Dagur - 18.01.1992, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 18. janúar 1992
Fréttir
Grunnskólabyggingin á Húsavík:
Öllum tUboðum hafnað
- bygginganefnd vill semja við Jónas Gestsson
Bygginganefnd Grunnskóla á
Húsavík hefur samþykkt að
leggja til við bæjarráð að geng-
ið verði til samninga við Jónas
Gestsson um að vinna IV
útboðsáfangann við byggingu
Grunnskólans. Málið verður
tekið fyrir í bæjarráði í næstu
viku.
Það var 16. des. sl. sem tilboð í
þennan áfanga byggingarinnar
voru opnuð. Fimm tilboð bárust
og eftir að þau höfðu verið yfir-
farin kont í ljósað tilboð Jónasar
var lægst, eða rúmlega 27,8 millj-
ónir, Timburtak bauð rúmlega
29,3 og Fjalar hf, sem unnið hef-
ur alla fyrri áfanga verksins, bauð
rúmlega 30,6. Kostnaðaráætlun
var rúmar 29,2 milljónir.
Bygginganefnd gekk til við-
ræðna við Jónas um verkáfang-
ann. Þann 7. jan óskaði bygg-
inganefnd eftir að innréttingar og
tæki í heimilisfræðistofu verði
tekin útúr tilboðinu, kostnaðar-
áætlun uppá 2,4 milljónir, en
orsök þessa er naumt fram-
kvæmdafé bæjarins á árinu.
Nefndinni barst bréf frá átta af
starfsmönnum Fjalars hf, þar
sem á hana er skorað að taka till-
lit til eftirfarandi atriða við samn-
ing um lokaáfanga byggingarinn-
ar. „1. Að huga að heildarhags-
munum bæjarfélagsins, þ.e.
bæjarsjóðs og afkomu húsvískra
byggingamanna. 2. Ef samið
verður við lægstbjóðanda mun
hann ætla sér að flytja nálægt 'A
hluta verksins út úr bæjarfélag-
inu. Þar af leiðir að nokkrir
húsvískir iðnaðarmenn verða
atvinnulausir.“ Nefndin fjallaði
um bréfið og segist skilja áhyggj-
ur manna um atvinnuöryggi, en
það sé hlutverk nefndarinnar að
sjá um að viðbygging grunnskól-
ans rísi á tilskyldum tíma og á
sem hagkvæmastan hátt. Nefndin
tók fram að hún mæti innrétt-
ingasmíðina innan við 5% af
heildarverkinu, eftir að innrétt-
ingu heimilisfræðistofu hefur ver-
ið frestað.
Þann 10. jan ritaði lægstbjóð-
andi, Jónas Gestsson, nefndinni
bréf og fór fram á hækkun
tveggja þátta einingaverða, sam-
tals 612 þúsund. Nefndin taldi sig
ekki geta fallist á þessar óskir og
í framhaldi af því féll Jónas frá
tilboði sínu. Nefndin samþykkti
þar með að hafna öllum tilboðum
í verkið, enda tilskilinn tími sem
þau standa að renna út, og lagði
til við bæjarráð að gengið verði
til samninga við Jónas. IM
Á heimleið.
Mynd: Golli
Blönduvirkjun:
Framkvæmdum lýkur í aprQ
Prófunum á atlvél númer tvö í
Blönduvirkjun fer bráðum að
Ijúka og að sögn Guðmundar
Hagalín, stöðvarstjóra, verður
hún að öllum líkindum tekin í
notkun þann 1. febrúar nk.
eins og verksamningur gerir
ráð fyrir. Við virkjunina starfa
nú 40-50 manns, aðallega við
vinnu í stöðvarhúsi.
byrjað var að keyra aflvél númer
eitt. Flann segir að leysingar síð-
ustu daga hafi ekkert angrað þá
við virkjunina og allt virðist vera
vel frá gengið.
Reykjahverfi:
Ibúafjöldi stendur í stað
íbúatala í Reykjahreppi í Suð-
ur-ÞingeyjarsýsIu breyttist
ekki í fyrra, þrátt fyrir tals-
verða hreyfingu á fólki. Tvær
fjölskyldur og einstaklingur
fluttu í hreppinn og átta ein-
staklingar létu skrá lögheimili
sín á öðrum stöðum, flestir þó
vegna nýrra laga um skráningu
lögheimilis. Enginn nýr íbúi
fæddist í hreppnum og enginn
dó á síðasta ári, að sögn Þor-
gríms Sigurðssonar, oddvita.
Ibúar í Reykjahverfi eru því
áfram 110.
Atvinnuástand í Reykjahverfi
er þokkalegt. Nema hvað lítið er
að gera í gróðurhúsunum í þrjá-
Bridds
Akureyrarmót í tvímenningi,
Hafspilsmót, hófst í Hamri sl.
