Dagur - 18.01.1992, Blaðsíða 24

Dagur - 18.01.1992, Blaðsíða 24
Veðurstofan: Óbreytt veður á Norðurlandi Veðurstofa Islands spáir nær óbreyttu veðri um allt Norður- land ytir helgina. „Suðlægar áttir munu ríkja um helgina og því verður hlýtt. Að vísu kólnar nokkuð í dag en hita- stig fer ekki niður fyrir frost- mark. Úrkomulaust verður að mestu, þ.e. þetta er allt á sömu nótum sem síðustu daga,“ sagði talsmaður Veðurstofunnar. ój Ólafsfjörður: Umferðaróhapp í háluogrigningu Aðfaranótt föstudags jgerði mikla hálku á götum Olafs- fjarðar. Eitt óhapp varð í umferðinni. Hálkan var svo mikil að ég átti létt með að ýta bifreiðinni út á hlið á glærunni. Rigning var og frost við jörðu þegar óhappið varð. Afturendi bifreiðarinnar skall á ljósastaur og bifreiðin er mikið skemmd. Manninn sakaði ekki, en með sanni er hægt að segja að lánið leikur ekki við þennan ökumann, því hann velti sömu bifreið rétt fyrir jól skammt frá Dalvík,“ sagði talsmaður lög- reglunnar á Ólafsfirði. ój Akureyri: Golfmót að Jaðri - völlurinn í góðu ásigkomulagi Þó nú sé miður vetur sam- kvæmt almanakinu, ætlar Golfklúbbur Akureyrar að standa fyrir golfmóti að Jaðri í dag. Mótið hefst kl. 11.00 og er búist við mikilli þátttöku. Að sögn Gísla Braga Hjartar- sonar, framkvæmdastjóra GA, er völlurinn í mjög góðu ásigkomu- lagi og hafa kylfingar verið dug- legir við að leika golf að undan- förnu. Á mótinu í dag verða leiknar 18 holur en 9 betri holurnar látnar gilda. Spilað verður á vetrarflöt- um. Á morgun sunnudag er stefnt að öðru móti að Jaðri og ef veður og aðstæður leyfa verður spilað á sumarflötum. -KK Togarinn Rauðinúpur: Vélarvana fyrir Suðurlandi Aðalvél togarans Rauðanúps ÞH bilaði í gærmorgun þegar skipið var fyrir sunnan land. Slífar gáfu sig í vélinni en svipuð bilun varð í henni á dögunum. Varðskip kom skipinu til hjálp- ar í gærdag og reiknaði Júlíus Kristjánsson, skipstjóri, með að skipið yrði dregið til hafnar í Reykjavík. Sú ferð gæti tekið tvo sólarhringa. Júlíus sagði á þessu stigi ómögulegt að segja hve viða- mikil viðgerðin yrði. JÓH Legið Mynd: Golli Tónlistarskólinn á Akureyri: Gunnar Frímannsson ráðinn rekstrarstjóri - á að annast daglegan rekstur skólans A fundi bæjarráðs Akureyrar í fyrrakvöld var ákveðið að ráða Gunnar Frímannsson mennta- skólakennara í nýtt starf rekstr- arstjóra við Tónlistarskólann á Akureyri. Kemur það í hlut Gunnars að fara í saumana á rekstri skólans og gera tillögur um framtíðarskipan hans, markmið og leiðir til að ná þeim. Halldór Jónsson bæjarstjóri skýrði blaðamanni Dags frá því að skólanefnd Tónlistarskólans hefði að undanförnu rætt um nauðsyn þess að móta skýra Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar lögð fram nk. þriðjudag: Vil engan veginn kalla þetta svartsýna áætlun - segir Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, segir að þó vissulega sé gætt aðhalds hjá Akureyrarbæ á þessu ári, þá sé fjárhagsáætlun bæjarins, sem lögð verður fram á bæjar- stjórnarfundi nk. þriðjudag, ekki svartsýnisáætlun. „Pað er í raun ekki hægt að segja að um sé að ræða niður- skurð í áætluninni, þvi að reynt er að halda svipuðum rekstri og á síðasta ári,“ sagði Sigurður. Til rekstrar fara 70-71% af tekjum bæjarins og gjaldfærður stofnkostnaðar og eignabreyting- ar eru í samræmi við þriggja ára áætlun, sem samþykkt var á liðnu hausti. „Við höfum reynt að halda öllum meginmarkmiðum þriggja ára áætlunar. Að vísu liggur ekki ennþá fyrir niðurstaða með bandorminn svokallaða og satt að segja kvíðir maður henni nokkuð,“ sagði Sigurður og bætti við að lyktir þess máls yrðu tekn- ar til umfjöllunar milli fyrri og síðari umræðu um fjárhagsáætlun bæjarins. Hlutfall til rekstrar, gjaldfærðs stofnkostnaðar og eignabreytinga er það sama og á síðasta ári, að sögn Sigurðar. „Ég vil engan veginn kalla þetta svart- sýna áætlun. Hins vegar erum við með gríðarlega mörg verkefni sem við erum að reyna að vinna okkur í gegnum og kannski erum við með alltof mikið undir. En við keyrum nokkuð bjartsýnir inn í þetta ár varðandi fram- kvæmdagetu okkar, fyrst og fremst vegna þess að þrátt fyrir þau áföll, sem við urðum fyrir á síðasta ári, þá komum við út með mjög viðunandi rekstrarstöðu bæjarfélagsins á síðasta ári. Áætlanir stóðust og hækkanir verðlags urðu ekki eins miklar og gert var ráð fyrir,“ sagði Sigurð- ur. Af einstökum stórum fram- kvæmdum á vegum Akureyrar- bæjar á þessu ári má nefna áframhaldandi byggingu