluta þar en þessi
loðna hefur ekki farið þangað
og því erum við hreinlega að
gefa þeim þetta,“ sagði Maron
Enn sem komið er hefur
íslandsbanki ekki tekið
afstöðu til tveggja framkom-
inna tilboða í alifuglabúið
Fjöregg á Svalbarðsströnd, en
væntanlega verður það gert í
þessum mánuði.
íslandsbanki keypti Fjöregg í
desember og tók við rekstri bús-
Sveifarhússsprenging varð um
borð í togaranum Rauðanúpi
ÞH norður af Engey um kl.
20.00 á sunnudagskvöldið.
Eldur kom upp í vélarrúmi
togarans, en skipverjar náðu
að slökkva eldinn fljótt og vel
sem var lítill að sögn skipstjór-
ans Júlíusar Kristjánssonar.
Togarinn Rauðinúpur ÞH hef-
Húsavík:
40 mijónir í ár
tfl viðbyggingar
við grunnskólann
Framhaldsskólinn á Húsavík
fær 10 milljónir króna á fjár-
lögum í ár til viðhalds og stofn-
kostnaðar. Einar Njálsson,
bæjarstjóri á Húsavík, segir að
ætlunin sé að framkvæma fyrir
40 milljónir króna og því leggi
bærinn fram 30 milljónir króna
á móti.
„Þarna er reyndar um að ræða
viðbyggingu við grunnskólann.
Með verkaskiptalögunum sömd-
um við um það að vegna þess að
gamla gagnfræðaskólahúsið væri
nýtt undir Framhaldsskólann, þá
tæki ríkið þátt í viðbyggingu við
grunnskólann í staðinn. Við
sömdum um ákveðna upphæð,
en síðan greiðir Húsavíkurbær
það sem upp á vantar," sagði
Einar. óþh
Björnsson, skipstjóri á loðnu-
skipinu Guðmundi Ólafi ÓF.
Um 30 norsk veiðiskip eru nú á
miðunum fyrir austan land og
er mikill kurr meðal sjómanna
og útgerðarmanna vegna þessa
ástands. Sjómenn segja að
þessi norsku skip hafi ekkert
samband né samstarf við
íslensku skipin og því sé mikil
hætta á slysum á miðunum.
Sá samningur sem nú er í gildi
ins 13. desember. I kjölfarið aug-
lýsti bankinn búið til sölu og
sýndu tveir aðilar fljótlega áhuga
á að kaupa að. Til stóð að ganga
frá sölu á búinu strax fyrir jól, en
af því hefur enn ekki orðið. En
gert er ráð fyrir að nýr aðili verði
skráður fyrir búinu fyrir lok þessa
mánaðar. óþh
ur verið í vélarupptekt í Reykja-
vík að undanförnu. Á sunnu-
dagskvöldið var togarinn í reynslu-
siglingu þegar sveifarhússspreng-
ing varð í vélarrúmi.
„Engan sakaði þegar spreng-
ingin varð. Vélstjórar yfirgáfu
vélarúmið strax vegna reyks. Síð-
an voru menn sendir niður búnir
reykköfunartækjum sem og
slökkvitækjum. Við náðum að
slökkva fljótt og vel þann litla eld
sem var uppi. Einn maður varð
fyrir reykeitrun og var fluttur á
spítala. Maðurinn er á batavegi
og fær að yfirgefa sjúkrahúsið á
næstu klukkutímum. Viðgerðar-
menn eru að störfum. Nei, ég get
ekkert sagt um hvenær við höld-
um til veiða,“ sagði Júlíus Krist-
jánsson. ój
„Ef gengið er út frá 6-700
milljóna skattlagningu á sveit-
arfélögin, þá er verið að tala
um nálægt 40 milljóna króna
skatt á Akureyrarbæ,“ segir
Halldór Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, um löggæsluskatt og
aðrar hugmyndir ríkisvaldsins
um auknar álögur á sveitarfé-
lögin.
„Þetta er auðvitað heilmiklir
um veiðar úr norsk-íslenska
loðnustofninum rennur út í vor
og stefnir í að eitt meginniál við
endurskoðun þessa samnings
verði að koma í veg fyrir að
Norðmenn geti veitt sinn hluta í
lögsögu Islendinga og innan um
íslensku skipin.
„Mér finnst sjálfsagt að Norð-
menn haldi hlut í veiðunum en þá
finnst mér að þeir ættu að veiða í
sinni lögsögu og við í okkar. Það
passar auðvitað ekki árið 1992 að
landhelgin hér sé full af útlend-
ingum.“
Maron segir að norsku skipin
megi ekki fara inn fyrir ákveðna
línu en þau séu að veiðum á
sömu slóðum og íslensku skipin.