þriðjudag. Að loknum fjórum
umferðum eru þeir Anton
Haraldsson og Pétur Guðjóns-
son efstir með 84 stig.
Spilaður er barometer, þ.e. all-
ir spila á sömu spil í hverri
umferð. Næstu fjórar umferðir
verða spilaðar í Hamri nk. þriðju-
Svæðamót Norðurlands eystra,
tvímenningur, verður haldið í
Víkurröst á Dalvík laugardag-
inn 25. janúar og hefst keppni
stundvíslega kl. 9.30. Mótið er
opið öllu briddsfólki á
Norðurlandi eystra. Spilað
verður um silfurstig og efsta
sætið gefur þátttökurétt í úr-
slitum íslandsmótsins í tví-
menningi.
Spilaðar verða tvær lotur eftir
Mitchell fyrirkomulagi, alls 50-60
fjóra mánuði yfir veturinn og
veldur það árstíðabundnu
atvinnuleysi hjá nokkrum
konum.
Hafnar eru framkvæmdir við
lagningu vegar að nýju iðnaðar-
svæði á Skarðahálsi og hefur einn
aðili þegar ákveðið að hefja
byggingaframkvæmdir í vor. Þar
er um að ræða uppbyggingu
húsnæðis vegna hópferðaþjón-
ustu.
Mannlíf og menningarlíf í
hreppnum er nokkuð gott, að
sögn oddvita. Hefð er orðin á því
að íbúar í Hrísateigi standi fyrir
áramótabrennu á gamlárskvöld.
Það er enn jólaflandur á fólki,
sem talsvert hefur verið á ferð-
dagskvöld. Staðan eftir fyrstu
fjórar er hins vegar þessi: stig
1. Anton Haraldsson/Pétur Guðjónsson 84
2. Páll Pálsson/Þórarinn B. Jónsson 51
3. Símon Gunnarss./Hermann Huijbens 44
4. Jón Sverrisson/Kristján Guðjónsson 34
5. Gísli Pálsson/Árni Arnsteinsson 32
6. Hermann Tómasson/Ásgeir Stefánss. 25
7. Ormarr Snæbjörnss./Jónas Róbertss. 18
8. Örn Einarsson/Hörður Steinbergsson 16
spil. Þátttökugjald er kr. 1200 á
mann og er tekið við þátttöku-
tilkynningum til kl. 19.00 föstu-
daginn 24. janúar. Eftir það er
ekki hægt að ábyrgjast þátttöku-
rétt.
Skráning fer fram hjá Páli á
Akureyri í síma 21695 og 25200,
Óla á Húsavík í síma 41314,
Helga á Bægisá í síma 26826,
Ólafi á Dalvík í síma 61619 og
61354 og Frímanni á Akureyri í
síma 21830 og 24222.
inni þegar tíð er góð og samgöng-
ur auðveldar. Þorgrímur sagði að
í raun væri ekki mikill munur á
að búa í Reykjahverfi eða í þétt-
býli þegar samgöngur væru
góðar, aðalmunurinn væri að
Reykhverfingar byggju utan við
aðalysinn.
Til stendur að halda þorrablót
í Reykjahverfi viku af febrúar.
Félagslíf er með ágætum. íbúar
úr Reykjahverfi starfa með
Ýdalaleikflokknum sem sýnir
Biðla og brjóstahöld um þessar
mundir. Tölvert margir syngja
með Karlakórnum Hreim sem
hyggur á tónleikahald á næstu
dögum. Ungmennafélag er starf-
andi og kvenfélag og m.a. starfa
konur úr Reykjahverfi með ITC
Flugu. Sundlaugin við Heiðarbæ
er opin tvisvar í viku í vetur, á
þriðjudagskvöldum frá kl. 20-22
og á sunnudögum frá kl. 13.30 til
16. Aðsókn á sundstaðinn mætti
þó vera betri, að sögn Þorgríms.
IM
Dagana 22.-24. janúar nk.
stendur sjávarútvegsráðuneyt-
ið fyrir ráðstefnu til kynningar
á „altækri gæðastjórnun“ sjáv-
arútvegsfyrirtækja á Hótel
KEA á Akureyri. Ferðaskrif-
stofan Nonni á Akureyri ann-
ast framkvæmd hennar.
í kynningarbæklingi fyrir ráð-
stefnuna kemur fram að tilgangur
með henni sé að sýna þann
árangur sem náðst hafi f þrem
sjávarútvegsfyrirtækjum, Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf., Fisk-
iðjusantlagi Húsavíkur og Síldar-
vinnslunni hf. í Neskaupsstað,
með því að beita altækri gæða-
stjórnun.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða Finnbogi Jónsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar, Gunnar
Ragnars, forstjóri Útgerðarfélags
Akureyringa og Tryggvi Finns-
son, forstjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur. Einnig munu starfs-
Aflvél númer eitt sem ræst var
sl. haust gengur eðlilega að sögn
Guðmundar og er tengd inn á
dreifikerfi rafmagnsveitnanna.
