Dagur


Dagur - 18.01.1992, Qupperneq 4

Dagur - 18.01.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 18. janúar 1992 Brot ÚR SÖGU BÆNDA Atli Vigfússon ,Eg safnaði fyrir bflnum í 14 ár“ Jeppabílarnir voru ekki einu nýju farartækin sem komu í sveitirnar því vörubílarnir héldu einnig innreið sína. Jón Árnason (f. 1900) frá Þverá í Reykjahreppi var einn þeirra manna sem hafði dreymt um að eignast slíkt tæki og safnaði arð- inum af kindunum til þess að geta veitt sér það að eignast bíl- inn. „Það var haustið 1930 sem ég eignaðist minn fyrsta vörubíl. Mér fannst að það yrði tilbreyting frá hefðbundnum landbúnaðar- störfum að gera eitthvað fleira og maður var aðeins búinn að sjá bíla hér í héraðinu og voru þeir flestir af þeirri stærð að geta borið eitt tonn. Þá var það að ég var fenginn til þess að keyra vörubíl sem var tvö tonn vegna veikinda eigand- ans. Eg hafði tekið bílpróf haustið 1929, lærði á Húsavík en var próf- aður á Akureyri. Þá var bara einn eða tveir í sveit sem höfðu slík réttindi. Ökukennari minn var fyrsti maður hér í sýslu sem hafði vörubíl til einhvers gagns en hann hafði fengið hann 1924. Fyrir vinnuna í foreldrahúsum og arðinn af 25 kindum fékk ég aura sem ég hélt til haga frá sext- án ára aldri. 1930 er ég svo orð- inn þrítugur og er þá búinn að safna í 14 ár fyrir bílnum. Alls hafði ég þó eytt einum 2-3 hundruðum króna í skemmtiferðir á þessum tíma en hafði annars ekki eytt miklu og ekki í óþarfa yfir höfuð. Upphæðina hafði ég haft á vöxtum en það voru lágir vextir á þessum árum og ég borg- aði á borðið og þurfti ekki lán til. Aldrei datt mér í hug að kaupa bíl- inn í skuld því ég vissi fyrir að ekki myndi ég hafa miklar tekjur af honum og þess vegna dró ég það svona lengi að kaupa hann, þó mig hefði langað til þess fyrr. Bílinn fékk ég svo frá umboðs- sala Ford-bíla í Reykjavík. Áður hafði ég séð í blaði mynd af nýrri gerð vörubíla sem voru með tví- hjól að aftan og þótti það nýstár- legt að hafa bíl á sex hjólum. Skrifaði ég þá Páli Stefánssyni umboðsmanni og spurði hann hvemig þessi gerð bíla reyndist. Svar barst um hæl og hljóðaði þannig: „Þrautreynt og þrælpróf- að“. Hugmynd mín hafði annars verið sú að fljóta betur á svona bfl, sérstaklega í mýrum og linum jarðvegi því vegurinn náði ekki um alla sveit nema hvað kerruveg- ur hafði verið lagður. Hingað kom bíllinn með skipi til Húsavíkur og var þá bæði hús og palllaus og kostaði 36 hundruð, en yfirbyggingin kostaði 4 hundr- uð og var því heildarverðið kr. 4000. Það var spennandi að ná í hann fyrst og keyra hann til smiðsins sem ætlaði að smíða hús- ið og pallinn, en það var Páll Jónsson frá Austurhaga. Þessir Fordbílar voru sterkir og minn bíll kom til með að reynast mér mjög vel en mér fannst fjöðr- in að framan ekkert sérstaklega vegleg því það var bara ein fjöður undir mótomum að framan svo ég bætti við hana blöðum. Á þessum tíma var ekkert gott að fá vara- hluti því þetta var á kreppuárunum og ekkert hægt að fá en maður bjargaði sér býsna.“ Flutti hey og símastaura „Það var ekki fyrr en 1932 sem ég gat keyrt bílinn heim í Þverá því ég þurfti að breikka kerrruveginn, en vegurinn var ekki kominn eftir allri sveitinni svo ég fékk að geyma bflinn á öðrum bæ. Þessi bíll minn var breiðari en aðrir bíl- ar vegna tvíhjólanna að aftan en það var einkum í holtum sem þurfti að breikka því í mýrarflák- um kom það af sjálfu sér að ekki þurfti neitt að laga. Þar var hins vegar vandamál að slóðin tróðst mér er í minni öll hliðin í dalnum því þau voru ein tvö við hvem bæ og var handtak að opna þau. Auð- vitað fór alltaf einhver farþegi ofan af pallinum niður til þess að opna, en ferðin var svo hæg og vegurinn linur að sá sem opnað hafði hljóp bara bílinn uppi og hinir kipptu honum upp á. Um þetta ortu farþegamir vísu sem byrjar svona: „Helgi bílinn hleyp- ur uppi.....