Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 10

Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 7. mars 1992 Hann er borinn og barnfæddur Siglfírðingur, tæplega fertugur. Hefur mikinn áhuga á pólitík, einkum öllu er lýtur að Jóni Baldvin og öðrum kratahöfðingjum. Sonur „samvisku Alþýðu- flokksins“ á Siglufírði og því fæddur krati. Er í framvarðar- sveitinni í bæjarpólitíkinni á Siglufírði, kaupmaður og mikill íþróttaáhugamaður. Ahugamaður um loðnuveiðar og -vinnslu og hinn besti tertubakari. Akveðinn - en jafnframt er grunnt á húmornum. Kristján heitir hann L. MöIIer. Sumir Sigl- fírðingar kalla hann Stjána Möller. Við spyrjum fyrst gamaldags spurningar: Hvernig metur þú stöðu Siglufjarðar í dag? „Viö Siglfirðingar höfum lengi búið við samdrátt í atvinnulífinu og því miður hef- ur fólki fækkað hér umtalsvert. Hér eru í dag á bilinu 1700-1800 íbúar og hlutfalls- lega margir þeirra eru á eftirlaunaaldri. Um síðustu bæjarstjórnarkosningar var staða bæjarsjóðs Siglufjarðar orðin mjög alvarleg og það má orða það svo að hann hafi verið kominn á gjörgæslu. Siglufjörð- ur var með skuldsettustu bæjarfélögum landsins. Ég minnist þess að á þeim árum, sem ég starfaði hér sem íþróttafulltrúi, þá fór þáverandi bæjarstjóri út um allan bæ fyrstu sjö, átta daga mánaðarins til að rukka og semja við bankastjóra til þess að eiga fyrir útborgunum launa. Þetta var svona álíka staða og Atli Dam, lögmaður Færeyinga, glímir við. Á þessum árum var mikið framkvæmt hér, en þær fram- kvæmdir voru nær alltaf unnar fyrir lánsfé. Þegar Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála- ráðherra, skipaði síðan nefnd til þess að skoða fjárhagsstöðu sveitarfélaganna, þá fengu menn hér tiltal, því er ekki að neita. Eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar kom í ljós að menn voru sammála um að leggja allt kapp á að bæta stöðu bæjar- sjóðs. Lykillinn að þeirri endurskipulagn- ingu var sala á Rafveitu Siglufjarðar. Menn höfðu einfaldlega engan annan kost. Áður en þing var rofið fyrir síðustu kosn- ingar vorum við fjórir, sem skipuðum við- ræðunefndina fyrir hönd heimamanna, eins og húskettir í Alþingi til þess að ganga frá samningnum og auk þess áttum við marga fundi með RARIK-mönnum í Reykjavík. Út úr þessu kom algjör bylting í fjármálum bæjarins. Við seldum Rafveit- una, þ.m.t. Skeiðsfossvirkjun, dreifikerfið og Hitaveituna og með þeirri sölu lækkuðu skuldir bæjarins um 650 milljónir króna og eru þær nú nettó 40 milljónir, sem þýðir að bæjarsjóður er orðinn mjög vel settur. Á þessu ári nema tekjur hans um 190- 200 milljónum króna og í afgang til fram- kvæmda eru 60-70 milljónir króna. Þessi bætta staða gerir það að verkum að við getum nú loksins hafist handa við ýmsar framkvæmdir sem lengi hafa verið á óska- listanum, s.s. byggingu barnaheimilis, sem menn hafa látið sig dreyma um í 15-20 ár, gengið frá gangstéttum og fleira,“ sagði Kristján. Hann bætti því við að á sínum tíma hafi Rafveitan verið mikið gullegg fyrir Siglufjörð, en því væri ekki að neita að á undanförnum árum hafi veiturnar reynst bæjarbúum erfiður rekstrarbaggi. Þegar sá möguleiki hafi komið upp að selja Rafveituna, og virkjunina þar með talda, hafi mönnum ekki þótt rétt að slá því frá sér. Því verði þó ekki á móti mælt að sum- um eldri Siglfirðingum hafi þótt erfitt að kyngja því