Dagur - 18.01.1992, Qupperneq 22
22 - DAGUR - Laugardagur 18. janúar 1992
/ /
Utsala—Itsala
hefst mánudaginn 20. janúar
IDA
Brekkugötu 5
Sími24991
V.
Iinur í lófa
ný ljóðabók eftir Þóru Jónsdóttur frá Laxamýri
Opið hús
18.-19. janúar
Laugardagur 18. janúar 13.00-17.00.
Sunnudagur 19. janúar 13.00-17.00.
Kynnt verður starfsemi Tölvufræðslunnar á
komandi mánuðum t.d.:
Skrifstofiitækninámið
Ásamt mörgum öðrum áhugaverðum nám-
skeiðum. Komið og kynnið ykkur starfsemi
Tölvufræðslunnar.
Ath. Sunnudaginn 19. janúar verður sér-
stök kynning á:
Windows og Windows-tengdum
forritum
Innritim er hafin í síma 27899. Haflð
samband og við sendum bækling.
Tölvunám „nám sem nýtistw
Allir velkomnir — r-=
Veitingar (■■hI
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34, III. hæð, Akureyri, sími 27899
Línur í lófa, þættir og fylgiljóð
eftir Þóru Jónsdóttur frá Laxa-
mýri er komin út. í bókinni eru
minningaþættir og Ijóð sem
spretta upp af þeim, að sögn
Þóru. Þetta er sjötta Ijóðabók
hennar, en áður hafa komið
út: Leit að tjaidstæði 1973,
Leiðin norður 1975, Horft í
birtuna 1978, Höfðalag að
hraðbraut 1983 og Á hvítri ver-
önd 1988, auk þeirra Ijóðaþýð-
ing Augu í draumi eftir Agneta
Pleiel 1985.
Þóra Jónsdóttir fæddist 17.
janúar 1925 að Bessastöðum á
Álftanesi, en fluttist með foreldr-
um sínum 1928 að Laxamýri í
Suður-Þingeyjarsýslu og þar ólst
hún upp. Þóra er dóttir hjónanna
Elínar Vigfúsdóttur og Jóns H.
Þorgergssonar, bónda. Hún tók
stúdentspróf frá Menntaskólan-
um á Akureyri og kennarapróf
frá Kennaraskóla íslands. Hún
hefur búið í Danmörku, Svíþjóð,
Hafnarfirði og lengst í Reykja-
vík, þar sem hún býr nú. Þóra
hefur starfað sem húsmóðir og
bókavörður.
Höfundur hefur sjálfur gert
káputeikningu bókarinnar Línur
í lófa, og er það vatnslitamynd, á
hverri sér heim að Laxamýri,
Skjálfandi og Kinnarfjöll í
baksýn. Þóra veitti Degi góðfús-
lega leyfi sitt til að birta ljóð úr
bók sinni.
Aðalbláber
Frjóið barst á frænið fyrr í sumar
Blómbotninn varð að beri
Fingur mínir lesa það aflynginu
að afla forða fyrir vetur
Ég laga mig að þýfi móans
sem leikur sér að þyngdarpunktum
Hámarksgreiðslur
fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu árið 1992 eru 12.000 kr.
Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er upphæöin 3000 kr.
Öll börn yngri en 16 ára í sömu fjölskyldu eru talin saman og er hámarksgreiðsla
fyrir iæknis- og heilsugæsluþjónustu þeirra samtals 12.000 kr. á ári.
Munið að fá alltaf kvittun fyrir greiðslum
Á kvittuninni skal vera nafn útgefanda, tegund þjónustu, dagsetning og upphæö,
ásamt nafni og kennitölu sjúklings.
Fríkort
Þegar hámarksupphæö á ári er náð, skal framvísa kvittunum hjá Tryggingastofnun
ríkisins eða umboðum hennar utan Reykjavíkur. Þá fæst fríkort, sem undanþiggur
handhafa frekari greiðslum vegna læknisþjónustu til áramóta.
Þó þarf aö greiöa fyrir læknisvitjanir, en gjaldið lækkar viö framvísun fríkorts.
Gjald fyrir læknisvitjun er þá 400 kr. á dagvinnutíma og 900 kr. utan dagvinnutíma.
Gegn framvísun fríkorts greiða elli- og örorkulífeyrisþegar 150 kr. á dagvinnutíma
og 300 kr. utan dagvinnutíma.
Börn undir 16 ára aldri í sömu fjölskyldu fá sameiginlegt fríkort, meö nöfnum
þeirra allra.