“ Var þetta Helgi Pálsson í Skógum sem var manna duglegastur að stökkva niður og opna en eitthvað mun hafa verið af hagyrðingum á pallinum og var Annar vuruhíll Jóns Árnasonar með 6 manna föstu húsi, árgerð 1940. og þurfti ég stundum að láta hnausa í hjólförin. Ekki sá ég eft- ir því að hafa keypt bflinn með þessa hjólagerð því hann flaut miklu betur en aðrir bflar og komst því meira. Á vetrum varð þessi leið öll ófær og byggði ég bílskúr í félagi við annan á bæ nær þjóðbrautinni til þess að geta not- að bílinn meira. Það voru ýmsir flutningar sem ég tók að mér og smám saman var vegurinn lagður lengra inn eftir sveitinni. Alla símastaura í land- símalínuna flutti ég, svo og mikið af heyi sem flytja þurfti til Húsa- víkur á markað, m.a. var eitt sum- arið flutt mikið til Siglufjarðar. Þetta var hey af áveituengi við hverina í hreppnum og var naut- gæft hey, ræktað með hveravatni, vel sprottið og stórgert. Notuðu Siglfirðingar þetta handa kúm og geldneytum. Best man ég eftir þessum flutn- ingum með heyið og staurana því þeir voru erfiðastir á þessari leið. Einu sinni missti ég bílinn upp að framan með heyinu af því hann var of afturhlaðinn en eina ráðið var að fá farþegana til þess að setjast á stuðarann að framan svo bíllinn myndi síga niður.“ Margir hagyrðingar á pallinum „Annars var ég alltaf að flytja fólk. Flesta farþega hafði ég þeg- ar ég fór með ungmennafélaga í Svartárkot vorið 1932 og voru far- þegarnir 20 á pallinum og tveir inni. Bekki hafði ég útbúið svo fólkið þyrfti ekki að standa, en þurfti að fá lánaða aukabekki til þess að allir kæmust fyrir. Þá voru þrír bílar komnir í Bárðardal þ.e. á Bjamastöðum, Lundarbrekku og Víðikeri svo sæmilegt var að komast eftir daln- um því mikið var búið að troða leiðina. Áður hafði ég tekið tvö hjól undan hjá mér til þess að vera bara á fjórum hjólum upp á breiddina á slóðinni. Þetta var þungt hlass og var farið löturhægt, bara á fyrsta eða öðrum gír, en þar mikið talað og spjallað. Um kvöldið var tjaldað við Svartár- vatn og þar gist og síðan keyrt heim daginn eftir. Góð skemmti- ferð það.“ Fór vítt og breitt um landið „Vegavinnu stundaði ég nokkuð á fyrstu árunum og þá var mokað með höndunum upp á pallinn og líka niður af honum því engar Jón Árnason frá Þverá í Reykja- hreppi. sturtur voru á bflnum. Útbjó ég hjör á hann þannig að hægt væri að hella af og var lyft að framan með handafli og valt það á því að bfllinn væri ekki mjög hlaðinn. Þannig fór allt í eina hrúgu og þurfti þá að moka úr. Slíka vinnu stundaði ég ögn í öðrum sveitum. Það er hins vegar ekki fyrr en 1940 sem ég eignast annan bíl en erfitt var þá að fá bfla og þurfti ég að bíða í fjögur ár eftir að fá leyfi innflutningsráðs. Var þetta vegna skorts á gjaldeyri og var innflutn- ingur skammtaður. Fór þá þessi fyrsti bíll minn til Siglufjarðar og var eftirspurn eftir notuðum bílum vegna gjaldeyrisskortsins. Sá sem keypti var Jón Þorsteinsson skíða- kóngur. Flutti hann bílinn síðan til Reykjavíkur, en að öðru leyti veit ég ekkert um afdrif hans. Þessi nýi bíll bíll minn var 3 tonn en kom palllaus og var með amerísku ökuskýli úr málmi. Þá fékk ég mann til þess að byggja pall og skýli aftur úr ökuskýlinu og gat ég þá tekið sex farþega í húsið. Það var Jón Stefánsson á Öndólfsstöðum sem gerði þetta. Mjög lagtækur maður hann Jón. Á þessum bfl fór ég vítt og breitt um landið og hafði ég meira upp heldur en með hinn bflinn. Lengsti túrinn var með þingeyska bændur í skemmtiferð allt austur að Vík í Mýrdal og var það 10 daga ferð. Hafði ég þá alls 16 manns aftur í „boddíinu“ á fjór- um bekkjum með gúmmísætum. Ekki kom neitt upp á í ferðinni nema hvað það púnteraði einu sinni, en ég hafði allar græjur til þess að gera við.