Dagur - 07.03.1992, Side 24

Dagur - 07.03.1992, Side 24
Helgarveðrið á Norðurlandi: Sunnan andvari og dagar útivistar „Allt á sömu nótum. Þið eruð lukkunar pamfflar Norð- lendingar,“ sagði veðurfræð- ingurinn á Yeðurstofu íslands er Dagur spurðist fyrir um helgarveðrið á Norðurlandi. Veðurspá Veðurstofu íslands gerir ráð fyrir suðlægum áttum yfir helgina. Úrkomulaust verð- ur og hitastig rokkandi um núll- ið á Norðurlandi. Því ættu skíðamenn að njóta sín í Hlíð- arfjalli svo framarlega að þeir fari með gát þar sem snjór er ekki mikill. Hestamenn ættu einnig að njóta helgarinn. Upp- lagt er að fara í lengri reiðtúra og teygja á gæðingunum. Sem sagt, helgin er hliðholl útivist- arfólki hvað svo sem það hefur fyrir stafni. ój Umhverfisráðuneyti skipar nefnd um löggildingu iðnmeistara: Ákveðiim áfangasigur hjá Hauki Byggðasaga Eyjafjarðar: Steftit á útgáfti fyrir næstu jól Stefnt er að því að ný útgáfa af „Byggðum Eyjafjarðar“ komi út á þessu ári. Bindin verða tvö og hafa að geyma upplýsingar um ábúendur á bæjum og ábúendasögu bæja við Eyja- fjörð ásamt samantekt um sögu Búnaðarfélags Eyjafjarð- ar frá 1970. Að sögn Guðmundar Stein- dórssonar, sem sæti á í ritnefnd byggðasögunnar, er lögð áhersla á að bækurnar komi út fyrir næstu jól, þ.e. á 60 ára afmælisári búnaðarsambandsins. Guðmundur segir ljóst að útgáfan nú sé stórfyrirtæki á þessu sviði. Allar myndir í bókunum verða í lit og verða birtar myndir bæði af bæjum og ábúendum. Upplýsingar í bókun- um verða miðaðar við árslok 1990. í bókunum verður lögð opna undir hvern bæ þar sem á annarri síðunni verður litmynd af við- komandi ásamt með sögu jarðar- innar. Á hinni síðunni verður mynd af ábúendum ásamt með upplýsingum um þá og ábúenda- tali. Þá verður í bókinni samantekt um sögu Búnaðarsambands Eyjafjarðar frá 1970-1990 sem er nokkurs konar viðbót við þá sögu sem birtist í „Byggðum Eyja- fjarðar" árið 1972. JOH Lágheiði fær öQum bifreiðum Um miðjan dag í gær var Lágheiðin milli Ólafsfjarðar og Fljóta opnuð fyrir allri umferð, en slíkt er óvana- legt á þessum árstíma. „Að undanförnu hefur Lág- heiðin verið ýmist lokuð eða fær fjórhjóladrifsbifreiðum. í gærmorgun voru snjóruðn- ingstæki send upp á heiðina. Er birti af degi var heiðin orð- in fær öllum bifreiðum og svo verður meðan góðviðrið helst,“ sagði Sigurður Jónsson hjá Vegagerðinni á Akureyri. _____________________ój Landsbankinn: ViQ selja eða leigja húsnæði á Gleráreyrum Landsbanki íslands hefur auglýst til sölu eða leigu húseignir á Gleráreyrum á Akureyri, sem Álafoss hafði áður til umráða. Samtals er um að ræða á milli 3200 og 3300 fermetra húsnæði. í fyrsta lagi er um að ræða svokallað austurhús, sem er um 1240 fermetrar, auk 200 fermetra kjallara. í annan stað svonefnt lagerhús, sem er um 550 fermetrar að stærð. í þriðja lagi 2. hæð Gefjunar- hússins gamla, 670 fermetrar, og í fjórða lagi 3. hæð í Gefj- unarhúsinu, samkomusalir, samtals um 580 fermetrar. óþh Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið að skipa nefnd til þess að fara ofan í saumana á lög- gildingarmálum iðnmeistara. í nefndinni, sem ekki er búið að skipa, er gert ráð fyrir að sitji fulltrúar ráðuneytisins, iðnað- arráðuneytis, Landssambands iðnaðarmanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þessi nefnd er sett á laggirnar í fram- haldi af löggildingarmáli Hauks Adólfssonar, pípulagn- ingameistara á Akureyri. Eins og kunnugt er fékk Hauk- ur ekki vatni hleypt á þær íbúðir sem hann vann við í Hafnarfirði og var þar vísað til úreltra ákvæða f reglugerð um Hitaveitu Reykjavíkur. Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi skaut málinu til umhverfisráðu- neytisins og óskaði eftir áliti þess á málinu. í bréfi ráðuneytisins, dagsettu 24. febrúar sl., segir að það telji sig ekki geta tekið fram fyrir hendur byggingarnefnda þegar um sé að ræða mál er varði löggildingu iðnmeistara. Hins vegar segir í bréfinu að í ljós hafi komið að ósamræmi ríki við meðferð löggildingarmála í land- inu og því sé nauðsynlegt að kanna hvort ekki sé „rétt og unnt að koma á samræmdri meðferð þessara mála.