Dagur - 14.01.1992, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 14. janúar 1992
IÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson
Enska knattspyrnan:
Toppliðin fá Iiverpool í bakið
Það var tekið til við deilda-
keppnina á Englandi að nýju
um helgina eftir bikarleiki að
undanförnu og þrátt fyrir gott
forskot Manchester Utd. og
Leeds Utd. á toppi deildarinn-
ar getur margt gerst enn.
Liverpool sem hefur verið
besta lið Englands lengi, er nú
komið í þriðja sætið og ekki
ólíklegt að bæði toppliðin
muni verða með hálsríg á næst-
unni er þau fylgjast með þessu
gamla stórveldi nálgast sig með
óþægilegum hraða. En lítum
þá á leiki laugardagsins.
■ Man. Utd. náði efsta sætinu
með 1:0 sigri gegn Everton í
mjög vel leiknum leik af beggja
hálfu, en heimamenn voru sterk-
ari í síðari hálfleik. Everton var
heldur betra liðið í jöfnum og
markalausum fyrri hálfleik, Peter
Beardsley, Mo Johnston og Mark
Ward voru ailir nærri að skora
fyrir liðið. Besta færi hálfleiksins
fékk þó Gary Pallister fyrir Utd.
er hann skallaði framhjá eftir
góða sendingu Neil Webb. Strax
í upphafi síðari hálfleiks slapp
Robert Warzycha inn fyrir vörn
Utd. eftir frábæra sendingu
Beardsley, en skot hans fór yfir
markið og eftir það náðu heima-
menn undirtökunum. Mark
Hughes skallaði sendingu Paul
Parker í stöng og Neville Southall
í marki Everton varði vel frá Brian
McClair áður en Utd. tókst loks
Staðan
1. deild
Leeds Uld. 25 14-10- 1 48:20 52
Manchester Utd. 23 15- 6- 2 44:18 51
Liverpool 24 10-11- 3 29:20 41
Manchester City 25 11- 8- 6 34:29 41
Sheffield Wednesday 24 11- 7- 6 38:30 40
Aslon Villa 24 11- 4- 9 34:29 37
Arsenal 23 9- 7- 7 40:29 34
Cryslal Palace 23 9- 7- 7 35:41 34
Everton 25 9- 6-10 35:31 33
Totlenham 23 10- 3-10 34:31 33
Noltingham For. 24 9- 5-10 38:35 32
Chelsea 25 8- 8- 9 33:37 32
QPR 25 7-10- 8 27:32 31
Norvvich 24 7- 9- 8 30:33 30
Oldham 24 8- 6-10 39:43 30
Coventry 24 8- 4-12 27:28 28
Wimbledon 24 6- 9- 9 28:31 27
Nolls Counly 24 7- 5-12 27:33 26
SheíTield Uld. 25 6- 6-13 33:44 24
Luton 24 5- 7-12 18:43 22
Wesl Ham 24 4- 9-11 23:38 21
Soulhampton 24 4- 7-13 23:41 19
2. deild
Blackburn 25 14- 5- 6 39:22 47
Southcnd 27 13- 7- 7 40:30 46
Middlesbrough 26 13- 6- 7 34:15 45
Cambridge 25 12- 8- 5 39:27 44
Ipsvvich 27 12- 8- 7 39:31 44
Porlsmouth 25 12- 6- 7 33:24 42
Leicesler 26 12- 6- 8 34:31 42
Svvindon 25 10- 9- 6 44:31 39
Derby 25 11- 6- 8 34:27 39
Charlton 25 10- 7- 8 30:28 37
Sunderland 27 10- 5-1241:39 35
Wolves 25 9- 6-10 32:31 33
Millwall 26 9- 6-11 40:45 33
Brislol Cily 27 8- 9- 9 30:38 33
Watford 26 9- 5-12 31:31 32
Tranmere 23 7-11- 5 25:25 32
Porl Vale 28 7-10-1127:36 31
Bristol Rovers 27 7- 9-1134:43 30
Grimsby 25 7- 6-12 29:39 30
Barnsley 28 8- 6-14 21:40 30
Newcastle 28 6-11-11 39:50 29
Plymoulh 25 8- 5-12 27:38 29
Brighton 28 7- 7-14 36:45 28
Oxford 26 6- 3-17 34:44 22
- Rússinn bjargaði Man. Utd. - Byssurnar kúlulausar á Highbury
að skora sigurmarkið. Sovétmað-
urinn Andrej Kantchelkis sem
átti stóran þátt í sigri liðsins gegn
Leeds Utd. í Deildabikarnum í
vikunni skoraði markið á 11.
