Dagur - 21.02.1992, Síða 3
Föstudagur 21. febrúar 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Vægi sjávarútvegs í byggðarlögum á Norðurlandi:
Aflaverðmæti á hvem íbúa mest á Þórshöfh
- Skagaströnd og Raufarhöfn einnig ofarlega á blaði
Sjávarútvegur er mikilvægasta
atvinnugreinin í mörgum
byggðarlögum á Norðurlandi
en vægi hans er mismunandi
eins og lesa má út úr skýrslum
sem Fjórðungssamband Norð-
lendinga hefur tekið saman.
Þar má t.d. sjá að aflaverð-
mæti á hvern íbúa á Þórshöfn
var 1.219 kr. á árinu 1990 en
185 kr. á hvern Akureyring.
Ef við lítum fyrst á Norðurland
eystra þá sker Þórshöfn sig nokk-
uð úr þegar vægi sjávarútvegs er
skoðað. Tölurnar eru allar frá
árinu 1990. Þannig var heildarafli
á hvern íbúa á Þórshöfn 135,1
tonn og verðmætið 1.219 kr. eins
og áður segir. Raufarhöfn kemur
skammt á eftir með 130,6 tonn á
hvern íbúa og aflaverðmæti upp á
896 kr.
Samsvarandi tölur fyrir aðra
staði á Norðurlandi eystra eru
(raðað eftir verðmæti á hvern
íbúa): Ólafsfjörður 18,4 tonn og
866 kr., Grímsey 10,4 tonn og
853 kr., Dalvík 10 tonn og 527
kr., Hrísey 17,1 tonn og 453 kr.,
Árskógsströnd 8,1 tonn og 373
kr., Grenivík 7,8 tonn og 319 kr.,
Húsavík 3,8 tonn og 206 kr.,
Akureyri 3,1 tonn og 185 kr. og
Kópasicer 1,7 tonn og 112 kr.
Heiidaraflinn var mestur á
Þórshöfn, 53.893 tonn, en afla-
verðmætið langmest á Akureyri,
2,6 milljónir, enda bolfiskur uppi-
staðan í aflanum sem þangað
barst.
Höldum okkur enn við Norður-
land eystra og lítum næst á sjávar-
afla sem var fluttur út í gámum
eða landað erlendis. Þar eru
Grenvíkingar áberandi efstir á
blaði. Þeir fluttu alls út 11,3 tonn
á hvern íbúa og aflaverðmætið
var 506 kr. á mann. Dalvíkingar
komu næstir með 1,9 tonn og 203
kr. og Ólafsfirðingar með 1,7
tonn og 173 kr. Aðrir staðir ná
ekki einu tonni af útfluttum afla á
hvern íbúa.
Á Norðurlandi vestra er Siglu-
fjörður efstur á blaði í skýrslu
Fjórðungssambandsins þegar lit-
ið er til heildarafla og aflaverð-
mætis. Vægi sjávarútvegs er hins
vegar langmest á Skagaströnd ef
við tökum verðmæti á hvern
íbúa.
Á Skagaströnd komu 16,3 tonn
á hvern íbúa og var aflaverðmæt-
ið 1.153 kr. á mann. Lítum á
samsvarandi tölur fyrir aðra staði
á Norðurlandi vestra: Siglufjörð-
ur 46,7 tonn og 615 kr., Hvamms-
tangi 5 tonn og 384 kr., Hofsós
6,5 tonn og 235 kr., Blönduós 2,1
tonn og 210 kr., Sauðárkrókur
3,6 tonn og 146 kr. og Haganes-
vík 0,3 tonn og 12 kr.
Sauðkrækingar eru efstir á
blaði þegar aflinn sem fluttur er
Hinn árlegi bókamarkaður
Félags íslenskra bókaútgef-
enda er nú senn á leið til Akur-
eyrar og verður að þessu sinni í
kjallara kjörmarkaðar KEA í
Hrísalundi. Markaðurinn verð-
ur opnaður föstudaginn 13.
mars og stendur til sunnudags-
ins 29. mars. Afgreiðslutími í
kjörmarkaðinum mun væntan-
lega breytast um helgar meðan
bókamarkaðurinn verður
starfræktur.
Björn Eiríksson hjá Skjald-
borg og Benedikt Kristjánsson
hjá Máli og menningu voru að
undirbúa flutning á miklum
út í gámum eða landað erlendis
er skoðaður. Heildarafli í þessum
flokki er 1 tonn á hvern íbúa á
Sauðárkróki og aflaverðmætið 96
bókakosti til Akureyrar þegar
Dagur hitti þá að máli. Þeir
sögðu að þetta yrði sannkallaður
risamarkaður og sennilega sá
stærsti til þessa. Titlarnir verða
um 4000 og af öllum stærðum og
gerðum.
„Þetta verður ekki minna í
sniðum en stóri markaðurinn í
Reykjavík þótt hann sé seinna á
ferðinni á Akureyri. Við höfum
grafið upp bækur víða og á þess-
um markaði verður jafnvel
eitthvað af bókum sem ekki voru
á boðstólum fyrir sunnan," sagði
Björn.
„Bækurnar verða á svipuðu
verði og í fyrra og hafa frekar
kr. Siglufjörður er með 0,6 tonn
og 57 kr., Skagaströnd 0,5 tonn
og 56 kr. og Blönduós 0,2 tonn
og 21 kr. SS
lækkað að raunvirði en hitt.
Ódýrustu bækurnar eru á 25 kr.
sem er eiginlega skammarlegt
verð. í vissum tilvikum verða
bækurnar ódýrari en fyrir
sunnan,“ sagði Benedikt.
Á bókamarkaðinum verða
bækur í öllurn flokkum, frum-
samdar og þýddar, skáldsögur,
vísindarit, barnabækur, ævisög-
ur, þjóðlegur fróðleikur og þann-
ig mætti lengi telja. Yngstu
bækurnar hafa lifað tvenn jól en
aðrar eru komnar nokkuð til ára
sinna. Ýmsir bókapakkar verða á
boðstólum og sértilboð í gangi á
hverjum degi, yfirleitt á tak-
mörkuðu magni bóka. SS
Félag íslenskra bókaútgefenda:
Bókamarkaðuriim væntanlegur
til Akureyrar í marsmánuði
- aldrei stærri og verðið allt niður í 25 kr.
, cWntbíll Verð aöeins Kr. 629.00 ,
^srei' 9’ænýr eVt FW— sem NO mmm
1 I _ .....
.asafflffissssrs---
FAV0RIT F0RMAN ERSNiuim ___
7/r#
4 simi
Bílasýning á Alcureyri
Sýnum um helgina
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-17