Dagur - 18.01.1992, Page 23
Laugardagur 18. janúar 1992 - DAGUR - 23
POPP Magnús Geir Guðmundsson
Fortíðarhyggja
Ný dönsk. Öll í fortíðinni.
Hljómsveitin Ný dönsk hefur ver-
ið með afbrigðum iðin og eljusöm
upp á síðkastið. Á það ekki hvað
síst við um síðasta ár og seinni
hluta 1990, en á því tímabili
sendi Ný dönsk frá sér heilar
þrjár plötur, Regnbogaland
(1990), Kirsuber síðastliðið sum-
ar og svo De luxe nú fyrir jólin.
Með tilkomu þeirra fyrrum
Bítlavina/Possibillismanna, Jóns
Olafssonar hljómborðsleikara og
Stefáns Hjörleifssonar gítar-
leikara í hljómsveitina á Regn-
bogalandi, varð viss stefnubreyt-
ing hjá henni. í stað fjörugs og
kraftmikils rokks, var tónlistin nú
orðin mýkri, en jafnframt dúlúð-
legri, sem minnti lítið á fyrstu
plötuna Ekki er á allt kosið.
Ekki skal lagður dómur á það
hér hvort þessi stefnubreyting,
sem ber sterkan keim af hippa-
tímanum, hafi að öllu leyti verið
til góðs, en hvernig sem á það er
litið þá verður því ekki á móti
mælt að hljómsveitin hafi náð
árangri með þessari tónlist sinni.
Á De luxe má segja með
nokkrum sanni að Ný dönsk hafi
náð vissum toppi, því platan er
mjög jöfn og heilsteypt. Sú fortíð-
arhyggja í jákvæðri merkingu, að
sækja nær eingöngu í tónlist
hippatímans eftir áhrifum, er
glettilega vel hepnaöur verknað-
ur á De luxe. Má nefna góð dæmi
um það í lögunum Gyðjan og
Riki konunganna. Er það fyrr-
nefnda falleg kassagítarballaða,
sem minnir mann þægilega á
Spilverk þjóöanna, en það síðar-
nefnda er skemmtilegt tilbrigði
við Led Zeppelin, nánar tiltekið
við lagið Imigrant Song. Eru
þessi tvö lög ásamt „mynd-
bandalögunum" Alelda og
Landslag skýjanna, þau sem
best hafa farið í poppskrifara
Dags til þessa, en eins og áður
sagði er platan mjög jöfn, þannig
að það gætu verið önnur lög á
morgun sem falla honum best í
geð en í dag.
Ný dönsk má vel við una með
De luxe, en jafnframt má hljóm-
sveitin ekki einblína um of á for-
tíðina er kemur að gerð næstu
plötu. Það gæti hæglega leitt til
endurtekninga og stöðnunar þótt
vel hafi til tekist nú.
Það mest selda í Bretlandi 1991
Nú um áramótin var birt yfirlit yfir
það best selda í breskum popþ-
heimi. Kennir þar margra grasa
og eru viðkomandi listar fjöl-
breyttir. Koma hér listar yfir 10
mest seldu smáskífurnar og 10
mest seldu plöturnar. Reyndar
ná listarnir upp í 50, en poppsíð-
an lætur sér nægja að birta 10
efstu sætin.
Smáskífur:
1. (Everything I do) I do it for
You - Bryan Adams
2. The shoop shoop song
- Cher
3. I’m too sexy
- Right said Fred
4. Do the Bartman
- The Simpsons
5. The one and only
- Chesney Hawkes
6. Bohemian Rhapsody
- Queen
7. Any dream will do
- Jason Donovan
8. I wanna sex you up
- Color me bad
9. 3AM eternal
- KLF
10. Don’tletthesungodownon
REM er tilnefnd til 7 Grammy-verðlauna og átti fjórðu mest seldu plötuna í
Bretlandi 1991.
me - George Michael &
Elton John
Plötur:
1. Greatest Hits
Eurythmics
2. Greatest Hits II
- Queen
3. Stars
Simply Red
4. Out of time
- REM
5. Dangerous
- Michael Jackson
6. The imaculate collection
- Madonna
7. Love hurts
- Cher
8. Seal
- Seal
9. From time to time
- Paul Young
10. The very best of Elton John
- Elton John
Hitt og þetta
Grammy-verðlaunin
Grammy-verðlaunin, sem eru
einhvers konar Óskarsverðlaun
tónlistarinnar, verða afhent með
pompi og prakt enn eina ferðina
þann 25. febrúar næstkomandi.
