Dagur - 21.02.1992, Blaðsíða 15
Föstudagur 21. febrúar 1992 - DAGUR - 15
IÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson
Handknattleikur:
skýrast í 1. deildarkeppnirau
- FH-ingar deildarmeistarar
Akureyri:
Framhalds-
skólamót
íblaki
Á morgun, laugardag, verð-
ur haldið framhaldsskóla-
mót í blaki í íþróttahöllinni
á Akureyri. Það íþróttafélag-
ið Æsir í Verkmenntaskói-
anum á Akureyri og Blak-
samband íslands sem gang-
ast fyrir mótinu.
Keppni hefst kl. 15 og verð-
ur spilað fram eftir kvöldi. 8
karlalið og 7 kvennalið leiða
saman hesta sína og verður
spilað á þremur völlum.
Aðgangur að mótinu er
ókeypis.
Vetrarólympíuleikarnir:
Ásta í 27. sæti
Petra Kronberger frá Aust-
urríki sigraði í svigi á vetrar-
ólympíuleikunum í Albert-
ville í gær. Ásta Halldórs-
dóttir hafnaði í 27. sæti.
Kronberger kom í mark
0,42 sek. á undan næstu stúlku
sem er frá Nýja Sjálandi.
Vreni Schneider, fyrrum
ólympíumeistari, varð að gera
sér 7. sætið að góðu. Ásta kom
í mark rúmum 10 sekúndum á
eftir Kronberger.
Vetrarólympíu-
leikunum lýkur
um helgina
Vetrarólympíuleikunum í
Albertville í Frakklandi lýk-
ur um helgina og taka
íslensku keppendurnir þátt í
síðustu mótunum á morgun.
Þá keppa Kristinn Björns-
son og Örnólfur Valdimarsson
í svigi og Rögnvaldur Ingþórs-
son í 50 km göngu. Haukur
Eiríksson hafði í gær ekki
ákveðið hvort hann yrði með í
50 km göngunni.
íþróttir
HANDKNATTLEIKUR
Föstudagur
2. deild:
Völsungur-ÍH kl. 20
Laugurdugur
2. dcild:
Þór-ÍH kl. 13
Sunnudagur
1. deild:
Fram-KA kl. 20
ÍSHOKKÍ
Laugardagur:
SA-SR kl. 14
BLAK
Framhaldsskólamót verður haldið í
íþróttahöllinni á Akureyri á morgun
og hefst kl. 15.
SKÍÐI
Bikarmót í alpagreinum, 13-14 ára og
15-16 ára, verða haldin á Isafirði um
helgina. Keppt verður I svigi og stór-
svigi. I’á verður æfingamót í skíða-
göngu í Ólafsfirði á sunnudag.
SUND
Krónusund Óðins fcr fram í Sundlaug
Akurcyrar á morgun kl. 14. Sundið er
til fjáröflunar fyrir Óðin, 35 sund-
menn synda í 10 mínútur hver og
reyna að komast sem mesta vega-
lengd á þeim tíma.
Línur að
Nú sér fyrir endann á forkeppni
1. deildar íslandsmótsins í
handknattleik. FH-ingar hafa
þegar tryggt sér deildarmeist-
aratitilinn, hafa lokið sínum
leikjum og þótt Víkingar eigi
möguleika á að ná þeim að
stigum er markahlutfall FH
það gott að sigri liðsins verður
ekki ógnað. Framundan er
úrslitakeppni 8 efstu liða um
íslandsmeistaratitilinn og því
rétt að rifja upp hvernig hún
fer fram.
Úrslitakeppnin fer fram með
útsláttarfyrirkomulagi og leikur
liðið í 1. sæti við liðið í 8. sæti, 2.
sæti gegn 7. sæti, 3. sæti gegn 6.
sæti og 4. sæti gegn 5. sæti. Það
lið sem fyrr sigrar í tveimur leikj-
um kemst áfram en hitt er úr leik.
