Dagur - 21.02.1992, Side 2
2 - DAGUR - Föstudagur 21. febrúar 1992
Fréttir
Stjórn VH skrifar Bæjarstjórn Húsavíkur:
Hækkunum fasteigna-
gjalda og þjónustugjalda
harðlega mótmælt
- skorar á bæjarstjórn að taka umræddar
hækkanir nú þegar til endurskoðunar
Bjálkahúsið á Hofsósi var formlega afhent Þjóðminjasafninu á miðvikudag.
A innfelldu myndinni afhendir Valgeir Þorvaldsson Þór Magnússyni lykla-
vðldin. Mynd: SBG
Endurgerð gamla pakkhússins á Hofsósi lokið:
Þjóðminjavörður fær lyklavöldin
„Hvar á fólkið í bænum að fá
peninga til að mæta þessum
hækkunum?,“ spyr stjórn
Verkalýðsféiags Húsavíkur í
bréfi sem sent var Bæjarstjórn
Húsavíkur sl. miðvikudag. I
bréfínu mótmælir stjórnin
harðlega nýlega samþykktum
hækkunum á fasteignagjöldum
og þjónustugjöldum bæjarins
og telur að ekki sé tekið nægj-
anlegt tillit til kjara- og launa-
þróunar þeirra, sem greiða
eiga gjöldin. Stjórnin segist
ekki efast um tekjuþörf bæjar-
ins, m.a. vegna aukinnar þátt-
töku í atvinnulífí á staðnum,
en minnir á að launamenn hafí
ekki fengið kauphækkanir í
rúma 8 mánuði. Jafnframt hafí
vinna dregist stórlega saman í
Hlutafélag um verslun
á Skagaströnd:
Hreppurinn
verður með
Hreppsnefnd Höfðahrepps hef-
ur samþykkt að taka þátt í
hlutafélagi um verslunarrekst-
ur á Skagaströnd. Kaupfélag
Húnvetninga fór fram á það
við hreppsnefnd að sveitarfé-
lagið tæki þátt í breytingu á
verslunarrekstri á Skaga-
strönd, en til stendur að breyta
Hólanesútibúi KH í hlutafélag.
Magnús B. Jónsson, sveitar-
stjóri Höfðahrepps, segir að
hreppsnefndin vilji með þessu
móti tryggja verslunarrekstur á
Skagaströnd og jafnframt stuðla
að lægra vöruverði. Ekki hefur
verið ákveðið hver hlutafjárupp-
hæð sveitarfélagsins verður í hinu
nýja hlutafélagi.
Miklar breytingar eiga sér stað
í Hólanesútibúinu um þessar
mundir. Verið er að koma fyrir
strikamerkingakerfi og einnig er
verið að hagræða ýmsu öðru áður
en rekstrarform verslunarinnar
breytist. Að sögn Guðsteins Ein-
arssonar, kaupfélagsstjóra KH,
er nú stefnt að því að færa rekst-
urinn yfir- í hlutafélagsform þann
1. apríl nk., en í fyrstu var gert
ráð fyrir að sú breyting gæti átt
sér stað um næstu mánaðamót.
Stjórn Körfuknattleikssam-
bands íslands tók fyrir bréf frá
körfuknattleiksdeild Tinda-
stóls á stjórnarfundi sínum í
gær. Ástæðan fyrir bréfínu var
leikur íslenska landsliðsins í
körfu gegn landsliði Litháen
sem fara átti fram á Sauðár-
króki, föstudaginn 24. janúar
sl.
Leikur þessi, sem átti að vera
sá síðasti af þremur leikjum við
landslið Litháen, var aldrei leik-
inn. Körfuknattleiksdeild Tinda-
bænum og í janúar láti nærri
að 15% vinnufærra Húsvík-
inga hafí verið atvinnulausir.
Stjórn VH skorar á bæjar-
stjórn að taka umræddar
hækkanir nú þegar til endur-
skoðunar, með það að mark-
miði að þær hækki ekki meira
en nemur launahækkunum.
