Dagur - 14.01.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 14. janúar 1992 - DAGUR - 7
Handknattleikur, 2. deild:
1. deildin virðist
blasa við Þórsurum
- eftir öruggan sigur á HKN
„Við fórum mjög vel af stað og
unnum þetta í fyrri hálfleik.
Þetta var svipað og ég átti von
á, ég vissi að við myndum geta
varist þeim með þokkalegum
leik. Við gáfum allt sem við
áttum og efldumst sennilega
við að missa þjálfarann,“ sagði
Hermann Karlsson, fyrirliði
handboltaliðs Þórs, eftir mikil-
vægan sigur á HKN, 27:19, í
toppbaráttu 2. deildar á Akur-
eyri á laugardag. Staða Þórs-
ara er nú mjög vænleg, þeir
eru eina liðið, að ÍR, undan-
skildu sem ekki hefur tapað
stigi í deildinni og 1. deildin
virðist blasa við.
Jan Larsen, þjálfari Þórs, var
ekki viðstaddur leikinn þar sem
Bikarkeppni í körfu:
Þór kominn í
átta liða úrslit
- sigraði Hött
í barningsleik 93:78
Úrvalsdeildarlið Þórs í
körfuknattleik karla tryggði
sér sæti í átta liða úrslitum
bikarkeppni KKÍ þegar liðið
bar sigurorð af liði Ilattar
frá Egilsstöðum sem leikur í
1. deild. Lokatölur urðu 93-
78.
Leikurinn sem fram fór á
Egilsstöðum var ekki ntikið
fyrir augað. í fyrri hálfleik var
barningur og villuvandræði á
báða bóga. Leikið gróft. Jafn-
ræði var með liðunum og þeg-
ar flautað var til hálfleiks var
staðan 52-50 Þór í vil.
í byrjun síðari hálfleiks
náðu leikmenn Þórs yfirhönd-
inni og sigu frant úr Héraðs-
búum. Lokatölur urðu eins og
áður segir fimmtán stiga
munur, 93-78 fyrir Þór. Stiga-
hæstu rnenn í liði Þórs voru
þeir Joe Harge og Konráð
Óskarsson.
16 liða úrslitum bikarkeppn-
innar lýkur nú í vikunni en liö-
in sem komin eru í átta liða
úrslit eru. auk Þórs: Njarðvík,
Haukar, KR, Keflavík og Val-
ur en leikjum Víkverja/UBK
og ÍR/Grindavíkur er ólokið.
Birgir Torfason formaður
körfuknattieiksdeildar Þórs
var ánægður með að iiöið
hefði komist áfram og sagði að
í fyrra hefðu þeir komist í
fjögurra liða úrslit og ætluðu
að komast enn lengra í ár.
„Óskaliðið í næstu umferð er
Valur,“ sagði Birgir. -ÞH
hann var skorinn upp vegna
sprungins botnlanga nóttina fyrir
leik. Eins og Hermann sagði létu
Þórsarar það ekki á sig fá og tóku
fljótt forystuna sem þeir héldu til
leiksloka. Nokkuð var um mistök
í sókninni en vörn Þórs var sterk
og HKN-ingar áttu bersýnilega í
vandræðum með að skora mörk,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Stað-
an var fljótlega orðin 7:3 og 15:8
í hléi. Seinni hálfleikur var í jafn-
vægi lengst af, Þórsarar héldu 7-9
marka forystu allan tímann og
HKN náði aldrei að ógna sigri
þeirra.
Það var greinilegt á þessum
leik að Þórsarar eru með mun
sterkara lið og eiga greinilega
góða möguleika um næstu helgi
þótt sá leikur verði vafalaust mun
erfiðari. Eins og svo oft áður var
liðsheildin sterk hjá Þórsurum.
Daninn Ole Nielsen var atkvæða-
mestur en reyndi líka mest og var
nokkra stund að finna leiðina í
netið. Rúnar Sigtryggsson og
Jóhann Samúelsson áttu báðir
góðan leik og Atli Rúnarsson
skoraði glæsileg mörk í fyrri hálf-
leiknum.
Hjá HKN var Rússinn Pvalon-
is sterkur í seinni hálfleiknum en
aðrir sýndu lítil tilþrif.
Þórsarar leika aftur við HKN í
Keflavík um næstu helgi. „Við
eigum að geta unnið þá þar. Ég
lofa samt ekki að við séunt komn-
ir upp þótt það takist. Við mun-
um hvernig þetta fór í fyrra,“
sagði Hermann Karlsson.
Mörk Þórs: Ole Nielsen 7, Rúnar Sig-
tryggsson 6, Jóhann Samúelsson 5/1, Atli
Rúnarsson 3, Ingólfur Samúelsson 2,
Sævar Árnason 2, Kristinn Hreinsson 1,
Geir Aðalsteinsson 1. Hermann Karlsson
varði 8 skot og Ingólfur Guðmundsson 2/
1.