Liðin sem hafna í efri helmingi
deildarinnar, þ.e. liðin í 1.-4.
sæti, fá heimaleik á undan og ef
til oddaleiks kemur fer hann fram
á heimavelli efra liðsins. Marka-
hlutfall gildir ekki í úrslitakeppn-
inni þannig að ef annað liðið sigr-
ar ekki í tveimur fyrstu leikjun-
um fer þriðji leikurinn fram.
Leikið er til þrautar í hvert
skipti, þ.e. jafntefli getur ekki
orðið í úrslitakeppninni.
Þegar þessari fyrstu umferð
úrslitakeppninnar er lokið eru
fjögur lið eftir og mætast þá ann-
ars vegar sigurliðið úr leik 1-8 og
sigurliðið úr leik 4-5 og hins veg-
ar sigurliðið úr leik 2-7 og sigur-
liðið úr leik 3-6. Leikið er þar til
annað liðið hefur sigraði í tveim-
ur leikjum. Að þessum leikjum
loknum standa tvö lið eftir og
Töluveröar líkur eru á að
júgóslavneskur markvörður,
Iztok Race, leiki með 1. deild-
arliði KA í handknattlcik
næsta vetur. Race, sem er unn-
usti Jösnu Pavlovich, blak-
konu í KA, hefur æft með lið-
inu að undanförnu.
Blak:
21 lið á
þorramóti
íþróttafélagið Eik á Akureyri
gekkst fyrir þorramóti í blaki
um síðustu helgi. Mótið var
ætlað 29 ára og eldri og mættu
21 lið til leiks í karla og
kvennaflokki.
í kvennaflokki voru 12 lið og
hafði A-lið Eikar mikla yfirburði
og tryggði sér sigur með fullu
húsi stiga en liðið tapaði ekki
hrinu í mótinu. HK úr Kópavogi
varð í 2. sæti og A-lið Óðins í 3.
sæti.
í karlaflokki voru 9 lið og þar
sigraði A-lið Óðins, B-lið Öðins
varð í 2. sæti og A-lið Skauta-
félagsins í 3. sæti.
Spilað var stanslaust frá kl.
10.30 á laugardagsmorguninn og
til kl. rúmlega 21 um kvöldið. Þá
fór allur hópurinn á Hótel KEA,
snæddi og steig dans fram eftir
nóttu.
Mótið þótti heppnast mjög vel
en þess má geta að færri lið kom-
ust að en vildu.
leika þau til úrslita um íslands-
meistaratitilinn. Það lið sem fyrr
vinnur þrjá leiki telst íslands-
meistari.
Liðið sem hafnar í neðsta sæti
deildarkeppninnar, og það er
reyndar þegar orðið ljóst að það
verður Breiðablik, fellur beint í
2. deild en lið nr. 10 leikur gegn
liði nr. 11 um fallið. Það lið sem
fyrr vinnur tvo leiki heldur sæti
sínu en hitt fellur í 2. deild. Liðið
í 9. sæti leikur ekki fleiri leiki að
lokinni deildarkeppninni.
FH þegar komið í
Evrópukeppni
Liðið sem sigrar í deildarkeppn-
inni, í þessu tilfelli FH, öðlast
rétt til þátttöku í Evrópukeppni
félagsliða. Verði það lið einnig
íslandsmeistari fær lið nr. 2 þátt-
tökurétt í þeirri keppni og
íslandsmeistarinn fer í Evrópu-
keppni meistaraliða. Verði lið nr.
2 bikarmeistari fer það í Evrópu-
keppni bikarhafa en lið nr. 3 í
deildarkeppninni í Evrópukeppni
félagsliða. Þetta síðasta er út úr
myndinni í dag þar sem Víkingar
eru öruggir með annað sætið í
deildarkeppninni en úr leik í
bikarnum.
Annað fyrirkomulag í
2. deild
Annað fyrirkomulag er á keppni
í 2. deild. Þar er aðeins leikin
tvöföld umferð heima og heima
og tvö efstu liðin færast í 1. deild.
Eins og staðan er í dag er nokkuð
ljóst að það verða Þór og ÍR.
