Dagur - 10.03.1992, Side 3
seer aiao-i .O'c irjuebuiöh^ - RUÐAG - 5
Þriðjudagur 10. mars 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Bæjarstjórn Húsavíkur:
„Teljum að hagsmuuir bæjarfélagsins
og íbúa hans fari saman“
segir í svarbréfi til Verkalýðsfélags Húsavíkur
„Við teljum að fyllsta aðhalds
hafi verið gætt við gerð fjár-
hagsáætlunar án þess að
skerða lögboðnar kröfur og
óskir íbúa bæjarins um
ákveðna þjónustu. Enn fremur
er rétt að minna á bein framlög
bæjarfélagsins til atvinnulífs á
Húsavík, til að tryggja atvinnu
og til að reyna að halda uppi
verðmæti eigna bæjarbúa.
Þannig teljum við að hagsmun-
ir bæjarfélagsins og íbúa hans
fari saman og að fólkið fái sína
fjármuni til baka í þjónustu og
því mannlífi sem við búum
okkur sameiginlega hér á
Húsavík.“ Svo segir í svarbréfi
Bæjarstjórnar Húsavíkur til
Verkalýðsfélags Húsavíkur,
varðandi fasteignagjöld og
gjaldskrár hjá Húsavíkurbæ,
Hafrannsóknastofnun:
Áhrifa hlýsjávar
gætir á norðurmiðiiin
ástand sjávar við landið svipað og fyrir ári
Hafrannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson hefur nýlokið
árlegum sjórannsóknaleiðangri
á miðunum umhverfis landið.
Heildarniðurstöður leiðang-
ursins sýna meira eða minna
venjulegt árferði í hlýja sjón-
um og innstreymi hans á norð-
urmið er í líkingu við það sem
var í febrúar á síðasta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hafrannsóknastofnun í gær er
hlýsjórinn fyrir Suður- og Vestur-
Iandi heldur undir meðallagi að
hita. Áhrifa hans gætti á norður-
miðum allt austur að Siglunesi
eins og sl. vetur en það var breyt-
ing til batnaðar frá því sem var á
árunum 1988-1990. Skilin milli
kald- og hlýsjávar voru í vetur
einnig langt undan fyrir norðan
og austan land og hvergi gætti
pólsjávar í efri lögum sjávar í
Austur-íslandsstraumi. Er það í
góðu samræmi við lítinn eða engan
hafís á miðunum við landið í vet-
ur og er svo að vænta áfram í vet-
ur og vor.
í Ieiðangrinum mældist hitastig
sjávar fyrir Austfjörðum heldur
lægra nú en sl. vetur en djúpt út
Bylgja VE-75:
Prófanir
gengu vel
Bylgja VE-75 var í veiðarfæra-
prófunum fyrir Norðurlandi
um helgina og gengu þær ágæt-
lega, að sögn Sigurðar Ring-
sted, forstjóra Slippstöðvar-
innar. Skipið verður líklegast
afhent síðar í vikunni.
„Þetta gekk eins og til stóð.
Auðvitað eru mörg smáatriði sem
þarf að lagfæra enda eru þessir
túrar farnir til að finna þau. En
að öðru leyti held ég að menn
hafi verið ánægðir," sagði Sigurð-
ur.
Hann sagði að það skýrist í dag
hvenær skipið verði afhent en lík-
legast verði það síðar í vikunni.
Það ráðist af því hvernig gangi að
fara yfir þau atriði sem fram hafi
komið í prófununum. JÓH
DAGUR
Akureyri
S 96-24222
Norðlenskt dagblað
af Austfjörðum, á svokölluðu
Rauða torgi, gætti hlýsjávar að
sunnan. Skilin milli kald- og hlý-
sjávar við Suðausturland voru að
vanda í Lónsbug og hitastig
grunnt með Suðurlandi, á loðnu-
slóð, var yfir 6 gráðum, en á Sel-
vogsbanka var hitstig sjávar
fremur lágt og selta einnig sem
sýnir mikil áhrif ferskvatns-
rennslis frá landi.
