Dagur - 14.01.1992, Síða 15
Þriðjudagur 14. janúar 1992 - DAGUR - 15
Dagskrá fjölmiðla
( dag, þriðjudag, kl. 22.05, er á dagskrá Sjónvarpsins mynd um hjálparstarf á meðal
Tzamaimanna í Suður-Eþíópíu, en þar hafa íslenskir kristniboðar stariað undanfarin ár. f
framhaldi af myndinni verður fréttstofa Sjónvarpsins með umræðuþátt.
Sjónvarpið
Þriðjudagur 14. janúar
18.00 Líí í nýju ljósi... (13).
Franskur teiknimyndaflokk-
ur með Fróða og félögum þar
sem mannslíkaminn er tek-
inn til skoðunar.
18.30 íþróttaspegillinn.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Á mörkunum (77).
(Bordertown.)
19.30 Hver á að ráða? (21).
(Who’s the Boss.)
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Nýjasta tækni og vís-
indi.
Sýnd verður ný mynd um
Þjóðminjasafnið og starf-
semi þess.
Umsjón: Sigurður H. Richter.
21.00 Sjónvarpsdagskráin.
í þættinum verður kynnt það
helsta sem Sjónvarpið sýnir
á næstu dögum.
21.10 Blóðbönd (2).
(Blood Rights.)
Bresk sakamálamynd í
þremur þáttum.
22.05 Hvar, hvers vegna og
fyrir hverja?
Mynd gerð á vegum Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar um
hjálpar- og kristniboðsstörf
á meðal Tzamaimanna í Suð-
ur-Eþíópíu.
Að myndinni lokinni stýrir
Helgi H. Jónsson umræðum
um hjálparstarf í þróunar-
löndum.
23.00 Ellefufréttir og dag-
skrárlok.
Stöð 2
Þriðjudagur 14. janúar
16.45 Nágrannar.
17.30 Kærleiksbirnirnir.
17.55 Gilbert og Júlía.
18.05 Táningarnir í Hæðar-
gerði.
18.30 Eðaltónar.
19.19 19:19.
20.10 Einn í hreiðrinu.
(Empty Nest.)
20.40 Neyðarlínan.
(Rescue 911).
21.30 Á vogarskálum.
(Justice Game.)
Lokaþáttur þessa vandaða
breska spennumyndaflokks.
22.35 E.N.G.
23.15 Lífsleiði.
(Death Wish II).
Bandarísk spennumynd með
Charles Bronson. Smá-
glæpamenn ráðast á hann
þegar hann er á leið úr vinnu
og taka af honum veskið.
Bronsmaðurinn lætur ekki
bjóða sér slíkt og eltir þá
uppi. Þjófarnir bregðast illa
við og fara á heimili hans þar
sem þeir drepa dóttur hans.
Það er ekki að sökum að
spyrja, Bronsmaðurinn er í
hefndarhug, grimmilegum
hefndarhug.
Aðalhlutverk: Charles
Bronson, Jill Ireland og Vin-
cent Gardenia.
Stranglega bönnuð
börnum.
00.50 Dagskrárlok.
Rás 1
Þriðjudagur 14. janúar
MORGUNÚTVARP
KL. 06.45-09.00.
06.45 Veðurfregnir • Bæn.
07.00 Fréttir.
07.03 Morgunþáttur Rásar 1.
Hanna G. Sigurðardóttir og
Trausti Þór Sverrisson.
7.30 Fréttayfirlit.
Gluggað í blöðin.
7.45 Daglegt mál. Mörður
Árnason flytur þáttinn.
08.00 Fréttir.
08.10 Að utan.
08.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttayfirlit.
08.40 Nýir geisladiskar.
ÁRDEGISÚTVARP
KL. 09.00-12.00.
09.00 Fréttir.
09.03 Laufskálinn.
09.45 Segðu mér sögu.
„Af hverju, afi?"
Sigurbjörn Einarsson biskup
segir börnunum sögur og
ræðir við þau..
10.00 Fréttir.
10.03 Morgunleikfimi
með Halldóru Björnsdóttur.
10.10 Veðurfregnir.
10.20 Neyttu meðan á nefinu
stendur.
Umsjón: Guðrún Gunnars-
dóttir. (Frá Akureyri)
11.00 Fréttir.
11.03 Tónmál.
11.53 Dagbókin.
HÁDEGISÚTVARP
KL. 12.00-13.05.
12.00 Fréttayfirlit á hádegi.
12.01 Að utan.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Auðlindin.
12.55 Dánarfregnir • Auglýs-
ingar.
MIÐDEGISÚTVARP
KL. 13.05-16.00.
13.05 í dagsins önn - íslend-
ingar og Evrópska efna-
hagssvæðið.
