Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 16

Dagur - 07.03.1992, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 7. mars 1992 Tómstundir Dalvískur reiðhjólasmiður: Reimaði skautaskó upp á framgaffalinn - Dagur Óskarsson dundar sér við að breyta reiðhjólum í hin furðulegustu farartæki - og á reyndar ekki langt að sækja áhugann Misjafnt er það sem mennirnir hafast að og á Dalvík heyrðum við af feðgum sem eiga eða hafa átt sér það áhugamál að breyta hjólum. Óskar Pálma- son trésmíðameistari vakti athygli bæjarbúa á sínum yngri árum þegar hann hjólaði um bæinn „einni hæð fyrir ofan“ annað hjólreiðafólk, ef svo má að orði komast. Og af því að eplið fellur sjaldan langt frá eikinni þá ekur Dagur sonur hans nú um götur Dalvíkur á sérsmíðuðu þríhjóli með bíl- sæti. Óskar segist hafa verið fimmtán ára þegar hann sá mynd af svo- nefndu sirkushjóli í tímaritinu Popular Mechanics. „Par var hjólinu snúið við og fótstigið haft þar sem sætið er á venjulegum hjólum. Ég man að ég velti lengi fyrir mér hvernig hægt væri að snúa keðjunni við, en það reynd- ist svo sáraeinfalt þegar til kom. Þetta hjól vakti töluverða athygli á sínum tíma man ég. Félagi minn fékk það einu sinni lánað og var að hjóla eftir Bjarkar- brautinni þegar tveir menn komu akandi á móti honum á Landrover jeppa. Þeim varð svo mikið um að þeir snarstoppuðu og ruku út úr jeppanum til þess að geta skoðað fyrirbærið betur.“ Óskar segist alltaf hafa haft gaman af að dútla við bíla og vél- ar en þetta hafi verið eina hjólið sem hann smíðaði. Nú er hann trésmiður og segist fá útrás fyrir sköpunargleðina þar. Reidhjól með hliðarvagni varð að þríhjóli Dagur sonur hans hefur greini- lega erft dútláhugann frá föður sínum því að sögn Guðnýjar Bjarnadóttur, móður hans, hefur hann alltaf verið að fást við að setja eitthvað saman. „Hann hirti allt, ryðgaða nagla og vírspotta hvað þá annað og vissi alltaf um leið til hvers hann gæti notað það. Hann byrjaði á að setja bíl- stýri á venjulegt hjól, en stýrið fann hann á haugunum. Svo reyndi hann einu sinni að setja segl á sleða til þess að ná meiri hraða.“ Nýkomin ftölsk leðursófasett margar gerðir og litir Marsiglia 3+1 +1 kr. 141.000 staðgreitt Siena 3+1+1 kr. 133.000 staðgreitt Vanti þig húsgögn þá veldu það þesta - það er ódýrara en þú hyggur Opið alla helgina • ÖRKIN HANS NOA Glerárgötu 32 Óskar Pálmason hjólar eftir Skíðabrautinni á Hákoni. „Þetta var sterklegt hjól enda af Möve-gerð,“ segir hann. „Það gekk nú ekki upp,“ segir Dagur. Hann er á fimmtánda ári og er í níunda bekk Dalvíkur- skóla. Auk þríhjólsins sem áður var nefnt á hann hjól sem svipar mjög til þess sem faðir hans breytti á sínum yngri árum. Reyndar segir Óskar að áhugi Dags á því að breyta hjólum hafi kviknað þegar hann sá mynd af honum á Hákoni eins og hjólið hans var kallað. „Ég byrjaði á að búa til háa hjólið í fyrra,“ segir Dagur. „Svo gerði ég þríhjólið. Það byrjaði eiginlega á því að ég setti hliðar- vagn á venjulegt reiðhjól, svona eins og þýsku mótorhjólin. Það heppnaðist ekki nógu vel svo ég breytti því í þríhjól. Framhjólið á því er raunar afturendi af litlu reiðhjóli en að aftan eru tveir framgafflar af reiðhjólum. Svo lengdi ég á milli afturhjólanna til þess að koma fyrir sæti úr gamalli VW-bjöllu. Stýrið er líka úr bíl en það eru afturhjólin sem beygja. Við þetta hjól er ég svo búinn að smíða litla kerru.“ Líka áhuga á tónlist og útivist Eins og áður segir hefur Dagur fengist við alls kyns smíðar og dútl frá barnsaldri. Faðir hans kemur með kíki sem er samsettur úr plaströrum og tveim speglum úr snyrtiveski. Með honum er hægt að kíkja fyrir horn og fylgj- ast með fólki í laumi út um gluggann, eins og þeir feðgar benda blaðamanni á og glotta. Kíkirinn er tryggilega reyrður saman með límbandi. „Hér á heimilinu er aldrei til límband, Dagur klárar það alltaf,“ segir Óskar. Dagur á sér fleiri áhugamál en smíðarnar því hann hefur leikið á gítar í tveimur rokkhljómsveit- um, Beyglunni og Dýrinu, en sú síðarnefnda er nýbúin að leggja upp laupana að hans sögn. Og svo er hann áhugamaður um úti- vist og vetraríþróttir sem hann stundar með skátunum og björg- unarsveitinni. Þegar hann var yngri iðkaði hann skíðaæfingar af kappi en nú er áhuginn á skíðun- um heldur minni. Þegar hann fer í fjallið er það aðallega til að renna sér á svonefndum Big- Foot-skíðum en þau eru stutt og breið. En smíðaáhuginn tengist öðrum áhugamálum hans. „Einu sinni smíðaði ég gaffal framan á hjól sem var með skaut- um í stað hjóls. Raunar byrjaði þetta á því að ég tók hjólið af, smeygði skautaskó upp á gaffal- inn og reimaði hann fastan. Þetta vakti mikla athygli. Seinna próf- aði ég líka að setja skíði framan á hjól.“ Fer kannski í bifvélavirkjun En hvernig fer hann að þessu? Þetta hlýtur að krefjast mikils tækjabúnaðar. »Ég á nú ekki mikið af tækjum. Enda fæ ég aðstoð við allar suður á járni. Þá fer ég ann- að hvort á Bílaverkstæði Dalvík- ur eða í Vélvirkja en þeir hafa verið mér mjög hjálplegir,“ segir Dagur. Raunar nær sú hjálpsemi til fleiri kynslóða í fjölskyldunni því Óskar naut líka aðstoðar á Bílaverkstæðinu þegar hann var að búa til Hákon. Það er greinilegt á öllu að Dag- ur þarf ekki að kvíða aðgerðar- leysinu, enda kvarta foreldrarnir yfir því að það sé aldrei hægt að fá hann til að líta eftir litla bróður sínum sem er fjögurra ára. „Það eru greinilega of fáar klukku- stundir í sólarhringnum fyrir hann,“ segir móðir hans. En hver eru framtíðaráform Dags? Ætlar hann að leggja fyrir sig eitthvert handverk? „Ég veit það nú ekki. En það gæti vel verið að ég færi í bifvéla- virkjun eða vélvirkjun," segir þessi ungi hugvitsmaður. -ÞH Þarna er kominn nýr Hákon. Dagur Óskarsson á þríhjólinu sem átti að verða reiðhjól með hliðarvagni. Myndir: -ÞH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.