mín. síðari hálfleiks eftir send-
ingu frá Steve Bruce. Tony Cottee
sem komið hafði inná sem vara-
maður hjá Everton fékk síðan
færi á að jafna í lokin, en það
hefði ekki verið sanngjarnt.
■ Liverpool fékk Luton í heim-
sókn og ekki var búist við mikilli
mótstöðu af Luton fyrirfram, en
annað kom á daginn. Tvö mörk
Liverpool á síðustu 4 mín. leiks-
ins tryggðu liðinu þó loks sigur.
Nicky Tanner skoraði sjálfsmark
hjá Liverpool eftir 30 mín. leik er
hann ætlaði að senda boltann til
Bruce Grobbelaar, en Grobbi
var ekki til staðar. Þá hafði Paul
Telfer átt skot í þverslá fyrir
Luton og Grobbelaar varið vel
frá John Dreyer fyrir hlé. Heima-
menn juku hraðann í síðari hálf-
leik og höfðu nokkra yfirburði,
Ray Houghton skaut í stöng og
markvörður og varnarmenn
Luton björguðu oft á síðustu
stundu og virtust ætla að hafa
óvæntan sigur. En er 4 mín. voru
eftir af leiknum sendi Mark
Wright fyrir mark Luton og Steve
McManaman náði að pota bolt-
anum í netið af stuttu færi og
jafna fyrir Liverpool. Sigurmark-
ið kom síðan eftir að venjulegum
leiktíma var lokið, eftir undir-
búning Ronnie Rosenthal og
John Barnes náði Dean Saunders
að senda boltann framhjá Steve
Sutton í marki Luton og tryggja
Liverpool mikilvægan sigur.
■ Meisturum Arsenal tókst ekki
að hrista af sér slenið í leiknum
gegn Aston Villa, liðið virðist
hafa misst sjálfstraustið og varð
að láta markalaust jafntefli duga.
Kevin Campbell fékk þó sæmileg
tækifæri, en undir lokin munaði
litlu að Tony Daley næði að
tryggja Villa sigurinn. Athygli
vakti mjög slakur leikur lands-
liðsbakvarðarins Lee Dixon hjá
Arsenal.
■ Coventry komst í 2:0 gegn
Q.P.R., Kevin Gallacher á 10.
mín. og Robert Rosario um
miðjan síðari hálfleik gerðu
mörkin. Það virtist því sem Don
Howe sem tók við framkvæmda-
stjórastöðunni af Terry Butcher í
vikunni ætlaði að byrja á sigri, en
annað kom þó á daginn. Gary
Penrice sem kom inná sem vara-
maður hjá Q.P.R. náði að laga
stöðuna á 75. mín. og er 5 mín.
voru til leiksloka náði Penrice að
jafna fyrir Q.P.R. með góðu
skoti af löngu færi.
■ Sjónvarpsáhorfendur fengu
að sjá bitlaust lið Tottenham tapa
2:0 gegn liði Chelsea sem lék
mun betur í slökum leik. Clive
Allen skoraði fyrra mark Chelsea
á 12. mín. með glæsilegu skoti
hjá sfnum fyrri félögum og Denn-
is Wise bætti síðara markinu við
á 70. mín. eftir góðan undirbún-
ing Allen.
■ Norwich þarf að fara að gæta
sín á falldraugnum eftir tap á
heimavelli gegn Oldham í léleg-
um leik. Öll mörk leiksins komu
eftir varnarmistök, Darren Beck-
ford náði forystunni fyrir
Norwich, en Rick Holden jafnaði
með skalla fyrir hlé. Sigurmark
Oldham gerði síðan Paul
Bernard, en Bryan Gunn f marki
Norwich hefði átt að verja
skotið, en sló það þess í stað inní
mark sitt.