Þetta tefji fyrir veiðum íslensku
skipanna og engin samskipti séu
milli íslensku og norsku skip-
anna.
„Við vitum ekki einu sinni á
hvaða bylgju þeir eru og heyrum
nánast aldrei í þeim. Við erum
því að vinna þarna með 30 mál-
lausum mönnum. Þeir eru á
sömu slóðum og við og elta okk-
ur uppi ef eitthvað er vænlegra
hjá okkur.“
Aðfaranótt laugardags var
ágæt veiði á loðnumiðunum en á
sunnudag skall á vonskuveður og
héldu skipin þá til hafna. Guð-
mundur Olafur var með fullfermi
eða 600 tonn og landaði á Eski-
firði. Þórður Jónasson EA og
Súlan EA fóru til Reyðarfjarðar,
Þórður með 550 tonn og Súlan
með 450 tonn. Síðdegis í gær var
flotinn enn í höfn og ekki útlit
fyrir að veður gengi að marki nið-
ur fyrr en í nótt. JÓH
Þrjátíu og eins árs Siglfirðing-
ur, Sigrún Jónasdóttir, datt
heldur betur í lukkupottinn sl.
laugardag. Hún hafði allar
fimm lottótölurnar réttar og
peningar. Skatttekjur Akureyr-
arbæjar eru tæpar 1400 milljónir
og því erum við að tala um
nálægt 2,5% af skatttekjum. Það
eru peningar sem munar heilmik-
ið um,“ sagði Halldór.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæj-
ar er þessa dagana að fá á sig
endanlega mynd og er gert ráð
fyrir að línur skýrist mikið eftir
bæjarráðsfund í dag.
Fjárhagsáætlunin verður tekin til
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofu íslands komst hiti hæst
í 14 stig um norðanvert landið í
gær, en kl. 15 var hitinn 11 stig
á Akureyri.
Þessum hlýindum í janúar
veldur hæð yfir Bretlandseyjum
og lægð við Jan Mayen. Vindur
var suðvestlægur í gær og svo
verður einnig í dag. Strekkings-
vindur verður og hiti á bilinu 6-12
fyrir vikið fékk hún allan fyrsta
vinning lottópottsins, hvorki
meira né minna en 15,9 millj-
ónir króna, sem er stærsti
lottóvinningur á einn miða frá
fyrri umræðu á bæjarstjórnar-
fundi nk. þriðjudag.
Valgarður Baldvinsson, bæjar-
ritari, segir að það nýmæli hafi
verið tekið upp við fjárhagsáætl-
unargerð að þessu sinni að miða
allar upphæðir við fast verðlag,
en spá ekki í verðbólgustig á
árinu. Valgarður vildi á þessu
stigi ekki tjáð sig að öðru leyti
um áætlunina, en sagði að hún
bæri svip aðhalds. óþh
stig. Veðurstofan gerir ráð fyrir
að kvikasilfur hitamælanna kunni
að stíga hærra víða á Norður-
landi.
Á morgun er gert ráð fyrir
svipuðu veðri, en á fimmtudag
gera veðurfræðingar ráð fyrir að
vindur snúist til norðlægrar áttar
með kólnandi veðri og slyddu-
eða snjóéljum um norðanvert
landið. óþh
upphafi.
Lottópotturinn var þrefaldur á
laugardaginn og fyrirfram var
búist við að fyrsti vinningur yrði á
bilinu 13 til 15 milljónir króna.
Hann varð hins vegar tæplega 16
milljónir króna.
Sigrún er einstæð og á einn tíu
ára son. Hún dvelur nú í Reykja-
vík og stundar nám við Einkarit-
araskólann. Á Siglufirði vann
hún hjá Þormóði ramma. Lottó-
miðann góða keypti hún í sölu-
turni við Sólvallagötu í Reykja-
vík.
Dagur hafði spurnir af því í
gær að Siglfirðingar væru skýjum
ofar yfir lottóvinningnum og
sammála um að hann hefði svo
sannarlega komið á réttan stað.
Potturinn í sænsk-íslensku
getraununum var einnig stór um
liðna helgi, en enginn íslendingur
var með 13 rétta. Hins vegar voru
151 með 12 rétta og nokkrir
þeirra voru hérlendir. í hlut
hvers koma um 150 þúsund
krónur. óþh
Alifuglabúið Fjöregg:
Er ennþá í eigu bankans
Rauðinúpur PH:
Sveifarhússsprenging
í rcynslusiglingu
- einn maður á sjúkrahúsi vegna reykeitrunar
„Bandormurinn“ baneitraði:
Gæti kostað 40 milljónir
króna fyrir Akureyrarbæ
íslensk getspá:
Einstæð móðir frá Siglu-
firði 15,9 milljónum rikari