Umsjón: Bjami Sigtryggs-
son.
13.30 Lögin við vinnuna.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan:
„Konungsfórn" eftir Mary
Renault.
Ingunn Ásdísardóttir les (9).
14.30 Miðdegistónlist.
15.00 Fréttir.
15.03 Langt i burtu og þá.
SÍÐDEGISÚTVARP
KL. 16.00-19.00.
16.00 Fróttir.
16.05 Völuskrín.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Ameríkumaður í
París", rapsódía eftir Georg
Gershwin.
17.00 Fréttir.
17.03 Vita skaltu.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
sér um þáttinn.
17.30 Hér og nú.
17.45 Lög frá ýmsum löndum.
18.00 Fróttir.
18.03 í rökkrinu.
Þáttur Guðbergs Bergsson-
ar.
18.30 Auglýsingar • Dánar-
fregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýs-
ingar.
KVÖLDÚTVARP
KL. 19.00-01.00.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Kviksjá.
19.55 Daglegt mál.
20.00 Tónmenntir - Óperu-
tónlist Giacomo Puccinis.
21.00 Kaffi og kaffidrykkja.
21.30 í þjóðbraut.
22.00 Fréttir • Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Dagskrá morgundags-
ins.
22.30 Leikrit vikunnar:
„Ivanov" eftir Anton
Tsjekhov.
Annar þáttur.
23.20 Djassþáttur.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónmál.
01.00 Veðurfregnir.
01.10 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Rás2
Þriðjudagur 14. janúar
07.03 Morgunútvarpið -
Vaknað til lífsins.
Leifur Hauksson og Eiríkur
Hjálmarsson hefja daginn
með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur
áfram.
- Margrét Rún Guðmunds-
dóttir hringir frá Þýskalandi.
09.03 9-fjögur.
Umsjón: Þorgeir Ástvalds-
son, Magnús R. Einarsson
og Margrét Blöndal.
9.30 Sagan á bak við lagið.
10.15 Furðufregnir utan úr
hinum stóra heimi.
11.15 Afmæliskveðjur. Sím-
inn er 91-687123.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 9-fjögur.
16.00 Fróttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmála-
útvarp og fróttir.
Starfsmenn dægurmála-
útvarpsins og fréttaritarar
heima og erlendis rekja stór
og smá mál dagsins.
17.00 Fréttir.
- Dagskrá heldur áfram.
17.30 Hér og nú.
Fréttaskýringaþáttur Frétta-
stofu.
- Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin - þjóðfund-
ur í beinni útsendingu.
Sigurður G. Tómasson og
Stefán Jón Hafstein sitja við
símann, sem er 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Ekki fréttir.
19.32 Blús.
Umsjón: Árni Matthíasson.
20.30 Mislétt milli liða.
Andrea Jónsdóttir við spilar-
ann.
21.00 Gullskífan.
22.07 Landið og miöin.
00.10 í háttinn.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
leikur ljúfa kvöldtónlist.
01.00 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7,7.30,8,
8.30, 9,10,11,12,12.20,14,15,
16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
01.00 Með grátt í vöngum.
Endurtekinn þáttur Gests
Einars Jónassonar frá laug-
ardegi.
02.00 Fréttir.
- Með grátt í vöngum.
03.00 í dagsins önn.
03.30 Glefsur.
04.00 Næturlög.
04.30 Veðurfregnir.
- Næturlögin halda áfram.
05.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
05.05 Landið og miðin.
06.00 Fréttir af veðri, færð og
flugsamgöngum.
06.01 Morguntónar.
Ríkisútvarpið á
Akureyri
Þriðjudagur 14. janúar
8.10-8.30 Útvarp Norður-
lands.
18.35-19.00 Útvarp Norður-
lands.
Bylgjan
Þriðjudagur 14. janúar
07.00 Morgunþáttur
Bylgjunnar.
Eiríkur Jónsson og Guðrún
Þóra með skemmtilegan
morgunþátt. Það er fátt sem
þau láta sig ekki máli skipta
og svo hafa þau fengið
Steinunni ráðagóðu til liðs
við sig sen hún gefur ykkur
skemmtilegar og hagnýtar
ráðleggingar varðandi heim-
ilishaldið.
Fréttir kl. 7, 8 og 9.
Fréttayfirlit klukkan 7.30 og
8.30.
09.00 Anna Björk Birgisdóttir.
Ýmislegt skemmtilegt verð-
ur á boðstólum, eins og við
er að búast, og hlustendalín-
an er 671111.
Mannamál kl. 10.00 og
11.00.
12.00 Hádegisfréttir frá frétta-
stofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2.