Mörk HKN: Romas Pavalonis 8, Björg-
vin Björgvinsson 3, Ólafur Thordarson
3/2, Hermann Hermannsson 2. Gísli H.
Jóhannsson I, Magnús Már Þórðarson 1,
Guðjón Hilmarsson 1. Pétur Magnússon
varði 4 skot og Einar Benediktsson 3/2.
Dómarar: Jón Hermannsson og Guð-
mundur Sigurbjörnsson. Dæmdu ekki
nógu vel.
Ole Nielsen var atkvæðainestur í liði Þórs er liðið vann inikilvægan sigur á
HKN á laugardag. Mynd: Goiii
Kristinn Björnsson heldur upptekn-
unt hætti á stórmótum erlendis.
Kristinn Björnsson varð þriðji á sterku FlS-móti
í Austurríki um helgina:
Enn blómstrar Ólafsfirðingurinn
Kristinn Björnsson, skíðainað-
urinn snjalli frá Ólafsfirði,
hcldur uppteknum hætti á
stórmótum erlendis. Hann
náði frábærum árangri um
helgina þegar hann varð þriðji
í svigi á FlS-móti í Austurríki.
Þetta er sterkasta FlS-mót sem
Kristinn hefur til þessa tekið
þátt í. Með þessum árangri
bætti hann punktastöðu sína
um þrjá, fór úr 45 FlS-punkt-
um í 42 punkta. Bestu alpa-
greinamenn heims eru nálægt
núllinu í FlS-punktum.
Kristinn er í geysilega góðu
formi um þessar rnundir og ber
enga virðingu fyrir sterkum and-
stæðingum sínum á móturn
erlendis. Fyrir rúmri viku gerði
hann sér lítið fyrir og sigraði á
FlS-móti í Matrei í Austurríki og
1. deild karla og kvenna í blaki:
KA og Völsungur unnu
Þrótt í‘rá Neskaupstað
1. deildarlið Þróttar í Nes-
kaupstað í blaki í karla- og
kvennaflokki voru á ferð á
Norðurlandi um hclgina og
riðu ekki feitu hrossi frá leikj-
um sínum.
Karlalið Þróttar lék tvo leiki
við KA á Akureyri og tapaði
báðum 3-0. Á föstudagskvöldið
fóru hrinurnar 15-10, 15-8 og 15-
8 en á laugardag urðu úrslitin 15-
8, 15-4 og 15-9.
Þótt sigur KA-liðsins hafi verið
öruggur var leikur liðsins heldur
köflóttur og sagði Haukur Val-
týsson að liðið þyrfti að bæta sig
ef það ætti að gera sér vonir um
að sigra bestu liðin í deildinni.
1. deild kvenna
Sömu sögu er að segja af kvenna-
liði Þróttar í Neskaupstað.
Liðið mætti KA á Akureyri
á föstudagskvöldið og tapaði öll-
um hrinununt. KA vann 15-10,.
15-8 og 15-8. Á laugardaginn
voru norðfirsku stúlkurnar mætt-
ar á Húsavík og kepptu við lið
Völsungs. Þar urðu úrslitin þau
sömu, Völsungur vann 3-0 og
fóru hrinurnar þannig: 15-8, 15-7
og 15-5. -ÞH
Karlalið KA vann tvívegis sigur á
Þrótti N. um helgina.
þeint stórgóða árangri fylgdi
hann eftir um helgina.
Auk Kristins kepptu þeir
Valdemar Valdemarsson, Akur-
eyri, Arnór Gunnarsson, ísafirði
og Örnólfur Valdimarsson,
Reykjavík, á mótinu um helgina,
en þeir náðu sér ekki á strik.
í gær kepptu þeir Kristinn og
Örnólfur á Evrópubikarmóti í
svigi í Austurríki, en ekki tókst
að afla upplýsinga um árangur
þeirra áður en blaðið fór í
I prentun.
Framundan er stíf dagskrá hjá
Kristni. Á næstu dögum fer hann
með félögum sínum í skíðalands-
liðinu til Ítalíu, þar sem hann
tekur þátt í fjórunt síðustu FIS-
mótunum. Að því búnu snýr
hann heim til Geilo í Noregi, þar
sem hann stundar nám í mennta-
skóla.
Ætla má að með þessum frá-
bæra árangri sé Kristinn endan-
lega búinn að tryggja sér farseðil-
inn á Ólympíuleikana í Albert-
ville í Bandaríkjunum í næsta
mánuði. Baráttan um hitt alpa-
greinasætið stendur á milli
Örnólfs og Valdemars. Þá eru
mestar líkur á að göngumennirn-
ir Rögnvaldur Ingþórsson og
Haukur Eiríksson frá Akureyri
verði fulltrúar íslands í göngu-
keppninni á Ólympíuleikunum.
óþh