Dagur


Dagur - 18.01.1992, Qupperneq 11

Dagur - 18.01.1992, Qupperneq 11
Laugardagur 18. janúar 1992 - DAGUR - 11 Lífsreynsla í hvaða formi sem er hefur alltaf áhrif á mótun einstaklingsins. í flestum tilfellum hefur reynslan jákvæð áhrif á þroskaferilinn sem leiðir til þess að einstaklingnum tekst að nýta hana sér til framdráttar í lífi og starfi. í þetta sinn hef ég tekið tali þrjár ungar stúlkur sem allar hafa upplifað tals- verð umskipti í lífi sínu. Linda og dóttir hennar Kolbrún María. Linda Ólafsdóttir er ein af þeim sem stóð ung frammi fyrir því að verða móðir. Hún er 17 ára og er í 1. bekk í Menntaskólanum. Hún stefnir á málabraut þar sem hún ætlar að leggja áherslu á frönsku. Linda bjó í Frakklandi í þrjú ár og talar því mjög góða frönsku. - Hvað getur þú sagt okkur frá veru þinni ytra? „Eg fór út með móður minni, Hrefnu, og fósturföður mínum Birni Steinari þegar ég var 8 ára. Upphaflega var það hann sem var að fara í nám en svo fórum við mamma líka í skóla. Ég var í útlendingabarnaskóla í 3 mánuði og þegar ég byrjaði þar kunni ég ekki eitt einasta orð í málinu. Eftir það fór ég í venjulegan skóla þar sem ég var þang- að til við fórum heim. Ég man ekki eftir neinum sérstökum byrjunarörðugleikum því ég var mjög fljót að ná tökum á málinu. Ég eignaðist góða vini og held enn sambandi við eina stelpu sem hefur komið að heimsækja mig. Ég er að byrja að tapa niður frönskunni vegna þess að ég nota hana aldrei nema þegar ég tek mig til og les eitthvað.“ - Voru mikil viðbrigði fyrir þig að koma aftur heim ? „Já dálítið, og þá aðallega að sjá snjó aft- ur því það var enginn snjór á meðan ég var úti. Við bjuggum fyrir utan París. Þegar ég kom heim bjó ég hjá pabba sem býr í sveit á Suðurlandi og var þar í Heiðaskóla. Þar átti ég vini sem ég hafði kynnst áður en ég fór út. Það var því ekki svo erfitt að koma heim. Ég var hjá pabba í eitt ár því rnamma og fósturpabbi voru úti einu ári lengur en ég. Þegar þau komu heim flutti ég með þeim til Akureyrar og var hér í hálft ár en fór aftur suður og kláraði 6. bekk. Um sum- arið kom ég hingað og er hér enn. Nú er ég í I. bekk í MA og vonast til að geta haldið mínu striki og klárað stúdentspróf þó það verði ekki á hefðbundnum tíma. - Þú eignaðist svo harnfyrir rúmu ári? „Já, fyrir 15 mánuðum eignaðist ég stelpu, Kolbrúnu Maríu Ingólfsdóttur. Þó að ég sé ung fannst mér ekkert óeðlilegt við að eignast bam, þetta er hluti af lífinu og ég var mjög ánægð. Ég var í Verkmenntaskól- anum þegar ég var ófrísk en var ekki búin að vera þar nema í rúma viku þegar hún lét vita af sér og ætlaði að fæðast tveim mán- uðum fyrir tímann. Ég þurfti að liggja á sjúkrahúsi í heilan mánuð áður en hún fæddist. Ég tók mér frí frá skóla í eitt ár og var heima hjá henni. Núna er ég bjartsýn á að geta stundað námið en ég geri mér líka grein fyrir því að það breytir talsverðu að vera með lítið barn. Ég er búin að vera heppin með stundaskrá því ég er alltaf búin klukkan eitt þannig að Kolbrún þarf ekki að vera hjá dagmömmu nema fjórar klst. á dag. Ég læri oftast á meðan hún sefur eftir há- degið og svo hefur mamma verið góð að hjálpa mér. Ég bý heima hjá henni og Bimi í fríu fæði og húsnæði og það er rosaleg hjálp fjárhagslega. Ég er heppin að geta haft þetta svona eins og þetta er.