að Skeiðsfossvirkjun færi úr umsjá heimamanna. „Ég skil vel að eldra fólk, sem byggði rafveitukerfið hér upp, éigi erfitt með að sætta sig við þetta. En ég held að í dag sé góð sátt um þessa niður- stöðu og fólk sýnir málinu mikinn skilning," sagði Kristján ennfremur. Leiðin hlýtur að liggja upp á við Kristján nefndi hér að framan að hlutfalls- lega margir Siglfirðingar væru á eftirlauna- aldri. Eins og víða í sambærilegum sjáv- arplássum, hefur Siglufjörður átt í erfið- leikum með að fá unga fólkið aftur heim að skólagöngu lokinni. Kristján er bjart- sýnn á að þetta breytist á næstu árum. „Ég hef trú á því að þetta breytist. Auk fjár- hagslegrar endurskipulagningar bæjarins, þá hefur stærsta atvinnufyrirtæki bæjarins, Þormóður rammi, sömuleiðis gengið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Þar eru teknir við stjórninni ungir harð- duglegir heimamenn, sem eru með góðar hugmyndir um rekstur fyrirtækisins. Þarna verður að mínu mati stefnt upp á við. Sigl- firðingur hf., sem rekur frystitogara, geng- ur líka mjög vel og þar stjórna einnig ungir heimamenn. Þá er rækjufyrirtækið Ingi- mundur hf. traust fyrirtæki með eigin báta til þess að afla hráefnis, sem ég tel vera grundvöll fyrir því að rækjuvinnsla gangi eins og málum í þeirri atvinnugrein er háttað í dag. Siglufjörður mun alltaf byggjast á því hversu vel sjórinn gefur og ég hef trú á því að þar stefni upp á við, samanber kaup Þormóðs ramma á Vök- unni. Hinu má þó ekki gleyma að kvóta- samdrátturinn hefur komið illa við okkur eins og aðra. Einnig er vert að minna á rekstrarerfiðleika Síldarverksmiðja ríkis- ins, sem er verkefni sem eftir er að takast á við. En þegar á heildina er litið tel ég að Siglufjörður fari ekki neðar og leiðin hlýt- ur að liggja upp á við. En ég sé Siglufjörð ekki fyrir mér sem þrjú þúsund manna bæjarfélag. Ég tel að þetta sé mjög gott samfélag með um tvö þúsund íbúa.“ Vilja Siglfírðingar fara sínar eigin leiðir? Því hefur oft verið haldið fram að Siglfirð- ingar rekist illa í samstarfi við nágranna- sveitarfélögin. Vegna landfræðilegrar ein- angrunar bæjarins sé tilhneiging hjá Sigl- firðingum að vera út af fyrir sig. I þessu sambandi er m.a. nefnd sú ákvörðun þeirra um árið að segja sig úr Fjórðungs- sambandi Norðlendinga. Hverju svarar Kristján þessu? „Ég verð að segja alveg eins og er að við fundum ekki mikinn plús við að vera í Fjórðungssambandinu og það hefur ekkert háð okkur þó svo að við höfum sagt okkur úr því. Hins vegar er nú verið að ræða um stofnun kjördæmasambanda í stað Fjórð- ungssambandsins og ég er mjög hlynntur þeim. Við höfum átt gott samstarf við sveitarfélög á Norðurlandi vestra, en við viljum líka eiga gott samstarf við nágranna- sveitarfélög við Eyjafjörð; Ólafsfjörð, Dalvík og Akureyri.“ Siglfírðingar eru glaðlegir og opinskáir Kristján var fljótur til svars þegar hann var spurður um hvernig hann myndi lýsa Sigl- firðingum. „Ég hugsa að þeir hafi mótast mjög af því stórveldi sem Siglufjörður var í upphafi þessarar aldar og allt þar til þess að síldin hvarf. Við erum stórhuga fólk sem þykir vænt um bæinn okkar. Það gildir jafnt um þá sem hér búa og brottflutta Siglfirðinga. „Síldarævintýrið“ í sumar vitnaði um það. Siglfirðingar eru mjög opinskátt, og glaðlegt fólk og þeir eru mun

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.