“ Þyrstir Svalbarðs- strendingar í skemmtiferð „Nokkrar ferðir fór ég austur á land og voru vegirnir slæmir, en þó var aldrei farið fyrr en allt var orðið þurrt á sumrin. Bæði fór ég með barnaskólanemendur, ung- mennafélaga og vegagerðarmenn oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Fleiri fór ég með til Austur- lands og var fyrsta ferðin sérlega skemmtileg þar sem ekkert okkar hafði komið þar áður. Það voru vegagerðarmenn af Svalbarðs- strönd og ráðskonur þeirra. Hafði ég mjög gaman af þeim. Þeir voru alltaf öðru hvoru að leita að brennivíni, en fundu aldrei. Þeg- ar ég kom að sækja þá vildu þeir fara til Akureyrar í vínleit og fór- um við þangað, en þar var þá búið að loka áfengisversluninni. Aust- ur á héraði var svo haldið til Seyð- isfjarðar en þá var líka búið að loka áfenginu, þar sem svo framorðið var. Ég varð auðvitað óskaplega feginn. Þá var það að einn Austfirðing- ur fékk með okkur far um tíma og spurðu vegagerðarmenn á pallin- um hann hvort ekki væri einhvers- staðar „landa“ að finna í sveitinni. Taldi farþeginn að sveitin væri al- veg þun- og ekkert að finna. Fannst þá Svalbarðsstrendingum lítið til þessarar sveitar koma þar- sem engan landa væri að fá og væri þetta ljóta sveitin.“ Fyrstu sveitabílarnir Mikil bylting varð hér á landi þegar bílarnir komu til sögunnar. Fyrir landbúnaðinn og hin- ar dreifðu byggðir var þetta stórkostleg nýjung og með tilkomu þessara tækja svo og veganna um sveitir landsins hurf'u margir þröskuldar. Framfarir sem margir höfðu látið sig dreyma um urðu að veruleika. Árið 1946 hafði verið veittur gjaldeyrir til inn- flutnings á Jeep-bílum sern bændur höfðu for- kaupsrétt að. Höfðu þeir pantað þá með milli- göngu búnaðarfélaganna, en ríkisstjómin hafði falið Búnaðarfélagi íslands að dreifa þeim á þann hátt að þeir gætu komið að notum þar sem þeirra væri virkilega þörf. Um miðjan maí sama ár voru aðeins 163 bflar komnir til landsins af þeim 8-900 sem búið var að panta en verksmiðjurnar lofuðu að afgreiða 43 bfla á mánuði frá desember 1945 að telja, en vegna verkfalla í Ameríku gat afgreiðsla þeirra truflast nokkuð. I kynningu um Jeep-bílana í búnaðarblaðinu Frey í lok síðari styrjaldarinnar segir að þeir séu útbúnir til þess að geta dregið eða knúið ýmsar vélar og verkfæri. Hægt sé að draga herfi, kerrur eða annað sem bóndinn hefir að tengja aftan í hann, en sá væri gallinn að beisli þau sem áttu að vera á milli bfls og verkfæris fylgdu ekki með. Það var vegna skorts á gjaldeyri en úr því var bætt hér á landi því Stillir h.f. í Reykjavík seldi íslensk beisli fyrir svipað verð og myndu hafa kostað vestan hafs. Ýmsurn þótti illt að ekkert fylgdi og ekkert skyldi fást af þeim tækjum sem bílnum var ætlað að draga og ekkert var hægt að segja um hvenær þau fengjust. Verksmiðjan sem framleiddi þá full- yrti þó að fylgihlutir og verkfæri sem nota skyldi í þágu landbúnaðarins í sambandi við Jeep-bílinn kæmu strax og lag kæmist á framleiðsluna og þeim yrði úthlutað eftir sömu reglu og bílunum. Af fylgihlutum var nefnd blokk úr steypujárni sem notuð var til þess að auka framþunga bílsins og skapa með því skilyrði til aukins átaks fram- hjólanna. Þá fékkst frá verksmiðjunni aukahlutur sem kallaðist gangráður en hann var notaður þegar bflvélin átti að knýja einhverja þá vél eða verkfæri sem krefðist ntisjafns álags. Ennfremur fékkst skiptiútbúnaður fyrir reimhjól og ýtur sem ætlaðar voru til notkunar í rótuðu landi eða til þess að ýta snjó af vegum. Þess var sérstaklega getið að bfllinn væri með framdrifi og þess bæri að gæta að nota drifið ekki þegar beygjur væru teknar á hörðum vegum og sléttum, nema að nauðsyn krefði. Árið 1949 segir frá því í Frey að hafin sé fjöldaframleiðsla á bifreiðategund sem sérstaklega sé ætluð til notkunar í sveitum. Með tilliti til þessa var vagninn útbúinn að styrkleika og viðeig- andi tengslum þar sem ýmsum búvélum mætti við koma. í rauninni var þessi bíll í ýmsu hliðstæða þeirrar tegundar jeppa sem nefndust landbúnaðar- jeppar. Hlaut umræddur bíll nafnið Land-Rover. Hann var þá kominn hingað til lands sem sýnis- horn og yrði innflutningur leyfður þegar gjaldeyrir fengist í því skyni. Yfirbygging bílsins var yfir öllunt vagninum og var úr striga, en til stóð að framleiða hana úr málmi. I gluggum var plastik-gler sem ekki brotn- aði. Vagn þessi virtist sterklega byggður og til þess útbúinn að fara um torfærur. Þá var þess get- ið að rafleiðslur og kveikja væru vatnsvarin svo að fært væri á bílnum yfir ár og vötn á allmiklu dýpi. Því gaf að skilja að bíllinn væri hæfastur á þeim vettvangi að vera notaður í sveitum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.