Eru þar að venju margir þekktir
listamenn útvaldirog líktog með
Óskarsverðlaunin, fá sumir
þeirra fleiri en eina og fleiri en
tvær útnefningar, allt eftir því
hversu mikið viðkomandi hafa
verið í sviðsljósinu.
Að þessu sinni (það er fyrir árið
1991) þykja þrír aðilar standa
áberandi mest upþ úr að mati
aðstandenda verðlaunanna. Eru
það hljómsveitin REM, sem fær
sjö tilnefningar, „islandsvinur-
inn“ Bryan Adams með sex og
söngkonan Amy Grant með fjórar,
sem hér um ræðir. Meðal
annarra má svo nefna söngkon-
una blökku, Natalie Cole. dóttur
NatKing Cole, en lagið Unforgetable
af samnefndri plötu, sem hún
syngur ásamt hinum látna föður
sínum með hjálp tækninnar, er
tilnefnt sem besta lag ársins.
Sykurmolarnir á uppleið
Það fór eins og vonast var til og
fjallað var um hér í poppi Dags,
að Sykurmolarnir náðu með glans
inn á topp 40 breska vinsælda-
listans með nýja lagið sitt Hit.
Stökk lagið beint í 27. sætið og
var þáð lag, þá vikuna, sem hæst
fór í einu vetfangi. í kjölfarið kom
hljómsveitin svo fram i hinum
fræga sjónvarpsþætti Top of the
Pops eins og kunnugt er. Góð
frammistaða þar hefur síðan
m.a. gert það að verkum að lagið
er nú komið átta sætum ofar, í
það 19. í þessari viku.
Er þessi árangur Hittil þessa, sá
næstbesti sem íslenskt lag hefur
náð á breska listanum, en
Mezzoforte náði í 17. sæti með
Garden Party árið 1983.
Vinsælasta lag Sykurmolanna til
þessa var hins vegar Birthday
(afmæli), sem náði 33. sæti á list-
anum. Á Hit að eiga þó nokkuð
góða möguleika á að ná enn
lengra upp og er vonandi að svo
verði.
Verðlaunasamkeppni
Hreppsnefnd Eyjafjarðarsveitar hefur ákveðið að
halda sýningu á þeim tillögum sem bárust í sam-
keppnina um merki fyrir sveitafélagið.
Sýningin verður í Hrafnagilsskóla, sunnudaginn 19.
janúar frá kl. 14.00 til 19.00.
Við opnun sýningar verða afhent verðlaun fyrir þau
merki sem hlutu 1., 2. og 3. verðlaun.
Nemendur Hrafnagilsskóla munu sjá um kaffisölu til
styrktar ferðasjóði nemenda.
Hreppsnefndin.
Sérsmíði eftir
þínum óskum
Fataskápar,
Eldhúsinnréttingar
Baðinnréttingar
Hilluro.fi.
-Við björgum málinu-
Þeir sem þurfa viðhaldsvinnu
hafi samband sem fyrst.
FÖST VERÐTILBOÐ
Fjalar h.f.
S. 41346.
w
VÁTRYGGINGAFÉLAG
ÍSLAND8 HF
Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri
óskar eftir tilboðum í eftirtaldar bifreið-
ar, sem skemmst hafa í umferðaróhöpp-
um.
Daihatsu Feroza.................. árg. 1991
Mazda 323 LX...................... árg. 1989
MMC Space Wagon 4x4.............. árg. 1988
Nissan Sunny SLX 4x4 ............. árg. 1988
Mazda 323 XL...................... árg. 1988
Renult 9 GTS .................... árg. 1983
Mazda 626 ........................ árg. 1982
Renult 5 GTL...................... árg. 1982
Bifreiðarnar verða til sýnis í Tjónaskoð-
unarstöð VÍS að Furuvöllum 11, Akur-
eyri, mánudaginn 20. jan. nk. frá kl. 9.00
til kl. 16.00 sama dag.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir kl.
16.00 sama dag.
IIIB FRAMSÓKNARMENN I
AKUREYRl
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 20. janúar kl. 20.30.
Rætt um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 1992.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.