Ekkert lið fellur í 3. deild þar
Race er 25 ára gamall og hef-
ur leikið með 1. deildarliði í
Júgóslavíu. Hann lék einnig á
sínum tíma með unglingalands-
liði landsins.
Að sögn Alfreðs Gíslasonar,
þjálfara KA, eru góðar líkur á að
Race leiki með KA næsta vetur
en hann mun vera sterkur mark-
vörður. Hann mun leika með KA
í pressuleik gegn landsliðinu 6.
mars nk.
Af pressuleiknum er það ann-
ars að frétta að KA-liðið verður
styrkt með einhverjum leik-
mönnum og eru líkur á að bæði
Sigurður Sveinsson og Þorgils
Óttar Mathiesen mæti á svæðið.
Óvíst er að Þórsarar verði með í
leiknum þar sem þeir spila í
íslandsmótinu tveimur dögum
seinna.
Á morgun, laugardag, verður
einn af úrslitaleikjunum á
Islandsmótinu í íshokkí á
Akureyri. Þá mætast Skauta-
félag Akureyrar og Skauta-
félag Reykjavíkur en þessi lið
eru efst og jöfn að stigum.
Leikurinn er sá síðasta í 3.
umferð mótsins en alls verða
leiknar fjórar umferðir. Liðin
hafa mæst tvívegis áður og unnu
Akureyringar fyrri leikinn en
sem hún er ekki til í dag heldur er
keppt í 1. flokki karla, eða B-
deild meistaraflokks, sem tengist
ekki 1. og 2. deild enda væri þá
hætta á að upp kæmu vandamál
þar sem sama félagi er óheimilt
að eiga tvö lið í sömu deild.
Nokkrir leikir eftir
Nokkrir leikir eru eftir í deildar-
keppninni og það skýrist ekki
fyrr en í næstu viku hvaða lið
verða í 8 efstu sætunum og
hvernig þau raðast niður. Þessir
„Ég var mjög ánægður með
hvernig leikurinn spilaðist. Við
spiluðum yfirvegaða vörn,
hraðaupphlaupin gengu upp
og Axel átti einn sinn besta
leik í markinu í vetur. Við
keyrðum yfir þá í fyrri hálf-
leik,“ sagði Alfreð Gíslason
eftir auðveldan sigur KA-
manna á HK í 1. deild hand-
boltans í Kópavogi á miðviku-
dagskvöldið. Lokatölur urðu
20:28 og úrslitin þýða að KA-
menn eru öruggir með 4. sætið
og eiga möguleika á 3. sætinu
sem þeir slást um við Selfyss-
inga.
Eins og Alfreð sagði voru HK-
ingar teknir „í bakaríið" í fyrri
hálfleik og mestur varð munurinn
11 mörk, 7:18. Staðan í hléi var
8:18. KA-menn léku vel og sókn-
arleikur HK var í molum á móti
sterkri vörn þeirra. Alferð tók
hættulegasta mann þeirra, Michael
Tonar, í sína vörslu og sá til þess
að hann skoraði ekki mark fyrr
en í seinni hálfleik.
KA-menn slökuðu á í seinni
hálfleik og á 15 mínútum tókst
HK að minnka muninnn í 14:20.
KA skoraði ekki í 7 mínútur en
Árni Stefánsson braut ísinn með
21. markinu og við það vöknuðu
norðanmenn til lífsins. Skömmu
síðar var munurinn aftur orðinn
11 mörk, 15:26, og úrslitin voru
ráðin. Síðustu mínúturnar endur-
spegluðu muninn á liðunum og
voru hreinlega skrípaleikur.
Það var sterk liðsheild KA sem
skóp sigurinn en rétt er að nefna
Axel sérstaklega, hann varði
mjög vel, m.a. tvö víti. Leikur
HK var í rústum og sem dæmi má
nefna að Gunnar Gíslason skaut
a.m.k. sjö sinnum fram hjá KA-
markinu. Skástur heimamanna
var Óskar Elvar Óskarsson.