“ -A hvað stefnirðu íframtíðinni? „Ég hef hug á því að reyna að klára skól- ann, að öðru leyti er framtíðin óráðin.“ Pað þarf ekki börn til svo lífið breytist skyndilega. Lovísa var að verða 12 ára þegar foreldrar henn- ar ákváðu að flytjast tímabundið til Bandaríkjanna. Hún tók þessu illa til að byrja með en segir að eftir á að líta hafi þetta breytt viðhorfi hennar til margra hluta. Hún metur ísland miklu meira nú en áður og hugarfar hennar gagnvart námi breyttist. Lovísa Björk Skaftadóttir er 16 ára og er í I. bekk í Menntaskólanum. Hún stefnir á náttúrufræðibraut vegna þess að hana langar til að verða tannlæknir. - Hvernig líkar þér í skólanum? „Mér líkar þetta ágætlega. Ég á eftir að taka prófin og er því svolítið kvtðin en þetta kemur allt í ljós.“ - Eg frétti að þú hefðir húið erlendis, hvenœr var það? „Ég var 11 að verða 12 ára þegar ég fór út með mömmu og pabba til Bandaríkjanna, nánar tiltekið til Ashville í N-Karólínu. Við bjuggum þar í þrjá vetur. Ég held að það hafi gert dvölina bærilegri að við komum alltaf heim á sumrin því mér fannst rosalega erfitt að yfirgefa vini og fjölskylduna svo það var gott að geta hitt þau á sumrin." - Gekkstu í skóla ? „Já ég var fyrst í „middle school“ sem er eins og 6. og 7. bekkur hér og svo í „junior high“ sem er eins og 8. og 9. bekkur. Skól- inn er allt öðruvísi þar en hér. Til dæmis er heimavinnan miklu meira metin þannig að það var erfitt að svíkjast undan því að læra heima. Fyrsta árið var ég mest heima og notaði tímann í að læra og fékk þar af leið- andi miklu betri einkunnir en ég hafði áður fengið. Mér gekk alltaf vel að skilja náms- efnið og var tiltölulega fljót að komast inn í málið en var eiginlega allan tímann feimin að tala. Þrátt fyrir það háði það tnér ekki mikið því ég náði að eignast góða vini sem eru vinir mínir enn í dag.“ - Hvað kom þér mest á óvart þegar þú komst út? „Það var margt en sérstaklega var það hvað foreldrar eru strangir við krakkana sína. Það þurfti oft ekki mikið að gerast svo foreldrarnir settu börnin sín í stofufangelsi. Ég held að þetta hafi ekki gert krökkunum gott því margir stálust bara út eftir að for- eldrar þeirra voru sofnaðir. Ég held að svona leiði til þess að krakkarnir segja for- eldrum sínum ekkert og fara á bak við þau. Það er til dæmis miklu betra samband milli foreldra og krakka hér heima heldur en þar. Vinum mínum fannst mjög gott að koma heim til mín. Þar máttum við gera meira en á öðrum heimilum og þeim fannst þau vera afslöppuð innan um foreldra mína. Svo var það skólinn. Hann var rosalega stór og nemendum var skipt niður eftir getu í hverju fagi. Allt var líka miklu strangara. Ef einhver skrópaði í tíma eða reifst við kennarann þá var ein stofa nokkurs konar stofufangelsi. Ég var þar einu sinni í tvo Lovísa Björk. daga vegna þess að mér lenti saman við eina kennslukonuna sem var búin að vera svo ömurleg við mig að ég var alveg búin að fá nóg. Nú, ég var þar í þessa daga og lærði. Þetta var nú svolítið fyndið því hver nemandi fékk nokkurskonar bás sem var lokaður með skilrúmi upp í loft og þar var skrifborð. í loftinu hékk spegill svo kennar- inn gæti fylgst með manni. Það var ekki nema í hádeginu sem ég hitti annað fólk. Mér fannst ágætt að vera þarna og ég hitti krakka sem voru búnir að vera þama í ein- hverja mánuði. Eftir að ég losnaði fór mamma að tala við