12.10 Anna Björk Birgisdóttir.
13.00 íþróttafróttir.
13.05 Sigurður Ragnarsson.
Hressileg Bylgjutónlist í
bland við létt spjall.
Mannamál kl. 14 og 15.
16.00 Reykjavik síðdegis.
Hallgrímur Thorsteinsson
og Steingrímur Ólafsson
fjalla um málefni líðandi
stundar og hjá þeim eru
engar kýr heilagar.
17.00 Fróttaþáttur frá frétta-
stofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2.
17.30 Reykjavík síðdegis
heldur áfram.
18.00 Fréttaþáttur frá frétta-
stofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2.
18.05 Landssíminn.
Bjarni Dagur Jónsson tekur
púlsinn á mannlífinu og ræð-
ir við hlustendur um það
sem er þeim efst í huga. Sím-
inn er 671111.
19.30 Fréttir frá fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
20.00 Kristófer Helgason.
Léttir og ljúfir tónar í bland
við óskalög. Síminn er
671111.
23.00 Kvöldsögur.
Hallgríms Thorsteinsson, í
trúnaði við hlustendur Bylgj-
unnar, svona rétt undir
svefninn.
00.00 Næturvaktin.
Hljóðbylgjan
Þriðjudagur 14. janúar
17.00-19.00 Pálmi Guðmunds-
son með vandaða tónlist úr
öllum áttum. Fréttir frá
fréttastofu Bylgjunnar/
Stöðvar 2 kl. 18.00. Síminn
27711 er opinn fyrir óskalög
og afmæliskveðjur.
Stjarnan
Þriðjudagur 14. janúar
07.00 Arnar Albertsson.
11.00 Sigurður H. Hlöðverss.
14.00 Ásgeir Páil Ágústsson.
18.00 Eva Magnúsdóttir.
20.00 Darri Ólason.
22.00 Rokkhjartað.
24.00 Næturdagskrá Stjörn-
unnar.
# Ðörn og
gamalmenni
Góðvinur okkar, Sigfús Þor-
steinsson á Hauganesi, segir
að þótt núverandi valdhafar á
íslandi séu oragir við að láta
Ijós sitt skína, og virðist full-
vissir um eigið ágæti, þá finn-
ist mörgum að þeir ættu að
sýna hetjuskap sinn í ein-
hverju öðru en að eltast við
aura barna og gamalmenna:
Glaðbeittir þeir ganga um svið
þó glóðir undir brenni
sem bara geta barist við
börn og gamalmenni.
# Af niðurskurði
Breytingar í heilbrigðiskerf-
inu dembast yfir þjóðina
þessa dagana. Aumingja
heilbrigðisráðherrann fékk
heldur betur verkunina í síð-
asta áramótaskaupi, enda
liggja margar af þessum
breytingum vel við höggi.
Skrifari S&S ræddi við einn af
toppunum i heilbrigðisráðu-
neytinu fyrsta vinnudag á
nýju ári og spurði hvernig
honum hefði þótt skaupið.
Það stóð ekki á svarinu.
Skaupið var gott, ekki sist
vegna þess að þarna komu
fram ýmsar merkilegar niður-
skurðarhugmyndir, sem yrðu
skoðaðar í kjölinn. Ef til vill er
von á stöðumælum við FSA?
Eitt stykki heimsókn til
sængurkonu: Fimmhundruð
kall takk!!
# Öskubuskan
og Danni
Þegar Morgunblað miðviku-
dagsins síðasta var lesið
vakti ýmislegt athygli ritara
S&S. Einkum var athyglisvert
að útlit er fyrir að Dan
Quayle, varaforseti Banda-
ríkjanna, sé að vinna sig upp
í áliti hjá Kananum og jafnvel
fjölmiðlar séu farnir að tala
um hann sem stefnufastan
og klókan stjórnmálamann.
Quayle hefur nefnilega löng-
um þótt vera fremur vitlaus
og brandarar um hann geng-
ið fjöllum hærra í heimaland-
inu.
Það athyglisverðasta í Mogg-
anum þennan daginn var
samt lítil auglýsing frá ein-
hverri Öskubusku nútímans.
Auglýst var eftir svörtum
vinstrifótar dömuskó sem
tapaðist á jóladag og finn-
andi vinsamlegast beðinn um
að hafa samband í meðfylgj-
andi símanúmer. Hvort konur
okkar tíma séu farnar að taka
upp hætti í ætt við ævintýri til
að finna sína prinsa skal
ósagt látið, en allavegana ylj-
aði þessi litla auglýsing þeim
sem þessi orð ritar í skamm-
degiskuldanum og vakti upp
ýmsar hugmyndir. Bíðum nú
við, hvert var aftur síma-
númerið?