í bréfinu segist stjórnin vilja
benda bæjarstjórn á nokkrar
staðreyndir til umhugsunar: Að
kaup hafi aðeins hækkað um
5,44% á tímabilinu frá jan. ’91 til
jan. ’92 og ekkert síðan 1. júní
’91. Fullar atvinnuleysisbætur á
mánuði séu kr. 45,613. Fast-
eignagjöld miðað við 6,3 milljón
króna íbúð hafi hækkað um 15%
frá fyrra ári og séu kr. 48.310 eða
nokkru hærri en fullar atvinnu-
leysisbætur. Maður sem eigi slíka
íbúð og hafi 70 þúsund krónur í
mánaðartekjur, greiði 69% af
einum mánaðarlaunum í fast-
eignagjöld. En í fyrra greiddi
maður með sambærilegt kaup
63% af mánaðarlaunum í fast-
eignagjöld. Fasteignagjöld á
Húsavík séu um 35% hærri en í
Reykjavík. Maður með 6,3 millj-
ón króna íbúð á Húsavík greiði
um 30 þúsund krónum meira í
fasteignagjöld og útsvar en Reyk-
víkingur. Á árinu ’92 hafi verið
ákveðnar hækkanir upp á 4-8% á
flestri þjónustu á vegum bæjar-
ins, en á sama tíma telji bæjar-
félagið ekki efni til neinna kaup-
hækkana. í lok upptalningarinn-
ar fullyrðir stjórnin að til viðbót-
ar ofangreindum hækkunum þá
hafi gjöld Hitaveitu Húsavíkur
hækkað verulega að undanförnu,
vart minna en 15-20% umfram
verðlag og sennilega meira. IM
Þjóðarsálin virðist ekki koma
auga á þær konur sem starfa í
landbúnaði og engu líkara er
en konur í sveitum séu ekki
sjálfar meðvitaðar um eigin
tilvist. Fáar konur gegna trún-
aðarstörfum innan landbúnað-
arins og á síðasta aðalfundi
stóls vill meina að KKÍ hafi stað-
ið illa að málum varðandi leikinn
og í bréfinu er farið fram á við
sambandið að það greiði Tinda-
stóli þann kostnað sem félagið var
búið að leggja í vegna leiksins.
Pétur Hrafn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri KKÍ, sagði eftir
fundinn í gær, að allir hefðu verið
sammála um að ófært væri að láta
Tindastól bera þennan kostnað
og hann sagði að gengið yrði til
viðræðna við félagið hið fyrsta
vegna málsins. SBG
Gamla pakkhúsið á Hofsósi
var afhent þjóðminjaverði við
hátíðlega athöfn í vikunni.
Endurgerð hússins hefur stað-
ið yfír frá árinu 1986, en frá
síðasta sumri hefur verið unnið
stanslaust við að Ijúka verkinu
og er húsið nú komið í sína
upprunalegu mynd. Valgeir
Þorvaldsson, yfírsmiður,
afhenti Þór Magnússyni,
þjóðminjaverði lykla að hús-
inu.
Bjálkahúsið á Hofsósi, sem oft
er kallað gamla pakkhúsið, er eitt
af elstu húsum landsins. Húsið er
eitt tólf húsa sem Grændlands- og
íslandsverslunin keyptu frá Dan-
mörku og reist voru á verslunar-
stöðum í báðum löndum á átj-
Stéttarsambands bænda voru
aðeins þrír fulltrúar af rúmlega
60 konur auk þess sem aðeins
tvær konur eiga sæti á Búnað-
arþingi. Þessar upplýsingar
komu meðal annars fram á
kynningarfundi sem haldinn
var í tilefni þess að komið er út
fræðslurit um konur í landbún-
aði undir heitinu „Við þorum,
viljum, getum.“
Ritið er að stofni til þýtt úr
norsku og sá Ágústa Þorkels-
dóttir á Refstað í Vopnafirði um
þýðingu þess og staðfærslu að
íslenskum aðstæðum. Hún sagði
að markmiðið með útgáfu þess
væri fyrst og fremst að gera
bændakonur sýnilegar. Einnig
væri lögð áhersla á að auka áhuga
og virkni kvenna í sveitum innan
félagskerfis landbúnaðarins og
láta raddir þeirra heyrast í þeirri
umræðu sem fram fer um málefni
bændastéttarinnar og lands-
byggðarinnar á hverjum tíma.