Ástand sjávar á miðunum
verður næst kannað í árlegum
vorleiðangri Hafrannsóknastofn-
unar í maí næstkomandi. JÓH
en VH mótmælti hækkunum á
þeim í bréfi 19. feb. sl.
í svarbréfi bæjarins er það leið-
rétt að fasteignagjöld hafi hækk-
að um 15% og fram kemur að
fasteignagjöld hafi hækkað um
6,2%, en um 10% ef einungis
íbúðarhúsnæði er tekið.
Því er haldið fram að það veiki
mjög trúverðugleika samanburð-
ar í bréfi VH að bera saman
Húsavík og Reykjavík, sem hafi
sérstöðu meðal sveitarfélaga á
landinu, fyrst og fremst vegna
þess vægis er aðstöðugjald hefur í
tekjuöflun Reykjavíkur.
Samanburður fasteignagjalda
er talinn óraunhæfur þar sem hol-
ræsagjald sem vegur 17% á
Húsavík í dæmi VH er ekki inn-
heimt með fasteignagjöldum í
Reykjavík. Þar er aftur á móti
gatnagerðargjald af fjölbýlishúsi
240,9% hærra en á Húsavík.
Með bréfi bæjarstjórnar fylgir
yfirlit yfir breytingar á gjald-
skrám fyrir þjónustu á vegum
bæjarins og útborguð meðallaun
á tímabilinu 1988-1992. Sam-
kvæmt þessum upplýsingum hafa
launin hækkað um 42% á tíma-
bilinu, en barnagæsla um 56%,
Tónlistarskóli um 38%, Sundlaug
um 42%, Heitt vatn um 36% og
rafmagn um 53%. Einnig er með-
fylgjandi samanburður á sömu
gjaldskrám í mars 1992, milli
kaupstaða á Norðurlandi og þar
kemur fram að Húsavík er alls
staðar í lægri kantinum. IM
VERKALYÐSFÉLAGIÐ
EINING
Einingarfélagar
Nú skal halda
félagsmálanámskeið
Nú er tækifæri til að læra hvernig á að koma fram í
ræðustól.
Fræðslunefnd Vlf. Einingar mun halda félagsmála-
námskeið dagana 13. til og með 15. mars n.k. að
Skipagötu 14, 2. hæð.
Námskeiðið stendur yfir:
föstudag frá kl. 20.00-22.30
laugardag frá kl. 09.00-17.00
sunnudag frá kl. 10.00-16.00
Farið verður í undirstöðu ræðumennskunnar, svo
sem að semja ræðu, ræðuflutning, framkomu í
ræðustól, þátttöku í umræðum, rökræður, fundar-
reglur og fundarstjórn. Einnig verður leiðbeint um
framsögn og raddþjálfun.
Þátttakendur vinna í hópum og æfingar eru léttar
og skemmtilegar. Kennslugögn verða bókin „Þú hef-
ur orðið“ og einnig fjölritað efni.
Leiðbeinendur verða frá Menningar og fræðslu-
sambandi Alþýðu.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 18.
Námskeiðið er félagsmönnum að öllu leyti að kostn-
aðarlausu. Tilkynning um þátttöku þarf að hafa bor-
ist til skrifstofu Einingar fyrir kl. 17.00 fimmtudaginn
12. mars n.k. í síma 23503.
Fræðslunefnd Einingar.
ATT ÞU MYND AF SJALFUM ÞER?
jÍ/lí í * Jt ’ 5
Á aldarfjórðungs afmæli
Ljósmyndastofu Páls 1992
fá viðskiptavinir stækkaða mynd
í kaupbæti með öllum
passamyndatökum.
Vonir góðar við það bind,
að verði að litlu máli,
fái í skyndi skýra mynd,
í skírteinið hjá Páli.
Þ.E.
1967H
1992 I____
LJÓSMYNDASTOFA
SKIPAGÖTU 8 • AKUREYRI • SÍMI 96-23464