“ Eins og fram hefur komið er Haukur með löggildingu í Hafn- arfirði, þar sem hann vann að stóru verki. Hins vegar var á brattan að sækja í Reykjavík. Nú hefur borgarráð Reykjavíkur og borgarstjóri gefið út skriflega að Haukur hafi full réttindi í Hafn- arfirði og þvf beri Hitaveitu Reykjavíkur að veita honum þá þjónustu sem hann þarf við verk hans í Hafnarfirði. Haukur Adólfsson var að von- um ánægður með þessa niður- stöðu og sagði hana staðfesta eins og hann hafi alltaf haldið fram að löggilding hans sem pípulagn- ingameistari á Akureyri gildi alls staðar á landinu. óþh Halli á rekstri Flug- félags Norður- lands á síðasta ári Halli varð á rekstri Flugfélags Norðurlands á árinu 1991 og segir Sigurður Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri, að skýring- arnar liggi fyrst og fremst í því að félagið keypti nýja flugvél á árinu, Fairchild Metro, og hóf flug á tveimur nýjum áætlunar- leiðum með tilheyrandi stofn- kostnaði. „Fyrir utan þetta þá hefur árið verið svolítið erf!tt,“ sagði Sigurður. Hann vildi ekki nefna neinar tölur um reksturinn á síðasta ári enda hefur aðalfundur Flugfélags Norðurlands ekki verið haldinn. Á undanförnum árum hefur félagið yfirleitt skilað töluverðum hagnaði en þó hafa verið sveiflur í rekstrinum. „Síðasta ár er að mörgu leyti óvenjulegt og skýringin á lakari afkomu tengist að hluta til því að við erum búnir að kaupa nýja vél og einnig að við byrjuðum á tveimur nýjum áætlunarleiðum, frá Akureyri til Keflavíkur og frá Húsavík til Reykjavíkur. Allt þýðir þetta kostnað áður en það fer að skila okkur einhverjum arði, en við bindum miklar vonir við þetta allt saman,“ sagði Sigurður. Aðspurður sagði hann að vet- urinn hefði verið býsna erfiður rekstrarlega séð en bjartara væri framundan. Flugfélagið er með góðan vélakost sem ekki fullnýt- ist yfir vetrarmánuðina og því hefur FN getað leigt Flugleiðum vélar að undanförnu, en vegna bilunar í Ásdísi og endurnýjunar á flugflotanum í innanlandsflug- inu hafa Flugleiðir verið með of fáar vélar í ferðum. „Við höfum bæði verið með Twin Otter og Metroinn í ferðum fyrir Flugleiðir. Twin Otterinn var hjá þeim í þrjá daga núna en Metroinn hefur farið stakar ferðir. Við höfum hlaupið undir bagga öðru hverju í vetur,“ sagði Sigurður. SS Stefna vaxtarræktarmanna á hendur Pétri Péturssyni heilsugæslulækni: Frávísun bæjarþings Akureyrar kærð til Hæstaréttar Olafur Sigurgeirsson, lögmað- ur 35 vaxtarræktarmanna í máli þeirra gegn Pétri Péturs- syni heilsugæslulækni á Akur- eyri, kærði nú fyrir helgina til Hæstaréttar frávísun bæjar- þings Akureyrar á málinu. Áður hafði Ólafur lýst því yfir að Iækninum yrði stefnt að nýju en segir nú að eftir að hafa skoðað ýmsa eldri dóma Hæstaréttar hafi hann fulla ástæðu til að ætla að rétturinn hnekki frávísun bæjarþings Akureyrar. í kæru sinni til Hæstaréttar set- ur Ólafur fram þær kröfur að frávísunardómi bæjarþings Akureyrar verði hrundið og lagt verði fyrir héraðsdómara að leggja efnisdóm á málið. Enn- fremur eru þær kröfur í kæru Ólafs að stefnendum í héraði, þ.e. vaxtarræktarmönnunum 35, verði dæmdur hæfilegur kæru- málskostnaður. „Eftir að hafa skoðað hæsta- réttardóma undangenginna ára- tuga sé ég ekki hvernig annað á að ganga en mál þetta verði tekið til efnismeðferðar. Mér sýnist að Hæstiréttur hljóti að hnekkja þessum frávísunardómi," segir Ólafur. Ólafur segir einnig í kæru sinni að á það verði ekki fallist að málatilbúnaður stefnenda, þ.e. vaxtarræktarmannanna, samrým- ist ekki lagaákvæðum. Á þessu hafi frávísunarkrafa verjanda Péturs Péturssonar verið byggð og á hana var fallist. Ólafur segir að þau ummæli heilsugæslulækn- isins sem krafist var refsingar fyrir séu sérstaklega undirstrikuð og aðgreind í stefnunni og heimfærð til lagagreina. Málatilbúnaður hafi því af hálfu stefnenda verið mjög glöggur. Ólafur hefur sent héraðsdóm- ara á Akureyri kæruna en dómar- ans er að ganga frá dómsgerðum ög fá greinargerð frá lögmanni Péturs Péturssonar og að því búnu fer málið til Hæstaréttar. Pessi vinna kann að taka ein- hverjar vikur þannig að niður- stöðu um hvort frávísun bæjar- þings á málinu stendur eða ekki er ekki að vænta á næstunni. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.