■ Hörkufallbaráttuleik Sout-
hampton og Sheffield Utd. lauk
með heldur óvæntum sigri gest-
anna 4:2. Matthew Le Tissier
náði forystu fyrir Southampton
strax í upphafi, en Mitch Warcl
jafnaði og Mike Lake kom síðan
Sheff. Utd. yfir. Richard Hall
náði síðan að jafna 2:2 með
miklu langskoti fyrir Southamp-
ton, en gamla kempan Brian
Marwood sem áður var hjá
Arsenal kom inná sem varamað-
ur hjá Sheff. Utd. og náði að
nýju forystu fyrir lið sitt 3:2.
Hann átti einnig þátt í síðasta
marki leiksins og fjórða marki
Sheffield liðsins er skot hans fór
af Steve Wood varnarmanni
Southampton í eigið mark.
■ Nottingham liðin Forest og
County gerðu 1:1 jafntefli í leik
sem Neil Warnock stjóri County
hlýtur að vera stoltur af. Lið hans
sem var vængbrotið vegna meiðsla
var yfirspilað í fyrri hálfleik og
Kingsley Black náði forystunni
fyrir Forest með glæsilegu skoti.
Leikmenn County rifu sig upp í
síðari hálfleiknum og Richard
Dryden skallaði inn jöfnunar-
mark liðsins er 15 mín. voru liðn-
ar af hálfleiknum. Eftir markið
gaf lið County hinum frægu ná-
grönnum sfnum ekkert eftir og
voru nær sigri ef eitthvað var.
Það er af Þorvaldi Örlygssyni að
frétta að hann skoraði tvö mörk
fyrir varalið Forest gegn varaliði
Leeds Utd. fyrr í vikunni, en
hann lék þá í stöðu miðherja. Ef
til vill hefði Toddi getað afgreitt
eitthvað af mörgum góðum fær-
um Forest í fyrri hálfleik gegn
County, það er aldrei að vita og
hver veit nema hinn litríki stjóri
Brian Clough fari að gefa honum
tækifæri.
■ Crystal Palace og Manchester
City gerðu 1:1 jafntefli, en leik-
menn City fengu þó næg færi á að
sigra auðveldlega. Þeir urðu þó
að láta umdeilda vítaspyrnu í síð-
ari hálfleik duga sem dæmd var á
Eric Young miðvörð Palace fyrir
að klifra uppá bak Niall Quinn í
baráttu um skallabolta. Keith
Curle skoraði úr vítinu fyrir City
og jafnaði þar með mark Mark
Chapman svaraði skömmumim
með þrennu fyrir Leeds Utd.
Leeds Utd. kom verulega á
óvart í sunnudagsleiknum á
Englandi og burstaði Iið ShefB-
eld Wed. sem aðeins hafði tap-
að einum heimaleik í vetur.
Forvitni var nokkur fyrir leik-
inn um það hvernig hið slæma
tap Leeds Utd. gegn Man.
Utd. í Deildabikarnum í vik-
unni myndi virka á liðið, en
það virtist engin áhrif hafa.
Lee Chapman náði forystu fyr-
ir Leeds utd. strax á 8. mín. og
eftir að hafa misnotað nokkur
góð færi bætti liðið öðru marki
við á 33. mín. sem Tony Dorigo
skoraði með glæsilegri auka-
spyrnu. Þá kom besti kafli Sheff.
Wed. í leiknum og eftir umdeilda
vítaspyrnu sem John Lukic í
marki Leeds Utd. varði í stöng
barst boltinn aftur út til John
Sheridan fyrrum leikmanns
Leeds Utd. sem hafði tekið víta-
spyrnuna og hann afgreiddi bolt-
ann í netið.
Chapman skoraði þó þriðja
mark Leeds Utd. fyrir hlé og í
þeim síðari fullkomnaði hann
þrennu sína með fyrsta marki
hálfleiksins.
Chapman hafði verið skipt útaf
í tapleiknum gegn Man. Utd. og
Howard Wilkinson sem greini-
lega var óánægður með hann þá
hefur talað yfir honum með góð-
um árangri.
