Dagur - 18.01.1992, Page 3

Dagur - 18.01.1992, Page 3
Laugardagur 18. janúar 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Byggðastofnun: Leitað að heppflegu húsnæði iyrir útibú á Egflsstöðum og Sauðárkróki - útibúin verða opnuð innan tveggja ára Fugleiðir: Breytt áætlun innanlandsflugs - færri ferðir til Akureyrar meðan þjálfun stendur yfir Nokkrar breytingar hafa orðið á ferðuni í innan- landsflugi Flugleiða. Breyt- ingarnar tóku gildi viku af janúar og munu standa til 5. apríl. Þessi röskun á áætlun- arflugi félagsins stafar af þjálfun áhafna í innan- landsfluginu á hinar nýju Fokker 50 flugvélar, sem Flugleiðir hafa fest kaup á og koma til landsins fyrri- hluta þessa árs, hin fyrsta 15. febrúar næst-komandi. Að sögn Kolbeins Arin- bjarnarsonar, forstöðumanns innanlandsdeildar Flugleiða, er fyrst og fremst um fækkun ferða að ræða auk þess sem brottfarartímar breytast nokkuð. Meðan á þjálfuninni stendur verða farnar þrjá ferð- ir daglega á milli Reykjavíkur og Akureyrar; að morgni, um miðjan dag kl. 14.00 og kl. 19.50 á kvöldin frá Reykjavík. Pá verður farin ferð kl. 11.00 frá Reykjavík til Akureyrar á föstudögum og einnig kl. 17.00 síðdegis. Á laugardög- um og sunnudögum verða farnar tvær kvöldferðir, hin fyrri kl. 19.00 og hin síðari kl. 19.50 úr Reykjavík. Fækk- unin felst því einkum í að ferð kl. 11.00 úr Reykjavík fellur niður nema á föstudögum. Kolbeinn sagði að komið hefði í ijós að nokkurt óhagræði væri af þessari röskun og fuli þörf væri fyrir fjórar ferðir á hverjum virkum degi á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Nýju Fokker 50.flugvélarn- ar koma til iandsins á tímabil- inu 15. febrúar til 9. maí. Alls verða 43 flugmenn þjálfaðir á hinar nýju vélar og þjálfun hvers manns tekur einn mánuð. Þá verða 78 menn af tæknisviði þjálfaðir vegna Fokker 50 vélanna og 280 flug- freyjur fá þjálfun vegna þcss- ara breytinga. Pjálfun flug- manna fer að mestu fram í Hollandi og þjálfun tækni- manna einnig að hluta. ÞI Að undanförnu hefur Bene- dikt Guðmundsson, starfsmað- ur útibús Byggðastofnunar á Akureyri, skoðað húsnæði á Sauðárkróki og Egilsstöðum fyrir væntanleg útibú stofnun- arinnar á þessum stöðum. Fyr- ir liggur að næsta útibú Byggðastofnunar verður opn- að á Egilsstöðum, nær örugg- lega á þessu ári, og síðan verð- ur hugað að opnun útibús á Sauðárkróki. Ekki Iiggur nákvæmlega fyrir hvenær af því verður, en samkvæmt sam- þykkt stjórnar Byggðastofnun- ar verður það að minnsta kosti fyrir árslok 1993. Á fundi stjórnar Byggðastofn- unar 10. desember sl. var ákveð- ið að innan tveggja ára verði opn- uð útibú hennar á Sauðárkróki og Egilsstöðum. í samþykkt stjórnar stofnunarinnar segir orðrétt: „Stjórn Byggðastofnun- ar áréttar fyrri stefnu sína um starfsemi stofnunarinnar á lands- byggðinni. Frekar en að flytja aíla starfsemi Byggðastofnunar á einn stað utan Reykjavíkur telur stjórnin heppilegra að koma upp skrifstofum í flestum kjördæmum landsins. í samræmi við þá stefnu hefur Byggðastofnun þegar opn- að skrifstofu á Akureyri og lsa- firði og verða þær efldar. Stjórn- in hefur ákveðið að opna skrif- stofu á Egilsstöðum og Sauðár- króki á næstu tveim árum. Síðar verða teknar ákvarðanir um skrifstofur á Vesturlandi og Suðurlandi.“ í samræmi við þessa samþykkt hefur Benedikt Guðmundsson verið að leita að heppilegu hús- næði fyrir útibú Byggðastofnunar á Sauðárkróki og Egilsstöðum. Hann sagði í samtali við Dag að í framhaldi af því myndi stjórn stofnunarinnar fjalla frekar um málið, líklega á næsta stjórnar- fundi. í svokallaðri „hvítu bók“ ríkis- stjórnarinnar kemur fram að hún hefur á stefnuskránni að flytja aðalstöðvar Byggðastofnunar við Rauðarárstíg í Reykjavík norður á Akureyri. Stjórn hennar er hins vegar ekki á sama máli eins og glögglega kemur fram í framan- greindri samþykkt frá 10. des- ember. Vert er að rifja upp að á stjórn- arfundi Byggðastofnunar í októ- ber árið 1988, þegar útibú hennar á Akureyri var opnað, var sam- þykkt að stefna að því að setja upp útibú á Sauðárkróki og Egilsstöðum. Samþykkt stjórnar- innar í desember sl. var því til áréttingar samþykkt hennar árið 1988. Guðmundur Malmquist, for- stjóri Byggðastofnunar, segir að útibúin á Egilsstöðum og Sauðár- króki verði tæplega eins stór og á Akureyri. Pó megi gera ráð fyrir að auk forstöðumanns starfi við þau sérfræðingur og skrifstofu- maður. óþh KOTASÆLA fitulítil og freistandi Þessi fitulitla og kalkríka afurö býr yfir óþrjótandi fjölbreytni: Hún er afbragö ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d. kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika. KOTASÆLA - fitulítil og freistandi Heimsráðstefna vísindamanna nm hollustu hvítlauks var haldin í Washington D.C., Bandaríkjunum. r A ráðstefnunni var, að undanskildum hráhvítlauk, aðeins ein unnin hvítlauksafurð til umfjöllunar, nefni- lega KYOLIC hvítlaukurinn. Mikil athygli beindist að KYOLIC, enda var vísindalega staðfest að KYOLIC hefði meiri virkni en hráhvítlaukur. 2ja ára kælitæknivinnsla KYOLIC fjarlægir alla lykt en eykur og viðheldur öllum hinum frábæru eiginleikum. Ræktun og fram- leiðsla sem á engan sinn líka í veröldinni. Hylki, hylki með lesitíni eða töflur Fljótandi, bæði með og án hylkja Sáning og uppskera er handunnin til að varð- veita öll næringarefni. MBHBH Kælitæknivinnsla KY OLIC fer að hluta fram KY OLIC er látinn gangast undir ströngustu í vísindalega hönnuðum, ryðfríum stálkerjum. framleiðslukröfur sem þekkjast. Heiídsölubirgðir: LOGALAND heildverslun, sími 12804. Framleiðendur KYOLIC hafa yfir að ráða hátækni rannsókna- og tilraunastofum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.