Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 3
r* « ! C1 i I ÍT^ A fl — Q Laugardagur 7. mars 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Landið er framtíðin: Húsgull með ráðstefiiu um vemdun og endurheimt landkosta - „breyting á hugarfari er lykillinn að lausn vandans,“ segir Árni Sigurbjarnarson Húsgull á Húsavík, samtök um gróðurvernd og uppgræðslu, gengst fyrir ráðstefnu um verndun og endurheimt land- kosta á Hótel Húsavík laugar- daginn 21. mars nk. Ráðstefn- an er haldin undir yfirskriftinni - Landið er framtíðin - hún er öllum opin og vona forsvars- menn HúsguIIs, að bændur, landeigendur, sveitarstjórnar- menn og áhugamenn um land- kosti og landgræðslu fjöl- menni, einnig er vonast til að fólk af Eyjafjarðarsvæðinu og SV-horninu sæki ráðstefnuna. Dagskrá ráðstefnunnar er allr- ar athygli verð, vel skipulögð og fjöldi ráðamanna og sérfræðinga mun flytja ávörp eða fyrirlestra, eða alls 19 manns. Þar á meðal má nefna að Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, mun ávarpa ráðstefnuna. Ráðherrarn- ir Eiður Guðnason og Halldór Blöndal eru meðal fyrirlesara, einnig Björn Sigurbjörnsson, FAO/IAEA, Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, Haukur Hall- dórsson, Stéttasambandi bænda, Ómar Ragnarsson, fréttamaður, Andrés Arnalds, Landgræðslu ríkisins og Gunnar Einarsson, bóndi á Daðastöðum. Á ráðstefnunni verður Land- græðslu ríkisins afhent gjafafé, sem safnað hefur verið til kaupa á raðsáningarvélum til notkunar við uppgræðslu. Með tilkomu slíkra véla verður hrein bylting við sáningu melgresis og lúpínu. „Við þurfum að taka frumkvæðið heim í hérað og vinna orrustuna af jörðu niðri með þeim mannskap sem fyrir er,“ sagði Árni Sigur- bjarnarson, forsvarsmaður Húsgulls, sem hvetur til sam- starfs við bændur. Hver sáningarvél kostar 1,3 milljónir og hefur íslandsbanki þegar ákveðið að gefa eina vél og Hagkaup aðra, en vonir standa til að fleiri gefendur eigi eftir að koma í ljós. Þetta er þriðja ráðstefnan sem Húsgull stendur fyrir, en samtök- in verða þriggja ára þann 18. mars nk. Frá stofnun samtakanna hafa um 200 þúsund plöntur ver- Kirkjuvika í Akureyrarkirkju: Mikill fjöldi á kvöldvöku „Kvöldvaka unga fólksins í safnaöarheimilinu á fimmtu- dagskvöldið fór hið besta fram og var fjölsótt. Hér komu hátt á þriðja hundrað manns að stórum hluta ungt fólk,“ sagði Akureyrarkirkja: Sautjánda kirkju- vika senn að baki Sautjándu kirkjuviku í Akur- eyrarkirkju lýkur um helgina. í dag verða hádegistónleikar í kirkjunni þar sem Björn Stein- ar Sólbergsson leikur orgel- verk og síðan verður léttur hádegisverður í safnaðarheim- ilinu. Kirkjuvikunni lýkur með hátíð- arguðsþjónustu kl. 14 á sunnu- daginn. Séra Bolli Gústavsson, vígslubiskup, prédikar og sókn- arprestar þjóna fyrir altari. Með- hjálpari er Heiðdís Norðfjörð og organisti Björn Steinar Sólbergs- son. Kór Akureyrarkirkju syngur og Hólmfríður Benediktsdóttir og Þuríður Baldursdóttir syngja dúett. Ragnheiður Árnadóttir, formaður sóknarnefndar, slítur kirkjuvikunni. SS sr. Birgir Snæbjörnsson, sókn- arprestur í Akureyrarpresta- kalli. Á kvöldvökunni í safnaðar- heimilinu komu fram in.a. Lúðra- sveit Akureyrar, gítarnemendur úr Hljómskólanum, kór Mennta- skólans á Akureyri og Æskulýðs- félag Akureyrarkirkju. Frey- vangsleikhúsið flutti atriði úr söngleiknum Jesus Christ Super- star. Að lokinni helgistund var útigrillveisla þar sem pylsur voru grillaðar í hundruðatali. Ungl- ingahljómsveit kom fram og félagar úr Hjálparsveit skáta sem og Flugbjörgunarsveitinni voru með sýningaratriði. „Kvöldvakan náði til ungling- anna og var til sóma. A sama tíma gengur sunnudagaskólinn ekki sem best, en við prestarnir ætlum ekki að gefast upp. Um áramót snöggfækkaði börnum er sækja sunnudagaskólann. Algengt er nú að börnin séu um fimmtíu, en á árum áður voru þau um 700. Þetta veldur okkur prestum áhyggjum og við leitum aílra