í Reykjavík fást fríkortin í afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, Tryggvagötu 28.
Annars staöar eru þau afhent á skrifstofum sýslumanna og bæjarfógeta.
TRYGGINGASTOFNUN ^7 RÍKISINS
Geymiö auglýsinguna
Við snertinguna vígir mig jörðin krafti sfnum
Ég eignaðist afhenni stxrri geira
Þar vil ég byggja mérhús í kjarrí á vatnsbakka
aðganga um með huliðshjálm
Þegar einsemdin ieggur um mig brotinn væng
og myrkríðan situr við stokkinn
flý ég þangað að hvíla í sjálfrí mér
líkt og hnöttótt aðalbláber
Hafgolublús
Finnurðu þreyjuleysið í golunni
þegarhún kemurglettin utan úr hafsauga
hefur baðað sig í löðrí Skjálfanda
Hún leggur um þig svala arma
í haltu mér slepptu mér leik
Hún ætlar þér að festa hvergi yndi né rætur
heldur að vitum þínum Iofti frá ókunnum
breiddum
eins og klút með klóroformi
uns þú verður líkt og þaninn strengur
opinn fyrir hljómum firrðarinnar
eða hestur með strok í liófum
eftir stað sem hann minnist ekki
Eggið
Eggið er sjálfu sér nóg
Þarfnast í byrjun litilsháttar yls
Eftir smátíma flýgur það
til fjarrí landa
Meðan þú sem horfir í sólina
í gegnum skurn þess
stendur í sömu sporum
hugsar um fjaríæg markmið
sem þú nærð ekki
þá ratar eggið til baka
að verpa sjálft
Eggið getur ekki misheppnast
Brotni það fúlni það
er það annarra sök
Stígir þú ofan í hreiður
íþyngir þér sektarkennd
Þig fer að ugga um bamalán hrafnsins
og foríögin yfirleitt
sem þú vildirhafa í hendi þér
líkt og egg
Þú missir það í gólfið
togsérð um seinan
að innan í því var sól
Gengið í sumarnóttinni
Hvererkonan sem kemurinn úr sumamóttinni
í morgunkaffið á bænum
Hún hefur gengið þjóðveginn úr þorpinu
■ og birtist hér með bros í augum góðlátlegt grín
á vör
og fyrírheit um hjálpandi hönd og sálufélag í
nokkra daga
Hún er sjálfrar sín sem kallað er
býr í litlu kvistherbergi með suðuplötu
og saumar fyrir fólk
Þeir barnmörgu leita til hennar
Hún gerír nýja flík úr notaðri
nýtir eykur saman í skálm og boðang á smáfólk
sníður vaðmál og köflótt flónel á erfiðismenn
gengurlítt eftir vinnulaunum
Þessi kona gefur aldrei hversdagsleikanum
hjarta sitt
þótt hún búi með honum að borði og sæng
Meðan hún situryfir saumum og mundar
pressujám
dvelurhugurinnviðljóðogsögurgóðskáldanna
Ung átti hún þá ósk að verða kennari
Efnaskortur og heilsubrestur komu í veg fyrir
nám
dvöl á Vífilsstöðum gerðu hana aftur heila
Hún varð húsmóðir í sveit átti mann og óðal
en sögð var hún grátin brúður
Hjónabandið var barnlaust
en bún tók að sér börn skyldmenna
Einn góðan veðurdag hafnaði eiginmaðurinn
henni
flutti hana burt og tók sér aðra konu
Áður hafði móðir hennar orðið úti
rétt við túngarðinn hennar
í vetrarhörku strjálbýlisins á nyrstu slóðum
Eitl er að missa veraldargengi
annað að vera trúr og án beiskju
Éggeymi mynd hennarfrá þessum löngu liðna
morgni
Sé hana fyrír mér grannvaxna og bláklædda
eina á ferð í vornóttinni
Fjöllin speglast í fióanum fuglamir vakna
döggin þornar
Hún gengur með hafrnu
og bugsar um eina alheims sál
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim,
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum
og heillaóskum á 90 ára afmæli mínu
1. janúar sl.
Lifið heil.
ÁRNÝ SIGRÍÐUR STÍGSDÓTTIR,
Þórunnarstræti 85, Akureyri.
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
verður haldinn laugardaginn 25. janúar
1992 í Kaupangi v/Mýrarveg kl. 17.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestir fundarins verða Halldór Blöndal,
ráðherra og Tómas Ingi Olrich, alþingis-
maður.
Stjórnin.