Ágústa sagði að í bókinni væri
reynt að draga framlag kvenna í
landbúnaði fram í dagsljósið
jafnframt því að horfa fram á
veginn og fjalla um þá möguleika
ándu öld. Það var byggt árið 1777
og auk þess að hafa hýst einokun-
arverslun hefur það gegnt hlut-
verki pakkhúss sem og ýmsu
öðru í gegnum árin. Þjóðminja-
safnið keypti húsið árið 1952, en
endurbætur á því hafa dregist
fram til dagsins í dag.
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt,
hafði hönd í bagga með endur-
gerð hússins, en Valgeir Þor-
valdsson var yfirsmiður. Húsið er
hluti af merki sveitarfélagsins, en
ætlunin er að í framtíðinni verði
húsið nýtt í sainbandi við ferða-
mannaiðnað og sett upp í því
sýning á gömlum munum. í ræð-
um sem Valgeir yfirsmiður og
Jón Guðmundsson, sveitarstjóri
Hofshrepps, fluttu við athöfnina
sem konur í sveitum landsins eiga
til sköpunar nýrra atvinnutæki-
færa. Þá væri fjallað á fremur
hispurslausan hátt um stöðu
Línur eru eilítið teknar að
skýrast á Skákþingi Akureyrar
en útlit er fyrir spennandi
keppni í síðustu umferðunum.
Gylfi Þórhallsson er efstur í A-
flokki eftir sex umferðir en
staðan er jöfn, líkt og í ungl-
ingaflokki, en Halldór Ingi
Kárason er með nokkuð
örugga forystu í flokki 12 ára
og yngri.
Gylfi er kominn með 5 vinn-
inga eftir 6 umferðir í A-flokki. í
2.-3. sæti eru Sigurjón Sigur-
björnsson og Þór Valtýsson með
4'A vinning og í 4. sæti Þórleifur
Karlsson með 4 vinninga. Þess
má geta að Þórleifur tók þátt í
Norðurlandamóti í skólaskák í
Svíþjóð um síðustu helgi og stóð
sl. þriðjudag sögðu þeir framtíð-
ardraumana um nýtingu hússins
vera marga. M.a. tók Valgeir
fram að hann vildi sjá hreinan
íslenskan mat á boðstólum í
þessu gamla húsi, en eftir afhend-
inguna var viðstöddum boðið
upp á þorramat.
Þór Magnússon, þjóðminja-
vörður, þakkaði þeim sem lögðu
hönd á plóginn við endurgerð
húsins og tók undir orð Þorsteins
Gunnarssonar um að verkið væri
sérlega vel unnið. Hann sagði
Þjóðminjasafnið hafa fullan hug
á að fá húsið í hendur heima-
mönnum til umráða og umsjár og
sagðist hafa þá trú að Hofsós ætti
eftir að laða marga að sér í fram-
tíðinni. SBG
kvenna í sveitum - hvaða gallar
séu því samfara að vera búsett í
dreifbýli og einnig hvaða kosti
það bjóði upp á. ÞI
sig vel. Hann var stigalægsti
keppandinn í sínum flokki en
fékk 3 vinninga af 6 mögulegum.
í flokki 13-15 ára á Skákþingi
Akureyrar er staðan dálítið óljós
en fjórir efstu menn koma til með
að berjast um sigurinn. Einar J.
Gunnarsson er með 3 vinninga af
4 mögulegum, Páll Þórsson 2!^ af
3, Gestur Einarsson 2XA af 4 og
Helgi Gunnarsson 2 af 3.
Halldór Ingi Kárason hefur
fengið 6 vinninga eftir 6 umferðir
í flokki 12 ára og yngri. Næstir
koma Davíð Stefánsson með 4 'A
v. og Bárður H. Sigurðsson með
4 v. Efstu stúlkurnar eru Ólafía
Guðmundsdóttir og Þórhildur
Kristjánsdóttir með 3 vinninga.
SS
SBG
Landsleiksmál Tindastóls:
„Ófært að félagið beri kostaaðiiin“
- segir stjórn KKÍ
„Við þorum, viljum, getum“:
Fræðslurit um konur í sveitum komið út
- „ætlunin að gera bændakonur sýnilegar og draga framlag
þeirra fram í dagsljósið,“ segir Ágústa Þorkelsdóttir, sem þýddi og staðfærði ritið
Skákþing Akureyrar:
Gylfi með forystu