Þeir Mike Whitlow sem kom
inná sem varamaður og Rodney
Wallace með besta marki leiksins
bættu síðan tveim mörkum við
fyrir Leeds Utd. og fullkomnuðu
glæsilegan 6:1 útisigur gegn hinu
sterka Sheffield liði.
Leeds Utd. fór því á topp
deildarinnar að nýju og þrátt fyr-
ir að liðið hafi leikið tveim leikj-
um meira en Man. Utd. sýndi lið-
ið í leiknum að það mun ekki gef-
ast upp í baráttunni um meistara-
titilinn fyrr en í fulla hnefana.
■ Gary Ablett varnarmaður frá
Liverpool var seldur til Everton á
sunnudaginn fyrir £750.000.
Þ.L.A.
Enski landsliðsmarkvörðurinn Chris Woods hjá Sheff. Wed. mátti hirða
boltann sex sinnum úr marki sínu í leiknum gegn Leeds Utd. Hér slær hann
þó boltann frá, aðþrengdur af Lee Chapman miðherja Leeds Utd. sem skor-
aði þrennu.
Bright sem hann skoraði fyrir
Palace af stuttu færi í fyrri hálf-
leik. Harður og grófur leikur.
■ Það varð einnig 1:1 jafntefli í
leik Lundúnaliðanna West Ham
og Wimbledon þar sem Lawrie
Sanchez kom Wimbledon yfir og
það mark virtist ætla að duga lið-
inu til sigurs þó ósanngjarnt væri.
En er aðeins 2 mín. voru til loka
leiksins var dæmd vítaspyrna á
Wimbledon fyrir brot á Ian
Bishop í teignum, Julian Dicks
tók spyrnuna, en Hans Segers
markvörður Wimbledon varði
glæsilega. Það kom þó ekki að
notum því hann hélt ekki boltan-
um og Tony Gale fylgdi fast eftir
og jafnaði fyrir West Ham.
2. deild
■ Paul Hardyman, John Byrne,
Peter Davenport og Don Good-
man með þrjú tryggðu Sunder-
Jand 6:2 sigur á Millwall.
■ Blackburn er efst, Mike New-
ell tvö, David Speedie og sjálfs-
mark Martin Scott gerðu 4:0 sig-
ur á Bristol City.
■ Andy Ansah skoraði sigur-
mark Southend gegn Derby.
■ Andy Payton tryggði Middles-
brough sigur gegn Ipswich.
Þ.L.A.
Úrsht
1. deild
Arsenal-Aston Villa 0:0
Chelsea-Tottenham 2:0
Coventry-Q.P.R. 2:2
Crystal Palace-Manchester City 1:1
Livcrpool-Luton 2:1
Manchester Utd.-Everton 1:0
Norwich-OIdham 1:2
Nottingham For.-Notts County 1:1
Southampton-Sheffield Utd. 2:4
West Ham-Wimbledon 1:1
Sheflield Wed.-Leeds Utd. 1:6
2. deild
Blackburn-Bristol City 4:0
Brighton-Barnsley 3:1
Bristol Rovers-Tramnere 1:0
Charlton-Wolves frestað
Grimshy-Oxford 1:0
Míddlesbrough-Ipswich 1:0
Plymouth-Leicester 2:2
Port Vale-Portsmouth 0:2
Soutliend-Derby 1:0
Sunderland-Millwall 6:2
Swindon-Cambridge 0:2
Watford-Ncvvcastlc 2:2
Úrslit í vikunni.
2. deild
Charlton-Oxford 2:2
FA-bikarinn
3. umferð
Crewe-Liverpool 0:4
Deildabikarinn
fjórðungsúrslit
Crystal Palace-Nottingham For. 1:1
Leeds Utd.-Manchester Utd. 1:3
Peterborough-Middlesbrough 0:0
Tottenham-Norwich 2:1
Á laugardag var síðan dregið
til undanúrslita, en þá er leikið
heima og að heiinan og dróg-
ust liðin þannig saman.
Crystal Palace/Nottingham For.-
Tottenham
Peterborugh/Middlesbrough-
Mancheste Utd.