Dagur - 10.03.1992, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 10. mars 1992 - DAGUR - 7
PemiUe Viberg til íslands
Pernille Viberg, núverandi
heimsmeistari og nýbakaður
ólympíumeistari í stórsvigi,
verður meðal keppenda í
alþjóðlegum mótum sem
Skíðasambandið gengst fyrir
á íslandi í apríl. Fyrstu mótin
verða á Akureyri 11.-13.
/apríl.
Pernille Viberg frá Svíþjóð er
nú í 4. sæti á afrekalista FIS í
svigi og 3. sæti í stórsvigi. Með
henni kemur Kristina Anderson
sem er í 13. sæti í svigi og 20. í
stórsvigi á sama lista.
Alls verða haldin 6 alþjóðleg
mót á íslandi í apríl og verða
þrjú fyrstu í Hlíðarfjalli en hin
þrjú á ísafirði og í Reykjavík.
Gott hjá Kristni
Kristinn Björnsson frá Ólafs-
firði náði nýlega frábærum
árangri á stórsvigsmóti í Taern-
by í Svíþjóð. Hann hafnaði í 10.
sæti og hlaut fyrir það 34,05
punkta sem er hans langbesti
árangur í greininni. Sigurvegari
varð Johan Wallner frá Svíþjóð
á 2:34,12 en Kristinn hlaut tím-
ann 2:36,66.
Dramatískur úrslitaleikur Magna og Hattar:
Magna, og brosti út að eyrum.
„Mér var ekki rótt á síðustu
mínútunni þegar við gátum klár-
að leikinn en ég er búinn að fyrir-
gefa Kristjáni. Við setjum stefn-
una á að halda sætinu í 3. deild,
það gekk ekki sl. sumar en nú
höfum við tækifæri til að laga það
sem fór úrskeiðis þá,“ sagði Nói.
Hilmar Gunnlaugsson, einn
besti leikinaður Hattar, var að
vonum svekktur í leikslok og
sagði ömurlegt að tapa svo þýð-
ingarmiklum leik í vítaspyrnu-
keppni. „Það er eiginlega ekki
hægt að spila knattspyrnu við
svona aðstæður og ekki hægt að
búast við miklu. Við erum búnir
að finna smjörþefinn af 3. deild-
inni og setjum stefnuna þangað í
sumar.“ -bjb
Lið Magna: ísak Oddgeirsson, Ingólfur
Ásgeirsson, Reimar Helgason, Jón
Illugason, Stefán Gunnarsson, Ólafur
Þorbergsson, Jóhannes Ófeigsson, Þor-
steinn Friðriksson, Magnús Helgason
(Jón Ingólfsson á 139. mín.), Bjarni
Áskelsson, Kristján Kristjánsson.
Lið Hattar: Baldur Bragason, Freyr
Sverrisson, Þórarinn Jakobsson. Eysteinn
Hauksson, Hilmar Gunnlaugsson. Jón
Kristinsson, Kári Hrafnkelsson. Harald-
ur Clausen, Hörður Guðmundsson.
Jónatan Vilhjálmsson, Kjartan Halldórs-
son.
Gul spjöld: Stefán Gunnarsson, Magna.
Dómari: Bragi Bergmann. Dæmdi vel.
Kristján Kristjánsson, fráfarandi þjálfari Magna, hélt upp á 32 ára afmælisdag sinn með því að skora sigurmark
Magna úr síðustu vítaspyrnunni. Mynd: Goiii
aði Hött frá Egilsstöðum í
aukaleik um sæti í deildinni
sem losnaði við gjaldþrot ÍK
fyrr í vetur. Leikurinn fór fram
á sandgrasvellinum í Kópavogi
og réðust úrslitin ekki fyrr en í
vítaspyrnukeppni þar sem
jafnt var eftir venjulegan leik-
tíma og framlengingu, 1:1.
Lokatölur urðu 6:5 og fráfar-
andi þjálfari Magna, Kristján
Kristjánsson, kvaddi liðið með
því að skora sigurmarkið úr
síðustu vítaspyrnunni. Þess má
geta að Kristján varð 32 ára
þcnnan dag og úrslitin því
ánægjuleg afmælisgjöf fyrir
hann.
Leikurinn á laugardag fór fram
við vægast sagt hörmulegar
aðstæður, mikið rok og slagviðri
sem setti mark sitt á það sem
fram fór. í fyrri hálfleik hafði
Höttur sterkan vind skáhallt í
bakið og sótti meira á mark
Grenvíkinga. Strax á 8. mínútu
skapaðist hætta við Magnamark-
náði forystunni fyrir Hött á 21.
mínútu eftir að markvörður
Magna, Isak Oddgeirsson, hafði
varið fast skot Freys Sverrissonar
en misst boltann fyrir fætur
Jónatans.
Á 29. mínútu fékk Kristján
Kristjánsson tækifæri til að jafna
í einum af örfáum sóknum Gren-
víkinga í fyrri hálfleik en skot
hans fór framhjá. Skömmu
seinna átti Freyr Sverrisson
þrumuskot í stöng Magnamarks-
ins og rétt fyrir hlé varði ísak tví-
vegis með tilþrifum þannig að
segja má að Magnamenn hafði
mátt þakka fyrir að fá ekki á sig
fleiri mörk í fyrri hálfleik.