Vél tvö mun einnig tengjast kerf-
inu þann 1. febrúar nk., en Guð-
mundur segir að þessar vélar
verði þó ekki keyrðar á fullum
afköstum þar sem í dag sé ekki
þörf fyrir alla þá raforku sem þær
geta framleitt.
Að sögn Guðmundar hefur
ekkert óvænt komið í ljós síðan
Ferðamálafélag Eyjafjarðar
var stofnað sl. fimmtudags-
kvöld að Hótel KEA. Til fund-
arins mættu tæplega 70 manns
og stofnfélagaskrá verður opin
tii 15. febrúar nk.
Að sögn Jóns Gauta Jónsson-
ar, atvinnumálafulltrúa Akureyr-
arbæjar, fór fundurinn hið besta
menn fyrirtækjanna þriggja halda
erindi og kynna þá umbótavinnu,
sem þeir hafa unnið með aðferð-
um altækrar gæðastjórnunar.
Aðrir fyrirlesarar verða A1
Kemp, framkvæmdastjóri banda-
ríska fyrirtækisins Zytec, Alan
Hodgson, stjórnunarráðgjafi á
vegum PMI (Process Management
International), Annabeth Propst,
stjórnunarráðgjafi á vegum PMI
og Halldór Arnason, verkefnis-
stjóri, sem auk þess að skipu-
leggja og sjá um stjórnun verkefn-
isins í heild hefur verið ráðgefandi
fyrir fyrirtækin á sviði altækrar
gæðastjórnunar og þjálfað starfs-
menn í þeim aðferðum sem beitt
er.
Eins og áður segir hefst ráð-
stefnan miðvikudaginn 22. janú-
ar kl. 20.45-22.45. Daginn eftir
stendur ráðstefnan frá kl. 08 til
22.30 og föstudaginn 24. janúar
sitja ráðstefnugestir að frá kl. 9
til 17. óþh
„Þeir starfsmenn sem verða
hér í framtíðinni voru allir komn-
ir hingað um áramót. Annars eru
nánast allir farnir nema Japanir
og þeirra undirverktakar sem eru
að ljúka vélavinnu í stöðvarhúsi.
Lokið verður við að setja vél þrjú
saman þann 1. mars og fyrsta
gangsetning á henni er áætluð 3.
mars, svo búast má við að fram-
kvæmdum verði lokið hér í apríl
nema lóðafrágangi og öðru smá-
legu,“ segir Guðmundur. SBG
fram. í stjórn voru kosnir: Júlíus
Snorrason frá Dalvík, Stefán
Kristjánsson frá Grýtubakka,
Hreiðar Hreiðarsson úr Eyja-
fjarðarsveit og frá Akureyri
Sigurður Aðalsteinsson og Jón
Gauti Jónsson. Varastjórn skipa:
Jónas Vigfússon frá Hrísey og frá
Akureyri Ragnheiður Kristjáns-
dóttir og Kolbeinn Sigurbjörns-
son. Samkvæmt lögum félagsins
mun stjórnin skipta með sér
verkum og það verður gert á
fundi nk. þriðjudag.
„Á fundinum kom fram mikill
skoðanamunur á því hvað ætti að
hugsa stórt í upphafi. Ákveðið
var að hafa þetta sem opnast í
byrjun. Umræðan var lífleg um
verkefni vetrarins þannig að
stjórnin hefur úr ýmsu að moða,“
sagði Jón Gauti Jónsson. ój
Tryggingadeild útflutn-
ingslána opnuð á ný
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
að opna á ný Tryggingadeild
útflutningslána við Ríkis-
ábyrgðasjóð, sérstaklega í því
skyni að greiða fyrir síldarvið-
skiptum milli íslands og rúss-
neska lýðveldisins.
Deildin veitir útflutningslána-
tryggingar gegn þóknun og gert
er ráð fyrir að tryggingatakar axli
eðlilega viðskiptaáhættu. Jafn-
framt á Seðlabankinn að hafa
forgöngu um viðræður við við-
skiptabanka um að síldarsaltend-
um verði veitt afurðalán til síld-
arsöltunar á takmörkuðu síldar-
magni á þessum grundvelli.
Akureyrarmótið í tvímenningi, Hafspilsmót:
Anton og Pétur með forystu
-KK
Bridgesamband Norðurlands eystra:
Svæðamót í tvímenningi
á Dalvík 25. janúar
Akureyri:
Ráðstefiia til kynningar
á altækri gæðastjómun
Stofnfundur Ferðamálafélags EyjaQarðar:
Skoðanamunur á hvað
ætti að hugsa stórt