Verk- menntaskólans og Síðuskóla verður komið í gagnið fyrir haustið. Gert er ráð fyrir bygg- ingu einnar dagvistar, sem frest- að var á síðasta ári, og töluverð- um fjármunum verður varið i Listagilið. Þá má nefna innrétt- ingu nýju slökkvistöðvarinnar við Árstíg og til byggingar félags- legra íbúða verður varið 70 millj- ónum króna. Keypt verður hús- næði fyrir sambýli aldraðra og sömuleiðis verður keypt jarðhæð á Bjargi, sem nýtt verður sem þjónustumiðstöð fyrir væntanleg fjölbýlishús fyrir aldraða við Bugðusíðu. óþh stefnu í málefnum skólans, ekki síst í ljósi þeirra umbrota sem þar hafa orðið. Þar kom upp hug- mynd um að koma á tímabund- inni stöðu rekstrarstjóra sem fengi það hlutverk að vinna þá forvinnu sem nauðsynleg er fyrir stefnumótunina. Halldór sagði að Gunnari væri fengið tvíþætt hlutverk. „Hann á að létta af settum skólastjóra ábyrgð á daglegum rekstri skól- ans og starfsmannahaldi. Hins vegar á hann að endurskoða markmið skólans og benda á leið- ir til að ná þeim. Gunnar er að ljúka verkum við Menntaskólann þessa dagana en hann mun hefja störf við Tónlistarskólann í þess- um mánuði og verða þar til vors,“ sagði Halldór. Bæjarstjóri vildi ekkert um það segja hvort staða rekstrar- stjóra við skólann yrði sett á til frambúðar, það væri Gunnars að setja fram tillögur um slíkt og hann fengi algerlega frjálsar hendur. „Það hlýtur þó að koma til álita sem ein leið. Það er ekk- ert sjálfsagt mál að fagleg og rekstrarleg ábyrgð sé á sömu hendi. Fyrir því eru mörg for- dæmi í sjúkrahúsum landsins þar sem ég þekki til að stjórnin sé tvískipt. Það ræðst af eðli hverrar stofnunar hvaða skipan er best að hafa,“ sagði bæjarstjóri. Nánar er fjallað um málefni Tónlistarskólans á bls. 5. -ÞH Einangrunarstöðin í Hrísey enn án dýralæknis: Erum alveg að gefast upp á þessu ástandi - segir framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda Ekki hefur enn verið ráðinn dýralæknir að Einangrunar- stöðinni í Hrísey, eins og nú- gildandi lög um stöðina kveða skýrt á um. Framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda er mjög óhress með þessa stöðu mála og leggur áherslu á að fundin verði lausn sem fyrst þannig að Einangrunarstöðin sinni lögboðnu hlutverki sínu. Þetta mál var rætt á stjórnar- fundi Landssambands kúa- bænda í Reykjavík í gær. Allt frá því að Ólafur Valsson, dýralæknir, hætti störfum við Einangrunarstöðina í Hrísey á liðnu hausti, hefur enginn dýra- læknir verið fastráðinn við stöð- ina, eins og núgildandi lög um hana kveða á um. Samkvæmt heimildum Dags hefur mikið ver- ið reynt á bak við tjöldin að leysa þetta mál, en án árangurs. Þessa dagana er verið að gera úrslita- tilraun til að ná varanlegri lausn og sagði einn af viðmælendum blaðsins í gær að málið væri nú „á mjög viðkvæmu stigi“. í samþykkt Landssambands kúabænda á aðalfundi þess í Þela- að ur merkurskóla sl. haust segir flutningi Galloway-stofnsins Hrísey sé fagnað. Einnig segir í samþykktinni: „Jafnframt leggur fundurinn áherslu á að Einangr- unarstöðin í Hrísey verði sem fyrst notuð til innflutnings og prófunar á öðrum holdakynj- um.“ Stefán Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir að menn hafi gerst sér vonir um að þessu máli yrði fundinn farvegur fyrir ára- mótin, en það hafi runnið út í sandinn. „Við erum alveg að gefast upp á þessu ástandi. Að sjálfsögðu viljum við halda í þessa stöð, því að hún er aðgangur okkar að frekari innflutningi. Við teljum að hann sé einn liður í þróun til þess að hagræða og auka fram- leiðni og þar með að bæta okkar samkeppnisstöðu. Það er númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur,“ sagði Stefán. Þess skal getið að innan skamms mun landbúnaðarráð- herra leggja fram frumvarp á Alþingi um breytingu á gildandi lögum um Einangrunarstöðina í Hrísey. Þar er m.a. gert ráð fyrir þeirri breytingu að starfandi dýralæknir við stöðina geti jafn- framt sinnt dýralækningum í landi. óþh Aurbleyta á vegum í Skagafirði í þíðviðri síðustu viku hefur frost sigið í vegum í Skaga- flrði og að sögn vegagerð- armanna á Sauðárkróki eru sumstaðar allt að 20 senti- metrar ofan á klakann. Vegagerðin vildi f gær vara viö aurblcytu á Skagafjarðar- vegi í Lýtingsstaðahrepp fram- an vegamóta Svartárdalsvegar og á Hegranesvegi. Að sögn Gísla Felixssonar, rekstrarstjóra, iná búast við þungatakmörkunum ef ekki fer að kólna aftur í veðri. SBG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.