Eftir hlé gekk Kári til liðs við
Magna og strax á 48. mínútu
jafnaði Ólafur Porbergsson met-
in með góðu skoti frá vítateigs-
línu. Eftir það jókst vindurinn
enn frekar og fór leikurinn að
mestu fram við aðra hliðarlínuna
en þó áttu Grenvíkingar mun
fleiri sóknir. Fátt markvert gerð-
ist þó fyrr en á síðustu mínútunni
markstöngina - vitlausu megin -
og því þurfti að framlengja.
Á 1. mínútu framlengingar var
Höttur nálægt því að skora með
skoti frá miðjum velli en ísak
varði vel í horn. Eftir þetta áttu
liðin hvort sitt marktækifærið en
bæði fóru í súginn og því var
flautað til vítaspyrnukeppni. Þar
skoruðu Magnamenn úr öllum
sínum skotum en ein spyrna
Hattar fór himinhátt yfir og
Grenvíkingar fögnuðu sigri.
Mörk Magna í vítakeppninni
skoruðu Ölafur Þorbergsson,
Stefán Gunnarsson, Jón Ingólfs-
son, Bjarni Áskelsson og Kristj-
án Kristjánsson en fyrir Hött
skoruðu Hilmar Gunnlaugsson,
Hörður Guðmundsson, Eysteinn
Hauksson og Kári Hrafnkelsson
en' hinn óheppni var Kjartan
Magnússon.
„Skemmtileg byrjun“
„Þetta er skemmtileg byrjun,“
sagði Nói Björnsson, nýr þjálfari
Kristján
í Þór
Kristján Kristjánsson, sem
skoraði úr síðustu víta-
spyrnu Magna í leiknum,
lék sinn síðasta leik með
Magna, a.m.k. í bili. Kristján
hefur ákveðið að skipta í
Þór en hann lék með liðinu
um árabil og er næst marka-
hæsti leikmaður félagsins í
1. deild frá upphafí.
Kristján, sem hélt upp á 32ja
ára afmælisdag sinn á laugar-
daginn, sagði við blaðamann
eftir leikinn: „Ég hef ákveðið
að skipta í Þór og spila með
liðinu í sumar ef not verða fyr-
ir mig. Ég er bjartsýnn og tel
mig eiga fullt erindi í 1. deild-
ina aftur. Liðið er vel spilandi
og ég hef trú á að þaö eigi eftir
að spjara sig í 1. deildinni,
ekki síst ef Bjarni Sveinbjörns
verður jafn frískur og hann
hefur verið upp á síðkastið. Þá
held ég að Sveinbjörn Hákon-
ar eigi eftir að hafa góð áhrif á
liðiö.“
Kristján spilaði síðast með
Þór í 1. deild 1989 en að því
tímabili loknu tók hann viö
þjálfun hjá Magna. Hann hef-
ur leikiö alls 116 leiki í 1. deild
og skorað í þeim 27 rnörk,
fleiri en nokkur annar Þórsari
að Halldóri Áskelssyni undan-
skildum en hann hefur skorað
31 mark.
Magni áfiram í 3. deildimii
^ V . ^ — rt m S . 1 •
sigraði 6:5 eftir vítaspyrnukeppni
Magni frá Grenivík leikur áfram
í 3. deild Islandsmótsins í
knattspyrnu. Þetta varð Ijóst á
laugardaginn þegar liðið sigr-
ið þegar fyrirgjöf fauk í þverslána
og skömmu seinna áttu Hattar-
menn skot rétt framhjá. Það var
svo Jónatan Vilhjálmsson sem
þegar Kristján fékk kjörið tæki-
færi til að gera út um leikinn fyrir
Magna, komst einn inn fyrir vörn
Hattar en skot hans sleikti aðra
Blak:
- einnig samstarfsörðugleikar
hans og karlanna
Óánægja hefur ríkt með störf
Shao Baolins, hins kínverska
þjálfara KA-liðanna í blaki.
Samkvæmt óskum frá leik-
mönnum kvennaliðsins hefur
Baolin hætt afskiptum af því
en hann mun að öllum líkind-
um þjálfa karlana til loka
tímabilsins. Það samstarf hef-
ur þó ekki gengið áfallalaust
og á föstudagskvöldiö sauð
upp úr og Baolin fór heim
áður en leikur KA og Skeiða-
manna hófst.
Bjarni Þórhallsson, formaður
blakdeildar KA, sagði rétt að
óánægja hefði ríkt með störf
Baolins og væru nokkrar ástæð-
ur fyrir því. „í fyrsta lagi hefur
okkur fundist hann ekki sinna
starfinu sem skyldi og hann hef-
ur alltof oft komið óundirbúinn
á æfingar. Þar er þó ekki alfarið
við hann að sakast því karla- og
kvennaliðin eru oftast saman á
æfingum, allir aðilar hafa verið
ósáttir við það fyrirkomulag og
þetta hefur gert honum erfitt
fyrir. Það spilar einnig fleira inn
í eins og tungumálaerfiðleikar,
ólíkur hugsunarháttur og deilur
vegna peningamála. Það er hins
vegar rétt að fram komi að ekki
Shao Baolin.
hafa allir verið óánægðir með
hann. Það var ákveðið að hann
yrði ekki áfram með kvennalið-
ið en hann mun þjálfa karlaliðið
til loka tímabilsins. Okkur
finnst ekki vera ástæða til að
skipta um þjálfara mánuði áður
en mótinu lýkur,“ sagði Bjarni.
Hrefna Brynjólfsdóttir hefur
þjálfað kvennaliðið að undan-
förnu en ekki hefur verið
ákveðið hvert framhaldið
verður.
Shao hættur með
kvennalið KA