ráða til að bæta hlutina. Kvöldvakan var liður í þeirri viðleitni," sagði sr. Birgir Snæbjörnssom. ój ið gróðursettar í Húsavíkurland, þar af 105 þúsund á síðasta ári. Næsta sumar er fyrirhugað að setja niður 200 þúsund plöntur til viðbótar, í samvinnu við Land- græðsluskóga sem Húsgull hefur starfað með, auk bæjarins og vinnuskóla hans, einstaklinga, félaga og fyrirtækja. Þó ýmislegt hafi verið gert er mikið verk óunnið og þær voru sláandi loftmyndirnar sem Sigur- jón Benediktsson, forsvarsmaður Húsgulls, sýndi á blaðamanna- fundi samtakanna á fimmtudag. Myndirnar voru af Húsavíkur- landi, Mývatnssveit og Hólasandi og Þingeyingum virðist ekki veita af að koma og hlýða á ráð fær- ustu sérfræðinga áður en þeir fara að bretta upp ermarnar í vor. En eins og Árni Sigurbjarn- arson sagði: „Við erum í allt of neikvæðum farvegi og breyting á hugarfari er lykillinn að lausn vandans." IM Kjarvalsstofa í París Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa, sem ætl- uð er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Reykjavíkur- borg, menntamálaráðuneytið og Seðlabanki íslands lögðu fram fé til þess að koma upp slíkri starfsað- stöðu í Parísarborg með samningi við stofnun, sem nefnist Cité Internationale des Arts, og var samning- urinn gerður á árinu 1986. Kjarvalsstofa er í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Sérstök stjórnarnefnd fer með málefni Kjarvalsstofu og gerir hún tillögu um úthlutun dvalartíma þar til stjórnar Cité Internationale des Arts, er tekur endan- lega ákvörðun um málið. Dvalartími er skemmstur 2 mánuðir en lengst er heimilt að veita listamanni afnot Kjarvalsstofu í 1 ár. Þeir sem dvelja í Kjarvalsstofu greiða dvalargjöld er ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts og miðast við kostnað af rekstri hennar og þess búnað- ar, sem þeir þarfnast. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í Parísarborg. Dvalargestir skuldbinda sig til þess að hlíta reglum Cité Internationale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, og jafnframt skuldbinda þeir sig til þess að dvöl lokinni að senda stjórn Kjarvalsstofu stutta greinargerð um störf sín, ef óskað er. Hér með er auglýst eftir umsóknum um afnot Kjar- valsstofu, en stjórnin mun á fundi sínum í apríl fjalla um afnot listamanna af stofunni tímabilið 1. ágúst 1992 til 31. júlí 1993. Skal stíla umsóknir til stjórnar- nefndar Kjarvalsstofu. Tekið er á móti umsóknum til stjórnarnefndarinnar í skjalasafni borgarskrifstof- anna að Austurstræti 16, en þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og afrit af þeim reglum sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu. Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina við þessa úthlutun. Umsóknum skal skila í síðasta lagi 30. mars nk. Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu. UTSALA - UTSALA - ÚTSALA Seljum nokkra uppítökubíla á kostnaðarverði! Verð miðast við beina sölu og staðgreiðslu. Hægt er að kaupa bílana á lánakjörum og bætist þá lántökukostnaður við verð bílana. Verð Ásett verð Ford Escord XR3i árg. ’86 .. 500.000 750.000 Daih. Rocky árg. ’87 ek. 84 þ. . 800.000 1.100.000 Mazda 626 árg. '88 ... 750.000 950.000 Subaru 1800 ST árg. '88 . 650.000 1.050.000 Volvo 740 GL árg. ’85 ... 750.000 950.000 Galant turbo árg. '85 . 550.000 700.000 VW Golf GL árg. '87 ... 550.000 750.000 Lancer GLX árg. '86 . 400.000 550.000 Ford Taunus árg. ’81 ... 70.000 170.000 Subaru st árg. '84 ek. 118 þ. .. . 280.000 450.000 Toyota Camry XL árg. ’87 ... 700.000 850.000 VW Golf árg. ’86 ek. 67 þ . 420.000 550.000 Fiat Uno árg. ’84 ... 100.000 200.000 Fiat Tipo árg. ’89 . 550.000 850.000 Mazda 929 árg. ’82 ... 200.000 350.000 Bílarnir eru allir til sýnis á staðnum Nema bílamir séu með krana. (Frá Þórshöfn.) Mynd: Golli toyota—Bílasalan Stórholt Óseyri 4, sími 23300.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.