„Við höfum verið á siglingu
Reykvíkingar þann seinni. Sigur er
ákaflega mikilvægur fyrir Akur-
eyringa því þeir eiga eftir að
mæta Reykvíkingum aftur fyrir
sunnan. Verði liðin jöfn að stig-
um eftir fjórar umferðir gildir
markahlutfall ekki heldur verður
leikinn hreinn úrslitaleikur um
titilinn.
Leikurinn fer fram á Skauta-
svellinu á Akureyri og hefst kl.
14.
leikir eru eftir: ÍBV-Grótta
(21.02.), HK-Selfoss, Fram-KA,
Víkingur-Haukar (23.02.), ÍBV-
Stjarnan (24.02.), Selfoss-KA
(25.02.), Valur-UBK (26.02.),
Selfoss-Valur og ÍBV-UBK
(28.02.).
Síðan verður gert hlé á mótinu
rneðan B-keppnin í Austurríki
fer fram en úrslitakeppnin hefst
8. apríl. Leikið verður með litl-
um hléum og fyrsti úrslitaleikur
tveggja síðustu liðanna um
íslandsmeistaratitilinn fer fram
24. apríl.
undanfarið og ætlum okkur að
vinna Fram á sunnudaginn. Þá
verður leikurinn á Selfossi hreinn
úrslitaleikur um 3. sætið og þar
kemur auðvitað ekkert annað en
sigur til greina,“ sagði Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson, hinn
skemmtilégi hornamaður KA.
Áhangendur HK voru nokkuð
hávaðasamir og Alfreð var
spurður hvort tónlist Guns and
Roses hefði hjálpað KA-mönn-
um að krækja í sigurinn. „Við
erum farnir að spila mun betur á
útivöllum en hvað veldur veit ég
ekki,“ sagði Alfreð og glotti.
-bjb
Mörk HK: Elvar Óskarsson 9/1,
Ásmundur Guðmundsson 3, Michael
Tonar 3/1, Rúnar Einarsson 2, Gunnar
Gíslason 2, Jón B. Ellingsen 1. Bjarni
Frostason varði 15 skot.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
8/4, Stefán Kristjánsson 6, Erlingur
Kristjánsson 5, Pétur Bjarnason 3,
Alfreð Gíslason 3, Árni Stefánsson 2,
Árni Páll Jóhannsson 1. Axel Stefánsson
varði 13/2 skot og Björn Björnsson 1/1.
Dömarar: Jón Hermannsson og Guð-
mundur Sigbjörnsson. Dæmdu óaðfinn-
anlega.
Handknattleikur:
/
IH heimsækir
Völsung og Mr
Völsungur og Þór taka á móti
ÍH í 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik um helgina.
Leikurinn á Húsavík fer fram í
kvöld og hefst kl. 20. Á inorgun
mætast Þór og ÍH á Akureyri og
hefst viðureign þeirra kl. 13.
Handknattleikur
1. deild
HK-KA 20:28
Fram-UBK 24:13
Grótta-FH 19:21
Valur-Haukar 29:28
ÍBV-Selfoss 23:24
Víkingur-Stjarnan 27:22
FH 22 18-2- 2 614:503 38
Víkingur 21 17-2- 2 543:463 36
KA 20 10-4- 6 500:477 24
Selfoss 19 11-1- 7 508:486 23
Stjarnan 21 10-1-10 517:490 21
Haukar 21 8-4- 9 519:516 20
Fram 21 8-4- 9 485:505 20
ÍBV 19 7-3- 9 503:495 17
Valur 20 6-5- 9 480:486 17
Grótta 21 5-4-12 429:500 14
HK 21 4-2-15 462:519 10
UBK 20 2-2-16 363:481 6
Júgóslavi í mark KA?
- líkur á að Siggi Sveins og Þorgils Óttar
verði með í pressuleiknum
íslandsmótið í íshokkí:
Toppslagur SA og SR
Auðveldur sigur KA á HK:
Fjórða sætið í höfii og
möguleiki á því þriðja