kennslukonuna um það sem hafði gerst. Hún kom svo til mín í næsta tíma og sagði: „Hún mamma þín er svo yndisleg kona, þú hlýtur að vera lík honum pabba þínum." Ég gat nú ekki að því gert, en mér fannst þetta svolítið einkenn- andi fyrir hana. Ég hugsa samt að það sem kom mér mest á óvart var hvað margir voru fáfróðir. Ég var til dæmis spurð að því hvar í Banda- ríkjunum Island væri og jafnvel hvar í N- Karólínu. Fólkið virðist lifa í sínum heimi og veit voða lítið hvað er að gerast fyrir utan heimabæ þess. Landafræðikennsla í skólum er allt öðruvísi og í rauninni miklu verri en hér heima.“ - Hvað hreyttist hjá þér við að húa þarna úti? „Aður en ég fór út fannst mér ömurlegt hér á Islandi en núna sé ég hvað við höfum það rosalega gott. Ég efast um að ég vilji búa þarna í framtíðinni en ég ætla að fara í heimsókn, vonandi næsta sumar." - Hvernig hlasir framtíðin við þér? „Ég stefni á náttúrufræðibraut og vona að það gangi vel. Ég ætla að reyna að verða tannlæknir en hvort ég læri hér eða eriendis verður að koma í ljós.“ Það eru ekki allar stúlkur eins heppnar og Linda því það er fjöld- inn allur af einstæðum ungum mæðrum sem þurfa að sjá fyrir heimilinu á einn eða annan hátt. Það er alltaf gott að eiga góða að en fjölskyldur eru ekki allar eins vel í stakk búnar til að veita þá aðstoð sem vilji er fyrir. Þá er oft leitað til vina og kunningja sem hlaupa und- ir bagga. Ef allir leggjast á eitt leys- ist oft úr erfiðleikunum á undur- samlegan hátt. Rósfríður Þorvaldsdóttir er 19 ára, ein- stæð móðir frá Ysta-Gerði í Eyjafjarðar- sveit. Hún er í 2. bekk, félagsfræðibraut í Menntaskólanum og vinnur hjá íslenskum skinnaiðnaði á kvöldin. Rósfríður, eða Rósa eins og hún er kölluð, á 2ja ára gamlan hressan son sem heitir Almar Öm Halldórs- son . - Hvernig gengur fyrir þig að vera í námi með svona lítinn hressan strák? Rósa og Almar sonur hennar. „Það gengur ekk- ert rosalega vel, mér finnst heldur ekki skemmtilegt í skól- anum en ég ætla að reyna að klára þenn- an vetur og sjá svo til. Ég held að það verði betra að ég taki mér frí og byrji aftur þegar Almar er orðinn eldri. - Hvernig gengur að koma Almari fyr- ir á meðan þú ert í skólanum og í vinn- unrii? „Það gengur vel. Það eru allir af vilja gerðir að hjálpa til. Vinkona mín sem ég leigi með hjálpar mér með hann á kvöldin. Á fimmtu- dögum koma mamma og pabbi og sækja hann og hafa hann hjá sér í sveitinni þangað til á laugardögum. Á daginn þegar ég er í skólanum er hann hjá dagmömmu en núna fer að styttast í að hann hætti hjá henni. Ég er að vona að hann fái pláss á dagheimili fljótlega en ef ekki þá þarf ég að gera aðrar ráðstafanir.“ - Hvernig gengur þér fjárhagslega? „Það gengur, en það er nauðsynlegt fyrir mig að fiytja lögheimili mitt til Akureyrar því ég fæ ekki endurgreitt fyrir dagmömm- una, sem einstæðar mæður fá, fyrr en ég er búin að breyta lögheimilinu. Ég held að það verði auðveldara að fá pláss fyrir hann á dagheimili ef ég er skráð sem íbúi hér á Ak- ureyri. - Hefurðu tíma til að fara út að skemmta þér eða gera eitthvað skemmtilegt fyrir sjálfa þig? „Ég er náttúrulega alltaf að vinna til að verða eitt eftir miðnætti, en ég hitti stundum vini mína eftir vinnu á föstudögum þegar Almar er í sveitinni, en ég fer ekki á böll.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.